Dagur - 07.06.1996, Side 1
79. árg. Akureyri, föstudagur 7. júní 1996 106. tölublað
Þrefaldurl. vinningur
Þórhallur smíðar
Þórhallur Halldórsson
smíðaði af kappi þegar
blaðamaður og ljósmyndari
skoðuðu aðstæður á Öng-
ulsstöðum í Eyjafírði í gær,
en þar er verið að breyta
fjósi og hlöðu í fullkomna
aðstöðu fyrir ferðafólk og
eru fyrstu gestirnir væntan-
legir á morgun.
óþh/Mynd: BG
Sjá nánar bls. 6.
Leikfélag Húsavíkur:
Leikárið byrjar
óvenju snemma
Ungliðar í Leikfélagi Húsa-
víkur eru að hefja æfíngar á
erlendu leikriti í nýrri íslenskri
þýðingu og ætla með það til
Bornholm í Danmörku og sýna í
ágúst í sumar. í ágúst og sept-
ember verða svo sýningar á
Húsavík en Skúli Gautason,
leikari hjá Leikfélagi Akureyrar,
hefur verið ráðinn leikstjóri að
verkinu.
Astæðan fyrir þessu uppátæki
ungliðanna í Leikfélagi Húsavíkur
er auglýsing frá Bandalagi ís-
lenskra leikfélaga þar sem óskað
var eftir umsóknum um þátttöku í
leiklistarhátíð ungs fólks sem
halda á í júlí næstkomandi. Oddi
Bjarna Þorkelssyni var falið að
kanna áhugann meðal annarra
ungliða og möguleikana á þátt-
töku. Ahugi reyndist svo mikill að
erlent leikrit var valið, Jón Sævar
Baldvinsson, forstöðumaður Hér-
aðsbókasafns Suður-Þingeyinga,
fenginn til að þýða verkið og
Skúli Gautason ráðinn leikstjóri.
Að sögn Regínu Sigurðardótt-
ur, formanns Leikfélags Húsavík-
ur, reyndist þetta ekki nægjanlegt
til að fá að taka þátt í leiklistarhá-
tíðinni því fullæfð leikverk komu
aðeins til greina. „Vonbrigðin
voru mikil,“ sagði Regína „en
hugur var kominn í fólk og því var
afráðið að tala við vinaleikfélag á
Bornholm og vita hvort þar væri
ekki áhugi á heimsókn frá Húsa-
vík. Svo reyndist vera og því
verður tekið á móti leiklistarfólk-
inu og séð um það meðan á dvöl-
inni á Bornholm stendur. Leikrit-
ið, sem unga fólkið hyggst kalla
„Auga fyrir auga“, verður sýnt í
Samkomuhúsinu á Húsavík í
haust," sagði Regína að lokum.
GKJ
„Skógrækt með Skeljungi":
Styrkir til skógræktar-
verkefna á
Igær var tilkynnt um styrki
og helstu verkefni á vegum
samstarfsverkefnis Skógræktar
ríkisins og Skeljungs hf., sem
ber yfirskriftina „Skógrækt
með Skeljungi“.
Mikill fjöldi umsókna um
skógræktarstyrki barst allsstaðar
af landinu. Liðlega þrjátíu styrk-
Norðurlandi
ir voru veittir til skógræktarverk-
efna á Norðurlandi og nemur
samanlögð upphæð þeirra tæp-
um 900 þúsund krónum. Meðal
stærstu styrkjanna á Norðurlandi
eru styrkir til verkefna á Kóngs-
stöðum og Þverárbrekkum í
Skíðadal, að Árbót í Aðaldal og
að Brekku í Varmahlíð. óþh
Umhverfisráðherra úrskurðar um uppsetningu lyftu
í Hótel Norðurlandi:
Leyfir byggingu
fjórðu hæðar án lyftu
- Sjálfsbjörg vísar málinu til umboðsmanns Alþingis
Guðmundur Bjarnason, um-
hverfísráðherra, hefur með
úrskurði staðfest þá ákvörðun
bygginganefndar Akureyrar og
bæjarstjórnar Akureyrar að
heimila byggingu 4. hæðar
Hótels Norðurlands við Geisla-
götu á Akureyri án þess að lyftu
verði komið fyrir í húsinu.
Bæjaryfirvöld á Akureyri
höfðu samþykkt erindi Jóns Ragn-
arssonar, eiganda Hótels Norður-
lands, um byggingu fjórðu hæðar
ofan á hótelið. Þessu vildi Sjálfs-
björg - félag fatlaðra á Akureyri,
ekki una og kærði ákvörðunina til
umhverfisráðuneytisins. Vísaði
Sjálfsbjörg m.a. til kröfu Sam-
starfsnefndar um ferlimál fatlaðra
á Akureyri um lyftu í húsið, álits
byggingafulltrúans á Akureyri í þá
veru að lyftu skyldi koma fyrir og
niðurstöðu embættis skipulags-
stjóra ríkisins sem taldi að bygg-
ingaleyfi fyrir byggingu fjórðu
hæðarinnar væri ólögmætt vegna
þess að ekki væri gert ráð fyrir
lyftu. Því bæri að fella bygginga-
leyfið úr gildi.
I úrskurði umhverfisráðherra er
vísað til ákvæðis í byggingareglu-
gerð um aðgengi fatlaðra þar sem
hótel séu ekki talin upp meðal
þeirra 2ja og 3ja hæða bygginga
sem skylt sé að setja í lyftu. Því
Krossanesbryggja:
Samið við Kötlu
Hafnarstjórn Akureyrar hef-
ur gengið til samninga við
verktakafyrirtækið Kötlu ehf. á
Árskógsströnd að undangengnu
útboði um að steypa 100 metra
langan kant á stálþil við bryggj-
una í Krossanesi, auk 8 polla.
Fimm tilboð bárust í verkið og
var tilboð Kötlu ehf. 81,72% af
kostnaðaráætlun Vita- og hafna-
málastofnunar, en hæsta tilboðið
94% hærra en áætlunin. Verklok
eru áætluð 20. júlí nk. GG
verði ákvæði reglugerðarinnar um
að skylt sé við meiriháttar breyt-
ingar á byggingum að tryggja að-
gengi hreyfihamlaðs fólks í hjóla-
stólum m.a. með lyftubúnaði, ekki
beitt gagnvart eiganda Hótels
Norðurlands, „enda gilda ekki sér-
ákvæði um hótel og orðið þjón-
ustumiðstöð nær ekki yfir hótel
eins og það hefur verið skýrt sam-
kvæmt byggingareglugerð." Um
hótel, segir í úrskurði umhverfis-
ráðherra, gilda ákvæði bygginga-
reglugerðar, þar sem segir að í
fjölbýlishúsum sem eru fimm
hæðir eða meira skuli vera lyfta.
Stjórn Sjálfsbjargar á Akureyri
hefur fjallað um úrskurð umhverf-
isráðherra og mótmælir honum
harðlega. í samþykkt stjórnarinnar
segir að úrskurðurinn gangi þvert
á álit allra umsagnaraðila og brjóti
ákvæði byggingareglugerðar.
„Hann merkir, ef hann fær að
standa, að ákvæði byggingareglu-
gerðar um bætt aðgengi fyrir fatl-
aða að húsnæði og umhverfi eru
hjóm eitt og sýndarmennska að
hálfu stjómvalda, ef hægt er að
komast hjá því að standa við þau
með „hundakúnstum“ og undan-
þágum. Hann er einungis studdur
með þeirri furðulegu röksemd að
flokka hótel sem fjölbýlishús, at-
riði sem hvorki bygginganefnd né
bæjarstjórn Akureyrar, hvað þá
heldur umsækjandanum um leyf-
ið, kom f hug að reyna að styðja
mál sitt með, enda öllurn ljóst að á
hóteli fer einungis fram verslun
með mat og drykk og sala á gisti-
þjónustu,“ segir í samþykkt stjóm-
ar Sjálfsbjargar.
Stjórn Sjálfsbjargar hefur ein-
róma samþykkt að næsta skref af
hennar hálfu í þessu máli sé að
skjóta úrskurði umhverfisráðherra
til umboðsmanns Alþingis. óþh
HkOlNOUR II
Noregsfiski landað
í gær var landað á Akureyri 160
tonnum af blönduðum físki úr
Hágangi II, sem Utg
Akureyringa hf. hef
leigu til flutninga á ísfíski frá
Noregi. Þetta er annar farmur-
inn af físki úr norskri lögsögu,
sem landað er á Akureyri, og
von er á þriðja farminum á
næstu döguin, en Hríseyjan EA,
skip Samnerja, er nú ytra að ná í
meiri fisk. óþh
Skólaskrifstofa Skagafjarðar:
Dr. Macdonald ráöin
skólamálastjóri
Dr. Marey Allyson Macdonald, á Hólum í
Hjaltadal, hefur verið ráðin skólamálastjóri
hjá Skólaskrifstofu Skagafjarðar, sem tekur til
starfa 1. ágúst næstkomandi. Hún mun hefja störf
um miðjan þennan mánuð, en hún var eini um-
sækjandinn um starfíð.
Dr. Marey Allyson Macdonald er menntuð í ýms-
um raungreinum, hefur kennsluréttindi og starfað
m.a. við kennsluráðgjöf af ýmsu tagi - hérlendis og
erlendis - og sinnt ýmsum störfum á sambærilegum
vettvangi.
Þá var Anna Sigurbjörg Sigurðardóttir í gær ráðin
í starf sálfræðings við skrifstofuna, en hún hefur til
skamms tíma gegnt slíku starfi hjá Fræðsluskrifstofu
Norðurlands vestra, sem er á Blönduósi. Eftir er að
ráða í starf sérkennslufulltrúa í hálfri stöðu. Aðsetur
skólaskrifstofu Skagafjarðar verður á Sauðárkróki, en
ekki hefur verið ákveðið hvar í bænum hún verður
staðsett. Sveinn Allan Morthens, formaður stjórnar
skrifstofunnar, segir að enn hafi ekki verið ákveðið
með hvaða hætti gögnum og búnaði núverandi
fræðsluskrifstofu verði skipt upp milli þeirra þriggja
skólaskrifstofa sem verða á Norðurlandi vestra, það
er á Blönduósi, Sauðárkróki og á Siglufirði. -sbs.