Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1994, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1994, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1994 33 Hér má sjá áhugasama Austramenn sem eru í sjálfboöavinnu við að þökuleggja áhorfendasvæði, sem tekur um 800 manns í sæti, við nýja grasvöllinn á Eskifirði. DV-mynd Emil Thorarensen, DV, Eskifirði. Kristbjörn Albertsson, kennari og fyrrverandi bæjarfulltrúi í Njarðvík og varafulltrúi i hinu nýja sameinaða sveitarfélagi Keflavíkur, Njarðvikur og Hafna, hélt nýlega upp á 50 ára afmæli sitt með glæsibrag í safnaðar- heímili Njarðvíkur. Fjölmargir gestir samfögnuðu afmælisbarninu á þess- um merku tímamótum í lifi hans. Á myndinni má sjá Kristbjörn (t.v.) ásamt Ragnari Erni Péturssyni, veitingamanni í Keflavik og formanni íþróttaráðs Keflavíkur. DV-mynd Ægir Már Sviðsljós Tombóla Helga Irma og Llnda Björk héldu tom- bólu til styrktar Rauða krossi íslands og söfnuðu alls 2600 kr. Kjalarnesprófastsdæmi Ársfundur Kjalamesprófastsdæmis verður haldinn 1. október n.k. í Hafnar- borg í Hafnarfirði. í tengslum við fundinn veröur efnt til listastefnu allra listgreina undir yfirskriftinni „Stefnurmót listar og trúar." Undirbúningshópur býður alla áhugasama myndlistarmenn til samfé- lagsborðs þar sem við munum sameigin- lega brjóta brauö, neyta vínsog hugleiöa viðfangsefnið Altarið. Áhugasamir myndlistarmenn eru vinsamlega beðnir um að tilkynna þátttöku sína á símsvara: 91-650128 eigi síðar en 16. ágúst nk. Tapað fundið Týndurköttur Svartur köttur, með hvlta bletti á hálsi og kviði, týndist frá Njörvasundi 17 sl. sunnudagsmorgun. Kötturinn var með gráa og rauða hálshól. Finnandi er vin- samlega beðinn að hringja í s. 889124. Tilkynningar Útiskákmót Útiskákmót Skákfélags Hafnarfjarðar verður haldiö fóstudaginn 12. ágúst 1994, kl. 15. Mótið mun fara fram á Thorsplani við Strandgötu. Verði ekki hægt aö tefla úti verður mótið flutt í húsnæði Skákfé- lags Hafnarfjarðar að Brekkugötu 2, Hafnarfirði. Tombóla Egill, Gunnar, Ásdís og Ámi héldu tom- bólu og söfnuöu 3572 kr. til styrktar Rauða krossinum. Gengiðámillifjarða í miðvikudagskvöldferð sinni stendur Hafnargönguhópurinn fyrir gönguferð úr Grófinni suður í Skerjafórð og til baka. Farið verður frá Hafnarhúsinu kl. 20. Gangan tekur um þijár klst. og allir eru velkomnir. Silfurlínan Sími 616262. Síma- og viðvikaþjónusta fyrir eldri borgara alla virka daga kl. 16-18. Þakkir: Öllum þeim, sem heiðruðumigá sjötugs- afmæli mínu hinn 29.júlí 1994 með heimsókn- um, gjöfum, blómum og árnaðaróskum, eða sýndu mér sóma á annan hátt, flyt ég minar hjartanlegustu þakkir. Vinátta ykkar og vel- vild snart hjarta mitt, gerðu mér afmælisdag- inn ógleymanlegan ogfærðu mérmikla gleði. Ingi R. Helgason Fréttir Piero Strozzi með Orra Vigfússyni og ítölskum félaga sínum á Nessvæðinu í Laxá í Aðaldal en í þessu holli veiddist 26 punda laxinn. Piero er mikill íslandsvinur og hefur komið til veiða á íslandi í fjöldamörg ár. DV-myndir VOO „Þad vilja allir hjálpa" - segir Orri Vigfússon Þeir voru á bökkum Laxár i Kjós fyrr í sumar, saman á stöng, þeir Ágúst Einarsson og Einar Oddur Kristjánsson og veiddu ágætlega. Páll Jónsson leigir Laxá í Kjós næsta sumar. DV-mynd G. Bender LaxáíKjós: Páll Jónsson leigir ána næsta sumar Töluverðar breytingar virðast vera að verða á veiðimarkaðnum þessa dagana og fleiri og fleiri veið- iár settar í útboð. Fyrir skömmu var Langá á Mýrum boöin til leigu í heilu lagi en henni hefur verið hingað til skipt í fjögur svæði og hún leigð þannig fjórum aðilum. En núna verður breyting bjóöi ein- hver í ána. „Það hafa þrír spurst fyrir en ekkert tilboð er ennþá komið,“ sagði Jóhannes Guðmundsson á Ánabrekku í gærkvöldi er við spurðum frétta af leigumálum Langár á Mýrum. Heimildir okkar segja að Páli Jónssyni, kenndum viö Pólaris, veröi leigð Laxá í Kjós næsta sum- ar. Páll leigöi ána í næstum 20 ár og þekkir hana vel. „Við ætlum að leigja Páli ána næsta sumar, það er rétt, það hefur verið gengið frá þeim málum,“ sagði Jón Gíslason á Hálsi í Kjós, formaður veiðifélags Laxár í Kjós, í gærkvöldi. „Það eru að koma þakkarbréf í hverri viku eða greinar í erlendum blöðum, ekki bara veiðitímaritum heldur allflestum blöðum heims- ins,“ sagði Orri Vigfússon í gær- kvöldi en laxakvótakaup hans vekja meiri og meiri hrifningu um allan heim. „Ég var að fá ristjómargreinina í Trout and Salmon og þeir þakka mér fyrir góða veiðiferð sem þeir fóru til Skotlands fyrir skömmu. Þetta voru laxar frá 18,5 til 28,5 pund sem þeir veiddu og meðal- þyngdin var frábær, 22 pund. Jack Charlton, fyrrverandi þjálfari írska landliðsins í heimsmeistarakeppn- inni í knattspyrnu, ætlar að hjálpa mér með kaup á reknetunum fyrir ströndum Bretlands. Það eru allir boðnir og búnir að hjálpa manni í þessu máli. Það er hægt aö nefna mörg nöfn eins og Karl Bretaprins. Viö fórum í skemmtilegan veiðitúr í Selá og veiddum 32 laxa, flestum var löxunum sleppt aftur í ána. Á þessari stundu hefur Laxá í Aðal- dal gefið 875 laxa og hann er 26 pund sá stærsti," sagði Orri enn- fremur. Rupert Lea, fjármálasérfræðingur Barings, með 18 punda fisk ur Bjarnar- hyl í Selá i Vopnafirði sem hann veiddi á flugu númer 14. Rupert er einn af fyrstu stuðningsmönnum kvótanefndarinnar í Bretlandi. Veiðiholl hans veiddi 32 laxa sem flestum var sleppt aftur í Selá. DV-mynd Orri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.