Dagur - 08.05.1996, Síða 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 8. maí 1996
Starfshópur um breytt útvarpslög vill róttækar breytingar á ljósvakanum:
Aukið svigrúm fyrir einkarekna miðla
Starfshópur um endurskoðun út-
varpslaga hefur sent frá sér
skýrslu þar sem lagðar eru til
ýmsar breytingar á gildandi lög-
um frá 1985. Tillögur nefndarinn-
ar eru margþættar, en sú róttæk-
asta er ef til vill sú að Ríkisút-
varpið nær hverfi alveg af augiýs-
ingamarkaði. Þannig skapist auk-
ið svigrúm fyrir einkarekna ljós-
vakamiðla. Enn fremur er lagt til
að afnotagjöld RÚV verði aflögð í
núverandi mynd, en þeirra í stað
verði innheimtur nefskattur fyrir
afnot af þjónustu stofnunarinnar.
Með þessum breytingum og ýms-
um fleiri á rekstrarumverfi RÚV
telur starfshópurinn að stofnunin
geti betur sinnt hlutverki sínu um
að vera í fylkingarbjósti ljósvaka-
miðla á sviði innlendrar dagskrár-
gerðar og að svigrúm annarra ljós-
vakamiðla til sömu hluta aukist.
„í upphafi starfs mótaði starfs-
hópurinn það viðmið að meginvið-
fangsefnið væri að hyggja sérstak-
lega að hlut innlendrar dagskrár-
gerðar og leita leiða til að efla hlut
þess þáttar í starfsemi ljósvaka-
miðla, bæði einkarekinna og Ríkis-
útvarpsins... Megininntak skýrsl-
unnar er að benda á leiðir til að efla
möguleika ljósvakamiðla til að
stunda innlenda dagskrárgerð, að
allir ljósvakamiðlar hafi mikilvægu
hlutverki að gegna í þágu íslenskrar
menningar og því ákjósanlegt að út-
varpsstöðvum verði kleift að leggja
sitt af mörkum á þeim vettvangi
með öflugri innlendri dagskrár-
gerð,“ segir í inngangsorðum
skýrslu starfshópsins, en í honum
áttu sæti Gunnlaugur Sævar Gunn-
laugsson, formaður Útvarpsráðs,
Ásdís Halla Bragadóttir, aðstoðar-
maður menntamálaráðherra, Páll
Magnússon, sjónvarpsstjóri Sýnar,
og Tómas Ingi Olrich, alþingismað-
ur. Hann skilaði reyndar séráliti, og
er frá því greint hér neðar á síðunni.
„Auglýsing-
arnar allt eins
í dagblöð“
- segir Arnar Páll
Hauksson
„Ef hætt verður að birta aug-
lýsingar í Ríkisútvarpinu er al-
veg ókannað mál hvort þær
fari endilega yfir á aðra Ijós-
vakafjölmiðla. Þær geta allt
eins farið yftr í dagblöðin,
þannig að þetta þarf að því
leyti ekki endilega að styrkja
keppninauta RÚV,“ sagði
Arnar Páll Hauksson, for-
stöðumaður Ríkisútvarpsins á
Akureyri.
Arnar Páll Hauksson sagðist
ekki hafa kynnt sér tillögur
starfshóps mennamálaráðherra
nákvæmlega. Hann sagðist þó
hafa efasemdir um margar
þeirrar „...og satt best að segja
er ég orðinn langþreyttur á því
að ár eftir ár séu starfandi nefnd-
ir um breytingar á útvarpslögum
og skili frá sér álitsgerðum sem
útilokað er að sátt náist um.“
„Auglýsingar liafa verið í
Ríkisútvarpinu alveg frá upphafi
og ég held að erfitt kunni að
reynast að breyta þeirri hefð,“
sagði Amar Páll. Hann sagði
jafnframt að í Svæðisútvarpi
Noðurlands væru þær mikilvæg-
ar að því leyti að í gegnum þær
og eins hefðbundinn fréttaflutn-
ing fengju hlustendur upplýsing-
ar um málefni líðandi stundar í
sínu nánasta umhverfi. -sbs.
Sjónvarpsauglýsingar
aflagðar í þrepum
Sé vikið að helstu punktum í
skýrslu starfshópsins eru þeir eftir-
farandi. Að RÚV hverfi af auglýs-
ingamarkaði fyrir árslok 1998,
þannig að aukið svigrúm skapist
fyrir einkarekna miðla. Þó nær þetta
auglýsingabann ekki til tilkynninga
er varða almannaheill, til ámaðar-
óska á hátíðisdögum né til dánar-,
afmælis- eða fundatilkynninga.
Auglýsingar í útvarpi yrðu aflagðar
eins fljótt og eðlilegt getur talist en
sala auglýsinga í Sjónvarpi yrði af-
lögð í þrepum og að öllu hætt 1.
janúar 1999.
Einkastöðvar munu áfram halda
sínum auglýsingatekjum óskertum
og það á að gefa þeim auknar tekjur
til að sinna innlendri dagskrárgerð.
Meðal annars þess vegna verður
Menningarsjóður útvarpsstöðva
lagður niður, og komið verði á fót
Menningarverðlaunum ljósvaka-
miðla og verðlaun fá þeir miðlar
sem lofsamlega hafa staðið að gerð
innlends efnis.
Menningarhlutverk ...
Þýðingarskylda á erlendu sjónvarps-
efni verður áfram hin sama og ekki
á henni slakað, enda þótt erlent
sjónvarpsefni sem til landsins berst í
gegnum gervihentti hafi stórum
aukist. Á hinn bóginn er hvatt til að
innlend dagskrárgerð verði efld. Að
minnsta kosti helmingur barnaefnis
skal vera talsettur.
Tillögur starfshópsins miða
einnig að fleiru. Ríkisútvarpið skal
skilgreint sem opinber þjónustu-
stofnun er sinni menningarhlutverki.
RÚV skal starfa og keppa á jafnrétt-
isgrundvelli við aðra ljósvakamiðla
og einnig er lagt til að sem mest af
framleiðslu dagskrárefnis verði boð-
in út. Þá setur starfshópurinn einnig
fram tillögu um að útvarpsráð verði
lagt niður og rekstrarstjórn stofnun-
arinnar komi þess í stað. Lagt er til
að starfsemi RÚV verði sameinuð
undir einum hatti í tveimur megin-
deildum, það er hljóðvarpi og sjón-
varpi - og að núverandi fjármála- og
tæknideildir færðar inn í hvora deild
fyrir sig, en stofnunin svo áfram ein
heild undir sameiginlegri stjórn út-
varpsstjóra og rekstrarstjóra.
Lagt er til að innheimta afnota-
gjalda með núverandi hætti verði af-
numin. Þess í stað verði tekinn upp
nefskattur, sem rfkisskattstjóri inn-
heimti af öllum einstaklingum eldri
en 16 ára og öllum lögaðilunt í
landinu. „Verði sú leið ekki farin er
lagt til að Ríkisútvarpið verði flutt
frá B-hluta og yfir á A-hluta ríkis-
reiknings, þannig að rekstur stofn-
unarinnar byggist á framlagi fjár-
veitingavaldsins samkvæmt sam-
þykkt fjárlaga hverju sinni,“ segir í
tillögum nefndarinnar. - Þar er
einnig lagt til að Ríkisútvarpið hefji
samningaviðræður við Póst og síma
um sölu á örbylgjukerfi RÚV og
einnig að milli þessara stofnana
hefjist viðræður um fulla yfirtöku
Pósts og síma á dreifingu útvarps-
efnis RUV.
Aðrir miðlar skipta máli...
I samantekt starfshópsins segir m.a.
um RÚV og framtíð þess. „Við
breyttar aðstæður og vegna harðn-
andi erlendrar samkeppni á öldum
ljósvakans er mikilvægi Ríkisút-
varpsins ef til vill meira en nokkru
sinni fyrr. Ekki má þó gleyma að
aðrir innlendir ljósvakamiðlar gegna
þar einnig veigamiklu hlutverki. Því
skiptir höfuðmáli að starfsemi og
hlutverk Rfkisútvarpsins verði
styrkt en um leið er nauðsynlegt að
sérstaða og forréttindi stofnunarinn-
ar takmarki ekki möguleika annara
ljósvakamiðla til að leggja sitt af
mörkum til þjóðmenningar og inn-
lendrar dagskrárgerðar.“ -sbs.
„Hreinlegra að
leggja Rxkisút-
varpið niður“
- segir Svavar Gestsson
„Mér finnst þessi álitsgerð afar
sérkennileg. Það fólk sem hana
leggur fram virðist af
einhverjum sálrænum ástæðum
vera illa við Ríkisúvarpið og það
vill allt gera til að koma því á
kné. Hreinlegra hefði verið og
betra að koma með tillögu þess
efnis að leggja RÚV beinlínis
niður, en að því myndu tillögur
þessar stuðla,“ segir Svavar
Gestsson, alþingismaður og fv.
menntamálaráðherra.
Að mati Svavars eru tillögur
starfshópsins einungis sjónarmið
þröngs minnihluta í Sjálfstæð-
isflokki, en ekki viðtekin skoðun
innan hans. „Þetta er algjört
minnihlutaálit, en með þessu
finnst mér Bjöm Bjarnason sýna
meiri flokkslega þröngsýni en ég
bjóst við. Framhald málsins verð-
ur að tillögurnar verða ræddar á
Alþingi og svo gleymast þær. Það
er þó verra að búið er að veita
stórfé frá skattgreiðendum í
þetta,“ sagði Svavar.
Aðspurður ságðist Svavar hafa
ýmsar hugmyndir um framtíð
RÚV. Hann sagði að í sinni tíð
sem menntamálaráðherra hefði
starfshópur undir forystu Ög-
mundar Jónassonar, sem fyrrum
var fréttamaður Sjónvarps, unnið
álitsgerð um það efni og þar var
m.a. lagt til að breyta innheimtu
afnotagjalda, að ráða yfirmenn
stofnunarinnar til skemmri tíma
og leggja útvarpsráð af í núver-
andi mynd en að sama skapi auka
áhrif almennings á dagskrárstefnu
RÚV. Þá var lagt til að efla mögu-
leika Sjónvarpsins til frarhleiðslu
á innlendu dagskrárefni og skil-
greina jafnframt skyldur RÚV
gagnvart menningarlífinu í land-
inu. -sbs.
Engin sjónarmið gegn auglýsingum í RÚV
- segir Tómas Ingi Olrich, alþingismaður Sjálfstæðisflokks á Norðurlandi eystra
„Auglýsingar í ljóvakamiðlum
eru áhrifamikill viðskiptavaki.
Áhrifamáttur þeirra tengist að-
gangi að viðskiptavinum, sem
fyirtækjum er tryggður með
dreifíkerfí sem þjóðfélagið hefur
lagt mikinn kostnað í að byggja
upp. Enginn grundvallarsjónar-
mið mæla gegn því að nýta þessi
sérstöku viðskipti sem tekjulind
fyrir hið opinbera til að standa
undir kostnaði við að styrkja
menningarstarfsemi á ljósvaka-
sviðinu, ekki síst þegar tekið er
tillit til þeirrar auknu menning-
ar- og uppeldisáhrifa, sem ljós-
vakamiðlarnir hafa,“ segir Tóm-
as Ingi Olrich, alþingismaður,
meðal annars í því séráliti sem
hann skilaði með skýrslu starfs-
hóps menntamálaráðherra um
breytingar á útvarpslögum.
Tómas Ingi segir að nauðsyn-
legt sé að rýma til fyrir einka-
stöðvunum á markaðnum, en þær
eigi í ójafnri samkeppni við RÚV
um auglýsingar. Til greina komi,
að sínu áliti, að leggja sérstakt
gjald á auglýsingar í RÚV sem
mætti nýta til almennrar eflingar
dagskrárgerðar innlendra aðila. Þá
segir Tómas Ingi að Menningar-
sjóður útvarpsstöðva hafi ekki
nýst til að efla innlenda dagskrár-
gerð og í sjóðnum sé ekkert fé
annað en það sem tekið hefur ver-
ið út úr rekstri útvarpstöðvanna
sjálfra. Því þrengi hann í raun
svigrúm og möguleika þeirra.
I áliti sínu segir Tómas Ingi að
löng hefð sé fyrir auglýsingasölu
RÚV og það eitt sé hluti af upp-
lýsingastarfsemi þess. Erfitt verði
að afnema rétt þess til auglýsinga-
sölu ef allir landsmenn eigi ekki
aðgang að þeim einkareknu miðl-
um sem við auglýsingamarkaðn-
um tækju. „Það verður einnig að
teljast lítt ákjósanlegt, nú þegar
stjómvöld vinna að stefnumörkun
í málefnum upplýsingasamfélags-
ins þar sem gert er ráð fyrir að-
gangi sem flestra að upplýsingum,
að meina einhverjum ákveðnum
landshlutum aðgangs að auglýs-
ingum á ljósvakanum," segir
Tóms.
Fram kemur hjá Tómasi Inga
Olrich að auglýsingar séu ekki
eins mikilvæg tekjulind fyrir sjón-
varpsstöðvarnar eins og útvarps-
stöðvar. Þær afli sér fjár með sölu
áskrifta. Þá segir Tómas að efa-
semdir séu um að í raun og veru
sé markaður fyrir meira en tvær
sjónvarpsstöðvar hér á landi, þó
slíkt eigi eftir að koma í ljós. En
reynist svo að aðeins Sjónvarpið
og Stöð 2 verði einu sjónvarps-
stöðvarnar hér á landi, þar sem
síðamefnda stöðin megi aðeins
ein sjónvarpa auglýsingum „er
komin upp óæskileg fákeppni á
auglýsingamarkaði, með þeim af-
leiðingum sem slíkt hefur á verð-
lag. Því gæti reynst æskilegt að
jafna samkeppnisstöðu einkarek-
inna sjónvarpsstöðva, að minnsta
kosti í fyrstu, með öðrum hætti,“
segir Tómas.
„Vitað er að metnaður einka-
stöðvanna er misjafnlega mikill.
Er einsýnt að það er ekki mikill
fengur í því að styrkja stöðu sjón-
varpsstöðvar á auglýsingamark-
aði, sem hefur naumast annan
metnað en sýna erlent textað efni
og selja auglýsingar. Það hlýtur að
vera akkur í því einkum að veita
þeim svigrúm sem sýna raunveru-
legan áhuga á innlendri dagskrár-
gerð,“ segir í séráliti Tómasar
Inga Olrich. -sbs.
Auglýsingabann er íráleitt
- segir Valgerður Sverrisdóttir
„Eins og þessar tillögur eru sett-
ar fram þá held ég að engum
hafí dottið í hug að þær myndu
ná fram að ganga í óbreyttri
mynd,“ segir Valgerður Sverris-
dóttir, formaður þingflokks
Framsóknarflokksins. Fulltrúar
flokksins hafa lýst sig mótfallna
hugmyndum þeim sem starfs-
hópur um breytingu á útvarps-
lögum leggur til, en það eru ein-
vörðungu fulltrúar Sjálfstæðis-
flokks sem eiga sæti í þeim hópi.
Valgerður segir að mikil vinna
þurfi að fara fram áður en hægt
verði að leggja fram stjómarfrum-
varp sem báðir stjómarflokkarnir
geti sameinast um. Að minnsta
kosti séu framkomnar tillögur alls
ekki framsóknarmönnum að
skapi.
„Við framsóknarmenn höfum
ekkert komið nærri mótun þessara
tillagna og við þurfum að vinna
okkar vinnu og leggja okkar til-
lögur í púkkið. En ég vil reyndar
sem fæstar yfirlýsingar gefa um
þetta mál, að svo stöddu,“ sagði
Valgerður. - Aðspurð um einstaka
efnisþætti tillagnanna svo sem að
afnema birtingu auglýsinga í Rík-
isútvarpinu, nema undir sérstök-
um kringumstæðum, sagði hún
það vera fráleita hugmynd sem
ekki kæmi til geina.
Um nefskatt í stað afnotagjalda
fyrir þjónustu RÚV minnti Val-
gerður á að markmið núverandi
rrkisstjórnar væri að hækka ekki
skatta og með þessum hugmynd-
um væri verið að tala um aukna
skattheimtu. í framhaldinu yrði
RÚV svo sett inn á A-hluta fjár-
laga, yrði markaður ákveðinn
tekjustofn skv. því, sem myndi þá
stuðla að ósjálfstæðri stofnun, sem
RÚV mætti ekki vera.
Að sögn Valgerðar Sverrisdótt-
ur munu fulltrúar Framsóknar-
flokksins í útvarpsráði, Gissur
Pétursson og Kristjana Bergsdótt-
ir, vinna að mótun tillagna sem
yrðu svar við hugmyndum starfs-
hópsins - og að starfinu myndu
einnig koma þingmennirnir
Hjálmar Ámason, Ólafur Öm
Haraldsson og Stefán Guðmunds-
son. -sbs.