Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1994, Síða 10
12
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1994
Spumingiii
Hvaða fisk finnst þér
best að borða?
Arnar Geirdal: Djúpsteiktan skötu-
sel.
Guðrún Magnúsdóttir: Soðinn lax.
Ágúst Gunnarsson: Soðna ýsu.
Halla Óskarsdóttir: Ýsu.
Freyja Björk Kristinsdóttir: Soðna
ýsu með kartöflum.
Kristinn Ragnarsson: Ýsan er ágæt
en ekki ný.
Lesendur
Misdýrar utan
landsferðir
Sigurður Gunnarsson skrifar:
Enn er alltof dýrt fyrir okkur ís-
lendinga að komast til og frá land-
inu. Þaö er í raun algjörlega ofviða
almennu launafólk að ferðast flug-
leiðis til útlanda, verði maður að
sæta því að kaupa flugfar á því sem
kallast almennt verð. Ef menn vilja
notfæra sér afsláttarkjör sem nefnd
eru „pex“, „apex“, eða hvaö annað
sem veitir afslátt frá venjulegu verði,
eru uppi alvarlegar takmarkanir á
ferðatíðni, dvalartíma eða þá að það
er hreinlega ekki í boði vegna sæta-
takmarkana. Hefur enda sætarými
stórminnkað með tilkomu nýrra ís-
lenskra farþegaflugvéla.
Ekki batnar ástandið þegar farið
er að rýna í utanlandsferöir til sólar-
landa. Þar eru hin auglýstu afsláttar-
kjör yfirleitt miðuð við að hjón með
tvö börn ferðist saman en ef um er
að ræða hjón hækkar verðið ískyggi-
lega. Hér er auðvitað um stórkostlega
mismunun að ræða, þar sem ekki
geta allir útvegað sér börn til að not-
færa sér sparnaðarform Flugleiða í
sólarlandaferðum.
Og enn versnar dæmið. Sé t.d.
fylgst grannt með Flórídaferðum,
sem nú fylla auglýsingadálkana, má
gjarnan sjá auglýstar ferðir um
Karíbahafið með t.d. vikusiglingu
með farþegaskipi og síðan dvöl ein-
hvers staðar á Flórída. Oftast eru
þetta svo sem hálfsmánaðar ferðir
og svipaö í boði þótt einhverjum dög-
um muni milli ferðaskrifstofanna.
Nýlega rakst ég á auglýsingar frá
tveimur ferðaskrifstofum. Annars
vegar var auglýst 14 daga ferð (sigl-
ing og Flórídadvöl) á kr. 153.765 á
mann í tvibýli miðað við stað-
greiðslu. - Hins vegar bauðst 16 daga
ferð (sigling og Flórídadvöl) á kr.
Það er eins gott að fylgjast með auglýsingunum - samanburðurinn er að
sönnu bestur hér sem annars staðar.
129.400 á mann í tvíbýli og þar boðn-
ar Visa-raðgreiðslur. Þarna munar
hvorki meira né minna en rúmum
24.000 kr. á mann og tveggja daga
lengri ferð!
Veröið í báðum tilvikum er náttúr-
lega alltof hátt fyrir venjulegt launa-
fólk hér á landi. í síðara tilvikinu eru
þó boðnar raðgreiðslur. Það getur
hjálpað einhverjum sem eru ekki
búnir að fylla kvótann á korti sínu.
- Að greiða annars vegar rúmlega
274 þúsund krónur fyrir hálfsmánað-
ar ferð og hins vegar tæp 259 þúsund
krónur fyrir ein hjón (liklega hátt á
400 þúsund þegar upp er staðið) er
auðvitaðekki á færi annarra en
þeirra sem nálgast milljón króna
markið í mánaðarlaunum, eða þá
hinna sem lifa fyrir daginn í dag og
er skítsama um morgundaginn.
Hundleiðinlegt íslandsmót
B.P. skrifar:
Mig langar til að beina þeim til-
mælum til stjómar KSÍ, og annarra
sem vilja knattspyrnunni vel, að þeir
taki sig verulega á og reyni aö lyfta
1. deildar keppninni á lítið eitt hærra
plan.
Mótið er sundurslitiö og hundleið-
inlegt. Það em alltof fáir leikir, mið-
að við að liðin em farin að æfa í 10-12
mánuði á ári, en keppa aðeins 18 leiki
á íslandsmóti á fjórum mánuðum.
Sárafá lið eru í bikarkeppni og ekki
hafa landsleikirnir skemmt skipu-
lagið þetta sumariö.
Heimsmeistarakeppnin kom vissu-
lega inn í sumar en hún er nú bara á
4 ára fresti og á ekki að þurfa að riðla
mótinu til muna. Síðan koma Evr-
ópumeistaramótsleikir 3 riðla eftir
að tímabili lýkur hér. KSÍ-menn
gætu vel litið til þess sem gert hefur
veriö í körfubolta og handbolta. Þar
hafa orðið algjör stakkaskipti.
Hvað er til ráða? - Jú, hægt er að
fjölga liðum upp í 14 og áfram tvö-
fóld umferð - hægt er að fækka þeim
í 6-8 liða deild meö jjórfaldri umferö
eða fyrirkomulagi með einhvers kon-
ar úrslitakeppni.
Til að ná betri árangri á alþjóða-
sviði og gera knattspyrnuna betri og
skemmtilegri og til að fá fleiri áhorf-
endur þarf vissulega breytingar.
Er EES-samningurinn meingalladur?
Jafnaðarmaður skrifar:
Furðulegt að verkalýðsfélögin skuli ekki hafa verið vakandi gagnvart rýmk-
uðum rétti lífeyrisþega, segir bréfritari.
Nú hefur komið í ljós að EES-við-
skiptasamningurinn sem ísland er
aðili aö er meingallaður á ýmsan
hátt.
Það hefur til dæmis verið bent á
að fólk sem sækir vinnu á Norður-
löndunum missir sjálfsögð umsamin
réttindi. Athygli vekur aö hvorki
Alþýðusamband íslands né Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja sáu þessa
vankanta og hlýtur það að teljast
furðulegt.
Annað í EES-samningnum mælir á
móti því að unglingar vinni á sumrin
en það hefur þótt sjálfsagt mál hér á
landi. Ekki gerðu ASÍ eða BSRB
neina athugasemd við þetta atriði.
Þá kem ég enn að einu mikilvægu
atriði. - Hér á landi geta menn hætt
störfum við 67 ára aldursmarkið og
fá þá ellilífeyri. í flestum öðrum lönd-
um mega menn hætta störfum 60 ára
eða 65 ára og fá þá tilskilin ellilauna-
og lífeyrisréttindi. Það væri fróðlegt
að heyra hvað ASÍ og BSRB hafa um
það mál að segja því á það má líta
sem mikilvægt kjaramál að sem
flestir fái að njóta lífeyris síns!!
Færri eiga kost á því að njóta lífeyr-
is 67 ára og er furðulegt að ASÍ og
BSRB skuli ekki hafa sett þetta mál
á oddinn í kjarasamningum - að
miða starfslokaaldur t.d. við 65 ár og
menn geti þá hætt störfum kjósi þeir
það. Einnig ef lífeyrisþegi, sem hefur
borgað lífeyri í segjum 30 ár og feflur
þá frá, geti ávísað á ættingja ef ein-
hveijir eru.
Það er og furðulegt að öll verka-
lýðsfélög skufl vera sofandi gagnvart
þessum málum. Vonandi sjá verka-
lýðsleiðtogamir að sér og kreíjast
leiöréttingar á þessu. Eða eins og
vitur maöur sagði: Betra er seint en
aldrei.
DV
Húsgögninekki
heimfrítt!
Sigfús skrifar:
Eg þurfti nýlega að kaupa mér
skrifborð og stól af betra taginu
og eins manns rúm með gafli. Ég
leitaöi fyrir mér með verð, gæði
og aðra þjónustu, svo sem um það
hvort ég þyrfti nú að flytja þetta
sjálfúr. í ijórum húsgagnaversl-
unum af fimm, sem ég kom í,
varð ég að greiða sjálfur fyrir. f
þeirri fimmtu var heimkeyrsla
ókeypis og þar keypti ég líka mitt
góss. - Það er reyndar furðulegt
að heimsendingarþjónusta á hús-
gögnum skuli ekki vera innifalin
i verði. Stór heimilistæki er þó
farið að senda heim ókeypis en
svo hefur ekki alltaf veriö. Það
er því kominn timi á húsgögnin
aö þessu leyti.
Fáirstyðja Hágangs-
menn
Björgvin hringdi:
Það er nú varla hægt að segja
að íslenskir sjómenn hafi erindi
sem erfiði þarna norður í Smug-
unni. Við töku Hágangs II. kemur
svo enn tíl atriði sem ekki ein-
faldar máliö, þ.e. aö skipið er ekki
einu sínni skráö hér á landi. Það
atriði veldur þvi svo að mun færri
styðja þá Hágangsmenn heldur
en vera myndi ef skipið væri
skráð hér. - Allt er þetta Há-
gangsmál því úr böndunum hvað
íslenska lögsögu snertir og ætt-
um við nú að vera búnh að læra
okkar lexiu af öllum lögsögudeil-
unum sem viö höfum staðið i
gegnum tíöina.
Lausa hundaáað
skjóta
Sigurbjörg hringdi:
I frétt um lausa hunda á Álfta-
nesi segh að þarna hafi m.a. ver-
ið um að ræða scháferhund sem
stökk með opið ginið að dreng og
réðst að honum. Lítið annað er
hægt að.gera en að kæra atvikiö.
Þarna hefúr þó veriö um einhvers
konar óhapp að ræða er hundarn-
h sluppu óséðh frá hundahótel-
inu. En hundar eru ávallt hættu-
legir ókunnum. Það þýöir ekkert
að sýna sjónvarpsmyndh frá þvi
er hundar flaðra upp um böm
sem hafa umgengist þá meira eöa
minna. - Lausaganga hunda er
bönnuð hér á höfuöborgarsvæé-
inu og gangi hundar þar um laus-
h á umsvifalaust að fara fram á
að þeh veröi skotnir.
Þarfeinhverþjón-
ustuVeðurstofu?
Óskar Guðmundsson hringdi:
í framhaldi af skrifúm um slæ-
lega frammistöðu Veðurstofunn-
ar í spám sínum má einfaldlega
spyrja sem svo: Þarf einhver
þjónustu Veðurstofunnar? Mér
skilst að spár, t.d. fyrir flug, komi
á gegnum gervihnött til flug-
tumsins hér, veðurkort fyrh skip
á fjarlægari miðunum og fragt-
skipin komi sömuleiðis frá gervi-
hnetti eða faxi. Ég get ekki skilið
að nokkur reiði sig i raun á spá
Veöurstofunnar hér. Hvað er.þá
eftir annað en að leggja hana niö-
ur - og spara verulegar fjárhæð-
ir?
Hræddur um Jóhönnu
Hihnar skrifar:
í hugsanlegu sérframboði Jó-
hönnu Sigurðardóttur er mönn-
um tíðrætt um að fylgi hennar
mælist railli 5 og 7% í nýlegmn
skoðanakönnunum. En það er
ekki allt sem sýnist. Ég treysti
ekki á þetta fylgi þegar á hólminn
er komiö. Menn hafa tilhneigingu
til að veðja á þann sterka og Jó-
hanna er alein i framboði enn
sem komið er. Ég er því vemlega
hræddur um Jóhönnu og framtíð
hennar i stjórnmálum. - Eins og
hún er þó skellegg og hefði getað
þraukað enn um stund.