Dagur - 27.04.1996, Síða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 27. apríl 1996
Prakkarinn Mel Gibson:
Sendirjodie Foster klúra
brandara á telefaxi
Hvemig líbr rokkaranum?
Mel Gibson mun víst eiga fáa sína líka
að sögn nánustu vina hans. Þeir segja
hann vera einn almesta hrekkjalóm sem
fyrir finnst og að stundum eigi hann
virkilega erfitt með að vera alvarlegur.
Þegar tökur stóðu yfir á „Braveheart"
lék Gibson oft á als oddi. Stundum varð
hann grafalvarlegur og spáði í hvernig
fólk skyldi nákvæmlega hafa verið háls-
höggvið í Skotlandi á 13. öld en fór svo
allt í einu að herma eftir einhverjum
teiknimyndafígúrum. Þegar Gibson og
Jodie Foster unnu saman að vestranum
„Maverick“ eyddi hann heilu kvöldi í
að skrifa upp handrit að senu sem Jodie
átti eftir að taka til æfinga. Þegar kom
að því að hún fór að lesa og læra text-
ann þá vissi hún ekki hvort hún átti að
hlæja eða gráta. Gibson hafði breytt öllu
þannig að næstum ómögulegt var að
framkvæma atriðið og það sem Jodie
átti að segja var gjörsamlega út í hött.
Þegar hún svo las lengra stóð „Til ham-
ingju með afmælið!" og þá var hún fljót
að kveikja á perunni, þama hafði kvik-
indið hann Mel verið að verki. Og hvar
sem hún er stödd við vinnu sína sendir
Gibson henni klúra brandara í gegnum
telefaxið.
Richard Donner, leikstjóri Lethal
Weapon-myndanna, fékk einnig að
finna fyrir hrekkjabrögðum Gibsons.
Donner er mikill dýravinur og vitandi
það sagðist Mel vera búinn að panta
handa honum afar sjaldgæfan páfagauk
frá S-Ameríku. Þannig gekk það í
nokkrar vikur að Gibson sagði öðru
hvoru: Heyrðu, fuglinn er alveg á leið-
inni, ég á bara von á að fá hann hvenær
sem er... Loks kom að því að Mel sagði
leikstjóra sínum gleðifréttimar: Hei,
Donner, fuglinn er kominn, ég er með
hann inni í hjólhýsinu! Donner fór
spenntur inn hjólhýsið og kom auga á
stórt og myndarlegt búr og litnkan páfa-
gauk... úr gúmmíi að sjálfsögðu. Mel
stóð rétt hjá og þóttist fá áfall: Guð
minn góður, það hljóta að hafa orðið
einhver hræðileg mistök...
Öðru sinni var Donner að setja á
svið heljarinnar árekstur bfla þar sem
allt átti að springa í loft upp. Á milli
eldsloganna hann kom allt í einu auga á
Gibson rúnta í rólegheitum framhjá á
rándýmm Jagúar... sem Donner átti
sjálfur!
Þrátt fyrir fíflalætin er Gibson afar
umhyggjusamur faðir og leggur mikið
kapp á að halda fjölskyldu sinni utan
við sviðsljósið. Jafnvel þótt hann sé for-
ríkur sér hann til þess að bömin sín sex
taki til í herbergjunum, sjái um gælu-
dýrin auk þess sem hann hjálpar þeim
með lærdóminn og tekur þau með sér í
messu á sunnudögum. Það er því svolít-
ið skrítið þegar vinir hans halda því
fram að þessi frábæri og yndislegi pabbi
hafi náttúrulega hæfileika til að skapa
ótrúlega blóðug bardagaatriði í mynd
eins og „Braveheart". Það var á forsýn-
ingum myndarinnar sem Mel gerði sér
grein fyrir því að kannski væri þetta of
mikið sumstaðar. „Þegar einhverjir fóru
að standa upp og leita að ælupokum eða
leituðu að útidyrunum fór ég að spá í
hvort þetta væri ekki of subbulegt. Eg
ákvað þó að skilja eftir nokkur af mín-
um uppáhaldsatriðum!“
Þetta par lét sig ekki vanta þegar
amerísku tónlistarverðlaunin voru
afhent í 23. sinn í Los Angeles um
daginn. Þau Pamela Anderson og
eiginmaðurinn Tommy Lee fengu
nefnilega það hlutverk að kynna
verðlaunin fyrir bestu frammistöð-
una í rokkinu. Á myndinni er engu
líkara en Tommy sé að kanna
hvort ekki sé allt í lagi með frúna
því Pamela mun um þetta leyti
vera komin átta mánuði á leið...
með að framleiða þungarokkara.
Mel Gibson ásamt vinkonu sinni Jodie Foster á Golden Globe-verðlaunaaf-
hendingunni.
MATARKRÓKU R
Fljótlegt og gott frá Maríu
Uppskriftir í Matarkróknum eru frá
Maríu Jóhannsdóttur frá Akureyri.
María vinnur sem móttökuritari á
HeilsugceslustöÖinni á Akureyri. Ma8-
urinn hennar er Einar Orn Gunnarsson
og þau eiga þrjú uppkomin börn og
fimm barnabörn. María segir réttina
sem hún býður lesendum upp á alla
vera fljótlega og góða og er hér ap
fmna hina fjölbreytilegustu rétti. „Ég
lœt líka fylgja með eina lauflétta rabar-
barauppskrift, þar sem nú fer að stytt-
ast í rabarbaratíð," bœtir hún við. Hún
skorar á vinkonu sína, Guðrúnu Þor-
steinsdóttur, í nœsta Matarkrók. „Hún
lumar örugglega á einhverju góðu,“
segir María.
Karrýpotíréttur
1 kg lamabkjöt
2 púrrur
4-5 gulrcetur
100 g sveppir
4 dl vatn
2 dl rjómi
4 stórir bananar
karrý
salt og pipar
Meðlceti:
Hrísgrjón og brauð
Skerið kjötið í bita og snöggsteikið í
stórum potti. Saltið og piprið. Sneiðið
niður ljósa hlutann af púrrunni, sneiðið
gulrætur og sveppi og setjið með kjöt-
inu. Vatnið sett yfir og kaný eftir
smekk. Sjóðið í um hálftíma. Á meðan
eru hrísgrjónin soðin. Undir lok suð-
unnar er rjómanum bætt út í kjötréttinn.
Ef sósan er of þunnn þykkið með sósu-
jafnara. Bananar skornir eftir endilöngu
og síðan þversum í þrennt, þeir settir út
í og soðið áfram í nokkrar mínútur.
Hrærið varlega til að merja ekki banan-
ana.
Pönnusteiktur fiskur m/pasta
pasta að eigin vali
rauð paprika
blaðlaukur
1 laukur
100 g sveppir
Z rjómi
% gráðostur
fiskur (ýsa eða þorskur)
Pasta soðið á venjulegan hátt. Síðan er
sósa búin til á eftirfarandi hátt: Paprik-
an, blaðlaukur, laukur og sveppir sneitt
niður og steikt á pönnu. Kryddað með
paprikudufti og sítrónupipar, rjóminn
settur yfir og látið malla og þykkna.
Síðan er gráðosti bætt í sósuna. Fiskur-
inn skorinn í stykki, velt upp úr hveiti,
settur á pönnu og steiktur. Snúið
nokkrum sinnum og stráið salti og pip-
ar yfir (ath! ekki mikið því það er salt í
sósunni). Pastanu blandað saman við
sósuna og hellt yfir fiskinn.
Hakkréttur mlhrísgrjónum og
lauk
3 laukar
2-3 msk. smjörlíki eða olía
3 msk. chilisósa
l'Adl hrísgrjón
2 dl kjötsoð
'á dl mjólk
'A dl brauðmylsna
1 dós niðursoðnir tómatar (ath! ekki
nota allan safann)
1 tsk. salt
pipar, seasoning salt
600 g hakkað kjöt
óðalostur og chilisósa
Laukur steiktur í feiti án þess að brún-
ast. Chilisósan og niðursoðnir tómatar
sett yfir og látið krauma í nokkrar mín-
útur. Á meðan eru hrísgrjónin soðið í
kjötsoðinu. Brauðmylsnan er látin
liggja í bleyti í mjólkinni í 5 mínútur.
Þessu er öllu blandað saman í skál
ásamt hökkuðu kjötinu, salti, pipar og
seasoning salti (deigið er frekar laust í
sér). Sett í smurt eldfast mót og látið í
200°C heitan ofn í 'A klukkustund. Ost-
urinn skorinn í sneiðar og settur í lög-
um ofan á kjötið með chilisósunni á
milli. Sett aftur í ofninn, hitinn aðeins
hækkaður og látið vera í 10 mínútur
eða þar til osturinn hefur fengið góðan
lit.
Gott með hvítlauksbrauði.
Eftirréttur fyrir fullorðna
Makkarónukökur
Grand Maríner
Ný jarðaber
bananar
Eggjarjómakrem:
þeyttur rjómi
1-2 eggjarauður
1 msk. sykur
Grand Maríner
Myljið makkarónukökur í skál, setið
smá skvettu af Grand Maríner yfir.
Skerið smátt ný jarðarber og banana og
setjið í skálina. Blandið saman þeyttum
rjóma, 1-2 eggjarauðum, sykri og ögn
af Grand Maríner og setjið þetta eggja-
rjómakrem yfir ávextina.
Skreytið með rjómatoppum og jarð-
arberjum.
Rabarbaraυi
400 g rabbabari
1 msk. kdrtöflumjöl
150 g sykur
María Jóhannsdóttir.
200 g marsípan
Rabarbarinn skorinn í litla bita og sett-
ur í eldfast mót. Kartöflumjöli og sykri
blandað saman og sett yfir rabarbarann,
hrært vel saman og bakið í 10-15 mín-
útur við 180°C. Rifnu marsípani stráð
yfir. Sett aftur í ofninn og bakið í 10
mínútur.
Berið fram með rjóma.
VERDI YKKUR AÐ GÓÐU! AI
Mynd: BG