Dagur


Dagur - 09.03.1996, Qupperneq 8

Dagur - 09.03.1996, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Laugardagur 9. mars 1996 Sigrún Gísladóttir, fram- kvæmdastjóri Ellimálaráðs Reykjavíkurprófastsdæma, (t.h.) og Valgerður Valgarðs- dóttir, djákni á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri. Mynd: AI Heimsóknarþjónusta kirkjunnar: Mikilvægast er a<S kunna aÖ hlusta „Að glæða von" var yfir- skrift fræðslufundar, sem Eyjafjarðarprófastsdæmi stóð íyrir um síðustu helgi. A fundinum var fjallað um heimsóknarjDjónustu kirkj- unnar en í athugun er að skipuleggja slíka þjónustu ó Eyjafjarðarsvæðinu. Mark- mið þjónustu af þessu tagi yrði að rjúfa einangrun og vera vinur í nafni kristinnar trúar. Þjónustunni er ekki ætlað að koma í stað heimahjúkrunar eða heimil- isaðstoðar heldur er um við- bót að ræða. Reykjavíkur- prófastsdæmi hafa um nokk- urt skeið boðið öldruðum, fötluðum, eða öðrum sem ekki eiga heimangengt, upp ó þjónustu af þessu tagi og var sú þjónusta kynnt ó fræðslufundinum. Sigrún Gísladóttir er fram- kvæmdastjóri Ellimálaráðs Reykjavíkurprófastsdæma og hef- ur haft veg og vanda af skipulagn- ingu heimsóknarþjónustunnar í Reykjavík. Hún segir markmið þjónustunnar vera að rjúfa ein- angrun, lina þjáningar og glæða von. „Þjónusta kirkjunnar er ekki í samkeppni heldur í samvinnu við aðra samfélagsþjónustu," segir hún og telur heimsóknarþjónust- una mjög mikilvæga viðbót. Flestir sem heimsóttir eru í Reykjavík eru aldraðir og sumir söfnuðir hafa afmarkað sig við að veita gömlu fólki þessa þjónustu. Sigrún segir sltkar ákvarðanir í höndum einstakra safnaða en einnig sé hægt að bjóða þessa þjónustu fólki, sem kemst ekki ferða sinna vegna fötlunnar, veik- inda eða af öðrum sökum. Sjálfboðastarf Heimsóknarþjónustan byggir upp á sjálfboðaliðastarfi en Sigrún segir mikilvægt að hafa einn starfsmann, sem haldi utan um þjónustuna og skipuleggi hana. Miklu skipti að sjálfboðaliðar séu vel undirbúnir og kynningamám- skeið séu æskileg. Ekki eru gerðar þær kröfur til sjálfboðaliða að þeir hafi sérstaka guðfræðilega þekkingu en mikil- vægt er að þeir hafi áhuga og tíma aflögu til heimsókna. Miklu skipt- ir að sjálfboðaliðinn ræki þjónust- una af trúmennsku, kunni að hlusta og komi fram á þann hátt. að viðkomandi fái á honum traust. „Aðalatriðið er að við höfum tvö eyru en bara einn munn. Við ætt- um því að hlusta helmingi meira en við tölurn," sagði Sigrún m.a. þegar hún fjallaði um hvaða kröf- ur væru gerðar til sjálfboðaliða. Heimsóknir geta t.d. falið í sér að sitja í ró og næði og spjalla, lesa upphátt, skrifa bréf, fara í gönguferð eða taka þátt í samver- um sem boðið er upp á. Sá sem heimsækir tekur þátt í að skapa persónuleg tengsl en hans hlut- verk er ekki að vinna heimilis- störfin eða snúast fyrir þann sem hann heimsækir en hann getur hins vegar bent á úrræði s.s. heim- ilishjálp. Sælla að gefa en þiggja Kristin trú kennir að hverjum manni beri að meta afleiðingar gjörða sinna en Sigrún segir ekki síður mikilvægt að meta afleiðing- ar aðgerðarleysis. Margir í þjóðfé- laginu eru hjálpar þurfi og þó sjálfboðaliðar fái ekki greitt í pen- ingum segja flestir að þeim finnist þeir fá meira til baka en þeir gefi. Á Reykjavíkursvæðinu, þar sem þessi þjónusta er komin af stað, eru konur í miklum meirihluta sjálf- boðaliða en einn og einn karlmað- ur hefur þó farið í heimsóknir og segir Sigrún æskilegt að fleiri karl- menn bættust í hópinn. Þeir sem heimsóttir eru skiptast hins vegar nokkuð jafnt milli kynja. Ábendingar um þá sem þarf að heimsækja koma úr ýmsum áttum. Stundum er haft samband við sóknarprest og hann bendir á heimsóknarþjónustuna sem val- kost og einnig kemur fyrir að starfsfólk heimahjúkrunar bendi á einstaklinga sem gætu haft gagn og gaman af heimsóknum. Á fundinum kom fram að ein sókn innan Eyjafjarðarprófastsdæmis hafi sent út bréf til eldra fólks þar sem þeir sem höfðu áhuga á að fá heimsóknir frá kirkjunni voru beðnir um að fylla út eyðublað og senda. Aðeins ein beiðni barst og töldu fundarmenn þetta styrkja þá trú að í fæstum tilfellum hafi þeir frumkvæði sem kunni að þarfnast þjónustu af þessu tagi. Því sé nauðsynlegt að hafa augun opin og kynna þjónustuna. Ætlum að byrja smátt I Eyjafjarðarprófastsdæmi hefur ekki verið skipulögð heimsóknar- þjónustu á vegum kirkjunnar en eins og fyrr segir er töluverður áhugi á að koma slfku af stað. Valgerður Valgarðsdóttir, djákni á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri, er mikil áhugamanneskja um heimsóknarþjónustu og situr m.a. í nefnd á vegum héraðsprófasts- dæmisins, sem er að kanna mögu- leikann á að koma þessari þjón- ustu á fót norðanlands. „Við ákváðum að fá Sigrúnu hingað norður og málin standa nú þannig að nefndin þarf að koma saman og ákveða hvort þessi þjónusta verði á vegum prófastsdæmisins eða einstakra sókna,“ segir Valgerður. Akureyrarsókn hefur þegar sýnt áhuga á að koma af stað heim- sóknarþjónustu en á fundinum voru fulltrúar frá fleiri sóknum í Eyjafirði og því telur Valgerður að áhugi sé fyrir þessu víðar en á Ak- ureyri. Hún hefur boðið fram krafta sína til að halda utan um skipulagninguna fyrst í stað og segir að hugmyndin sé að byrja smátt enda sé hún í fullu starfi í öðru. „Við hugsum okkur að byrja kannski með 4-5 sjálfboðaliða. Á undirbúningsnámskeiðinu mættu hins vegar gjaman vera fleiri,“ segir hún og bendir á að ef einhver hafi áhuga á að bjóða sig fram geti sá hinn sami haft samband við sinn sóknarprest eða einhvem í nefndinni, en auk hennar sitja í nefndinni séra Svavar Alfreð Jóns-. son og Heiðdís Norðfjörð. Valgerður segir vandasamt að finna einstaklinga sem þurfi á heimsókn að halda og að velja hver eigi að fara í heimsókn. Allt bendi hins vegar til að þörfin sé mikil. „Þetta hefur ekki verið kannað en mér heyrist á þeim sem em í heimahjúkrun og sjá um heimilisaðstoð að á þessu sé mikil þörf. I mínu starfi á sjúkrahúsinu kynnist ég því líka að oft em að fara heim einstaklingar sem em mikið einir og væri mjög gott að geta boðið þeim þessa þjónustu." AI Kærleíksþíónusta í lifandi kirkju er þjónusta við náungann mikilvægur þáttur. í fréttabréfi sem ellimálaráð Reykjavíkurprófastsdæma gefur út er þessari þjónustu lýst á eftir- farandi hátt: Ég kem ekki til þín til að sannfœra þig um trú mína held- ur til að taka þátt í efa þínum. Ég kem ekki til þín til að hefja þig til skýjanna í styrkleika mín- um heldur kem ég í veikleika mínum, með ósk um að fá að vera hjá þér. Ég kem ekki með auðœfi til að uppfylla óskir þínar, ég kem snauð svo við getum auðgað hvort annað. Ég kem ekki til að leggja á þig ok, heldur þrá eftir að þú öðlist frelsi. Ég kem ekki með valdi eða hroka, heldur sem þjónn. Ég veð ekki inn á þig, heldur kem ég varlega, svo þú brotnir ekki saman. Ég kem ekki með hávaða og látum, heldur ein, hljóðlátlega, svo að þú heyrist. Ég kem ekki nauðug eða til að hljóta upphefð, heldur vegna eigin löngunar til að þjóna í gleði. Ég þvinga mig ekki upp á þig, þegar þú vilt vera í friði. Ég kem til þín þegar augu þín eru sorg- mœdd og tóm og þérfinnst nótt- in orðin allt ofdimm.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.