Dagur - 08.08.1996, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 8. ágúst 1996 - DAGUR - 9
Góður hagnaður Eimskips
og dótturfélaga
Eins og kom fram í fréttum í síðustu viku nam
hagnaður af reglulegri starfsemi Eimskips á
fyrstu sex mánuðum þessa árs 425 miiljónum
króna, en á sama tíma 1995 var hagnaðurinn
388 milljónir.
Hagnaður af rekstri félagsins og dótturfélaga
þess fyrstu sex mánuðina var 291 milljón króna.
Árið 1995 var 245 milljóna króna hagnaður fyrstu
sex mánuðina og 206 milljóna króna hagnaður
sömu mánuði 1994. Veltufé frá rekstri á fyrri hluta
ársins var 944 milljónir króna en 844 milljónir
króna á sama tíma árið áður. Arðsemi eigin fjár er
10%. Eigið fé Eimskips og dótturfélaga þess nam
rúmum 6 milljörðum króna í lok júní og jókst um
266 milljónir króna frá áramótum. Eiginfjárhlutfall-
ið er 41%.
I fréttabréfi Eimskips kemur fram að á fyrri hluta
ársins 1996 var fjárfest fyrir rúma 2 milljarða, en
stærstu liðimir voru þar smíði nýs skips, gámakaup
og kaup á hlutum í flutningafyrirtækjum. Að jafn-
aði störfuðu 955 starfsmenn hjá Eimskip og dóttur-
félögum þess frá janúar til júní 1996, þar af 688 á
íslandi en 267 erlendis.
í fréttabréfi Eimskips kemur fram að á fyrri hluta
þessa árs hafi verið lögð á það áhersla að efla þjón-
ustunet Eimskips innanlands. Skipaafgreiðsla Jes
Zimsen hf„ sem var í eigu Eimskips, var sameinuð
Tollvörugeymslunni hf. og hefur Eimskip eignast
meirihluta í hinu sameinaða félagi, TVG-Zimsen
hf. Þá fjárfesti Eimskip í Vöruflutningamiðstöðinni
hf. Áfram var unnið að uppbyggingu vömdreifinga-
miðstöðva félagsins í Reykjavík og á Akureyri með
það að markmiði að auka þjónustu á sviði birgða-
halds og vörudreifingar.
í júní sl. stofnaði Eimskip ásamt lettneskum
samstarfsaðilum skipafélagið Maras Linija Ltd.
með aðsetur í Felixstowe á Bretlandi. Tilgangurinn
er að sögn forráðamanna Eimskips að taka yfir
starfsemi Latvian Shipping Association Ltd. sem átt
hefur í rekstrarerfiðleikum að undanfömu.
Heppinn
Reyðfírðingur
Fyrir rúmu ári tók símasöludeild
bókaútgáfunnar Skjaldborgar upp
á þeirri nýbreytni að bjóða við-
skiptavinum sínum að taka þátt í
léttum getraunaleik.
Vinningurinn að þessu sinni er
helgarferð fyrir tvo til einhvers af
áfangastöðum Flugleiða erlendis.
Verðmæti vinnings er kr. 70 þús-
und.
Þann 25. júlí sl. var dregið úr
réttum svörum og kom upp miði
nr. 5668 og er eigandi hans Anna
Einarsdóttir á Reyðarfirði. Önnu
verður sent gjafabréf frá Flugleið-
um þessu til staðfestingar.
Bókaútgáfan Skjaldborg óskar
vinningshafanum til hamingju og
þakkar þeim fjölmörgu viðskipta-
vinum sínum sem sendu inn svör
við getraunaleiknum.
(Fréttatilkynning)
Já... en ég nota nú
yfirleitt beltiö!
|UtyFERÐAR
Ritröð uppeldis- og menntunar:
Bókin Börn og
skilnaður komin út
Nafnspjald
til ungs
krabbameins-
sjúkfíngs
Krabbameinsfélag Akureyrar og
nágrennis hefur verið beðið um að
senda 17 ára gömlum krabba-
meinssjúklingi, Craig Sharfold,
nafnspjald. Æðsta ósk hans er að
komast í Heimsmetabók Guinness
fyrir að eiga flest nafnspjöld í
heiminum. Aðeins skal senda til
hans eitt nafnspjald frá hverri
stofnun.
Til þess að lengja keðjuna biðj-
um við þig að senda bréf til 10
annarra stofnana/fyrirtækja. Lítill
tími er til stefnu og við biðjum þig
að eyða nokkrum mínútum í þetta,
svo keðjan slitni ekki.
Sendið nafnspjald ykkar til:
Mr Craig Sharfold
Make a Wish Foundation
31, Permitter Center East
Atlanta, Georgía 20346
USA
Með kveðju og fyrirfram þökk,
Halidóra Bjarnadóttir,
framkvæmdastjóri.
Ritröð uppeldis- og menntunar
er röð faglegra smárita um ýmis
málefni á sviði uppeldis- og
menntamála. Hverju þeirra er
ætlað að vera notadrjúg hand-
bók fyrir fagfóik í uppeldis- og
menntastéttum. Útgefandi er
Hf. Uppi sem gefur m.a. út
tímaritið Uppeldi.
Þriðja bókin, Böm og skilnaður
er skrifuð af Benedikt Jóhannes-
syni, sálfræðingi, sérstaklega fyrir
Ritröð uppeldis og menntunar.
Áður útkomnar í ritröðinni em
bækumar Þroskamat eftir Einar
Guðmundsson, sálfræðing, og Agi
og hegðun eftir Helgu Hannes-
dóttur, bama- og unglingageð-
lækni.
í bókinni Börn og skilnaður, er
fjallað um fjölgun hjónaskilnaða
og stöðu fjölskyldunnar, um skiln-
aðarferlið og viðbrögð bama við
skilnaði, um hlutverk bama við
skilnað, áhrif skilnaða á böm og
um stofnun stjúpfjölskyldu. Skiln-
aður er viðkvæmt efni, sem snertir
tilfinningar margra, einkum vegna
þeirra bama sem í hlut eiga. Með-
an á framkvæmd skilnaðar stendur
em meðlimir fjölskyldunnar í
mjög viðkvæmu ástandi tilfinn-
ingalega en allt er þó undir því
komið að makamir geti rætt sam-
an og í sameiningu skipulagt fyrir-
komulag skilnaðarins vel, einkum
gagnvart bömunum. Geti parið
ekki orðið sátt um framkvæmdina
né sett niður deildur sínar sjálft er
mikilvægt að leita eftir skilnaðar-
ráðgjöf hjá fagfólki.
Skráning í síma
462-3520
^Fedtomyndin
Skemmtilegur leikur fýrir alla sem áhuga hafa á Ijósmyndun
SÆFAR
ÍSLANDSBANKI
Hahs ftmiíN
Hvar?
Hvað?
Keppnin hefst laugardaginn 10. ágúst
kl. 10:00 f.h. og lýkur kl. 22:00 sama
dag. Þátttökugjald er 1000 kr. Kepp-
endur geta skráð sig hjá Pedromyndum
Skipagötu 16, Akureyri í síma 462 3520.
En þar hefst keppnin. Einnig verður unnt
að skrá sig þar samdægurs, að morgni
10. ágústkl. 9:00-9:45.
Keppnin er öllum opin og hæfir fólki á
öllum aldri! Eina skilyrðið er að
keppendur hafi myndavél fyrir 35 mm
filmu.
5S
Hvernig?
Keppnin felst í því að taka ljósmyndir
af 12 fyrirfram ákveðnum verkefnum
eða myndefnum eftir tiltekinni röð á 12
klukkutímum. Við rásmark fá keppend-
ur 12 mynda Kodak litfilmu og 3 fyrstu
verkefnin. Á þriggja tíma fresti þurfa
þeir síðan að mæta á ákveðnum áfanga-
stöðum og fá næstu verkefni. Tólf tím-
um síðar, kl. 22:00, koma þeir í mark
og skila filmunni. Aðeins má taka eina
mynd af hverju myndefni.
Verðlaunaafhending
og ljósmyndasýning hefst kl. 15:00 sunnudaginn 11. ágúst við Pedromyndir, Skipagötu
16. Dómnefnd skipa, fulltrúi Kodak, ljósmyndari og myndlistamaður.
Innifalið í þátttökugjaldi er 12 mynda
KODAK GOLD litfilma, framköllun
á Kodak Royal pappír, pizzutilboð,
grillveisla, maraþonbolur, möguleiki á
að vinna til glæsilegra verðlauna,
þátttaka í stórkostlegri ljósmynda-
sýningu, tækifæri til að fá meistara-
verkið sitt birt í Degi og ógleymanlegur
sumardagur á Akureyri í góðum
félagsskap.
AKUREYRI
VERÐLAUN
Canon
EOS 500 myndavél
meö 35-80mm linsu
frá Hans Petersen
(besta filman)
Grímseyjarsiglingar
með sæfara frá FMN
Canon Prima myndavél
frá Pedromyndum
(besta myndln)
Allir keppendur fá bol
meö merki keppninnar
frá Islandsbanka