Dagur - 09.03.1996, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 9. mars 1996
ÍÞRÓTTIR
FROSTI EIÐSSON
Handbolti - Úrslitakeppni íslandsmótsins:
Flest bendir til að KA
og Valur leiki til úrslita
- segir Þorbergur Aöalsteinsson, þjálfari ÍBV, sem spáir
fyrir um leikina framundan
Þorbergur Aðalsteinsson, þjálf-
ari ÍBV og fyrrum landsliðs-
þjálfari, spáði því að KA og Val-
ur mundu leika til úrslita á ís-
landsmótinu, eins og í fyrra.
DAGUR leitaði til Þorbergs til
að spá fyrir um úrslit leikja í úr-
slitakeppninni í handknattleik.
KA-Selfoss 2:0
„Ég held að KA vinni 2:0. Það er
ekki langt síðan þeir áttu erfiðan
leik á Selfossi og KA-mennimir
vita hvað þarf til að sigra. KA er
með yfirhöndina, bæði sóknar- og
varnarlega og á því að hafa vinn-
inginn, sama hvort Leó Öm verð-
ur búinn að ná sér af meiðslunum.
Ég held að Selfossliðið hafi
Hverju
Fulltrúar 1. deildarfélaganna
spáðu fyrir lokaröð liðanna á
Islandsmótinu áður en keppni
hófst í haust. Til gamans er rétt
að rifja upp spána, innan sviga
er lokastaða liðanna eftir
deildarkeppnina.
1. Valur (2), 2. Afturelding
(6), 3. FH (5), 4. Stjarnan (3),
5. KA (1), 6. Selfoss (8), 7.
Haukar (4), 8. Víkingur (11),
9. Grótta (7), 10. ÍR (9), 11.
KR (12), 12. ÍBV(10).
„toppað“ í leiknum gegn KA í
bikarnum, en tel að KA-menn séu
famir að þekkja vel inná Selfyss-
inga eftir leikina í vetur.“
Haukar-FH 2:1
„Ég hef trú á því að það verði
mjög jafnir leikir. Það em engar
ástir á milli þessara félaga, en ég
held að Haukamir vinni báða leik-
ina á Strandgötunni. Munurinn á
liðunum er fyrst og fremst fólginn
í markvörslunni, þar hafa Haukar
vinninginn. Svo er líklegt að Héð-
inn Gilsson verði ekki með FH í
þessum leikjum og það munar
mikið um það.“
Valur-Grótta 2:0
„Það skiptir gríðarlegu máli hvort
menn fá þrjá til fjóra daga, eða
viku á milli leikja og Valsmenn
vilja klára þetta í tveimur leikjum.
Grótta hefur verið að slaka á í
restina, tapaði til að mynda þrem-
ur síðustu leikjum sínum í deild-
inni, eftir að hafa lagt mikið í jóla-
vinnuna. Gróttan er hins vegar
einfaldlega ekki með jafngóða
einstaklinga og Valur.“
Stjarnan-Afturelding 2:1
„Heimavöllurinn gerir útslagið en
þetta verða mjög jafnar viðureign-
ir. Gunnar Andrésson er úr leik
hjá Aftureldingu og það hefur
mikla þýðingu. Stjaman hefur
heldur verið á uppleið að undan-
fömu og vinnur nauman sigur.“
KA og Valur með
sterkustu liðin
„Ég á ekki von á öðru en að KA
mæti Val í úrslitunum. Liðin hafa
haft yfirburði í deildarkeppninni
og þegar við bætist að þau fá
oddaleik í úrslitakeppninni, þá
finnst mér flest benda til þess að
þau lendi saman, eins og í fyrra.
Það eina sem gæti breytt því væru
meiðsl hjá lykilmönnum, en þau
geta haft mjög mikið að segja
þegar leikið er svona þétt. Ég á
samt ekki von á því að neitt lið
komi óvænt upp, eins og KA-
menn í fyrra, en keppnin á hins
vegar eftir að verða mjög spenn-
andi. Þá er hún leikin á stuttum
tíma, óslitin og á eftir að fá mikla
umfjöllun.“
Þorbergur Aðalsteinsson, spáir því að KA og Valur leiki til úrslita um fs-
landsmeistaratitilinn eins og í fyrra. Myndin er frá viðureign liðanna í fyrra,
Patrekur Jóhannesson reynir að finna glufu á Valsvörninni.
Leikdagar í úrslitakeppninni
Átta liða úrslit 10.-15. mars
Sunnudagur 10. mars
KA-Selfoss kl. 20:00
Haukar-FH kl. 20:30
Mánudagur 11. mars
Valur-Grótta kl. 20:00
Stjaman-UMFA kl. 20:00
Þriðjudagur 12. mars
FH-Haukar kl. 20:00
Selfoss-KA kl. 20:00
Miðvikudagur 13. mars
Grótta-Valur kl. 20:00
UMFA-Stjaman kl. 20:00
Fimmtudagur 14. mars
(Haukar-FH kl. 20:00)
(KA-Selfoss kl. 20:00)
Föstudagur 15. mars
(Valur-Grótta kl. 20:00)
(Stjaman-UMFA kl. 20:00)
Fjögurra liða úrslit; leikin frá
þriðjudeginum 19. mars til sunnu-
dagsins 24. mars.
19. KA/Selfoss-Haukar/FH
20. Valur/Grótta-Stjaman/UMFA
21. Haukar/FH-Selfoss/KA
22. Stjaman/UMFA-Valur/Grótta
23. (KA/Self-Haukar/FH)
24. (Valur/Grótta-Stjaman/
UMFA)
Úrslitaleikir
Fimmtud. 28. mars, laugard. 30.
mars, þriðjud. 2. apríl og (fimmtu-
daginn 4. apríl) og (laugardaginn
6. apríl), ef á þarf að halda.
Konráð er besti
íslenski spilarinn
- segir Fred Williams,
Bandaríkjamaðurinn hjá Þór
Fred Williams, Bandaríkjamað-
urinn hjá Þór, var án efa einn al-
besti leikmaðurinn í úrvalsdeild-
arkeppninni í körfuknattleik
sem nú er nýlokið. Þessi 23 ára
leikmaður frá Mississippi, hefur
látið verkin tala á vellinum, en
hefur einnig reynst góður félagi
utan vallar, ólíkt því sem gerist
með marga af bandarísku leik-
mönnunum, sem komið hafa
hingað til lands á undanförnum
árum.
Williams heldur utan til
Bandaríkjanna í næstu viku, en
blm. Dags bankaði upp á hjá hon-
um um síðustu helgi, þar sem
hann býr í Möðruvallastræti og
spurði hann útúr, um Þórsleikina í
vetur, trúmál og framtíðina svo
eitthvað sé nefnt.
- Hvað fannst þér um árangur-
inn hjá Þórsliðinu?
„Hann var að sumu leyti von-
brigði, ég átti von á því að við
mundum gera betur í deildinni, en
ég er ánægður með að við gáfumst
aldrei upp. Ég veit ekki alveg
hvemig stóð á því að við náðum
ekki í fleiri stig. Við vorum reynd-
ar ekki með neitt breiðan hóp og
það hefur sjálfsagt haft eitthvað að
segja að lykilmenn þurftu að leika
of rnikið."
- Ef þú ferð yfir leikina í hug-
anum, hvað var besti leikur ykkar
í vetur?
„Ég mundi segja síðasti leikur-
inn fyrir jól, gegn Grindavík. Það
var mikill hugur í liðinu, að standa
sig vel í þeim leik. Ég var ágætur í
fyrri hálfleiknum, en var síðan
rekinn útaf. Það kom svo ekki að
sök, því það stóðu sig allir mjög
vel.
- Þú varst í leikbanni í þremur
leikjum og miðað við það, þá
mætti halda að þú hefðir verið
vandræðabam?
„Fyrsta brottvísunin (eftir leik-
inn gegn Tindastóli) kom til vegna
misskilnings. í síðara skiptið, í
leiknum gegn Grindavík, var erfitt
að bregðast við á annan hátt. Hann
(Marel Guðlaugsson, hjá Grinda-
vík) skallaði mig og ég sló þá til
hans. Hann hafði fyrr um veturinn
gert þetta líka við Jason Williford
hjá Haukum. Það versta var að
dómaramir sáu ekki atvikið og ég
var dæmdur í tveggja leikja bann,
sem voru mikil vonbrigði. Eftir
þennan sigur voru leikmenn
komnir með gott sjálfstraust og
við hefðum líklega náð okkur vel
á strik. Við hefðum átt að vinna
fyrstu tvo leikina á þessu ári, en
þeir töpuðust báðir.“
- Hverjir finnst þér vera bestu
íslensku leikmennimir?
„Það segja allir að Teitur (Ör-
lygsson) sé bestur og hann er
mjög góður skotmaður. Mér finnst
Konráð Óskarsson vera ennþá
betri og segi það ekki vegna þess
að ég spilaði með honum í liði, þó
vissulega hafi maður séð hvað
hann getur gert á æfingum. Konni
er mjög heilsteyptur, góður í að
rekja boltann og getur skotið fyrir
innan sem utan þriggja stiga lín-
una. Þá er erfitt fyrir aðra að
stoppa hann því hann getur hagað
skotum sínum, eftir því hvernig
vöm er spiluð á móti honum.“
- En var þetta einmanalegt að
vera hér á Akureyri í vetur?
„Það gat verið það stundum.
Ég notaði hins vegar tímann vel til
að reyna að bæta mig. Ég lyfti
lóðum og skaut á körfu í Iþrótta-
höllinni. Svo hjálpaði ég líka til
hjá yngri flokkunum."
- Svo sækir þú einnig kirkju. Er
það ekki?
„Jú, ég er kaþólskur og trúin er
mjög mikilvæg fyrir mig. Guð gaf
mér hæfileikann til að spila körfu-
knattleik og mér mundi finnast
það rangt, ef ég þakkaði honum
ekki fyrir. Ég trúi því að Guð hafi
gert mér það kleift að fá mat, það
eru margir sem eiga ekki til hnífs
og skeiðar og því finnst mér mik-
ilvægt að þakka fyrir það sem ég
fæ.“
- Hvað tekur við þegar þú kem-
ur á heimaslóðimar?
„Ég ætla að byrja á því að
slappa af og fara í gegnum rásirn-
ar á sjónvarpstækinu, sem eru
fleiri en ein eða tvær eins og hér á
landi. Svo á ég örugglega eftir að
heilsa upp á skólaliðið og spila
eitthvað með því.“
- Hvað með framhaldið. Verður
þú með Þór næsta vetur?
„Ég hef áhuga á því og það
væri auðveldast að segja já. Ég
ætla hins vegar að taka mér hvíld
og hugsa um það í ró og næði.“