Dagur - 07.06.1996, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Föstudagur 7. júní 1996
Á FERÐ OC FLUCI
Ferðamannaparadís í fjósinu á Öngulsstöðum:
Búskapur og ferðaþjónusta
góð blanda
Miklar framkvæmdir hafa stað-
ið yfir undanfarna mánuði í
fjósinu við Öngulsstaði III í
Eyjaíjarðarsveit. Hjónin Kristín
Brynjarsdóttir og Jóhannes Geir
Sigurgeirsson, bóndi og fyrrum
alþingismaður, og íjölskylda
þeirra hefur staðið í stórræðum
og breytt 40 kúa fjósi og áfastri
hlöðu í fullbúinn ferðamanna-
stað með 12 rúmgóðum gistiher-
bergjum, matsal, eldhúsi og
glæsilegri setustofu. Fyrirhugað
er að koma upp vísi að húsdýra-
garði á jörðinni í sumar og bú-
vélasafni í haughúsinu. Einnig
er stefnt að því að merkja
gönguleiðir í hlíðinni fyrir ofan
bæinn enda er útsýni þar einkar
fagurt um fjörðinn.
Fyrstu gestimir eru væntanlegir
um helgina og þegar blaðamaður
heimsótti Öngulsstaði á miðviku-
dag voru framkvæmdir enn í full-
um gangi og verið að leggja síð-
ustu hönd á verkið. Þrátt fyrir
breytinguna hefur Jóhannes Geir
og fjölskylda hans ekki sagt alveg
skilið við mjólkurframleiðsluna
því 25 kýr voru færðar í fjós á
Öngulsstöðum II og er það meðal-
bú á landsvísu.
„Við teljum að búskapur og
ferðaþjónusta sé ágæt blanda. Við
höfum reynslu af þessu enda búin
að vera með ferðaþjónustu undan-
farin sumur í minni aðstöðu,“
sagði Jóhannes og vitnar þar til
þeirrar þjónustu sem boðið hefur
verið upp á fyrir ferðamenn á
AKUREYRARBÆR
Garðeigendur
athugið!
Námskeið í ræktun matjurta, kryddjurta, gerð
safnhauga og kassa verður haldið laugardaginn
8. júní í matsal umhverfisdeildar við Krókeyri.
Leiðbeinendur verða Björn Gunnlaugsson og Eva
Þorvaldsdóttir garðyrkjukandidatar.
Námskeiðið hefst kl. 09 og lýkur um hádegi. Nám-
skeiðsgjald er kr. 1000,-
Þátttöku á námskeiðið þarf að tilkynna á skrifstofu
umhverfisdeildar í síma 462 5600 fyrir kl. 15 á
föstudag 7. júní.
Ath. Takmarkaðurfjöldi þátttakenda.
Umhverfisstjóri.
Landbúnaðarssýning
6.-8. júní frá kl. 10-18
Bylting í jarðvinnslu
Ný útfærsla á Steyr dráttarvélum frá 70-105
hestafla • Lely jarðvinnsluvélar • Áburðar-
dreifarar • Sláttuvélar • Rakstrarvélar • Múgavél
og heytætla ásamt Lely Terra 300-35 jarðvegs-
jafnara sem sýndur verður við vinnu að
Sílastöðum kl. 11.30 og 15 alla sýningardaga.
BSA hf.,
Laufásgötu 9, sími a62 6300
Atvínna ■ Aivnnu mvinna
Óskum eftir manni
á byggingakrana
Helst vönum.
Upplýsingar á skrifstofunni í síma 462 6277.
Jóhannes Geir Sigur-
geirssun og Gunnar
Valur Eyþórsson hafa
undanfarna mánuði
unnið hörðum höndum
að því að byggja upp
ferðamannaþjónustu á
Öngulsstöðuin III. Fjós
og hiaða hafa tekið
stakkaskiptum og þar
er glæsilegt innandyra. Þeir Jóhannes og Gunnar standa hér við barborðið i
setustofunni.
Öngulsstöðum undanfarin þrjú ár.
Dóttir hans, Sveina Björk, og
sambýlismaður hennar, Gunnar
Valur Eyþórsson, hafa rekið þar
ferðaþjónustu með tveimur gisti-
herbergjum með hreinlætis- og
eldunaraðstöðu.
Vaxandi atvinnuvegur
En hvað varð til þess að fjölskyld-
an ákvað að slá til og leggja aukna
áherslu á að sinna ferðamönnum?
Þetta er í raun beint framhald
af þeirri þjónustu sem við erum
búin að veita undanfarin ár-. Það
gekk mjög vel og við ákváðum að
breyta aðeins áherslunum í bú-
skapnum,“ segir Gunnar Valur.
„Ætli þetta sé ekki eitthvað í
blóðinu, mann langar alltaf til að
prófa eitthvað nýtt og byggja
upp,“ bætir Jóhannes við. „Ég hef
trú á að ferðaþjónusta eigi eftir að
verða verulega vaxandi atvinnu-
vegur á íslandi. Ég tel að óhætt sé
að segja að vaxandi straumur út-
lendinga hingað til lands á sumrin
er borinn uppi að verulegu leyti af
bændaþjónustunni,“ segir Jóhann-
es, sem greinilega er bjartsýnn á
framhaldið.
Framkvæmdir sem þessar eru
mikið og kostnaðarsamt ævintýri.
Gamla fjósið og hlaðan eru saman
um 550 fermetrar. Nú hefur allt
verið innréttað og líkist mest
glæsihóteli. Gistiherbergin tólf eru
rúmgóð og öll með hreinlætisað-
stöðu og sturtu. Þar sem áður var
hlaða er nú eldhús og matsalur og
á efri palli hennar er aðalinngang-
ur og hugguleg setustofa. Einnig
stendur til að innrétta þar hand-
verksvinnustofu og sýningarsal
fyrir Sveinu Björk, sem nemur
textflhönnun.
Mykjunni var mokað út úr
haughúsinu snemma árs og nú er
varla að merkja á lyktinni hvað
var þar áður. Þar er fyrirhugað að
koma upp búvélasafni með göml-
um vélum í eigu Kristins Ásgeirs-
sonar og Baldurs Steingrímssonar,
starfsmönnum hjá Rafveitu Akur-
eyrar. Húsdýragarðurinn ætti síð-
an að setja skemmtilegan svip á
umhverfið en þegar eru á Önguls-
stöðum kindur, kýr, hestar, geitur
og hænur.
Allir leggja hönd á plóginn
Þetta er fjölskyldufyrirtæki og Jó-
hannes segir það grundvöllinn fyr-
ir að þetta geti gengið. Fjölskyld-
an hefur reynt að halda kostnaði í
lágmarki með því að vinna mikið
sjálf við framkvæmdirnar og þeg-
ar blaðamann bar að garði voru
allir fjölskyldumeðlimir virkir í að
undirbúa aðstöðuna fyrir fyrstu
gestina.
„Við gerðum áætlanir um
kostnað við uppbygginguna og sú
áætlun stenst enn sem komið er.
Þá sjáum við fram á að við verð-
um með meiri rekstur í sumar en
við reiknuðum með. Það virðist
því vera ágætis grundvöllur fyrir
þessu,“ segir bóndinn. „Við reikn-
uðum með því að við þyrftum á
þessu sumri að halda til þess að
koma okkur inn á kortið en við er-
um nú þegar með öruggar bókanir
á annað þúsund gistinætur. Þá er
ótalið það sem við vitum af fyrri
reynslu að dettur inn dagsdaglega.
Það eru eingöngu útlendingar sem
búnir eru að bóka sig en íslend-
ingar hringja yfirleitt rétt áður en
þeir mæta á staðinn," segir Jó-
hannes. Gistiþjónustan verður op-
in allt árið og í vetur er ráðgert að
róa inn á innlenda markaðinn í
auknum mæli.
Meira samstarf en
samkeppni
Öngulsstaðir eru um 10 kílómetra
frá Akureyri og þar er hægt að
bjóða ferðamönnum upp á meiri
frið og næði en í bænum og stutt
er í ferskan sveitailminn. Áhersla
er lögð að kynna sveitalífið fyrir
gestum og hin hefðbundnu sveita-
störf. Jóhannes telur sig því ekki í
beinni samkeppni við hótelin á
Akureyri. „Hver nýr aðili er líka
að skapa nýjan markað og þó
menn séu í ákveðinni samkeppni
þá vil ég frekar líta á aðra aðila í
ferðaþjónustu sem samstarfsaðila
heldur en samkeppnisaðila. Allt
sem eykur breiddina er til bóta
fyrir svæðið og við ætlum okkur
að vera hér með þjónustu sem á að
geta nýst fleirum en okkur. Fólk
getur komið og skoðað húsdýra-
garðinn og búvélasafnið alveg
burtséð frá því hvort það sé hér í
gistingu,“ segir Jóhannes. SH
Herbergin í gamla Ijósinu eru rúnigóð og hugguleg og engin uminerki að finna ei'tir fyrrum íbúa. Myndir: BG