Dagur - 08.08.1996, Side 3

Dagur - 08.08.1996, Side 3
FRETTIR Fimmtudagur 8. ágúst 1996 - DAGUR - 3 Endurvinnslan hf.: Tilraunaverkefni í Nú um mánaðamótin lauk til- raunaverkefni Endurvinnslunar hf. á pappírssöfnun í nokkrum hverfum á Akureyri. Verkefnið var unnið í samvinnu við Gáma- þjónustu Norðurlands og íþróttafélögin KA og Þór. f bréfí sem Gunnar Garðarsson í End- urvinnslunni sendi þátttakend- um í söfnuninni segir að þrátt fyrir góðan árangur muni End- urvinnslan ekki treysta sér til áframhaldandi söfnunar, vegna þess að þegar hún er fram- kvæmd sem sérstök söfnun verður hún mjög dýr. „Það er komin góð reynsla á hvað hægt er að gera og það er hægt að gera virkilega stóra hluti héma ef menn sjá ástæðu til,“ sagði Gunnar, sem óskar eftir samstarfi við bæjaryfirvöld. „Ég tel að það sé hagkvæmt fyrir bæj- arfélagið að losna við að þurfa að urða allt þetta sorp og það á að geta sinnt þessu málefni á ein- hvem hátt. I þessu tilraunaverk- efni sáum við sjálfir um að kaupa pokana, borga íþróttafélögunum og Gámaþjónustunni og við lögð- um til mannskap. Við vitum að sorpmagn minnkaði verulega í mörgum húsum og jafnvel var að- eins smásletta eftir af venjulegu sorpi eftir vikuna,“ sagði Gunnar. Endurvinnslan notar pappírinn í framleiðslu á kubbum í vöru- bretti og hefur þurft að keyra stór- an hluta pappírsins í framleiðsluna frá Reykjavík en Gunnar segir al- veg grundvöll fyrir að safna því á Akureyri og nágrenni. „Þetta kost- aði okkur þó nokkuð en við feng- um góða reynslu og getum byggt á henni. Við eigum ekki að þurfa að keyra þetta í miklu magni frá Suðurlandi," sagði Gunnar og Sauðárkrókur: Ökumaður kastaðist út úr bílnum Fólksbíll hafnaði í skurði á móts við Bergsstaði rétt utan við Sauð- árkrók í gær. Ökumaðurinn kast- aðist út úr bílnum og að sögn lög- reglu er jafnvel talið að hann hafi legið utanvegar í 3-4 klukkutíma áður en hann fannst. Bíllinn var á kafi í skurðinum og sást ekki frá veginum en ökumaður vöruflutn- ingabíls kom auga á manninn rétt fyrir hádegi. Maðurinn er mikið slasaður og var fluttur til Reykja- vrkur. mgh Siglufjörður: Fyrsta ökuferð- in gekk ekki vel 14 ára drengur tók lykil af bíl móður sinnar og keyrði honum á annan bíl og síðan á girðingu á Siglufirði í gær. Drengurinn var að sjálfsögðu ekki með ökurétt- indi og var þetta í fyrsta skipti sem hann ók bfl. mgh vildi þakka bæjarbúum góðar við- tökur og minna á að það eru enn 7 gámar víðsvegar um bæinn þar sem hægt er að skila pappír. Gunnar vill taka það fram að bylgjupappír er orðinn óæskilegur í framleiðslu brettakubbanna en verið er að vinna að og þróa fram- leiðslu á arinkubbum úr bylgju- pappír og vonandi verður hægt að vinna úr honum í framtíðinni. Að undanförnu hefur Endurvinnslan átt í viðræðum við forsvarsmenn verndaðs vinnustaðar í Iðjulundi um samstarf í framleiðslu og pökkun á arinkubbunum. Nú er nýbyrjað samstarfsverk- efni Endurvinnslunnar, Gáma- þjónustunnar, Dalvíkurbæjar og ungmennafélagsins, þar sem Dal- vík er öll undirlögð í söfnun. SH vígahug Hann er nokkuð grimmilegur að sjá þessi hundur sem varð á vegi ljósmyndara Dags. Þeg- ar betur var að gáð kom auðvitað í ljós að hundurinn er hið mesta gæðagrey. Eins og sjá má tekur sá svarti hressilega á „bráð“ sinni. Mynd: bg Tilboð opnuð í þekju og lagnir Krossanesbryggju: Ekkert tilboð frá verktökum á Akureyri Veiði glæddist í Smugunni á sunnudag - flotinn við land- helgisiínuna við Noreg og bíður göngu Veiði í Smugunni glæddist um helgina og segir Runólfur Birgisson, útgerðarstjóri Sigl- fírðings hf., að aflinn hafi glæðst nokkuð hjá Sigli SI á sunnudag, en var aftur orð- inn daprari á mánudag. Siglir SI hefur einnig verið að fá svolítið af rækju á sömu slóð sem unnin hefur verið óflokkuð jafnhliða þorskinum. Siglir SI hefur verið í Smug- unni í rúmar fjórar vikur og aflaverðmæti aðeins um 7 milljónir króna. Siglfirðingur hf. á einnig annan togara í Smugunni, Sigltirðing SI. Run- ólfur segir það ekki undrunar- efni að ekki hafi veiðst meira í bili þrátt fyrir mjög góð skil- yrði í sjónum, mikið líf og æti, því íslensku togararnir séu allir við landhelgislínuna við Noreg og taki allan fisk sem berist. Vegna suðlægra átta á þessum slóðum má búast við að sjórinn hitni og þá fari afli að aukast. Útgerðannenn og skipstjórar teysta því að smá skot eins og varð á sunnudaginn sé undan- fari stærri fiskigöngu inn í Smuguna og vaxandi afla. GG Tilboð voru opnuð sl. miðviku- dag í að steypa þekju, lagnir og ljósamasturshús á stálþil í Krossanesi á Akureyri. Verkefn- ið er fólgið í því að leggja ídrátt- arlagnir fyrir rafmagn og vatn, smíða og koma fyrir tengibrunn- um og steypa um 1150 fermetra af þekju og eitt sambyggt ljósa- og vatnshús. Tvö tilboð bárust í verkið; frá Þorgilsi Jóhannessyni á Svalbarðs- strönd að upphæð 14.504.393, eða 128,2% af kostnaðaráætlun, og frá Kötlu hf. á Árskógsströnd að upp- hæð 14.244.624, "eða 125,9% af kostnaðaráætlun, en kostnaðar- Mjög rólegt var í Vaglaskógi um verslunarmannahelgina en þar gisti um 600 manns þegar mest var. Að sögn Þorsteins Arnþórsson- ar í Vaglaskógi var þar mest um fjölskyldufólk og fór allt hið besta fram. Gæsla var höfð á svæðinu allan sólarhringinn og þurfti lítið áætlun Vita- og hafnamálastofnun- ar hljóðaði upp á 11.308.251. Far- ið verður yfir tilboðin á næstunni en stefnt er að ákvarðanatöku um verktaka í næstu viku en verklok eru áætluð 15. október nk. Einar Sveinn Ólafsson, formaður Hafn- arstjómar Akureyrar, segist fremur ósáttur við að enginn heimamaður, þ.e. akureyrskur verktaki, skuli bjóða í verkið, sem bendi til þess að verktakaiðnaðurinn á Akureyri sé ekki eins öflugur og af sé látið og kannski sé steypuverð t.d. hærra á Akureyri en víða annars staðar en uupistaðan í verkinu er steypa á þekju. GG að skipta sér af fólki sem Vagla- skóg gisti og umgengni þess góð. Þorsteinn sagði það alveg vera liðna tíð að unglingar og jafnvel börn flykktust í skóginn um þessa helgi, fjölskyldufólk væri lang- stærsti hlutinn af gestum í Vagla- skógi um verslunarmannahelgi. GKJ Vaglaskógur: Margt fólk en rólegt um helgina Verslunin Garðshorn: Jöfn versl- un en eng- in örtröð Páll Egilsson, eigandi versl- unarinnar Garðshorns við Byggðaveg, segir verslun hafa verið nokkuð góða og jafna um verslunarmanna- helgina, en engin örtröð hafi verið. Unglingarnir sem voru á tjaldstæðinu og aðrir hafa fremur farið í verslanir nær tjaldstæðinu eða verslað í miðbænum. Páll segist ekki hafa orðið var við aðra ferðamenn, þó hafi auðvitað komið einn og einn. Hann segist þó ánægður með viðskiptin eftir helgina, þau hafi verið svipuð og hann hafí búist við, og ferðanianna- straumurinn til Akureyrar um helgina sé af hinu góða fyrir bæjarfélagið. GG Verslunarmannahelgin: Nauðganir og kynferðisleg áreitni Samkvæmt upplýsingum Rann- sóknarlögreglunnar á Akureyri bárust henni tvær kærur vegna kynferðisafbrota um og eftir há- tíðina Halló Akureyri um versl- unarmannahelgina. Annað málið er nauðgun í heimahúsi þar sem brotamaður sem var ekki kunnugur fómar- lambinu komst undan. Maðurinn var handtekinn daginn eftir og sleppt eftir að dómari taldi málið upplýst. Hin kæran er vegna kyn- ferðislegrar áreitni og er hún í vinnslu þar sem maðurinn er á ferðalagi. Vitað er hver brotamað- urinn er og verður málið sent í hans heimahérað og rannsakað þar. Talið er að þriðja kæran sé á leiðinni og þá vegna nauðgunar. Stúlkan sem væntanlega kærir verknaðinn er að sögn rann- sóknarlögreglu farin suður og leggur því fram kæru þar. mgh Sería skrifstofu húsgögn Gerum tillögur að uppsetningu pg föst verðtilbpð án kestnaðar Falleg hönnun Hagkvæmt verð íslensk framleiðsla tClvutæki Furuvöllum 5 • Akureyri Sími 462 6100

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.