Dagur - 01.03.1996, Page 5

Dagur - 01.03.1996, Page 5
Föstudagur 1. mars 1996 - DAGUR - 5 ^ Þórhallur bóndi á Kambsstöð- ^ um. Hér situr hann á moldar- bing í húsi sínu og heldur á pokum af gróðurmold. tilbúinni á markað. Mynd: Sigurður Bogi. blandað saman í ræktunarreitum að Vöglum. Og enn í dag tekur skógræktin mó í landi Kambs- staða og hefur Þórhallur aldrei tekið neitt afgjald fyrir það. Hann segir það vera sinn stuðning við þá hugsjón að græða landið, enda þótt hann hafi aldrei skipað sér í hóp skógræktarmanna. Mest selur Arnór í Laufási „Ég byrjaði á þessari starfsemi ár- ið 1982, en þá hafði ég gengið með þessa hugmynd lengi. Þá kom Amór Karlsson hjá blóma- búðinni Laufási á Akureyri að máli við mig og sagðist myndi taka mold í sölu fyrir mig ef ég færi á annað borð út í þetta. Þetta tilboð stóðst ég ekki og fór af stað. Arnór í Laufási er og hefur alltaf verið minn stærsti söluaðili, en markaðssvæðið er nær ein- göngu Norðurland. Eitthvað hefur þó farið vestur á firði og til Reykja- víkur, en það er í litlum mæli og ekki hagkvæmt vegna hás flutn- ingskostnaðar,“ segir Þórhallur. Á vori hverju er stungin mó- mold, eða svörður, á Kambsstöð- um. Hún er svo látin standa úti og brotna niður og það ferli tekur allt að fjögur ár. Þá er moldin mulin niður og um síðir er henni ekið í hús, þar sem í hana er blandað kalki og áburði, það er blákorni. Sandi er síðan blandað saman við Þórhallur Hermannsson á Kambsstöðum framleiðir og vinnur gróðurmold: Moldarbóndi í Ljósavatnsskardi „Vertíðin í þessari vinnslu byrj- ar undir lok janúarmánaðar og stendur fram í júní. Þá er mesta törnin en þegar litið er til ársins alls er ekki fjarri lagi að heilt ársverk liggi að baki þessari starfsemi. Vélvæðing hjá okkur er afar lítil og hún er mun minni en hjá öðrum sem eru í þessu. Hér starfar öll fjölskyldan að þessu og þegar mest er að gera koma krakkar héðan úr sveit- inni einnig til starfa.“ Þetta segir Þórhallur Her- mannsson, bóndi á Kambsstöðum í Ljósavatnsskarði, í samtali við Dag. Undanfarin ár hefur fram- leiðsla og vinnsla á gróðurmold sem seld er í blómaverslunum verið nokkur hluti af búskap Þór- halls og sá þáttur farið vaxandi. Jafnhliða er rekið félagsbú á Kambsstöðum með hefðbundinn búskap. Þar búa Þórhallur og Inga Hauksdóttir, kona hans, og sonur þeirra, Haukur og fjölskylda hans. Fyrirlestur frestast Fyrirlestur dr. Skúla Skúlasonar fer fram í Deiglunni á Akureyri 16. mars en ekki ekki 2. mars eins og áætlað var. Fyrirlestur þessi er annar tveggja með yfirskriftinni Maður og náttúra, en dr. Páll Skúlason hélt, eins og mörgum er í fersku minni, þann fyrri er nefndist „Um- hverfing" þann 10. febrúar sl. Við það tækifæri kynnti dr. Skúli í stuttu máli efni síns fyrir- lesturs, er hann nefnir „Tengsl manns og náttúru - samskipti og umgengni okkar við ferskvatns- auðlindir íslands.“ 50 til 60 tonn á ári „Ég er að senda frá mér þetta 50 til 60 tonn á ári. Afkoman í þessu er á svipuðu róli og í öðrum bú- greinum. Verðið fyrir gróður- moldina hefur þó lækkað frekar en hitt á undanförnum árum. Kannski er það sjálfum mér að kenna, svona að einhverju leyti. Frekar hef ég viljað halda í mína við- skiptavini, og hef lækkað verðið á moldinni, fremur en missa þá vegna of hás verðs. Hér ræður lögmálið um framboð og eftir- spum,“ segir Þórhallur. Það var í kringum 1950 sem starfsmenn Skógræktar ríkisins fóru að taka mómold í landi Kambsstaða. Hún var þá blönduð saman við leirmold, sem er í Vaglaskógi, en þessu tvennu var moldina þegar hún hefur verið mulin niður. Að síðustu er mold- inni pakkað, eftir lítramáli, í poka, og þannig send til verslana og seld undir inerkinu Kambamold. Svörður eða mómold? „Ég man vel þá tíð þegar svörður, sem í dag er þó frekar nefndur mómold, var notaður til brennslu og upphitunar á Kambsstöðum. Eldavélin var hér í eldhúsinu og við krakkamir vorum látin setja svörð í eldstæðið. Þessi vinnu- brögð vom viðhöfð fram yfir 1950, en lögðust þá af með raf- væðingunni. Nú er svörðurinn notaður með öðrum hætti og öðm- vísi mér áður brá,“ sagði Þórhallur Hermannsson á Kambsstöðum. -sbs. TIL SÖLU Vegna flutnings Sápubúðarinnar inn í Glerhús (Blómaval Akureyri) er húsnæði hexmar í Krónunni við Göngugötuna til sölu. - Lán geta fylgt - Leiga kemur einnig til greina - Upplýsingar: Vilhelm í síma 461 3000. Hringvegur um Kálfa- strandarvoga og Mark- hraun í Mývatnssveit Niðurstöður frumathugunar og úr- skurður skipulagsstjóra ríkisins sam- kvæmt lögum nr. 63/1993 Skipulagsstjóri ríkisins hefur úrskurðað samkvæmt lög- um nr. 63/1993 um mat á umhverfisáhrifum. Fallist er á lagningu Hringvegar um Kálfastrandarvoga og Mark- hraun í Mývatnssveit með skilyrðum. Úrskurðurinn er byggður á frummatsskýrslu Vegagerðarinnar, umsögn- um, athugasemdum og svörum framkvæmdaraðila við þeim. Úrskurðurinn í heild liggur frammi hjá Skipulagi ríkis- ins, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Úrskurð skipulagsstjóra ríkisins má kæra til umhverfis- ráðherra innan fjögurra vikna frá því að hann er birtur eða kynntur viðkomandi aðila. Skipulagsstjóri ríkisins. HRÍ SALUNDUR - fyrir þig! Ódýrara en þig grunar Tilboð & Orville sælkerapopp kr. 99 pk. Swiss Miss sykurlaust kr. 499 dósin Swiss Miss kakó kr, 349 dösin Framhryggjarbitar kr. 720 kg Appelsínubiti kr. 248 stk, ♦ Kynning á föstudag Swiss Miss kakö og Oskar súpur Kynning

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.