Dagur - 08.08.1996, Qupperneq 1
79. árg. Akureyri, fimmtudagur 8. ágúst 1996 148. tölublað
Venjulegir og demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Ólafsfjöröur:
Framkvæmdir
hafnar við safn-
aðarheimili á
lóð kirkjunnar
Hafín er bygging safnaðar-
heimilis við Olafsfjarðar-
kirkju og verður byggingin gerð
fokheld á þessu ári. Stefnt er að
því að ljúka byggingu safnaðar-
heimilisins áður en ráðist verður
í lengingu á kirkjunni að sögn
Svavars B. Magnússonar, for-
manns bygginganefndar.
Á þessu ári er áætlað að verja
15,5 milljónum króna til verksins
en Svavar segir að alls muni verk-
ið standa til aldamóta. Verktakinn,
Tréver hf. í Ólafsfirði, keypti hús
sem stóð við lóðina og var fyrir
framkvæmdum og ánafnaði það
kirkjunni það að gjöf samkvæmt
ákveðnum skilmálum. GG
Bygging sufnuðarheimilis við Ólafs-
fjarðarkirkju er hafín, en húsið
verður gert fokhelt fyrir veturinn.
Mynd:óþh
„Teljum okkur komna á enda-
punkt í aðhaldsaðgerðum“
- segir Jón Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri Sjúkrahúss &
heilsugæslustöðvar Siglufjarðar
„Handverk 96“
hefst í næstu viku
andverkssýningin
„Handverk 96“ verður
að Hrafnagili í Eyjafjarðar-
sveit dagana 15.-18. ágúst
nk. og er þetta í fjórða sinn
sem sýningin er haldin. Gíf-
urleg aðsókn er hjá hand-
verksfólki hvaðanæfa af
landinu að taka þátt í sýn-
ingunni nú og er fullbókað
fyrir alllöngu síðan.
Þátttakendur eru á annað
hundrað frá íslandi og sýna
þeir allar tegundir handverks,
m.a. úr tré, skinni, steinum,
ull, leir, jurtum o.fl. Vinnu-
brögð verða sýnd á útisvæði
og í tjaldi og eins verður kom-
ið upp torgi framan við
Hrafnagilsskóla eins og undan-
farin ár. I ár tekur einnig þátt í
sýningunni handverksfólk frá
Færeyjum, Grænlandi og
Norður-Noregi, alls um 25 að-
ilar, sem er liður í samstarfi
þessara þjóða á ýmsum svið-
um, nú í fyrsta sinn á sviði
handverks. GG
„Fjöldinn eins og
um góða helgi"
Flestir komu sl. laugardag í
Ásbyrgi og Vesturdal og
gistu þá um nóttina. Færra gistu
á tjaldstæðunum aðfararnótt frí-
dags verslunarmanna, að sögn
Aðalsteins Snæþórssonar, þjóð-
garðsvarðar.
Þegar mest var í Ásbyrgi náði
fjöldinn um 450 manns en öllu
færra var í Vesturdalnum, eða 150
manns. „Þetta var því bara eins og
um góða helgi og allt fór hér fram
eins og best verður á kosið, enda
mest af þessu fjölskyldufólk sem
hingað kemur. Það gerði rigning-
arskúrir alla helgina en þó var
sunnudagurinn mjög góður, sól og
blíða.“ GKJ
Vegna ákvörðunar heilbrigð-
isyfirvalda um flatan niður-
skurð í heilbrigðiskerfinu hefur
þurft að grípa til ýmissa aðgerða
á Sjúkrahúsi & heilsugæslustöð
Sigluíjarðar.
Jón Sigurbjömsson, fram-
kvæmdastjóri, segir að gripið hafi
verið til þess ráðs í sumar að loka
fæðingardeildinni nú þegar minnst
er um að vera, en aðeins ein sæng-
urkona er á Siglufirði um þessar
mundir.
„Bakvaktir á skurðstofu hafa
m.a. verið minnkaðar en við telj-
um okkur vera komna á enda-
punkt í þessum aðhaldsaðgerðum
og niðurskurði hér án þess að
þurfa að breyta rekstrinum. Frek-
ari niðurskurður á fjárlögum yrði
breyting á starfsemi, t.d. fækkun
starfsfólks. Hér eru 42 sjúkrarúm
og af þeim notum við um 29 fyrir
öldrunarsjúklinga, sem þurfa mis-
jafnlega mikla aðhlynningu, og
við rekum öldrunardeild þar sem
fólk er rólfært, og þar eru skráðir
15 í dag,“ sagði Jón Sigurbjöms-
son.
Sjúkrahús & heilsugæslustöð
Siglutjarðar er næst fjölmennasti
vinnustaðurinn á Siglufirði, aðeins
Þormóður rammi hf. sem m.a.
rekur frystihús, rækjuverksmiðju
og reykhús, hefur fleiri starfs-
menn, en stöðugildi em 60 og alls
vinna þar nær 90 manns, margir í
hlutastörfum. Fjöldi aldraðra á
Siglufirði er töluvert yfir lands-
meðaltali og þannig er hlutfall
inniliggjandi nokkuð hátt saman-
borið við sum önnur sveitarfélög.
„Verði um frekari niðurskurð
að ræða væri miklu auðveldara og
sjálfsagðara að sameina sjúkrahús,
sjúkrastofnanir og heilsugæslu-
stöðvar á Reykjavíkursvæðinu en
úti á landi. Það þyrfti ekki að
koma niður á starfsfólkinu þar.
Við gætum kannski verið með
sameiginleg útboð með Skagfirð-
ingunum en gagnvart starfsliðinu
yrði ekki um neina samvinnu að
ræða, það er of langt milli þessara
staða til þess að það væri hægt að
senda lækna á milli í tíma og
ótíma, allra síst í bráðatilfellum.
Okkar „varaspítali" er á Akureyri
og eðilegast væri að gera samning
þar að lútandi. En meðan þessar
breytingar á heilbrigðisstjóminni
vofa yfir er erfitt um vik.“
Jón Sigurbjömsson segir að nú
sé beðið með vissum spenningi
eftir hvaða tillögur heilbrigðisráð-
herra, Ingibjörg Pálmadóttir, leggi
fram við gerð fjárlaga fyrir næsta
ár. GG
Skólanefnd Akureyrar tekur undir óskir kennarafundar Síöuskóla:
Þorgeröur veröi skólastjóri og
Sigríður aðstoðarskólastjóri
Skólanefnd Akureyrarbæjar fundaði í gær um
þá stöðu sem upp kom í Síðuskóla á Akureyri
er nýráðin skólastjóri, Ragnhildur Skjaldardóttir,
sagði starfi sínu lausu þar sem Fræðsluráð Reykja-
víkur hafði ráðið hana sem aðstoðarskólastjóra
Langholtsskóla í Reykjavík.
Á fundinum var lagt fram bréf frá Ragnhildi
Skjaldardóttur dags. 2. ágúst sl. þar sem hún afsalar
sér stöðu skólastjóra Síðuskóla og fór fram á launa-
laust leyfi frá starfi aðstoðarskólastjóra skólaárið
1996 - 1997. Skólanefnd tekur erindi hennar ekki til
afgreiðslu fyrr en afráðið er með lausn á stjómunar-
málum Síðuskóla. Á fundinum voru einnig lagðar
fram niðurstöður almenns kennarafundar í Síðuskóla
sl. þriðjudag þar sem m.a. var bókað að fundurinn
óskaði eftir því við skólanefnd að hún leiti til Þor-
gerðar Guðlaugsdóttur og Sigríðar Harðardóttur um
að þær taki að sér stöðu skólastjóra og aðstoðarskóla-
stjóra Síðuskóla veturinn 1996 - 1997.
Skólanefnd tók jákvætt undir óskir kennarafundar-
ins og samþykkir að leita innanhúslausna á starfi
skólastjóra og aðstoðarskólastjóra. Skólafulltrúa, Ing-
ólfi Ármannssyni, er falið að undirbúa það mál til af-
greiðslu fyrir næsta fund skólanefndar. Þorgerður
Guðlaugsdóttir hefur kennt undanfarin ár við Síðu-
skóla og gegnt störfum aðstoðarskólastjóra Síðuskóla
í forföllum og Sigríður Harðardóttir hefur verið þar
kennari, en hún hefur m.a. gegnt stöðu skólastjóra
Hrafnagilsskóla í Eyjafirði. GG