Dagur - 09.03.1996, Síða 13
Laugardagur 9. mars 1996 - DAGUR - 13
POPP____________________ MAGNÚS GEIR GUÐMUNDSSON
Bítlar aldrei framar
- möguleiki á endurkomu kveöinn niöur í eitt skipti fyrir öll
í fréttum nti í vikunni vakti það
heldur betur athygli að hinir þrír
eftirlifandi Bítlar, Paul McCartn-
ey, George Harrison og Ringo
Starr, hefðu hafnað sannkölluðu
gylliboði um að koma saman að
nýju sem Bítlamir og halda að
minnsta kosti 22 tónleika víðsveg-
ar um heim. Eiga ýmsir fjármála-
mcnn, m.a. bandarískir, að hafa
boðið hvorki meira né minna en
25 milljarða króna, 250 milljónir
dollara, köppunum þremur til
handa, en svarið var sem sagt nei.
Er haft eftir McCartney að það
hafi einfaldlega ekki komið til
greina að korna fram aftur. An
John Lennons væri hreinlega ekki
um Bítlana að ræða. Kemur þessi
frétt nú rétt í þann mund sem ann-
að lagið að þremur, sem John
Lennon skildi eftir sig og ekkja
hans, Yoko, gaf Paul á sínum tíma
eins og frægt er orðið, Real Love,
að koma út á skmáskífu, sem og
safnið Anthology 2. Þykir eflaust
einhverjum það vera fíflska, jafn-
vel hjá mönnum á borð við þessa
þrjá, að hafna slíku boði, en það
staðfestir bara að þeir bera sanna
virðingu fyrir minningu Lennons
og standa við það sem þeir hafa
mestalla tíð sagt, að ekki kæmi til
greina að koma aftur saman sem
The Beatles. Því ætti það að vera
lýðum algjörlega ljóst í eitt skipti
fyrir öll að um endurkomu verður
EKKI að ræða, hvort sem mönn-
um líkar það betur eða verr. Nóg
er líka samt, með Beach Boys,
Eagles og alla hina og þegar meira
að segja pönkgoðin í Sex Pistols,
sem voru uppreisn gegn öllum
verðmætagildum á sínum tíma,
rísa líka í þokkabót upp frá dauð-
um, þá er víst fokið í flest skjólin.
Paul McCartney sjálfur í
svibsljósinu
Skömmu áður en ofangreind fregn
birtist, var Paul McCartney sjálfur
í sviðsljósinu, eða réttara sagt, hin
liðlega fimmtíu ára gamla líftóra
hans, vegna fregnar um að „leigu-
morðingi“, sem vildi óður næla í
hana fyrir stórfé. Að gamni
slepptu, þá var það hið mjög svo
slúðurgjama fréttablað, The Sun,
sem sló því upp á forsíðu sinni að
á eftir Paul væri leigumorðingi,
sem lofað hefði verið um 10 millj-
ónum ísl. kr. fyrir unnið verk. Að
sögn blaðsins voru það tveir hand-
teknir þjófar sem tjáðu bresku
leynilögreglunni, Scotland Yard,
þetta og var sagan í stuttu máli á
þá leið að þeir tveir áttu að hafa
verið staddir fyrir utan skartgripa-
búð í London með hinum meinta
leigumorðingja, þegar þeir komu
auga á Bítilinn fræga koma út úr
versluninni. Á þá hinn þriðji að
hafa sagt hinum tveimur í óspurð-
um fréttum, að hann hefði verið
ráðinn til að myrða McCartney og
búið væri að skipuleggja stund og
stað. Var þessi forsíðuuppsláttur
The Sun í fyrstu tekinn alvarlega,
enda alltaf verið hræðsla fyrir
hendi hjá hinum Bítlunum fyrir
slíkum árásum eftir að John Lenn-
on var skotinn fyrir röskum einum
og hálfum áratug, en við nánari
eftirgrennslan var allur ótti hins
vegar ástæðulaus. Það var að vísu
rétt að tveir vafasamir náungar
höfðu séð Paul ganga út úr skart-
gripaverslun og fengu hjá honum
eiginhandaráritanir, en meintur
leigumorðingi var aftur á móti
uppspuni einn.
Slash er enn í Guns n’ Roses og er byrjaður að semja efni fyrir nýja
plötu.
Compulsion
Hér annars staðar á síðunni er sagt frá „íslandsvinunum" í Ash, sem
senn senda frá sér sína fyrstu plötu í fullri lengd. Önnur sveit af írsku
bergi brotin eins og Ash og ekki síður merkileg, Compulsion, er nú að
senda frá sér nýja plötu innan tíðar, sern bera mun heitið Future Is
Medium. Verður þetta önnur plata Compulsion, sem eins og Björk,
Skunk anansie og The Shamen, er á mála hjá One Little Indian.
G ’n R skrimtir enn
Hljótt hefur verið um vandræðarokkarana í Guns ’n Roses og óvissa
nkt um framtíð hljómsveitarinnar. Þau tíðindi berast hins vegar nú að
bæði Axl Rose söngvari og Slash gítarleikari séu byrjaðir að semja lög
fyrir nýja plötu. Það vekur síðan athygli að þeir hafa verið í þessu að
starfa með sitt hvorum gítarleikaranum, sem báðir hafa komið við
sögu Guns n’ Roses, Izzy Stradlin í tilviki Rose og Gilby Clarke í til-
viki Slash. Hvort annar þeirra sé þar með aftur kominn í sveitina, er
aftur á móti á huldu.
Soundgarden er mcðal þeirra sveita, sem leggur sitt að mörkum í baráttunni
gegn ofbeldi á plötunni Home Alive.
Paul McCartney hefur verib
nokkub í svibsljósinu ab
undanförnu og hefur nú
m.a. ásamt hinum eftirlif-
andi Bítlunum neitab gylli-
bobi um endurkomu.
Rokkað
gegn
ofbeldi
Á mánudaginn var kom út ansi
hreint merkileg safnplata á vegum
Epic útgáfurisans, þar sem margar
af helstu sveitum Seattlerokksins
leggja sitt að mörkum í baráttunni
gegn ofbeldi. Nefnist platan Home
Alive, eftir samnefndum samtök-
um í Seattle, sem berjast m.a.
gegn ofbeldi á götum úti og fyrir
auknum réttindum fómarlamba
slíks ofbeldis. Mun allur ágóði
sem kann að verða af sölu
plötunnar renna til þessara sam-
taka. Munu peningamir m.a. verða
notaðir til að auka sjálfsvamar-
fræðslu gegn árásum og annarri
fræðslu, sem varðar vamir gegn
ofbeldi. Fríður flokkur hljóm-
sveita og „boðskapsflytjenda“ (á
ensku spoken word Performers)
kemur fram á plötunni, sem alls
eru 45 að tölu. Væri of langt mál
að telja þó ekki væri nema helm-
inginn upp, en meðal helstu
hljómsveita má nefna Soundgar-
den, Pearl Jam, Nirvana, systumar
Ann og Nancy Wilson úr Heart og
nýstimin í tríóinu The Presidents
og The United States Of America.
Em lögin svo sem þessar sveitir
og aðrar flytja, í mörgum tilfellum
áður útgefin eða í sjaldgæfum út-
gáfum. Home Alive er tileinkuð
minningu söngkonunnar Miu Za-
pata úr Seattlesveitinni The Gits,
sem nauðgað var og síðan myrt
árið 1993.
Ash á leið með sína fyrstu breiðskífu.
Sú fyrsta
í fullri lengd
írsku ungliðamir þrír í Ash, sem
heimsóttu „klakann" skömmu fyr-
ir áramót og héldu eftirminnilega
tónleika í Laugardallshöll, eru nú í
óða önn að taka upp sína fyrstu
plötu í fullri lengd eins og sagt er,
en áður hafa þeir einskorðað sig
við míni og EP plötur svokallaðar
(með 4-6 lögum). Reyndar hefur
vinnan tafist nokkuð vegna smá
erfiðleika við upptökumar og
„leti“ að sögn Tim Wheelers og
félaga, þannig að platan, sem eftir
því sem best er vitað er enn
óskírð, tefst aðeins í útgáfu.
Er fyrst gert ráð fyrir að smá-
skífa með laginu Goldfinger komi
út um miðjan næsta mánuð og
platan síðan fljótlega í kjölfarið.
Að sögn verður tónlistin fjöl-
skrúðug, með áhrifum allt frá
Thin Lizzy til Sonic Yout, krydd-
uð safaríkum textum m.a. um ung-
lingaástir.