Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1994, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1994
5
Fréttir
Hvers vegna hætt var við haustkosningar:
: Fylgi Jóhönnu í skoðana-
könnun DV skipti sköpum
- forsætisráðherra taldi krata samþykka haustkosningum þegar hann hóf umræðuna
Atburðarásin síðustu daga í hinu
svokallaða haustkosningamáli er af-
ar sérkennileg. Á mánudaginn sagði
Davíð Oddsson forsætisráðherra við
fréttamenn eftir fund með Jóni Bald-
vin Hannibalssyni, formanni Al-
þýðuflokksins, að hann hefði ekki
blásið haustkosningar af þótt minni
líkur væru fyrir þeim en áður. Hann
sagðist ætla að ræða málið við sam-
ráðherra sína, formann og varafor-
mann þingflokks og þá þingmenn
Sjálfstæðisflokksins sem hann gæti
náð í. Hann myndi svo tilkynna um
ákvörðun sína á fimmtudag.
En svo allt í einu í gær, þriðjudag,
gaf hann út yfirlýsingu eftir ríkis-
stjómarfund um að hætt væri við
haustkosningar.
Skoðanakönnun DV
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um DV var það niðurstaðan í skoð-
anakönnun DV sem skipti sköpum.
Hún sýndi að Jóhanna Sigurðardótt-
■iT gæti hugsanlega nær rústað
flokkakerfið byði hún fram sér lista.
Og hún tók jafnvel meira fylgi frá
Sjálfstæðisflokki en Alþýðuflokki.
Bæði Davíð Oddsson og Jón Baldvin
urðu hræddir við þessa niðurstöðu
og því vom haustkosningar blásnar
af í gær en ekki beðið til fimmtudags.
Kratar hræddir við Jóhönnu
Á foringjafundi Alþýðuflokksins á
Akranesi síöasthðinn laugardag var
samþykkt að leggjast gegn haust-
kosningum. Ástæða þess var einfold.
Óttinn við sérframboð Jóhönnu Sig-
urðardóttur rak menn til þessarar
samþykktar enda þótt þá lægi engin
skoðanakönnun fyrir.
Jóhanna hefur verið á fundaferð
um landið síðustu vikurnar og fengið
góðar viðtökur. Kratar um land allt
vita að Jóhanna á miklum vinsæld-
um að fagna um allt land, ekki bara
hjá krötum heldur fólki úr öllum
flokkum. DV hefur heimildir fyrir
því að hefði niðurstaðan í skoöana-
könnun DV um fylgi Jóhönnu verið
önnur og lakari hefði Jón Baldvin
ekki lagst jafn eindregið gegn haust-
kosningum og hann gerði, þrátt fyrir
fundarsamþykktina. Og Davíð Odds-
son hefði ekki verið jafn fljótur að
blása þær af og raun bar vitni, ef
hann hefði þá gert það.
Hvers vegna hóf forsætis-
ráöherra umræðuna?
Miðað við það klúður sem haust-
kosningamáhð hefur lent í hlýtur sú
spuming að vakna hvers vegna Dav-
íð Oddsson forsætisráðherra hóf að
ræða um haustkosningar sem góðan
kost fyrir svo sem tveimur vikum eða
svo. Það væri afar ólíkt honum að
hefja þá umræðu í fuhri óvissu um
vilja samstarfsflokksins.
Samkvæmt því sem einn ráðherra
Sjálfstæðisflokksins sagði í samtah
við DV taldi Davíð sig hafa vissu fyr-
ir því að Alþýðuflokkurinn væri
samþykkur haustkosningum. Fund-
arsamþykktin hjá krötum á laugar-
dag mun því hafa komið honum
nokkuð á óvart. Hann mun samt
hafa verið ákveðinn í að boða til
haustkosninga allt þar tíl skoðana-
könnun DV birtist á mánudaginn.
Sjálfur var Davíð sannfærður um
að haustkosningar væm heppilegar,
bæði vegna erfiðrar fjárlagagerðar
og ekki síður kjarasamninganna sem
lausir em um áramót. Davíð benti
sjálfur á í samtölum við fréttamenn
að þinghald eftir áramót yrði hvorki
fugl né fiskur á kosningaári. Enda
er alveg ljóst að fjárlagafrumvarpið
og fylgifrumvörp þess verða stjóm-
arflokkunum erfið í haust. Ríkis-
Davið Oddsson og Jón Baldvin
Hannibalsson: Þeirra biður erfitt
þinghald með aðeins eins atkvæðis
meirihluta öruggan við afgreiðslu
fjárlaga.
Fréttaljós
Sigurdór Sigurdórsson
stjórnin getur ekki treyst á fylgi
þeirra Eggerts Haukdals, Inga Bjöms
Albertssonar, Eyjólfs Konráðs JÓns-
sonar og Jóhönnu Sigurðardóttur.
Þá er meirihluti stjórnarinnar ekki
nema eitt atkvæði. Sumir segja að
stundum sé betra að stjórna með
naumum meirihluta en miklum og
benda í því sambandi á eins atkvæð-
is meirihluta viðreisnarstjórnarinn-
ar.
Þá er bent á það að Sjálfstæðis-
flokkurinn í Reykjavík efni til próf-
kjörs á haustmánuðum, sennilega í
nóvember. Hætt er við aö Reykjavík-
urþingmenn flokksins, sem glíma í
prófkjörinu, verði ekki ákafir í að
samþykkja mikinn niðurskurð í fjár-
lagafrumvarpinu eins og nú er boðað
í miðri kosningabaráttu.
Fróðlegt meö framhaldið
Egih Jónsson, alþingismaður frá
Seljavöhum, hefur verið einn ákaf-
asti talsmaður þess í þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins að efnt verði til
haustkosninga. Hann sagði í samtali
við DV í gær að ákvörðun Davíðs um
að blása þær af kæmi sér mjög á
óvart. Hann sagði að það yrði fróð-
legt að fylgjast með framhaldinu
enda þótt hann ætlaði ekki að vera
með neina spá. Hann sagði að sam-
starf stjómarflókkanna hefði verið haustkosningar. Hann sagði að hverfa frá þessu sundurlyndi. Ef svo
afskaplega ótrúverðugt. Það hefði spumingin nú væri sú hvort flokk- væri ekki væru menn ekki í góðum
leitt tíl svo mikUlar umræðu um amir hefðu náð samkomulagi um að málum á næstu mánuðum.
Það skiptir ekki
neinu máli hvort stofan þín er hentug
fyrir hornsófa, sófasett eða bara staka
sófa með hægindastól. Við leysum málin
með Joker. 5 sæta eða 6 sæta hornsófi,
sófasett 3-2-1 eða 3-1-1, 2ja sæta sófi eða
3ja sæta sófi allt eftir hvað hentar þér.
Vandað leður á slitflötum og margir leðurlitir
Joker 3-1-1 sófasett kr. 149.260,-
Joker 3-2-1 sófasett kr. 163.920,-
Joker 5 sæta hornsófi kr. 139.960,-
Joker 6 sæta hornsófi kr. 154.620,-
Joker 2ja sæta sófi kr. 54.640,-
Joker 3ja sæta sófi kr. 69.300,-
Eigum við ekki að hittast i dag?
Húsgagnahöllin
BÍLDSHÖFÐA 20 -112 REYKJAVÍK
SÍMI »1-871100
Stadgreiðsluafsláttur
eda gód greidslukjör
G°
UTSALA
vegna flutnings
Utsalan stendur yfir til 19.
agust.
GB
HUSGÖGN
Faxafeni 5
Símar 884080
686675
4-