Dagur - 27.04.1996, Qupperneq 20
HELGARVEÐRIÐ
A Norðurlandi eystra má
búast við NA-lægri átt,
skýjalofti, en þurru veðri
engu að síður. Hiti verður
frá frostmarki að fimm
stigum. Á Norðurlandi
vestra er spáð NA-lægri
átt, golu eða kalda og
skýjaveðri. Hiti verður frá
frostmarki að 6 stigum.
Veður verður á þessu róli
fram yfir helgi.
D
Frá og með I. maí hækkar áskrift-
arverð Dags úr 1500 kr. í 1600 kr.
(að meðtöldum virðisaukaskatti).
Þetta er tæplega 7% hækkun
áskriftarverðsins. Verð blaðsins
hefur verið óbreytt frá ársbyrjun
1995 en á þeim tíma hefur verð á
dagblaðapappír hækkað um 50%
og launavísitala um 10% þannig
að verðbreytingin á blaðinu nú er
minni en sem nemur þessum
kostnaðarhækkunum.
Astra GL
station
f \
BSV
v____/
Astra GL
hatchback
Akureyri, laugardagur 27. apríl 1996
Hestamannafelagið Lettir á Akureyri:
Kappreiðar í
Grímsey í sumar
Isumar, nánar tiltekið 22. júní,
mun hestamannafélagið Létt-
ir á Akureyri standa fyrir ein-
stæðri uppákomu. Um er að
ræða skeiðkappreiðar í Grímsey.
Munu þær fara fram á flugvell-
inum í eyjunni, sem liggur yfír
heimskautsbauginn. Er þetta án
efa í fyrsta skipti sem kapp-
reiðabraut liggur þvert yfir
norðurheimskautsbaug.
„Grímsey er útvörður Eyja-
fjarðar í norðri og á það viljum
við minna með þessu, tengja
Grímsey við Eyjaförð og jafn-
framt minna á landsmót hesta-
manna, sem verður innst í Eyja-
firði að tveimur árum liðnum,“
sagði Sigfús Helgasoon, formaður
Léttis.
Hann ásamt Stefáni Erlingssyni
og Birni Þorsteinssyni hefur unnið
að undirbúningi málsins að und-
anförnu og segir Sigfús þá hvar-
vetna hafa fengið góð viðbrögð
við þessari hugmynd. Þannig var
auðsótt mál að fá flugvöllinn fyrir
þessa uppákomu, heimafólk hefur
tekið hugmyndinni afar vel og
þannig mætti áfram telja.
Viðburðurinn er öðrum þræði
félagsferð Léttis en hún er öllum
opin og verður þetta kynnt fyrir
ferðaskrifstofum og fleiri aðilum á
næstunni. Farið verður með Sæ-
fara og með í för verða a.m.k. 10
hestar. Auk kappreiðanna verður
drukkið kaffi í boði kvenfélagsins
í Grímsey og staðið verður fyrir
heljarmikilli grillveislu. Farið
verður frá Akureyri snemma að
morgni og aftur til baka um
kvöldið, það seint að fólk geti not-
ið miðnætursólarinnar, þó slíkt
velti vissulega á veðri. HA
VECTRA
B _____
Sofðu ekki
aff þér Bikarmót íslands
í þolffimi laugardaginn
27. apríl kl. 17.15 i
íþróttahöllinni.
★ ☆ ★
Flest besta þolfimifólk landsins mætir.
Frábaer skemmtun fyrír alla fjölskylduna.
Arkitektasamkeppni um framkvæmdir á Sólborgarsvæðinu á Akureyri:
Engin tillaga fékk
fyrstu verðlaun
- en tvær tillögur fengu önnur verðlaun - 950 þúsund fyrir hvora tillögu
Igær voru niðurstöður dóm-
nefndar í arkitektasam-
keppni vegna Sólborgarsvæðis-
ins á Akureyri kunngjörðar.
Jafnframt var opnuð sýning á
tillögunum 11 sem bárust í sam-
keppnina.
Niðurstaða dómnefndar vekur
nokkra athygli. Engin tillaga hlýt-
ur fyrstu verðlaun. Þorsteinn
Gunnarsson, rektor Háskólans á
Akureyri og formaður dómnefnd-
ar, tilkynnti þessa niðurstöðu í
gær og sagði að dómnefndinni
hafi fundist sem engin tillaga hafi
uppfyllt fullkomlega þær forsend-
ur sem dómnefnd ákvað og birtist
í samkeppnislýsingu.
Hins vegar ákvað dómnefnd að
veita höfundum tveggja tillagna
önnur verðlaun, 950 þúsund krón-
ur fyrir hvora tillögu.
Höfundar annarrar tillögunnar
eru Ólafur Tr. Mathiesen, Árni
Kjartansson, Sigbjörn Kjartans-
son, Jóhannes Þórðarson og Sig-
urður Halldórsson. Allir eru þeir
arkitektar.
Höfundur hinnar tillögunnar
sem fékk önnur verðlaun er Sig-
urður Gústafsson, arkitekt.
Þriðju verðlaun, krónur 500
þúsund, komu í hlut Ormars Þórs
Guðntundssonar, Örnólfs Hall,
Garðars Guðnasonar, Arnar Sig-
urðssonar og Yngva Þórs Lofts-
sonar. Sá síðastnefndi er lands-
lagsarkitekt en hinir fjórir arki-
tektar.
Dómnefnd ákvað einnig að
kaupa inn tvær tillögur á 200 þús-
und krónur hvora. Onnur tillagan
er unnin af arkitektunum Halldóru
Bragadóttur, Helga B. Thoroddsen
og Þórði Steingrímssyni. Hin til-
lagan er eftir arkitektana Finn
Björgvinsson og Hilmar Þór
Björnsson.
Þá ákvað dómnefnd að veita
Guðfinnu Thordarson og Tómasi
J. Stankievicz sérstaka viðurkenn-
ingu fyrir áhugaverða tillögu.
Næsta skref er að dómnefnd
mun senda verðlaunatillögumar
áfram til starfshóps menntamála-
ráðherra um framkvæmdir við Há-
skólann á Akureyri og hans er að
taka ákvörðun um framhaldið. Bú-
ast má við að valið standi á milli
þeirra tveggja tillagna sem hlutu
önnur verðlaun.
Tillögurnar sem bárust í Sól-
borgarsamkeppnina verða til sýnis
á Sólborg næstu daga. í dag, laug-
ardag, verður opið kl. 14-17 og á
•sama tíma á morgun. Á mánudag
og þriðjudag verður sýningin opin
kl. 17-21, kl. 16-17 1. maí, 17-21
á fimmtudag og föstudag og kl.
14-17 laugardaginn 4. og sunnu-
daginn 5. maí.
Nánar verður fjallað um Sól-
borgarsamkeppnina í Degi nk.
þriðjudag. óþh
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar
Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 461 2960
Kynning á pizzum frá
pvrufpwuf
Fimmfaldur
I. vinningur JjjjBf