Dagur - 27.01.1996, Síða 20
Akureyri, laugardagur
27. janúar1996
Kópasker:
Hollustu-
vernd
skoðar
sorpurð-
unarstað
Næstkomandi mánudag er
væntanlegur til Kópaskers
fulltrúi frá Hollustuvernd ríkis-
ins til þess að taka út nýjan
sorpurðunarstað, en um skeið
hefur sorpi verið brennt í sorp-
brennsluofni, en sú starfsemi
hefur verið háð bráðabirgðaleyfi.
Ingunn St. Svavarsdóttir, sveit-
arstjóri Öxarfjarðarhrepps, segir
að sorp hafi áður verið urðað
skammt frá núverandi flugvelli, en
því hafi verið hætt vegna hættu
sem flugvélum stafaði af flugi
máva yfir vellinum. Til bráða-
birgða segir Ingunn að hafi verið
veitt leyfi til brennslu heimilis-
sorps, en það sé ekki lausn til
frambúðar. Því sé nú horft til þess
að allt sorp verði urðað á gamla
flugvallarsvæðinu og er ætlunin
að fulltrúi frá Hollustuvemd skoði
það svæði nk. mánudag.
Ingunn segir að áður en langt
um líður verði boðin út sorphirða
og sorpeyðing í sveitarfélaginu.
óþh
Skrifstofa Dags
á Húsavík:
Kristín Linda
ístarfi
blaðamanns
Vegna veikindaforfalla hefur
skrifstofa Dags á Húsavík
verið lokuð síðustu tvær vikur
en frá og með mánudegi mun
Kristín Linda Jónsdóttir sinna
hlutastarfi fyrir blaðið á Húsa-
vík og í Þingeyjarsýslum.
Kristín Linda mun jöfnum
höndum vinna á skrifstofunni á
Húsavík og á heimili sínu að Mið-
hvammi í Aðaldal, þaðan sem hún
er í tölvusambandi við ritstjóm á
Akureyri. Kristín Linda er fyrrum
blaðamaður á Degi og var um-
sjónarmaður helgarblaðs þar til
síðasta sumar.
Fastur opnunartími skrifstof-
unnar á Húsavík verður í viku
hverri á mánudögum og fimmtu-
dögum milli kl. 11 og 14 og þar er
sími 464-1585. Sími Kristínar
Lindu í Miðhvammi er 464-3521.
Faxsími á Húsavík er 464-2285.
Um dreifingu blaðsins á Húsa-
vík sér Sigrún Kjartansdóttir,
Skólabrekku 9, og er heimasími
hennar 464-2009. JÓH
@ HELGARVEÐRIÐ
Um helgina spáir Veður-
stofa íslands hægri vestan-
og suðvestan átt með éljum
á vestanverðu landinu og 2-
7 stiga frosti. Úrkomulaust
verður á sunnudag og víða
bjartviðri um norðaustanvert
landið. Á mánudag gengur í
hæga norðanátt með éljum
norðan- og vestanlands.
Frost verður á bilinu 5-9
stig.
Greiðsluyfirlit vegna skattframtals
- ný og bœtt þjónusta
Góð sending frá
Húsnœðisstofnun
Sent hefur verið yfirlit til allra lántakenda
hjá Húsnæðisstofnun sem sýnir stöðu lána
hvers og eins um áramót. Þessi nýja
þjónusta er til mikillar hagræðingar fyrir
lántakendur sem þurfa nú aðeins að færa
upplýsingar af yfirlitinu yfir á skattframtalið.
Einfaldara getur það ekki verið.
húsnæðisstofnun ríkisins
I—J - vinnur að velferð íþágu þjóðar