Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1994, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1994
3
Fréttir
Skoðanakönnun DV um tungumálakennsluna:
Þjóðin vili að enskan
taki við af dönskunni
- sem fyrsta erlenda tungumálið í grunnskólum landsins
Enska í stað dönsku
- sem fyrsta erlenda tungumál 1 skólum landsins -
58%
Höfuðborgin
70,1%
Fylgjandi
29,9%
Andvígir
67%
Landsbyggðin
Yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinn-
ar vill að enska verði fyrsta erlenda
tungumálið sem grunnskólanemar
leggja stund á í stað dönskunnar eins
og nú er. Þetta kemur fram í skoð-
anakönnun DV sem framkvæmd var
um síðustu helgi.
Niðurstöður könnunarinnar urðu
á þann veg að 62,5 prósent aðspurðra
vilja að enska leysi dönsku af sem
fyrsta tungumálið í skólum landsins,
26,7 prósent eru andvíg, 10 prósent
eru óákveðin og 0,8 prósent neita að
svara. Sé einungis tekið mið af þeim
sem afstöðu taka reyndust 71,1 pró-
sent fylgjandi breytingunni en 29,9
prósent andvíg.
Úrtakið í könnunni var 600 manns.
Jafnt var skipt á milli kynja og eins
á milh höfuðborgarsvæðis og lands-
byggðar. Spurt var: „Ertu fylgjandi
eða andvígur því að að enska leysi
dönsku af hólmi sem fyrsta erlenda
tungumálið í skólum landsins?"
Sé afstaða kjósenda greind eftir
búsetu kemur í ljós að danskan á
meiri stuðning meðal höfuðborg-
arbúa en landsbyggðarinnar. Á höf-
uðborgarsvæðinu reyndust 58,3 pró-
sent fylgjandi því að danskan viki
fyrir enskunni í grunnskólum lands-
ins en á landsbyggðinni reyndust
66,7 prósent fylgjandi breytingunni.
leyfi í 10 daga
- 36fiskiskipánleyfis
„Þeir voru sviptir veiðileyfi í 10
daga eöa til 16 ágúst. Þaö komu
engar athugasemdir frá þeim og
þeir nýttu sér ekki andmæla-
rétt,“ sagði Þóröur Eyþórsson hjá
sjávarútvegsráðuneytinu vegna
máls tveggja krókaleyfisbáta.
Svo sem DV greindi frá fyrir
helgi voru tveir krókaleyfisbátar
sakaðir um að hafa tekið við afla
úr snurvoðarbát og landað sem
sínum eigin. Veiöieftirlitsmenn,
sem skoðuðu fiskinn, töldu úti-
lokað að hann hefði verið veiddur
á króka. Þeir fengu því tilkynn-
ingu frá Fiskistofu um að þeir
yrðu sviptir veiðileyfi ef þeim
tækist ekki að gera grein lyrir
sínum málum iiman ákveðinna
timamarka.
Eigendurnir gerðu ekki athuga-
semdir við þessar ávirðingar og
voru því sviptir veiðileyfi.
Ekki er vitað hvaða bátur
veiddi fiskinn sem færður var í
krókabátana sem eru samkvæmt
heimildum DV gerðir út frá Arn-
arstapa á Snæfehsnesi.
Ahs eru nú 36 fiskiskip án veiði-
leyfis vegna sviptingar, þar af
einungis þessir tveir krókaleyfis-
bátar.
1111111111111111111111111111111! 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 i 1111111111111M111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111! 1111111111111111111 (11 i 111111111,11,11,1111,11,11,1,, 1, 11,1, ,j_
KSÍ 0G C0CA-C0LA
11. ágúst
KL. 10:00 -16:00
Eftirtalin félög stilla upp knattþrautum KSÍ
og Coca-Cola á æfingasvæðum sínum:
Reykjavík og nágrenni:
FH - FRAM - KR - VALUR - UBK - STJARNAN -
HK - FYLKIR - ÍR - ÞRÓTTUR - VÍKINGUR -
HAUKAR - FJÖLNIR - GRÓTTA - LEIKNIR -
AFTURELDING
Vesturland og Vestfirðir:
ÍA - BÍ - SKALLAGRÍMUR - SNÆFELL -
VÍKINGUR - GRUNDARFJÖRÐUR
Norðurland:
ÞÓR - KA - LEIFTUR - VÖLSUNGUR - DALVÍK -
TINDASTÓLL - KS - HVÖT - UMFL -
K0RMÁKUR - NEISTI - HSÞ-B - EILFÍFUR
Austurland:
ÞRÓTTUR - HÖTTUR - AUSTRI - HUGINN -
LEIKNIR - NEISTI - SINDRI - VALUR
Suðurland og Suðurnes:
ÍBK - ÞÓR - TÝR - GRINDAVÍK - SELF0SS -
REYNIR - VÍÐIR - ÆGIR - HAMAR -
NJARÐVÍK - ÞRÓTTUR
5=) 1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111,111, |, 11,1111,11, |, 1111,1111,1111,111111111, |, 1111111,1111,111,111111111,111111,111,, 11111,1111111,1,1,, 11111111111,11! 1111111,