Dagur - 01.03.1996, Síða 11

Dagur - 01.03.1996, Síða 11
Föstudagur 1. mars 1996 - DAGUR - 11 Kirkjuvíka í Akureyrarkirkju 3.-11. mars Kirkjuvika verður haldin í Akureyrarkirkju dagana 3.-11. mars nk. Fjölbreytt dagskrá verður að þessu sinni, en kirkjuvika er haldin annað hvert ár. Hitt árið er haldin Kirkjulistavika í kirkjunni. Að þessu sinni er kjörorð vikunnar „Unga fólkið og kirkjan - vörn gegn leiða“, sem vísar til þess að á kirkjuvikunni verður ekki síst beint augum að málefnum ungs fólks. Að undirbúningi kirkjuvikunnar hafa unnið: Valgerður Hrólfsdóttir, sem er formaður undirbúningsnefndar, Hrefna Harðardóttir, framkvæmdastjóri, sr. Svavar Alfreð Jónsson, sr. Birgir Snæbjörnsson, Bjöm Steinar Sólbergsson, organisti, Guðmundur Magnússon, Kol- brún Þormóðsdóttir og Haukur Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri ÆSKR. Hér á síðunni er gerð grein fyrir dagskrárliðum Kirkjuviku í Akureyrarkirkju 1996. óþh Helga E. Jónsdóttir og Þröstur ^ Leó Gunnarsson í hlutverkum ^ sínum í Heiini Guðríðar. Heimur Guðríðar - síðasta heimsókn Guðríðar Símonar- dóttur í kirkju Hallgríms, eftir Steinunni Jóhannesdóttur, var frumsýnt á Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju í Reykjavík sl. vor. Sýningin fékk mjög góðar viðtökur jafnt áhorfenda sem gagnrýnenda. Sýningin var tekin upp að nýju í safnaðarsal Hallgrímskirkju í vetur auk þess sem hún hefur verið sýnd í nokkrum kirkjum út um land og má þar telja Landakirkju í Vestmannaeyjum, Grindavík- urkirkju, Hveragerðiskirkju og Blönduóskirkju að ógleymdri Hallgrímskirkju í Saurbæ. Efni leikritsins er sögulegt eins og nafnið bendir til. Aðal- persónan er Guðríður Símonar- dóttir sem kemur öldruð kona í kirkju síns látna maka Hallgríms Péturssonar og hefur upp eintal sitt við hann og þann guð sem skapar manneskjunni örlög. Hún rekur sögu sína, sem er saga Heimur Guðríðar sýndur í Akureyrarkirkju stórra atburða, mikilla harma, djúprar ástar, skammvinnrar sælu, endurtekinna áfalla og sorga. Ævi Guðríðar Símonar- dóttur varð langt og strangt ferðalag jafnt í eiginlegri og óeiginlegri merkingu þess orðs, hún varð afar óvenjuleg en einnig dæmigerð fyrir örlög konu á 17. öld og þó að farið sé út fyrir þann tíma. Nær allir sem hafa fjallað op- inberlega um sýninguna hafa getið þess hve sterkum tökum hún grípi áhorfendur í einfald- leik sínum. Eyvindur Erlendsson sagði í Helgarpóstinum 9. nóvember um þennan skáldskap að hann væri „trúverðugur, fallegur, al- varlegur, saminn af kunnáttu- semi og heitu hjarta“ og Haukur Agústsson sem skrifaði um sýn- inguna á Blönduósi sagði í Degi 7. desember: „Úr hefur orðið vel samið leikverk, sem heldur áhorfandanum svo föngnum, að hann verður þess tæplega var að tíminn líður þó að verkið sé í fullri lengd leikverks og flutt án hlés.“ Akureyringum gefst nú færi á sjá þessa rómuðu sýningu því ein sýning verður í tengslum við kirkjuviku í Akureyrarkirkju mánudaginn 11. mars kl. 20.30. Aðalleikarar eru Margrét Guðmundsdóttir, sem tekur við hlutverki Helgu Bachmann, Helga Elínborg Jónsdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson. I litlum hlutverkum Sölmundar sonar Guðríðar eru þeir Guðjón Davíð Karlsson og Bjöm Brynjúlfur Bjömsson. Leikmynd og bún- inga gerir Elín Edda Ámadóttir en tónlist er samin og leikin af Herði Áskelssyni. Sunnudagur 3. mars Sunnudagaskólinn kl. 11 - Hólmfríður Benediktsdóttir og Krflakórinn. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14 - Arna Ýr Sigurðardóttir, guð- fræðinemi, prédikar, Valgerður Hrólfsdóttir, formaður undirbún- ingsnefndar, flytur ávarp, Bama- og unglingakór Akureyrarkirkju undir stjóm Hólmfríðar Bene- diktsdóttur, málmblásarasveit og flautuleikarar úr Tónlistarskólan- um á Akureyri og Kór Akureyrar- kirkju undir stjórn Bjöms Steinars Sólbergssonar. Kaffitónleikar Kórs Akur- eyrarkirkju - hefjast í Safnaðar- heimilinu að lokinni guðsþjón- ustu. Söngur, kaffi og meðlæti. Kórfélagar selja kaffi og bjóða upp á léttan söng til styrktar Kan- adaferð Kórs Akureyrarkirkju í júní 1996. Mánudagur 4. mars Biblíulestur - í Safnaðarheimili kirkjunnar kl. 20.30. Björgvin Jörgensson heldur áfram lestri og skýringum á Davíðssálmum. Heimspekifyrirlestur - í Möðmvallakjallara MA kl. 20.30. Heimspekifélagið Huginn í MA býður Hauki Inga Jónassyni, guð- fræðingi og framkvæmda- stjóra Æskulýðs- sambands kirkj- unnar í Reykja- vflcurprófasts- dæmi, til um- ræðu um kirkju og trú. Jörgensson. Þriðjudagur 5. mars Kvöldvaka - í kirkjunni kl. 20.30. Blysför frá VMA, MA og GA. Blásarasveit og slagverks- leikarar úr Tónlistarskólanum á Akureyri undir stjóm Jóns Hall- dórs Finnssonar. Tónlistar- og skemmtiatriði frá nemendum skól- anna. Haukur Ingi Jónasson, fram- kvæmdastjóri ÆSKR, flytur ávarp. Almennur söngur. Flug- eldasýning skáta. Kynnir: Sr. Svavar Alfreð Jónsson. Allir eru velkomnir. Miðvikudagur 6. mars Mömmumorgunn - í Safnaðar- heimilinu kl. 10-12. Haukur Ingi Jónasson ræðir um vitsmuna- og trúarþroska bama og segir frá Heimspekiskóla bama. Opið hús fyrir fólk í atvinnu- leit - í Punktinum kl. 15. Haukur Ingi Jónasson ræðir um „Ham- ingjuna“. Föstuguðs- þjónusta - í kirkjunni kl. 20.30. Séra Pét- ur Þórarinsson prédikar. Kórar Laufásspresta- kalls syngja und- ir stjóm Bjargar Pétur Sigurbjörnsdótt- Þórarinsson. ur. Stjórnandi og organisti: Hjört- ur Steinbergsson. Fimmtudagur 7. mars Opið hús fyrir aldraða - í Safnaðarheimil- inu kl. 15-17. Kór aldraðra syngur undir stjórn Sigríðar Schiöth. Sigríður Sunneva flytur erindi og kynnir hönnun á fatnaði úr íslenskum efnum. Lokaorð: Haukur Ingi Jónasson. Almennur söngur. Kaffiveitingar. Fólksflutn- ingabflar koma að Víðilundi, Hlíð og Skólastíg. Fyrirbænaguðsþjónusta - í kirkjunni kl. 17.15. Sr. Guðmund- ur Guðmundsson, héraðsprestur, flytur hugleiðingu. Laugardagur 9. mars Hádegistónleikar - í kirkjunni kl. 12. Wolfgang Tretzsch, tónlist- arkennari við Tónlistarskóla Mý- vatnssveitar, leikur orgelverk eftir Bach, Mendelssohn, Eben og An- talffy-Zsiross. Aðgangur er ókeypis. Léttur hádegisverður verður í Safnaðarheimilinu að tónleik- unum loknum. Sunnudagur 10. mars Sunnudagaskólinn kl. 11. Hátíðarmessa kl. 14. - Guð- mundur Guðmundsson, héraðs- prestur, prédikar. Guðríður Eiríks- dóttir, formaður sóknamefndar, flytur ávarp. Kór Akureyrarkirkju. Björg Þórhallsdóttir, mezzósópr- an, Eyrún Unnarsdóttir, Sólbjörg Björnsdóttir og Þórný Haralds- dóttir. Dóróthea Dagný Tómas- dóttir, orgel. Stjómandi og organ- isti Bjöm Steinar Sólbergsson. í messunni flytur kórinn ásamt ein- söngvurum og orgelleikara „Messe Basse“ eftir Gabriel Fauré. Anders Öhrwall útsetti fyr- ir blandaðan kór. Nýtt kjúkTmgabrtar með frönskum, hrásalati og kokteil- eða sveppasósu fyrir 2 kr. 1.300,- fyrir 4 kr. 2.470,- fyrir 3 kr. 1.900,- fyrir 5 kr. 2.950,- Nýtt Brauðstangir - Laukhringir Munið austurlenska matinn okkarí w áili

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.