Dagur - 09.03.1996, Page 13

Dagur - 09.03.1996, Page 13
Laugardagur 9. mars 1996 - DAGUR - 13 POPP____________________ MAGNÚS GEIR GUÐMUNDSSON Bítlar aldrei framar - möguleiki á endurkomu kveöinn niöur í eitt skipti fyrir öll í fréttum nti í vikunni vakti það heldur betur athygli að hinir þrír eftirlifandi Bítlar, Paul McCartn- ey, George Harrison og Ringo Starr, hefðu hafnað sannkölluðu gylliboði um að koma saman að nýju sem Bítlamir og halda að minnsta kosti 22 tónleika víðsveg- ar um heim. Eiga ýmsir fjármála- mcnn, m.a. bandarískir, að hafa boðið hvorki meira né minna en 25 milljarða króna, 250 milljónir dollara, köppunum þremur til handa, en svarið var sem sagt nei. Er haft eftir McCartney að það hafi einfaldlega ekki komið til greina að korna fram aftur. An John Lennons væri hreinlega ekki um Bítlana að ræða. Kemur þessi frétt nú rétt í þann mund sem ann- að lagið að þremur, sem John Lennon skildi eftir sig og ekkja hans, Yoko, gaf Paul á sínum tíma eins og frægt er orðið, Real Love, að koma út á skmáskífu, sem og safnið Anthology 2. Þykir eflaust einhverjum það vera fíflska, jafn- vel hjá mönnum á borð við þessa þrjá, að hafna slíku boði, en það staðfestir bara að þeir bera sanna virðingu fyrir minningu Lennons og standa við það sem þeir hafa mestalla tíð sagt, að ekki kæmi til greina að koma aftur saman sem The Beatles. Því ætti það að vera lýðum algjörlega ljóst í eitt skipti fyrir öll að um endurkomu verður EKKI að ræða, hvort sem mönn- um líkar það betur eða verr. Nóg er líka samt, með Beach Boys, Eagles og alla hina og þegar meira að segja pönkgoðin í Sex Pistols, sem voru uppreisn gegn öllum verðmætagildum á sínum tíma, rísa líka í þokkabót upp frá dauð- um, þá er víst fokið í flest skjólin. Paul McCartney sjálfur í svibsljósinu Skömmu áður en ofangreind fregn birtist, var Paul McCartney sjálfur í sviðsljósinu, eða réttara sagt, hin liðlega fimmtíu ára gamla líftóra hans, vegna fregnar um að „leigu- morðingi“, sem vildi óður næla í hana fyrir stórfé. Að gamni slepptu, þá var það hið mjög svo slúðurgjama fréttablað, The Sun, sem sló því upp á forsíðu sinni að á eftir Paul væri leigumorðingi, sem lofað hefði verið um 10 millj- ónum ísl. kr. fyrir unnið verk. Að sögn blaðsins voru það tveir hand- teknir þjófar sem tjáðu bresku leynilögreglunni, Scotland Yard, þetta og var sagan í stuttu máli á þá leið að þeir tveir áttu að hafa verið staddir fyrir utan skartgripa- búð í London með hinum meinta leigumorðingja, þegar þeir komu auga á Bítilinn fræga koma út úr versluninni. Á þá hinn þriðji að hafa sagt hinum tveimur í óspurð- um fréttum, að hann hefði verið ráðinn til að myrða McCartney og búið væri að skipuleggja stund og stað. Var þessi forsíðuuppsláttur The Sun í fyrstu tekinn alvarlega, enda alltaf verið hræðsla fyrir hendi hjá hinum Bítlunum fyrir slíkum árásum eftir að John Lenn- on var skotinn fyrir röskum einum og hálfum áratug, en við nánari eftirgrennslan var allur ótti hins vegar ástæðulaus. Það var að vísu rétt að tveir vafasamir náungar höfðu séð Paul ganga út úr skart- gripaverslun og fengu hjá honum eiginhandaráritanir, en meintur leigumorðingi var aftur á móti uppspuni einn. Slash er enn í Guns n’ Roses og er byrjaður að semja efni fyrir nýja plötu. Compulsion Hér annars staðar á síðunni er sagt frá „íslandsvinunum" í Ash, sem senn senda frá sér sína fyrstu plötu í fullri lengd. Önnur sveit af írsku bergi brotin eins og Ash og ekki síður merkileg, Compulsion, er nú að senda frá sér nýja plötu innan tíðar, sern bera mun heitið Future Is Medium. Verður þetta önnur plata Compulsion, sem eins og Björk, Skunk anansie og The Shamen, er á mála hjá One Little Indian. G ’n R skrimtir enn Hljótt hefur verið um vandræðarokkarana í Guns ’n Roses og óvissa nkt um framtíð hljómsveitarinnar. Þau tíðindi berast hins vegar nú að bæði Axl Rose söngvari og Slash gítarleikari séu byrjaðir að semja lög fyrir nýja plötu. Það vekur síðan athygli að þeir hafa verið í þessu að starfa með sitt hvorum gítarleikaranum, sem báðir hafa komið við sögu Guns n’ Roses, Izzy Stradlin í tilviki Rose og Gilby Clarke í til- viki Slash. Hvort annar þeirra sé þar með aftur kominn í sveitina, er aftur á móti á huldu. Soundgarden er mcðal þeirra sveita, sem leggur sitt að mörkum í baráttunni gegn ofbeldi á plötunni Home Alive. Paul McCartney hefur verib nokkub í svibsljósinu ab undanförnu og hefur nú m.a. ásamt hinum eftirlif- andi Bítlunum neitab gylli- bobi um endurkomu. Rokkað gegn ofbeldi Á mánudaginn var kom út ansi hreint merkileg safnplata á vegum Epic útgáfurisans, þar sem margar af helstu sveitum Seattlerokksins leggja sitt að mörkum í baráttunni gegn ofbeldi. Nefnist platan Home Alive, eftir samnefndum samtök- um í Seattle, sem berjast m.a. gegn ofbeldi á götum úti og fyrir auknum réttindum fómarlamba slíks ofbeldis. Mun allur ágóði sem kann að verða af sölu plötunnar renna til þessara sam- taka. Munu peningamir m.a. verða notaðir til að auka sjálfsvamar- fræðslu gegn árásum og annarri fræðslu, sem varðar vamir gegn ofbeldi. Fríður flokkur hljóm- sveita og „boðskapsflytjenda“ (á ensku spoken word Performers) kemur fram á plötunni, sem alls eru 45 að tölu. Væri of langt mál að telja þó ekki væri nema helm- inginn upp, en meðal helstu hljómsveita má nefna Soundgar- den, Pearl Jam, Nirvana, systumar Ann og Nancy Wilson úr Heart og nýstimin í tríóinu The Presidents og The United States Of America. Em lögin svo sem þessar sveitir og aðrar flytja, í mörgum tilfellum áður útgefin eða í sjaldgæfum út- gáfum. Home Alive er tileinkuð minningu söngkonunnar Miu Za- pata úr Seattlesveitinni The Gits, sem nauðgað var og síðan myrt árið 1993. Ash á leið með sína fyrstu breiðskífu. Sú fyrsta í fullri lengd írsku ungliðamir þrír í Ash, sem heimsóttu „klakann" skömmu fyr- ir áramót og héldu eftirminnilega tónleika í Laugardallshöll, eru nú í óða önn að taka upp sína fyrstu plötu í fullri lengd eins og sagt er, en áður hafa þeir einskorðað sig við míni og EP plötur svokallaðar (með 4-6 lögum). Reyndar hefur vinnan tafist nokkuð vegna smá erfiðleika við upptökumar og „leti“ að sögn Tim Wheelers og félaga, þannig að platan, sem eftir því sem best er vitað er enn óskírð, tefst aðeins í útgáfu. Er fyrst gert ráð fyrir að smá- skífa með laginu Goldfinger komi út um miðjan næsta mánuð og platan síðan fljótlega í kjölfarið. Að sögn verður tónlistin fjöl- skrúðug, með áhrifum allt frá Thin Lizzy til Sonic Yout, krydd- uð safaríkum textum m.a. um ung- lingaástir.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.