Dagur - 09.03.1996, Side 3
9G0 T eiism .G 'iuoBbiBpusJ - flUÐAQ - S;
Laugardagur 9. mars 1996 - DAGUR - 3
FRETTMR
Rætt um frjáls viðskipti með mjólkurkvóta á Búnaðarþingi:
Húsbréf
Efasemdaraddir
heyrast um frelsið
- segir formaður Búnaðarsambands Eyjafjarðar
„Ég býst við að Búnaðarþing
muni álykta um nauðsyn þess að
endurskoða þann þátt búvöru-
samningins sem snýr að mjólk-
urframleiðslu og þá um frjáls
viðskipti með kvóta. Það yrði
gert þegar samningurinn verður
tekinn til endurskoðunar nú síð-
ar í vetur. Þó hefur Landssam-
band kúabænda lagt til að engar
breytingar verði gerðar á þessu.
Efasemdaraddir heyrast um það
frelsi sem nú er í viðskiptum
með greiðslumark," sagði Pétur
Helgason, bóndi á Hranstöðum,
formaður Búnaðarsambands
Eyjafjarðar og fulltrúi á Búnað-
arþingi, í samtali við Dag.
Frjáls viðskipti með greiðslu-
mark komu til umræðu á Búnaðar-
þingi, sem nú stendur yfir. „Sem
Eyfirðingi þykir mér verulega
slæmt að mjólkurframleiðsla skuli
í svo verulegum mæli flytjast yfir
á þau svæði, sem eru talin síður
hentugri til mjólkurframleiðslu.
Hins vegar er mjög erfitt að setja
verulegar hömlur á þetta. Málið
hefur þó tvær hliðar; ef lokað er
fyrir sölu út af svæðinu er einnig
verið að loka fyrir sölu inná það.
Því er þetta ekki einfalt mál,“
sagði Pétur.
Hann bætti því við að mál þetta
snéri einnig að hagsmunum neyt-
enda. Það hlyti, þegar til lengri
tíma er litið, að koma fram í hærra
verði mjólkurvara, þegar mjólkur-
framleiðsla væri í vaxandi mæli
að flytjast af þeim svæðum, sem
talin eru henta best til mjólkur-
framleiðslu, það er Suðurlandi og
Eyjafirði, sem eru þó enn stærstu
og greiðslumarksmestu svæðin.
A þriðja hundrað þús. mjólkur-
lítrar hafa á síðustu árum verið
seldir út af Eyjafjarðarsvæðinu yf-
ir til annarra samlagssvæða. Mikið
hefur verið selt yfir í Skagafjörð
og hefur Kaupfélags Skagfirðinga
lánað bænum fé til greiðslúmarks-
kaupa og það með vöxtum, sem
eru nokkru lægri en almennt ger-
ist. Einnig hefur kaupfélagið beint
þeim tilmælum til sveitarfélaga að
lána fé til sömu hluta og hafa
Akrahreppur, Viðvíkurhreppur og
Rípurhreppur gert það. - Eyfirskir
bændur geta einnig fengið lán frá
KEA til slíks hins sama. -sbs.
Verkalýðsfélagið Eining:
Krabbameins-
leit verði
ekkihætt
Stjórn og trúnaðarmannaráð
Verkalýðsfélagsins Einingar í
Eyjafirði ályktaði á fundi sínum
á miðvikudag um krabbameins-
leit hjá Heilsugæslustöðinni á
Akureyri.
Sem kunnugt er hefur stjórn
stöðvarinnar ákveðið að leggja af
krabbameinsleit í spamaðarskyni
og hvetur Eining til þess að sú
ákvörðun verði afturkölluð.
„Baráttan við hinn mikla vá-
gest sem krabbameinið er má ekki
minnka. Lokun leitarstöðvarinnar
væri stórt skref afturábak í barátt-
unni,“ segir í ályktuninni. JÓH
Héraösdómur Norðurlands vestra:
Utdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989 - 22. útdráttur
1. flokki 1990 - 19. útdráttur
2. flokki 1990 - 18. útdráttur
2. flokki 1991 - 16. útdráttur
3. flokki 1992 - 11. útdráttur
2. flokki 1993 - 7. útdráttur
2. flokki 1994 - 4. útdráttur
3. flokki 1994 - 3. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. maí 1996.
Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði.
Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum
hér að ofan birt í Morgunblaðinu föstudaginn 8.
mars. Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja
frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðis-
skrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og
verðbréfafyrirtækjum.
cSo HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
I 1 HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SlMI 569 6901
Areitti fóstur-
dóttur sína
Héraðsdómur Norðurlands
vestra dæmdi í janúarmánuði
liðlega þrítugan mann í 6 mán-
aða fangelsi, skilorðsbundið, fyr-
ir að áreita kynferðislega fóstur-
dóttur sína með því að strjúka
læri hennar og rass þegar hann
sat með hana á heimili þeirra og
káfa á brjóstum hennar utan
klæða sem innan.
Áreitið átti sér stað á fimm ára
tímabili og var stúlkan 10 ára er
það hófst. Þá elti maðurinn stúlk-
Akureyrarbær:
Önnur jafn-
réttiskæra
Akureyrarbær hefur í annað
sinn á skömmum tíma verið
kærður til jafnréttisráðs vegna
stöðuveitingar. Sem kunnugt er
úrskurðaði kærunefnd jafnrétt-
ismála á dögunum að bærinn
hafi brotið gegn ákvæðum jafn-
réttislaga þegar starfsmaður
reynslusveitarfélagsverkefnisins
var ráðinn.
Að þessu sinni er það Áskell
Öm Kárason, sálfræðingur, sem
sent hefur kærunefnd jafnréttis-
mála erindi vegna ráðningar í
stöðu félagsmálastjóra. Áskell var
einn 10 umsækjenda um stöðuna
þegar hún var auglýst í október sl.
og var Valgerður Magnúsdóttir
ráðin. í Morgunblaðinu var haft
eftir Áskeli að ástæða kærunnar
væri að hann teldi sig ekki hafa
fengið nægar skýringar á því af
hverju starfsreynsla hans og sér-
staklega reynsla af stjómun, vó
ekki þyngra en raun bar vitni. Ak-
ureyrarbær mun þegar hafa sent
kærunefndinni greinargerð vegna
málsins en af fenginni reynslu má
búast við að nokkur tími geti liðið
þar til niðurstaða fæst. HA
una iðulega út á kvöldin og þurfti
þá oft að tala við hana og skipta
sér af henni. Refsing mannsins
fellur niður að fjórum ámm liðn-
um haldi hann almennt skilorð 57.
gr. hegningarlaga. Ákærði var
einnig dæmdur til að greiða stúlk-
unni 365 þúsund krónur í miska-
bætur og allan sakarkostnað til
skipaðs verjanda, 80 þúsund krón-
ur og 40 þúsund króna saksókn-
aralaun til ríkissjóðs. Brot ákærða
beinist að bami sem honum var
treyst fyrir. Með háttsemi sinni
raskaði hann fjölskylduböndum
og særði traust fósturdóttur sinnar.
Stúlkan ber að maðurinn hafi
bannað sér að læsa hurðum að
baðherberginu þegar hún fór í
sturtu og notfært sér að hún varð
að spyrja hann ef hún vildi fara út
á kvöldin. Hún hafi fengið að vera
lengur úti ef hann fékk að káfa
eða horfa á brjóstin á henni. Enn
fremur bar stúlkan fyrir dómi að
fósturfaðir hennar hafi látið hana
koma upp í rúm til sín á morgnana
ef mamma hennar var á morgun-
vakt um helgar. Einnig hafi hann
komið inn til sín á kvöldin þegar
hún var að fara að sofa og káfað á
henni. GG
Handbolti, 3 ftokkur:
íslandsmót í
KA-heimilinu
Um helgina verður í KA-heimil-
inu íslandsmót 3. flokks karla í
handknattleik, 1. deild. Er þetta
4. umferð.
Auk KA keppa lið frá Val, ÍR,
Víkingi og Fram. Mótið hófst í
gær, föstudag, kl. 18.10 og verður
fram haldið í dag kl. 9.10. Þá leika
KA og Valur, kl. 10 leika ÍR-Vík-
ingur, KA-Fram kl. 11, Víkingur-
Valur kl. 12 og ÍR-Fram kl. 13.
Jeppasýning
Tekið verður forskot á sæluna laugardaginn 9. mars
með jeppasýningu á Ráðhústorgi frá kl. 14:00-16:00.
Tilvalið fyrir alla sem vilja kynna sér ferðamennsku
á fjöllum. Allar upplýsingar um útbúnað og fleira.
Jeppaferð
Sunnudaginn 10. mars gefst öllum jeppaeigendum,
stórum sem smáum, tækifæri til að fara í jeppaferð.
Skemmtilegt tækifæri til að kynnast jeppasportinu á
fjöllum. Allir velkomnir - bæði á óbreyttum og
Lagt verður af stað frá Leirunesti
og stefnan tekin á Þeystareyki.
í síma 462 7053 og 462 6341 eftir kl. 20:00
EyjafiarðardBild Mjj M
Plöldur
DAGUR
^Pedtð'myndir'