Dagur - 08.08.1996, Blaðsíða 2

Dagur - 08.08.1996, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 8. ágúst 1996 FRÉTTIR Landbúnaðarráðuneytið: Breytt fýrirkomu- lag á greiðslum úr fóðursjóði Landbúnaðarráðherra hefur tek- ið ákvörðun um breytt fyrir- komulag á greiðslum úr fúður- sjóði frá og með 1. ágúst sl. Breytingarnar leiða af sér lækk- un fóðurtolla í verði kjarnfóðurs sem er 55% af innflutningsverði sem svarar til kr. 11,18 á kg af fóðurvörum sem voru fluttar inn á fyrsta íjórðungi ársins. Gjaldið verður nú kr. 0,80 á kg á innflutt hráefni í fóðurblöndur en kr. 7,80 á kg á innfluttar tilbún- ar fóðurblöndur. Það svarar til þess miðað við innflutningsverð nú að fóðurtollar sem koma fram í verði hráefna í fóðurblöndur nemi 4% af meðalverði innflutts fóðurs og að fóðurtollar af innfluttum fóðurblöndum nemi 38%. Fóður til fiskeldis og loðdýraræktar verður sem áður undanþegið fóð- urgjöldum að fullu. I frétt frá landbúnaðarráðuneyt- inu segir að þeir fjármunir sem verði innheimtir renni til Fram- leiðnisjóðs landbúnaðarins til efl- ingar nýrra verkefna í landbúnaði og til stuðnings við búgreinar og breytingar á búskaparháttum á lögbýlum. Áætlað er að til ráð- stöfunar til þessara verkefna komi á bilinu 30-35 milljónir króna á ársgrundvelli sem m.a. verða not- aðar til að efla innlenda fóður- framleiðslu. Þessi breyting á ráðstöfun fóð- urtolla leiðir af sér margvíslegar breytingar. I fyrsta lagi lækkar út- söluverð á tilbúnum innlendum fóðurblöndum. Sú lækkun mun verða á bilinu 9-20%, mismunandi eftir innihaldi erlendra hráefna í blöndunum. Til að útsöluverð fóð- urs lækki strax vegna þessara breytingar verður greitt úr fóður- sjóði á birgðir í vörslu fóðurinn- flytjenda. I öðru lagi verða lagðar af greiðslur til framleiðenda bú- vara á 50/55 hlutum af andvirði fóðurtolla úr fóðursjóði eftir af- urðum, sem Framleiðsluráð land- búnaðarins hefur annast. Endur- greiðslurnar hafa verið takmark- aðar við framleiðsluheimildir í mjólkurframleiðslu, sauðfjárrækt, og eggja- og kjúklingaframleiðslu. Sú framleiðslustjórnun sem það hefur leitt til leggst því niður. í þriðja lagi telur landbúnaðarráðu- neytið að umsýslukostnaður við greiðslur úr fóðursjóði til fram- leiðenda búvara sparist þegar þeim verði hætt, sem hefur numið um 5 milljónum króna árlega. Landbúnaðarráðuneytið gerir ráð fyrir nokkurri lækkun á verði búvara í kjölfar þessara breytinga til hagsbóta fyrir neytendur. óþh Búnings-, tækja- og skrifstofuhúsnæði er að rísa við knattspyrnuvöll Óiafsfirðinga. Til þessa hafa knattspyrnumenn þurft að ganga frá búningsklefum sundiaugarinnar til knattspyrnuvallarins, eflaust lengsti göngtúr milli búnings- klefa og vallar sem þekkist í 1. deild. Myndióþh Ólafsfjarðarvöllur: Ný búningsaðstaða tilbúin fyrir upphaf íslandsmótsins 1997 Byggingu húss við íþróttavöllinn í Ólafsfirði, sem hýsa á búningsaðstöðu og tækja- og áhaldageymslu á neðri hæð og veitingasal, eldhús og skrifstofur á efri hæð, miðar vel og er áætlað að byggingu verði að fullu lokið 1. maí 1997. Skrifstofumar eru ætlaðar þeim aðilum sem standa að byggingunni, þ.e. Ung- menna- og íþróttasambandi Ólafsfjarðar (ÚÍÓ) og knattspymudeild Leifturs en skíðadeild Leifturs hefur byggt yfir sína starfsemi á skíðasvæðinu ofan Hom- brekkuvegar. Knattspyrnudeild Leifturs hefur verið á hrakhólum með húsnæði undir starfsemina, en deild- in hefur verið í leiguhúsnæði í félagsheimilinu Tjarn- arborg jafnframt því að sjá um daglegan rekstur fé- lagsheimilisins. Byggingarkostnaður er áætlaður um 25 milljónir króna. GG Borgarafundur í kvöld kl. 20.30 með Stefáni Jóni Hafstein! Akureyringar og nærsveitamenn, athugið!! Rabbfundur um nýja morgunblaðið Dag-Tímann verður í kvöld kl. 20.30 á Fiðlaranum, Skipagötu 14, 4. hæð. Ritstjóri blaðsins, Stefán Jón Hafstein, mun kynna helstu áherslur blaðsins og svara fyrirspurnum. Komið og látið í ljós ykkar ábendingar og skoðanir ásamt því að heyra hverjar helstu áherslur verða í hinu nýja blaði! Sjáumst hress! -besti tími dagsins! Utsalan i fullum gangi Pæmi: Gallabuxur kr. 1.990 Gallajakkar kr. 2.900 Gallakjólar, síðir og stuttir frá kr. 1.990 5íðir kjólarfrá kr. 1.990 5tuttir kjólarfrá kr. 1.690 Peysur frá kr. 1.400 t3rekkugötu 3 sími 462 4969

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.