Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1994, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1994
Viðskipti
Ysa á fiskm.
Þr M i
FÖ Mð
Þingvíst. hlutabr.
Þr M i
Fö M á
Dollarinn
Kauph. í New York
Hlutabréfa-
verðhækkar
Fyrir helgi fór ýsukílóiö á fisk-
mörkuðum upp í 143 krónur en
hefur lækkað síðan. Á mánudag
var meðalverðið um 100 krónur.
Hlutabréfaverð er á uppleið
þessa dagana. Þingvísitala hluta-
bréfa hefur hækkað á einni viku
um 2,3 prósent, var 920 stig á
mánudag
Hráolíuverð hefur verið nokk-
uö sveiflukennt aö undanfómu
en helst enn hátt. Tunnan fór á
18,13 dollara á mánudag.
Sömuleiðis hefur sölugengi
dollars sveiflast til í kringum 69
krónurnar.
Skömmu eftir verslunar-
mannahelgi hækkaði hlutabréfa-
verð í Wall Street töluvert en
hefur verið á niðurleið síðan.
Dow Jones vísitalan var 3757 stig
á mánudag.
Höfuðstöðvar Hampiðjunnar við Bíldshöfða. Milliuppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins sýnir að hreinn hagnaður
af rekstri varð rúmar 50 milljónir króna. Það er mun betri afkoma en á sama tima í fyrra. DV-mynd GVA
Hampiðjan skilar miQiuppgjöri:
Stóraukinn
hagnaður
- fyrstu sex mánuði ársins
Hampiðjan tilkynnti hluthöfum
sínum á mánudag niðurstöðu milli-
uppgjörs fyrir rekstur fyrstu sex
mánuði þessa árs. Hreinn hagnaður
af rekstri var rúmar 50 milljónir
króna sem er mun betri afkoma en
á sama tíma í fyrra þegar 36,5 millj-
óna hagnaður varð. Þessar fregnir
höfðu reyndar takmörkuð áhrif á
hlutabréfamarkaði á mánudag. Þá
voru viðskipti með hlutabréf Hamp-
iðjunnar um 290 þúsund krónur og
gengi bréfanna hélst óbreytt eða 1,45.
Um miðjan dag í gær höfðu engin
viðskipti átt sér stað með hlutabréf-
in.
Milliuppgjörið á bæði við Hampiðj-
una og dótturfyrirtæki hennar í
Portúgal. Rekstrartekjur námu tæp-
um 500 milljónum króna fyrstu sex
mánuðina sem er 3% aukning frá þvi
í fyrra. Áætlanir gerðu hins vegar
ráð fyrir samdrætti á þessu ári þann-
ig að forráðamenn og hluthafar
Hampiðjunnar geta glaðst.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
varð 56 milljónir króna á móti 38
milljónum í fyrra. Þess má geta að
hreinn hagnaður allt árið í fyrra var
rúmar 40 milljónir. Tekist hefur að
lækka skuldir Hampiðjunnar um 240
milljónir frá því í júní 1993 og um 210
milljónir frá áramótum. Skuldirnar
námu 789 milljónum í lok júní sl.
Eftir fyrstu sex mánuðina í ár nem-
ur hlutafé um 324 milljónum og ann-
að eigið fé um 398 milljónum. Því
nemur eigið fé alls um 723 milljónum.
í bréfi sínu til hluthafa bendir
Gunnar Svavarsson forstjóri á að
afkoman geti enn batnað á síðari
hluta ársins þar sem þegar hafl tek-
ist að ná þeim markmiðum sem að
var stefnt á þessu ári, þ.e. aö minnka
afurðabirgðir verulega. Að auki eru
söluhorfur góðar fyrir næstu mán-
uði.
Alverð helst stöðugt
Álverð á erlendum mörkuðum hef-
ur haldist frekar stöðugt að undan-
förnu. Á meðan verðiö sveiíiast ekki
meira til en 10-30 dollara tonnið
halda álframleiðendur ró sinni.
Birgðir halda áfram að minnka og
með haustinu má vænta verðhækk-
ana í kjölfar árstíðarbundinnar eftir-
spumar.
Ef marka má gámasölu í Englandi
og skipasölu í Þýskalandi virðist
verð fyrir íslenskan fisk erlendis á
örlítilli uppleið. Þannig hækkaöi
þorskverð í gámasölu um tæp 6%
milli vikna úr 104 í 110 krónur kíló-
ið. Alls seldust 362 tonn fyrir 45 millj-
ónir króna í gámasölunni.
Ottó N. Þorláksson RE seldi tæp 120
tonn í Bremerhaven fyrir um 14
milljónir króna. Sér í lagi fékkst gott
verð fyrir grálúðuna og karfann.
Hærra meðalverð hefur ekki fengist
í Þýskalandi síðan um miðjan júní sl.
Hlutabréf í Eimskip og Flugleiðum
hækkuðu i verði milli vikna. Hækk-
unin á Eimskipsbréfunum kom á
mánudag þegar viðskipti með bréfin
námu 6 milljónum og gengið fór í
4,39. í síðustu viku var höndlað með
hlutabréf fyrir 11,5 milljónir króna,
þar af fyrir 4,2 milljónir með bréf
Skeljungs. Eins og kemur fram í grafi
hér til hliðar hækkaði þingvísitala
hlutabréfa jafnt og þétt.
,í''] v J- H
u.-, 1
Útflutningsafurðir, gjaldmiðlar og verðbréf
ESSSSBS
Rilumvið-
skiptasiðferði
Viðskiptaifæðistofhun Háskól-
ans og Framtíðarsýn lif. hafa gef-
ið út fjórða ritið í smáritaröð
sinni. Ritið nefnist Viðskiptasið-
ferði og er eftir Þröst Sigurjóns-
son viðskiptafræðing.
Almennt séö er þessu riti ætlað
að vekja sfjórnendur á íslandi til
umhugsunar um viðskiptasið-
ferði og mikilvægi þess við stjórn-
un fyrirtækja. Kynning og um-
fjöllun um viðskiptasiðareglur er
meginviðfangsefni ritsins. Sér-
staklega er fjaliað um þætti sem
varða innleiöingu slíkra reglna
og allmörg dæmi eru gefin.
7.5 milljarða
krónafasteigna-
viðskipti
Fasteignamati rikisins bárust
samtals 429 kaupsamningar yfir
einbýlishús og raðhús á höfuð-
borgarsvæðinu á síðasta ári að
söluverðmæti um 4,7 milljarðar.
í fasteignaskrá eru ríflega 14 þús-
und slík hús á svæðinu. Sam-
kvæmt þessu skiptu um 3% ein-
býlis- og raðhúsa um eigendur á
árinu 1993.
Séu makaskiptasamningar
teknir með voru kaupsamningar
620 talsins að söiuvirði um 7,5
milljarðar króna. Samkvæmt því
skiptu 4,3% einbýlis- og raðhúsa
á höfuðborgarsvæðinu um eig-
endur.
Kreditkort með
neyðarþjónustu
Kreditkort hf. hafa gengið frá
samningi um neyöarþjónustu
fyrir korthafa Maestro-debet-
korthafa við GESA Assistance en
það er fyrirtæki sem sérhæfir sig
í slíkri þjónustu um allan heim.
Samkvæmt samningnum mun
GESA í neyðartilvikum, eftir
beiðni Kreditkorta, láta í té
reiðufé í hvaða landi sem er til
allra korthafa íslenskra Maestro-
og Cirrus-korta sem hafa glatað
korti eöa því hefur verið stolið frá
þeim. Reiðuféð í hverju tilviki er
að hámarki um 500 dollarar, eða
um 35 þúsund krónur.
9.5 milljarða
viðskipti á Verð-
bréfaþingi
Alls urðu viöskipti á Veröbréfa-
þingi íslands fyrir um 9,5 millj-
arða króna í júlí sl. Þar af urðu
viðskipti með hlutabréf aðeins
fyrír 38 milljónir, eða um 0,4%
af heildarviðskiptum. Þetta kem-
ur fram í fréttatilkynningu frá
Verðbréfaþingi. Frá áramótum
hefur þingvísitala hlutabréía
hækkað um tæp 8%.
Ávöxtun skuldabréfa hækkaöi
milh mánaða og var áætluð með-
alávöxtun húsbréfa í júlí 5,24%
og 4,98% á 3-5 ára spariskírtein-
um.
2,3 prósent
vevðbóiga
ífréttatilkynningu frá Hagstof-
unni má sjá að verðbólga á ís-
landi er nokkuð undir meðaltali
Evrópuríkja en svipuð og í
Bandaríkjunum, eða 2,3%. Er þá
miðaö viö hækkun neysluverðs-
vísitölu frá júni 1993 til júní 1994.
Til samanburðar má geta að eng-
in veröbólga er í Kanada, 0,7% í
Japan, 2,6% í Bretlandi en 10,9%
í Grikklandi.
Kauplagsneftid hefur reiknað
vísitölu framfærslukostnaöar
miöað við verðlag í ágústbyrjun.
Vísitalan reyndist vera 170,5 stig
og hækkaði um 0,1% frá júlímán-
uði. Visitala vöru og þjónustu
hækkaði um sama hlutfall.