Dagur - 08.08.1996, Blaðsíða 11
IÞROTTIR
Fimmtudagur 8. ágúst 1996 - DAGUR - 11
FROSTI EIÐSSON
A fyrsta teig á Jaðarsvellinum
Gunnlaugur Búi Olafsson, nemandi í Menntaskólanum á Akureyri slær upphafshögg sitt af fyrsta teig á
Jaðarsvellinum, þar sem Skólamót GSÍ var haldiö í gær, en úrslit voru ekki kunn fyrir vinnslu blaðsins. Ung-
lingalandsmótið hefst síðan á vellinum á morgun og stendur fram til sunnudags. Mynd: BG
Körfuknattleikur:
Ungverji þjálfar
lið Tindastóls
• Alan Shearer gekk endanlega
frá samningi við Newcastle nú í
vikunni og samkvæmt heimildum
breskra blaða þarf hann ekki að
hafa áhyggjur af peningamálum í
framtíðinni. Shearer fær 23.943
pund í grunnlaun á viku eða um
2,4 milljónir ísl. króna. Samanlagt
fær hann því 1.245.036 pund á ári
til viðbótar þeim 2,5 milljónum
punda sem hann fær í sinn hlut
fyrir að skrifa undir samninginn.
Shearer fær væntanlega einnig
góðar bónusgreiðslur og er talið
að heildarlaun hans á ári verði um
2 milljónir punda eða 33.333 pund
fyrir hvem leik, 6,17 pund (650
krónur) fyrir hverja sekúndu sem
hann spilar fyrir liðið. Þá keypti
Newcastle af leikmanninum 45
milljóna glæsibýli hans og borgar
að auki allan kostnað við flutning
hans til Newcastle. Félagið leigir
nú handa honum heimili á meðan
Shearer leitar sér að hentugu húsi
eða landareign til að byggja á.
Toppurinn á öllu saman er að She-
arer mun halda laununum jafnvel
þó hann meiðist. í fyrstu 20 leik-
ina sem hann missir af ef hann
meiðist alvarlega fær hann að auki
bónusgreiðslur á við aðra í byrjun-
arliðinu.
• Tottenham hefur boðið 3,5
milljónir í Fernando Couto en lík-
legt þykir að hann verði áfram hjá
Parma. Tottenham er með annan í
sigtinu en það er skoski tengilið-
urinn David Hannah hjá Dundee
United. Hann er 22 ára og skrifar
væntanlega undir samning við
Spurs í vikunni.
• Newcastle og Man. Utd. mætast
í árlegum leik um Góðgerðar-
skjöldin nk. sunnudag. Líklegt
þykir að Karel Poborsky og Jordi
Cruyff verði í liði United en ekki
var búið að ganga endanlega frá
félagsskiptum þeirra í gær. Roy
Keane meiddist í æfingaleik gegn
Nottingham Forest á sunnudag og
sama má segja um miðvörðinn
Ronnie Johnsen. Þá er Andy Cole
með lungnabólgu og óvíst er hvort
Ryan Giggs getur leikið með. Al-
an Shearer leikur sennilega fyrsta
leik sinn fyrir Newcastle. SH
Skíði:
Kristinn á
förum til
Noregs
Kristinn Björnsson, skíðamaður
frá Ólafsfirði leggur af stað í dag
til Noregs þar sem hann mun
verða við æfingar ásamt finnska
landsliðinu, á jökli í eina viku.
Ætlunin er að á næstu árum
komist á samstarf milli íslendinga
og Finna um rekstur landsliðanna
í alpagreinum og má því segja að
ferð Kristins marki tímamót. Þess
má geta að meðal þátttakenda á
æfingunni er Janne Leskinen, en
hann hafnaði í fjórða sæti í risa-
svigi á heimsmeistaramótinu í Si-
erra Nevada fyrr á árinu.
Kristinn sleit hásin og var af
þeim sökum frá keppni, síðari
hluta vetur, en er búinn að ná sér
Kristinn Björnsson mun æfa með
finnska landsliðinu.
að fullu. Hann hefur verið við æf-
ingar í allt sumar ásamt öðru
landsliðsfólki, þar á meðal í Kerl-
ingafjöllum þar sem hópurinn
æfði við góðar aðstæður.
Úrvalsdeildarlið Tindastóls
gekk nýlega frá ráðningu ung-
versks þjálfara, Augosto Nagy
að nafni. Nagy er 29 ára gamall,
fyrrum leikmaður, en hann mun
einbeita sér að þjálfun liðsins.
Páll Kolbeinsson, þjálfari liðsins
undanfarin ár, gaf ekki kost á
sér að nýju, vegna anna. Að
sögn Halldórs Halldórssonar,
formanns körfuknattleiksdeildar
félagsins, þá má búast við því að
deildin leiti fyrir sér að evrópsk-
um miðherja fyrir veturinn og
þá mun Bandaríkjamaðurinn
Torrey John, leika áfram með
liðinu.
Ungverjinn hefur að mestu
Knattspyrna:
Daði í banni
Izudin Daði Dervic, var einn 46
leikmanna sem úrskurðaðir voru í
leikbann af aganefnd KSÍ á fundi
hennar í fyrrakvöld. Daði var
kominn með fjórar áminningar og
missir því af leik Leifturs við ÍA,
á Akranesi, sem fram fer á sunnu-
daginn klukkan 17.
Jón Hrannar Einarsson, varnar-
maðurinn úr KA, fékk einnig eins
leiks bann fyrir fjórar áminningar.
Úrskurðir aganefndar taka gildi
frá og með hádegi á föstudegi og
tekur hann því út bannið gegn Þór
þann 12. ágúst.
Liverpool-klúbbur
Stofnfundur Norðurlandsdeildar Li-
verpool-klúbbsins verður haldinn n.k.
sunnudag kl. 17 á Veitingastaðnum
Við Pollinn. A fundinum verður valin
framkvæmdanefnd, sem kemur til með
að skipuleggja starfsemina á Norður-
landi í vetur.
Góð dagskrá verður í boði, meðal
annars sýndur nýr búningur félagsins
og samstarfssamningar við fyrirtæki í
bænum kynntir. Nýjar fréttir frá Anfi-
eld verða fluttar og málin rædd. Nýir
félagar eru boðnir velkomnir.
fengist við þjálfun yngri flokka í
heimalandi sínu, en hann hafði
góð meðmæli frá Lazlo Nemeth,
samlanda sínum og fyrrum lands-
liðsþjálfara fslendinga. Þá má geta
þess að Tómas Holton, þjálfari
Skallagríms, lék með Nagy á
námsárum Tómasar í Ungverja-
landi fyrir nokkrum árum.
Tindastóll hefur orðið fyrir
mikilli blóðtöku í sumar, þar sem
tveir af lykilmönnum liðsins, þeir
Hinrik Gunnarsson og Pétur Guð-
mundsson, munu ekki leika með
liðinu næsta vetur. Hinrik er far-
inn í KR, en Pétur hefur ekki enn
tilkynnt félagskipti. Þá mun Atli
Bjöm Þorbjömsson fara suður á
land í nám og leikur því ekki með.
Knattspyma - 2. deild karla:
Opnast deildin upp á gátt?
- KA mætir toppliöi Fram á Akureyrarvellinum kl. 19
KA-menn geta opnað 2. deildina
upp á gátt með sigri á toppliði
Fram en liðin mætast á Akureyr-
arvellinum í kvöld klukkan 19.
Fjórir leikir fara fram í deildinni
í kvöld, ÍR mætir Völsungi,
Skallagrímur leikur gegn Víkingi
og FH tekur á móti Leikni. Ell-
eftu umferðinni lýkur annað
kvöld með leik Þróttar og Þórs.
„Það verður gaman að fá Fram-
arana hingað norður. Við eigum
harma að hefna frá því í fyrri
leiknum og leggjum allt í sölumar,
enda er þessi leikur ekki síður
mikilvægur fyrir okkur en Fram,“
segir Pétur Ormslev, þjálfari KA.
Nokkuð hefur verið um meiðsl í
leikmannahópi KA að undanförnu.
Aðalmarkaskorari liðsins Þorvald-
ur Makan Sigbjörnsson, er meidd-
ur á hné og leikur líklega ekki, en
annars átti Pétur von á því að liðs-
uppstilling KA-manna yrði svipuð
og í síðasta leik liðsins, gegn Vík-
ingi.
Pétur sagði að KA-menn væru
ekki búnir að missa af lestinni í
toppbaráttu deildarinnar, enda
munar aðeins fjórum stigum á KA
sem er í 5. sæti og Frömurum.
Dean Martin og felagar í KA geta blandað sér í toppbaráttuna með sigri
gegn Fram í kvöld Myndin er úr leik KA við Skallagrím fyrr í sumar.
„Við höfum ekki alveg náð að
sýna okkar rétta andlit, eftir bikar-
leikinn gegn Þór. Fram að þeim
Mynd:BG
leik vomm við að skapa okkur
mikið af marktækifærum og von-
andi tekst okkur að gera það í
næstu leikjum. Það má samt ekki
vera á kostnað vamarinnar. Deild-
in er mjög jöfn núna og það getur
allt gerst,“ sagði Pétur.
Framarar hafa ekki náð að sýna
þann stöðugleika sem margir
bjuggust við af liðinu. Liðið sigr-
aði í þremur leikjum í röð, en fékk
síðan stóran skell gegn FH, 5:0 og
jafntefli varð í leiknum gegn Þrótti
í síðustu umferð.
„Okkur er búið að vanta menn í
vörnina, Asgeir Halldórsson er bú-
inn að vera meiddur frá því í leikn-
um gegn Leikni. Leikurinn við
FH, var hálfgerður ruglleikur, sem
ég vona að eigi ekki eftir að endur-
taka sig,“ segir Ásgeir Elíasson,
sem er fyrrunt þjálfari Péturs hjá
Fram.
Staðan er nú þessi:
Fram
Skallagrímur
Þór
Þróttur R.
KA
FH
ÍR
Völsungur
Víkingur R.
Leiknir R.
1054 1 27:13 19
105 3 2 17: 7 18
105 3 2 15:17 18
104 5 1 22:16 17
10433 19:17 15
10334 14:15 12
10406 11:22 12
103 25 17:19 11
1023 5 13:14 9
10 1 27 11:26 5
Fleiri útlendingar
Búast má við því að mörg liðanna
í úrvalsdeildinni tefli fram tveim-
ur leikmönnum næsta vetur.
Leyfilegt er að nota einn erlendan
leikmann í hverju liði, en úrskurð-
urinn í fyrra í svokölluðu Bos-
man-máli gerir það að verkurn að
sérsambönd geta ekki komið 1 veg
fyrir frjáls félagaskipti leikmanna
innan evrópska efnahagssvæðis-
ins. Nokkur lið hafa þegar tekið
við sér. KFÍ, nýliðarnir frá ísafirði
hafa fengið Spánverja til liðs við
sig og Skallagrímur mun einnig
tefla fram Evrópumanni í vetur og
fleiri lið eiga eftir að bætast í hóp-
inn.
Hamar
félagsheimili Þórs:
Líkamsrækt og tækjasalur
Ljósabekkir
Vatnsgufubað
Nuddpottur
Salir til leigu
Beinar útsendingar
Getraunaþjónusta
Hamar
sími 461 2080