Dagur - 09.03.1996, Page 12

Dagur - 09.03.1996, Page 12
12 - DAGUR - Laugardagur 9. mars 1996 ÍÞRÓTTIR FROSTI EIÐSSON Handbolti - Úrslitakeppni íslandsmótsins: Flest bendir til að KA og Valur leiki til úrslita - segir Þorbergur Aöalsteinsson, þjálfari ÍBV, sem spáir fyrir um leikina framundan Þorbergur Aðalsteinsson, þjálf- ari ÍBV og fyrrum landsliðs- þjálfari, spáði því að KA og Val- ur mundu leika til úrslita á ís- landsmótinu, eins og í fyrra. DAGUR leitaði til Þorbergs til að spá fyrir um úrslit leikja í úr- slitakeppninni í handknattleik. KA-Selfoss 2:0 „Ég held að KA vinni 2:0. Það er ekki langt síðan þeir áttu erfiðan leik á Selfossi og KA-mennimir vita hvað þarf til að sigra. KA er með yfirhöndina, bæði sóknar- og varnarlega og á því að hafa vinn- inginn, sama hvort Leó Öm verð- ur búinn að ná sér af meiðslunum. Ég held að Selfossliðið hafi Hverju Fulltrúar 1. deildarfélaganna spáðu fyrir lokaröð liðanna á Islandsmótinu áður en keppni hófst í haust. Til gamans er rétt að rifja upp spána, innan sviga er lokastaða liðanna eftir deildarkeppnina. 1. Valur (2), 2. Afturelding (6), 3. FH (5), 4. Stjarnan (3), 5. KA (1), 6. Selfoss (8), 7. Haukar (4), 8. Víkingur (11), 9. Grótta (7), 10. ÍR (9), 11. KR (12), 12. ÍBV(10). „toppað“ í leiknum gegn KA í bikarnum, en tel að KA-menn séu famir að þekkja vel inná Selfyss- inga eftir leikina í vetur.“ Haukar-FH 2:1 „Ég hef trú á því að það verði mjög jafnir leikir. Það em engar ástir á milli þessara félaga, en ég held að Haukamir vinni báða leik- ina á Strandgötunni. Munurinn á liðunum er fyrst og fremst fólginn í markvörslunni, þar hafa Haukar vinninginn. Svo er líklegt að Héð- inn Gilsson verði ekki með FH í þessum leikjum og það munar mikið um það.“ Valur-Grótta 2:0 „Það skiptir gríðarlegu máli hvort menn fá þrjá til fjóra daga, eða viku á milli leikja og Valsmenn vilja klára þetta í tveimur leikjum. Grótta hefur verið að slaka á í restina, tapaði til að mynda þrem- ur síðustu leikjum sínum í deild- inni, eftir að hafa lagt mikið í jóla- vinnuna. Gróttan er hins vegar einfaldlega ekki með jafngóða einstaklinga og Valur.“ Stjarnan-Afturelding 2:1 „Heimavöllurinn gerir útslagið en þetta verða mjög jafnar viðureign- ir. Gunnar Andrésson er úr leik hjá Aftureldingu og það hefur mikla þýðingu. Stjaman hefur heldur verið á uppleið að undan- fömu og vinnur nauman sigur.“ KA og Valur með sterkustu liðin „Ég á ekki von á öðru en að KA mæti Val í úrslitunum. Liðin hafa haft yfirburði í deildarkeppninni og þegar við bætist að þau fá oddaleik í úrslitakeppninni, þá finnst mér flest benda til þess að þau lendi saman, eins og í fyrra. Það eina sem gæti breytt því væru meiðsl hjá lykilmönnum, en þau geta haft mjög mikið að segja þegar leikið er svona þétt. Ég á samt ekki von á því að neitt lið komi óvænt upp, eins og KA- menn í fyrra, en keppnin á hins vegar eftir að verða mjög spenn- andi. Þá er hún leikin á stuttum tíma, óslitin og á eftir að fá mikla umfjöllun.“ Þorbergur Aðalsteinsson, spáir því að KA og Valur leiki til úrslita um fs- landsmeistaratitilinn eins og í fyrra. Myndin er frá viðureign liðanna í fyrra, Patrekur Jóhannesson reynir að finna glufu á Valsvörninni. Leikdagar í úrslitakeppninni Átta liða úrslit 10.-15. mars Sunnudagur 10. mars KA-Selfoss kl. 20:00 Haukar-FH kl. 20:30 Mánudagur 11. mars Valur-Grótta kl. 20:00 Stjaman-UMFA kl. 20:00 Þriðjudagur 12. mars FH-Haukar kl. 20:00 Selfoss-KA kl. 20:00 Miðvikudagur 13. mars Grótta-Valur kl. 20:00 UMFA-Stjaman kl. 20:00 Fimmtudagur 14. mars (Haukar-FH kl. 20:00) (KA-Selfoss kl. 20:00) Föstudagur 15. mars (Valur-Grótta kl. 20:00) (Stjaman-UMFA kl. 20:00) Fjögurra liða úrslit; leikin frá þriðjudeginum 19. mars til sunnu- dagsins 24. mars. 19. KA/Selfoss-Haukar/FH 20. Valur/Grótta-Stjaman/UMFA 21. Haukar/FH-Selfoss/KA 22. Stjaman/UMFA-Valur/Grótta 23. (KA/Self-Haukar/FH) 24. (Valur/Grótta-Stjaman/ UMFA) Úrslitaleikir Fimmtud. 28. mars, laugard. 30. mars, þriðjud. 2. apríl og (fimmtu- daginn 4. apríl) og (laugardaginn 6. apríl), ef á þarf að halda. Konráð er besti íslenski spilarinn - segir Fred Williams, Bandaríkjamaðurinn hjá Þór Fred Williams, Bandaríkjamað- urinn hjá Þór, var án efa einn al- besti leikmaðurinn í úrvalsdeild- arkeppninni í körfuknattleik sem nú er nýlokið. Þessi 23 ára leikmaður frá Mississippi, hefur látið verkin tala á vellinum, en hefur einnig reynst góður félagi utan vallar, ólíkt því sem gerist með marga af bandarísku leik- mönnunum, sem komið hafa hingað til lands á undanförnum árum. Williams heldur utan til Bandaríkjanna í næstu viku, en blm. Dags bankaði upp á hjá hon- um um síðustu helgi, þar sem hann býr í Möðruvallastræti og spurði hann útúr, um Þórsleikina í vetur, trúmál og framtíðina svo eitthvað sé nefnt. - Hvað fannst þér um árangur- inn hjá Þórsliðinu? „Hann var að sumu leyti von- brigði, ég átti von á því að við mundum gera betur í deildinni, en ég er ánægður með að við gáfumst aldrei upp. Ég veit ekki alveg hvemig stóð á því að við náðum ekki í fleiri stig. Við vorum reynd- ar ekki með neitt breiðan hóp og það hefur sjálfsagt haft eitthvað að segja að lykilmenn þurftu að leika of rnikið." - Ef þú ferð yfir leikina í hug- anum, hvað var besti leikur ykkar í vetur? „Ég mundi segja síðasti leikur- inn fyrir jól, gegn Grindavík. Það var mikill hugur í liðinu, að standa sig vel í þeim leik. Ég var ágætur í fyrri hálfleiknum, en var síðan rekinn útaf. Það kom svo ekki að sök, því það stóðu sig allir mjög vel. - Þú varst í leikbanni í þremur leikjum og miðað við það, þá mætti halda að þú hefðir verið vandræðabam? „Fyrsta brottvísunin (eftir leik- inn gegn Tindastóli) kom til vegna misskilnings. í síðara skiptið, í leiknum gegn Grindavík, var erfitt að bregðast við á annan hátt. Hann (Marel Guðlaugsson, hjá Grinda- vík) skallaði mig og ég sló þá til hans. Hann hafði fyrr um veturinn gert þetta líka við Jason Williford hjá Haukum. Það versta var að dómaramir sáu ekki atvikið og ég var dæmdur í tveggja leikja bann, sem voru mikil vonbrigði. Eftir þennan sigur voru leikmenn komnir með gott sjálfstraust og við hefðum líklega náð okkur vel á strik. Við hefðum átt að vinna fyrstu tvo leikina á þessu ári, en þeir töpuðust báðir.“ - Hverjir finnst þér vera bestu íslensku leikmennimir? „Það segja allir að Teitur (Ör- lygsson) sé bestur og hann er mjög góður skotmaður. Mér finnst Konráð Óskarsson vera ennþá betri og segi það ekki vegna þess að ég spilaði með honum í liði, þó vissulega hafi maður séð hvað hann getur gert á æfingum. Konni er mjög heilsteyptur, góður í að rekja boltann og getur skotið fyrir innan sem utan þriggja stiga lín- una. Þá er erfitt fyrir aðra að stoppa hann því hann getur hagað skotum sínum, eftir því hvernig vöm er spiluð á móti honum.“ - En var þetta einmanalegt að vera hér á Akureyri í vetur? „Það gat verið það stundum. Ég notaði hins vegar tímann vel til að reyna að bæta mig. Ég lyfti lóðum og skaut á körfu í Iþrótta- höllinni. Svo hjálpaði ég líka til hjá yngri flokkunum." - Svo sækir þú einnig kirkju. Er það ekki? „Jú, ég er kaþólskur og trúin er mjög mikilvæg fyrir mig. Guð gaf mér hæfileikann til að spila körfu- knattleik og mér mundi finnast það rangt, ef ég þakkaði honum ekki fyrir. Ég trúi því að Guð hafi gert mér það kleift að fá mat, það eru margir sem eiga ekki til hnífs og skeiðar og því finnst mér mik- ilvægt að þakka fyrir það sem ég fæ.“ - Hvað tekur við þegar þú kem- ur á heimaslóðimar? „Ég ætla að byrja á því að slappa af og fara í gegnum rásirn- ar á sjónvarpstækinu, sem eru fleiri en ein eða tvær eins og hér á landi. Svo á ég örugglega eftir að heilsa upp á skólaliðið og spila eitthvað með því.“ - Hvað með framhaldið. Verður þú með Þór næsta vetur? „Ég hef áhuga á því og það væri auðveldast að segja já. Ég ætla hins vegar að taka mér hvíld og hugsa um það í ró og næði.“

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.