Dagur - 09.03.1996, Blaðsíða 7
Laugardagur 9. mars 1996 - DAGUR - 7
urinn á honum og öðrum sé
kannski fyrst og fremst sá að hann
sé alls óhræddur við að viður-
kenna það.
„Mér finnst bæjarstjórn oft
vera samansett annars vegar af
þeim sem lítinn áhuga hafa á
íþróttum og hins vegar KA-mönn-
um. Þeir sem taka afstöðu eru því
KA-menn og mér finnst skilning-
ur bæjaryfirvalda á aðstöðuleysi
Þórs ekki vera nógu góður. Það
eru miklu fleiri en ég sem eiga
börn sem þeir þurfa að rúnta með
um allan bæ. Ég er sannfærður um
að íþróttir séu einn besti uppalandi
fyrir böm, hvort sem þau eru í
KA, Þór eða öðru félagi, og ég vil
að bærinn styðji vel við bakið á
íþróttastarfsemi. Ég er Þórsari og
ber ekki á móti því en ég held þó
að ég beri ekki hag Þórsara fyrir
brjósli fram yfir allt annað.“
íþróttir eru Oddi hugleiknar en
menningin er að sama skapi ekki
ofarlega á blaði hjá honum. Hann
vill þó ekki stilla þessum tveimur
málaflokkum upp sem andstæð-
um. „Ymis mál sem falla undir
menningarmál, eins og Listagilið,
Amtsbókasafnið og fleira, held ég
að hafi ekki endilega úr of miklu
að spila. Tónlistarskólann vildi ég
skoða því mér fannst hann óeðli-
lega dýr og oft finnst mér að jafn-
Ég varð fyrir miklum
vonbrigðum þegar ekki
nábist samkomulag um
að semja viö IS um sölu
á afuröum UA. Ég er
ekki ánægður meö þab
sem SH er að gera og
finnst þeir vera að
henda í okkur hálfnög-
uöum beinum. Reyndar
tel ég að ákveðnir aðil-
ar innan Framsóknar-
flokksins hafi klikkað í
þessu máli.
réttis sé ekki gætt milli menningar
og íþrótta," segir hann.
Neitaði launahækkun
Þegar þingmennirnir hækkuðu við
sig launin í haust sem leið urðu
margir kjósendur reiðir. Bæjar-
fulltrúar, sem miða laun sín við
ákveðna prósentu af þingfara-
kaupi, ákváðu að fresta því að
hækka sín laun. „Með þessu vildu
þeir vinna sér inn punkt,“ segir
Oddur. Hann vildi hins vegar
ganga lengra og stakk því upp á
að í stað þess að fresta hækkun
yrðu launin lækkuð þar sem bær-
inn væri að reyna að skera niður á
sem flestum stöðum. Á fjárhags-
áætlun 1996 var gert ráð fyrir að
hækka launin í samræmi við
hækkun þingmanna en Oddur
neitaði að taka við þessari launa-
hækkun.
„Á sama tíma og við erum að
fá 9% launahækkun er bærinn að
reyna að hagræða með því að
klípa t.d. af yfirvinnu hjá starfs-
mönnum íþróttamannvirkja, til að
ná niður launakostnaði. Ég hef
ekki samvisku til að lækka launin
við aðra og hækka um leið mín
laun og tók því ekki við þessari
hækkun. Ég hefði viljað sjá fleiri
koma á eftir mér því mér finnst
þetta vera grundvallaratriðið þó ef
til vill sé ekki um stórar upphæðir
að ræða fyrir bæinn. Sumir sögðu
að ekki væri hægt að sporna við
þessu því svona væri viðmiðunin
en þá á bara að breyta viðmiðun-
um. Bæjarstjórn hefur fullt vald til
þess.“
Vill ekki selja
hlutabréf ÚA
Sem fulltrúi í nefndum á vegum
bæjarins og varamaður í bæjar-
stjóm hefur Oddur haft tækifæri
til að koma skoðunum sínum á
framfæri og getað haft áhrif á um-
ræðuna. Þetta þýðir þó ekki að
hann ráði miklu um þær ákvarðan-
ir sem bæjarstjórn tekur. Hann er
hins vegar ekki í vafa um for-
gangsröðina ef hann fengi að ráða
og nefnir strax þrjú atriði sem
honum þykir mjög brýn.
„Ég myndi ákveða strax í dag
að selja ekki hlutabréf UA en
byrja í staðinn að stjóma þessu
fyrirtæki. Þau fyrirtæki sem bær-
inn á meirihluta í tel ég að hafi því
miður verið munaðarlaus því eng-
inn hugsar um þau. Mfn skoðun er
að á þessu stigi málsins sé ekki
rétt að selja hlutabréfin og finnst
að bæjarstjórnin ætti að taka
ákvörðun um að þau verði ekki
seld. Ég varð fyrir miklum von-
brigðum þegar ekki náðist sam-
komulag um að semja við IS um
sölu á afurðum ÚA. Ég er ekki
ánægður með það sem SH er að
gera og finnst þeir vera að henda í
okkur hálfnöguðum beinum.
Reyndar tel ég að ákveðnir aðilar
innan Framsóknarflokksins hafi
klikkað í þessu máli. Einnig held
ég að margir bæjarfulltrúar hafi
ekki haft frjálsar hendur um
ákvörðun í þessu máli vegna
tengsla við „Kolkrabbann“.
I öðru lagi myndi ég ákveða
samdægurs að lengja böllin í Dyn-
heimum til klukkan eitt. Á meðan
við fullorðna fólkið, sem eigum
að vera fyrirmyndir, erum að
skemmta okkur til þrjú eða fjögur
á nóttunni finnst mér of stutt að
hafa böllin bara til tólf. Ég ber
fyllsta traust til unglinga og get
ekki einblínt á þessi nokkur pró-
sent sem eru í vandræðum. Flestir
unglingar eru vænsta fólk.
Þriðja atriðið er kannski smá-
mál en þó ekki. Ég myndi láta
malbika hundrað metra spotta sem
liggur að bryggjunni norður í
Sandgerðisbót. Þama koma trill-
umar með fisk og búið er að mal-
bika allt nema þessi bútur var skil-
inn eftir. Þetta getur varla verið
stórt framkvæmdaatriði. Að sjálf-
sögðu myndi ég síðan opna
göngugötuna.“
Þessi mál eru Oddi ofarlega í
huga. Hann segir þó að margt ann-
að þurfi einnig að gera en hann
geri sér grein fyrir að erfiðara sé
að eyða peningum en afla þeirra.
Þrátt fyrir átök og skoðanaskipti
hefur hann gaman að starfa í bæj-
armálunum og honum finnist hann
hafa eitthvað til málanna að
leggja. „Ég get lofað þér því að
sama dag og ég tel mig ekki hafa
erindi þarna inn lengur hætti ég.“
AI
Gígja Kjartansdóttir með ^
sýnishorn af þeim vörum sem r'
hún framleiðir. Mynd: AI
Sú vitnesksja að í sumum jurt-
um og grösum búi lækninga-
máttur hefur verið mannkyninu
kunn í aldaraðir. Nútíma-
læknavisindi hafa gert jbátt jurt-
anna veiaaminni en áður var
en nú virðist sem áhugi á nátt-
úrunni sé að vakna á ný og
smyrsl, krem og ýmisskonar
snyrtivörur úr náttúrulegum
efnum njóta sífellt meiri vin-
sælda hérlendis. Ein jpeirra
sem lengi hefur haft áhuga á
jurtum og græðandi eiginleik-
um þeirra er Gígja Kjartans-
dóttir, sem býr í Fossbrekku á
Svalbarðsströnd. Nýverið
stofnaði hún fyrirtækið „Urta-
smiðjan" og krem oa smyrsl
sem áður var aðeins hægt að
nálgast hjá Gígiu sjálfri eru nú
fáanleg í versfunum á Akur-
eyri, á höfuðborgarsvæðinu og
víðar.
„Ég hef alltaf haft áhuga á
svokölluðum lækningajurtum en
það eru um fimm ár síðan ég fór
að fikta við að búa til krem og
smyrsl. Ég las mér mikið til
bæði á íslensku og á erlendum
málurn og hugsa að kveikjan að
því að ég fór að prófa þetta sjálf
hafi verið þýsk bók sem ég las.
Þessi bók er skrifuð af nunnu
sem lifði á þrettándu öld. Hún
notaði jurtir mikið, bæði útvortis
og innvortis, og skrifaði niður
allar uppskriftir sem hún notaði.
Það sem er merkilegt er að hún
virðist hafa vitað nákvæmlega
hvaða efni voru í hvaða jurt og
hvernig efnin virkuðu á ákveðna
kvilla. Læknar og vísindamenn
hafa notað nútímatækni til að
rannsaka og greina þessar jurtir
og þeirra niðurstöður styðja að
hún vissi um hvað hún var að
tala,“ segir Gígja.
Mikið af þeim jurtum sem
Gígja las sér til um voru jurtir
sem uxu í nágrenni við heimili
hennar og hún fór að tína jurtir
og prófa sig áfram. Sjálf er hún
með ofnæmi fyrir mörgum
kremum en þegar hún setti á sig
krem sem hún bjó til úr þessum
jurtum fékk hún engin útbrot eða
hita í andlitið eins og af öðrum
kremum. „Þannig að þetta byrj-
aði eiginlega fyrir forvitni og
fikt og átti aldrei að verða nein
alvara úr þessu,“ segir hún.
Urtasmiðjan fæddist
um áramótin
Fyrir einum tveimur árum höfðu
nokkrar verslanir á Akureyri
samband við Gígju og föluðust
eftir kremum og smyrslum frá
henni til að selja þar sem fólk
hafði verið að spyrja eftir þess-
um vörum. „Mér fannst ómögu-
legt að láta þær hafa eitthvað að
selja þar sem ég var ekki með
neinar vörumerkingar, almenni-
legar umbúðir, virðisaukanúmer
eða annað,“ segir Gígja. Nú
horfir hins vegar öðruvísi við
þar sem um áramótin stofnaði
hún formlegt fyrirtæki í kring
um framleiðslu sína. Fyrirtækið
ber nafnið Urtasmiðjan og vörur
þaðan eru nú fáanlegar í nokkr-
um verslunum á Akureyri sem
og í Reykjavík.
Til að byrja með var það
gjarnan fólk með húðkvilla sem
keypti smyrsl hjá Gígju og þá
Hvaða
áhrif
hafa
plönturnar?
Gígja notar eftirfarandi piöntur
í framleiðslu sína:
Baldursbrá: Mýkir og græðir,
linar bólgur, róandi.
Birki: Græðandi, bjúgeyðandi,
gott við exemi og gigtarverkj-
um.
Blágresi: Græðandi, bólgueyð-
andi.
Blóðberg: Gott á bólgna vöðva
og liði, græðandi.
Fjallagrös: Góð á sár, exem
og þurrkbletti, mýkjandi og
græðandi.
Grœðikaktus: (Aloa vera)
Græðir og styrkir húðina, róar
kláða.
Haugarfi: Notaður á bólgur,
sár, gyllingæð, exem og psori-
asis, kláðastillandi, græðandi.
KamiUa: Bólgueyðandi, græð-
andi og róandi.
Lofnarblóm: Stillir kláða og
sviða, græðandi, gott á auma
liði og spennta vöðva.
Mynta: Græðandi, kælandi,
linar bólgur og verki.
Morgunfrú: Góð á útbrot og
gyllinæð, styrkir vessakerfið.
Njóli: Kláðastillandi, græð-
andi:
Rauðsmári: Græðandi á exem
og psoriasis, Talin ein af okkar
bestu græðijurtum, styrkir
vessakerfið, bólgueyðandi.
var það einkum græðismyrslið
hennar sem var vinsælt. Nú segir
hún að einnig sé orðið algengt
að fólk sem ekki þjáist af nein-
um kvillum leiti til sín, t.d. eftir
andlitskremum eða olíum. „Ég
held að fólk sé að verða meðvit-
aðra um hvað er heilnæmt og
ómengað,“ segir Gígja, en vör-
urnar hennar eru án allra gerfi-
efna.
Jurtimar fær Gígja úr sínu
nánasta umhverfi, niður undir
sjó fyrir neðan húsið hennar og í
fjallinu fyrir ofan. Hún segir
meira en nóg af jurtum til og þó
hún margfaldaði framleiðsluna
yrði það ekki vandamál að finna
nægjanlegt magn af jurtum.
Tónlist og jurtir
Jurtasöfnunin átti aldrei að verða
annað en tómstundastarf en
Gígja er tónlistarkennari við
Tónmenntaskólann á Akureyri
og hefur því nógu að sinna um
þessar mundir. Hún segir þó að
vinnan með jurtimar samræmist
tónlistinni ekki svo illa. „í fljótu
bragði virðist þetta vera allt ann-
ar hlutur en oft er sagt að tónlist-
in sé andlega græðandi. Því má
kannski segja að þetta tvennt
eigi eitthvað sameiginlegt; ann-
að græðir sálina og hitt húðina.“
Gígja leggur áherslu á að þó
jurtasmyrsl, krem og olíur geti
hjálpað fólki megi ekki hafa
ofsatrú á mætti þessara jurta.
Enging krem, hversu góð sem
þau séu, geti staðið undir því að
vera kraftaverkakrem en í mörg-
um tilfellum getur notkun haldið
ákveðnum kvillum niðri. Exem
og psoriasis hafi t.d. stundum
horfið eftir nokkurra vikna notk-
un. „En mér finnst stórkostlegt
að hægt sé að halda þessum
kvillum niðri og ég verð alltaf
mjög ánægð að heyra ef jurtimar
hafa gert gagn.“ AI