Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1994, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1994, Page 8
10 MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1994 Fréttir Anton Ingvarsson, stýrimaður á Hágangi H: Þeir f óru með mig eins og otíndan glæpamann - aðbúnaðurinn í fangelsinu fyrir neðan allar hellur - mun kæra þessa meðferð Anton Ingvarsson, stýrimaður á Hágangi II.: Tólf timar liðu frá púðurskotinu þar til Norðmenn létu til skarar skríða. Simamynd NTB „Það var farið með mig eins og ótíndan glæpamann og ég trúi því ekki að svona sé farið með grunaða menn heima á íslandi. Aðbúnaður- inn í fangelsinu var fyrir neðan allar hellur. Það var ekkert í klef- anum nema harður bekkur og ör- þunn dýna. Fyrri nóttina bað ég um teppi og mér var boðið upp á drulluskítugt og rennandi blautt teppi sem ég afþakkaði. Um miðja nótt bað ég aftur um teppi þar sem mér var kalt, ég fékk þá aftur þetta sama teppi í sama ásigkomulagi. Klefinn var gluggalaus og allur grútskítugur," segir Anton Ing- varsson, fyrsti stýrimaður á Há- gangi H„ í samtali við DV rétt eftir að honum var sleppt úr norsku fangelsi, þar sem hann sat í ein- angrun í tvo sólarhringa fyrir að hafa hleypt af púðurskoti á miðun- um við Svalbarða. „Mér var haldið í varðhaldi í meira en þrjá sólarhringa án þess aö mér væri birt ákæra. Á íslandi gildir 24 tíma regla um fangelsis- vist án úrskurðar. Aðbúnaðurinn í fangelsinu lagaðist ekki fyrr en daginn eftir og þá fyrir þrýsting frá fiölmiðlum og lögmanni mínum. Það er mín skoðun að norsk stjórn- völd hafi verið að nota lögregluna hér til að leysa úr þessu klúðri sínu. Þetta mál er einn allsherjar brand- ari, ef það má orða það sem svo,“ segir Ánton. Hleypt af haglabyssu Atburðurinn sem varð upphaf allrar vitleysunnar var þegar An- ton hleypti af haglabyssu í návist varðhöa af Senju sem voru á gúm- bát að reyna að hindra veiðar Há- gangs II. á fiskverndarsvæðinu við Svalbarða. Fyrstu fréttir af atburð- um bentu til að skotið hefði verið að Norömönnum með það fyrir augum að skaða þá. Hvað var það sem raunverulega gerðist? „Ég var á vinnsludekki að slægja fisk þegar skipstjórinn kallaði nið- ur og sagðist vera að hífa. Ég fór upp á dekk til að fylgjast með, það var þokumistur og ég sé að hrað- bátur kemur á mikifii ferð. Ég náði í spúlslönguna og ætlaði að flæma þá í burtu með því aö sprauta á þá. Það var ekki nægur kraftur á sjón- um til að þessi áform gengju upp. Á meðan á þessu stóð náðu þeir að húkka á vírinn og þá kastaðist til togblökk og var nærri komin í höfuð háseta sem stóð þar. Það er ljóst að þar vantaði htið upp á að yrði slys. Þá fór ég upp og náði í haglabyssu og púðurskot, hlóð hana og beindi henni upp í loftið og skaut. Þá var trolhð komið upp en pokinn úti, þeir fiarlægðust þá en tóku til við að reyna að krækja í pokann sem flaut fyrir aftan. Ég hlóð þá byssuna aftur og miðaði henni skáhallt upp í loftið er ég ákvað að skjóta aftur. Þeir fiar- lægðust þá í einum grænum hvelli. Þeir létu okkur svo í friði alla nótt- ina eða næstu 12 tímana þegar svo darraðardansinn byrjaði og þeir heimtuðu að fá að koma um borð og hófu í framhaldinu skothríð. Ásömu slóðiraftur Anton segist ákveðinn í að sækja rétt sinn í þessu máh og ætlar ekki að sætta sig við þessa meðferð. „Ég er ákveðinn að sækja rétt minn í þessu máU. Núna bíð ég þess aö komast á sjó. Ég er hvergi banginn við að fara aftur á sömu slóðir og ætla að nota sömu aðferð- ir og áður við að fæla fugla, bæði stóra og smáa, frá skipinu,“ sagði Anton Ingvarsson. Úttekt á tekjum popptónlistarmanna: Björk Guðmundsdóttir tífaldar tekjur sínar - gamlabrýniðBjöggiHalldórsíöðrusæti Gríðarlegur tekjumunur er á tekj- um popptónUstarmanna ef marka má álagningarskrá skattyfirvalda sem nú Uggur frammi. Langtekju- hæst er Björk Guðmundsdóttir, fyrr- um SykurmoU, sem var með 958 þús- und krónur á mánuði í fyrra. Hefur Björk þar með ríflega tífaldað tekjur sínar frá árinu áður þegar hún var með 82 þúsund krónur á mánuði. Ekki hálfdrættingur á við hana er Björgvin Halldórsson, sem þó er í öðru sæti, með rétt rúmlega 400 þús- und krónur á mánuði. Á hæla hans kemur Andrea Gylfadóttir með 374 þúsund króna mánaðartekjur og Tækkar Utið eitt frá fyrra ári. Gunnar Þórðarson, sem var tekju- hæstur poppara í fyrra með 561 þús- und krónur, hrapar niður í 335 þús- und og hafa tekjur hans því lækkað um 40 prósent á milU ára. Sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson, Megas og Friðrik Karls- son eru allir með tekjur á bihnu 200 til 300 þúsimd. Athygli vekur að þekktir popparar, sem átt hafa vel- gengni aö fagna, viröast ekki græða mikið á verkum sínum. Þannig virð- ast mánaðartekjur Stefáns Hilmars- sonar, Þorvaldar B. Þorvaldssonar, Bubba Morthens og Gunnlaugs Bri- em rétt losa 100 þúsund krónur. Þá eru tekjur Eyþórs Arnalds í Tod- mobile einungis 48 þúsund krónur á Nauðungaruppboð Eftir kröfu Garðars Briem hdl. vegna Sigurðar Valdimarssonarferfram nauð- ungarsala á eftirfarandi lausafé að Skeifunni 4, Reykjavík, 18. ágúst 1994 kl. 11.00. Seldir verða eftirtaldir munir: Útrúllingsvél, Rondo, snr. 2776. Bolluvél, Fortuna. Bökunarofn, Rototherm, snr. 53279-730-101. Skurðarvél, Mono, snr. 22839. Tvíbökunarskurðarvél, snr. 870914. Bökunarofn, Revent, snr. 8621046. Peningakassi, Omron. Kleinuhringjavél með steikingarpotti. Bök- unarofn, Dahlen, snr. D-32E. Frystiklefi, Isobar. Hrærivél, Haas, snr. 5821. Hrærivél, Björn, snr. 7084. Hrærivél, snr. 862587. Vog, Ishida. Taldir eign íslandsbrauðs hf. SÝSLUMADURINN i REYKJAVÍK Vidskipfalífið í hnotskurn Tekjur poppara - niánaóaxtekjur í þúsundum króna á árinu 1993 179 Vilhjálmur Guðjónsson 86 Páll Óskar Hjálmtýsson 1S8 Grétar Örvarsson 401 Björgvin Halldórsson 76 Sigtryggur Baldursson 87 Einar Örn Benediktsson 958 Björk Guðmundsdóttir H5 Gunnlaugur Briem l, U4 Ásbjörn Morthens (Bubbi) 110 Þorvaldur B. Þor valdsson 155 Helgi Björnsson l. 132 Stefán Hilmarsson t 48 Eyþór Ar nalds i'iSaist. 219 Magnús Þór Jónsson (Megas) l 166 Sigríöur Beinteinsdöttir 263 Geirmundur Valtýsson 231 Friðrik Karlsson I 374 Andrea Gylfadóttir 335 Gunnar Þóröarson 0 500 1000 QXS mánuði samkvæmt útsvari. Einar Örn Benediktsson, Sigtryggur Bald- ursson og Páll Óskar Hjálmtýsson eru með htlu hærri tekjur eða á bil- inu 76 til 87 þúsund krónur á mánuði. Úttekt þessi nær einungis til tekna en ekki launa. Um er að ræða skatt- skyldar tekjur í fyrra eins og þær voru gefnar upp til skatts eða áætlað- ar og útsvar reiknast af.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.