Dagur


Dagur - 01.03.1996, Qupperneq 3

Dagur - 01.03.1996, Qupperneq 3
FRÉTTIR Föstudagur 1. mars 1996 - DAGUR - 3 Siglufjörður: Bæjarmála- punktar Úttekt á grunnskólanum Fram hefur komið á bæjarráðs- fundi að Guðmundur Þór Ás- mundsson hafí tekið að sér að gera úttekt á skólastarfi Grunnskóla Siglufjarðar. Varnarinannvirki Á fundi sem Björn Valdimars- son, bæjarstjóri, átti með full- trúum Veðurstofunnar og um- hverfisráðuneytisins var ákveðið að gera heildarúttekt á gerð vamarmannvirkja í bæn- um. Jafnframt verði gerð rým- ingaráætlun fyrir Siglufjörð sem og aðra staði sem búa við snjóflóðahæltu. Kjördæmisnefnd um at- vinnumál Ólöf Kristjánsdóttir hefur af hálfu bæjaryfirvalda á Siglu- firði verið skipuð í starfshóp um atvihnumál á Norðurlandi vestra, en félagsmálaráðuneyt- ið óskaði eftir tilnefningum í nefndina. Breytingar á lyfjalögum Eigendur Apóteks Siglufjarðar hafa kynnt bæjaryfirvöldum áhrif breyttra lyfjalaga á stöðu reksturs apóteksins. Hiutafélag um sund Sigurður Friðriksson rekstrar- aðiii Sundlaugar Siglufjarðar hefur stofnað hlutafélag um rekstur Sundlaugarinnar. Dýpkun innri hafnarinnar Hafnarnefnd hefur staðfest samning við Björgun hf. um dýpkun innri hafnarinnar. Áætlað magn dýpkunar er 46 þúsund rúmmetrar, en samn- ingsupphæðin er 17,48 millj- ónir króna. Fyrsta áfanga dýpkunarinnar á að vera lokið fyrir 15. mars og öðrum áfanga fyrir 1. júní nk. Skólaþjónusta Á fundí skólanefndar 20. febrúar sl. var rætt um skóla- þjónustu í kjördæminu. For- maður skólanefndar fór yfir stöðuna eins og hún er nú að mótast í kjördæminu og velti upp þeim kostum sem til um- ræðu eru. Hvaða fagþekkingu þurfi að hafa aögang að og hvemig hægt sé að raða saman því rnódeli sem skólaskrifstofa þurfi að vera. Skólastjóri lagði áherslu á að nauðsyn væri að tryggja aðgang skólans að sál- fræðiþjónustu. Leikfélag Skagfirðinga æfir söngleik eftir Jón Ormar Ormsson: Sumarið fyrir stríð frumsýnt á Sæluviku Sumarið fyrir stríð er nýtt leikrit eftir Jón Ormar Ormsson, sem Leikfélag Sauðárkróks er að hefja æfingar á þessa dagana. Leikverk þetta, sem er söngleikur, verður frumsýnt 28. apríl næstkomandi við upphaf Sæluviku Skagfirð- inga. Leikstjóri er Edda V. Guð- mundsdóttir og leikendur verða 30 í 50 hlutverkum. „Sú saga sem leikritið segir gerist í andrúmslofti sumarsins 1939 - og ytri umgjörðin er Skagafjörður og mannlff héraðsins á þeim tíma. Þetta er sumarið fyrir síðari heimsstyrjöldina og jafn- framt sumarið áður en breytingar á öllum sviðum íslensks þjóðfé- lags ruddu sér til rúms,“ sagði Jón Ormar í samtali við Dag. Jón Ormar hefur unnið að ritun |ressa leikverks jafnhliða öðrum verkefnum í um eitt ár. Hann segir að vel sé vandað til leikverks þessa, meðal annars í tilefni merkra afmæla byggðar og versl- unar á Sauðárkróki á þessu og næsta ári, sem minnst verður með margvíslegum hætti. Þá séu í ár jafnframt liðin 120 ár frá fyrstu uppfærslu leikrits á Króknum, það var árið 1876. Þá voru íbúar stað- arins aðeins 20, en þeir létu það ekki aftra sér og færðu upp leikrit sem sýnt var fimm kvöld í röð fyr- ir fullu húsi. Það var leikritið Dauðinn og murapúkinn, eftir Gunnlaug Einar Gunnlaugsson. „Aðstæður sumarið 1939 voru á margan hátt ekki ólíkar því sem er í dag. Þá var kreppa og atvinnu- leysi og menn voru kappsamir í landabruggi. Framleiðslukvóti í landbúnaði þá hét mæðuveiki og Útvarpið var þá að hasla sér völl sem öflugasti fjölmiðill samfé- lagsins, á sama hátt og nýjar sjón- varpsstöðvar gera nú. Þetta var jafnframt eitt mesta góðviðrissum- ar á Islandi sem sögur fara af, enda þótt ófriðarblikur hrönnuðust á himininn. I septemberbyrjun hófst heimsstyrjöld með innrás Þjóðverja í Pólland,“ sagði Jón Onnar. Hann segir jafnframt að per- sónur leikritsins Sumarið fyrir stríð séu uppspunnar af sinni hálfu, að sVo miklu leyti sem það . er hægt, eins og hann orðar það. Sagna- og leikritarar taki alltaf mið af raunveruleikanunt, með beinum eða óbeinum hætti. Hann bendir jafnframt á að nokkrir rit- höfundar hafi gert skagfirskt mannlíf nefnds tímabils að yrkis- nefni f bókum sínum, svo sem Guðmundur Halldórsson, Guð- mundur L. Friðfinnsson á Egilsá og Indriði G. Þorsteinsson, sá síð- astnefndi í bókunum Land og syn- ir og Þjófur í paradís. -sbs. Piparsveinakvöld í Sjallanum: Verður að nota rétta möskvastærð „Mikið verður um dýrðir í kvöld og skemmtun þessi hefur aldrei verið glæsilegri. Ég hvet pipar- sveina til að fjölmenna,“ sagði Davíð Rúnar Gunnarsson, skemmtanastjóri Sjallans, í samtali við Dag. Hið árlega piparsveinamót Sjallans, eða öllu heldur Góða dátans, verður í kvöld, föstudags- kvöld, og verður húsið opnað kl. 20. Meðal dag- skráratriða er að gullfalleg kanadísk stúlka tætir af sér fötin, Súsanna Svavarsdóttir mætir og les er- ótískar sögur úr bók sinni Kisumálum, sýnd verða undirföt og fleira af sama meiði mætti nefna. Fyrir dagskrá verður boðið upp á austurlenska rétti af hlaðborði. Kynnir er Anna Björk Birgisdóttir. Eftir samkomuna leika Milljónamæringamir fyrir dansi og hinn nýi söngvari þeirra, Stefán Hilmarsson. „Á miðnætti verður húsið opnað fyrir öllum, þar á meðal ungmeyjum, sem bíða gjarnan fyrir utan húsið meðan þessi samkoma stendur yfir. Ungir piparsveinar „veiða" yfirleitt vel á þessari sam- komu svo framarlega sem þeir nota net með réttri möskvastærð," sagði Davíð Rúnar. -sbs. Lífeyrisuppbót lækkar Hámarksuppbót á lífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins lækkar frá og með deginum í dag, 1. mars, samkvæmt reglu- gerð heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytisins. Svokölluð frekari uppbót er greidd þeim elli- og örorkulífeyr- isþegum sem bera kostnað vegna lyfja, umönnunar eða húsaleigu. Uppbótin er reiknuð út sem ákveðið hlutfall af grunnlífeyri og er hlutfallið mishátt eftir aóstæð- um umsækjenda. Samkvæmt reglugerðinni lækkar hámarksuppbót til lífeyris- þega, sem njóta umönnunar ann- arra en maka, úr 18.722 krónum í 16.048 krónur á mánuði. Há- marksgreiðsla uppbótar til þeirra sem hafa heimilisuppbót lækkar úr 10.698 kmrónum í 9.361 krónu á mánuði, en hámarksuppbót til þeirra sem hafa sérstaka heimilis- uppbót lækkar úr 5.349 krónum í 4.681 krónu á mánuði. Þá lækkar hámarksuppbót til lífeyrisþega, sem eru giftir eða í óvígðri sarnbúð, úr 13.373 krón- um í 12.036 krónur á mánuði. í heild hefur þessi lækkun áhrif á greiðslur til rúmlega 1.800 lífeyr- isþega sem fá greidda uppbót á lífeyri, en gert er ráð fyrir að hún spari ríkissjóði um tvær milljónir á mánuði. óþh Bullandi hagnaður hjá Eimskip Rekstur Eimskips hf. gekk vel á síðasta ári og skilaði félagið 602 milljóna króna hagnaði, sem er 6% af veltu. Árið 1994 var hagn- aðurinn 557 milljónir. Rekstrartekjur Eimskips og dótturfélaga þess námi 9,5 millj- örðum króna. Eigið fé félagsins var 5,8 milljarðar króna í árslok 1995 og eiginfjárhlutfall 47%. Arðsemi eigin fjár nam 12%. Á síðasta ári störfuðu að jafn- aði 876 starfsmenn hjá Eimskip, þar af 658 að meðaltali á íslandi og 218 erlendis. Á aðalfundi Eimskips 7. mars nk. verður lögð fram tillaga stjómar um greiðslu 10% arðs til hluthafa og að hlutafé félagsins verði aukið um 20% með útgáfu jöfnunarhlutabréfa. óþh SMö'• r"' o " HBHHuHEhBh oW-ú

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.