Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1994, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1994, Page 26
34 MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1994 Afmæli Sæmundur Óskarsson Sæmundur Óskarsson fram- kvæmdastjóri, Ofanleiti3, Reykja- vík, er sjötugur í dag. Starfsferill Sæmundur er fæddur á Akureyri og ólst þar upp. Hann lauk prófi frá Verslunarskóla íslands 1942 og frá verslunarskólanum Bar-Lock In- stituded í Stokkhólmi 1947. Sæ- mundur lauk prófi frá stýrimanna- skólanum í Hámösand 1957 ogfrá stýrimannaskólanum í Kalmar ári síðar en báðir skólamir em í Sví- þjóð. Sæmundur vann við sölu- mennsku hjá heildverslunum en einnig við sjómennsku á sfidarskip- um ogtogurum. í ársbyrjun 1953 fór hann til Svíþjóðar og þaðan í lang- sighngar um heimshöfin á skipum frá Svíþjóð, Noregi og Panama. Sæ- mundur var stýrimaður hjá Broström-samsteypunni og síðar hjá útgerðarfélaginu sænska, Lloyd. Hann kom heim til íslands 1961 og ári síðar stofnaði Sæmundur heild- verslunina S. Óskarsson & Co. Hann rak fyrirtækið til 1981 en þá seldi Sæmundur heildverslunina. Hann stofnaði síðan heildverslunina Esju sf. sem fjölskylda hans rekur nú. Sæmundur hefur starfað mikið fyrir KA, Knattspymufélag Akur- eyrar. Hann er einn stofnenda KA- klúbbsins í Reykjavík, 1978, og hefur verið formaður hans frá upphafi. Fjölskylda Sæmundur kvæntist 11.9.1957 Ingu Óskarsdóttur (f. Sommer), f. 10.6.1937 í Þýskalandi, skrifstofu- stjóra. Foreldrar hennar: Rudolf og Herta Sommer, þau em bæði látin. Fyrri kona Sæmundar var Eivor (f. Holm) frá Falun í Svíþjóð, þau skildu 1951. Böm Sæmundar og Ingu: Helga, f. 26.3.1965, starfsmaður Esju sf., maki Guðni Ingi Johnsen, tækni- stjóri á Stöð 2, þau eiga tvo syni, Sæmund Inga og Þórð Inga; Óskar, f. 4.2.1970, starfsmaður Esju sf., maki Torfhildur Sigurðardóttir. Dóttir Sæmundar og Eivor: Guðrún Kristína, f. 9.9.1950, maki Martin Planefiord, sem á og rekur hrein- gemingarfyrirtæki í Ákesberga í Svíþjóð, dætur þeirra em Marie Helene og Irene Helene. Systkini Sæmundar: Magnús, f. 10.6.1930, fyrrv. borgarlögmaður, maki Ólína Ragnheiður Jónsdóttir, þau eiga fiögur böm; Guðfinna, f. 15.6.1928, húsmóðir í Reykjavík, maki Þorsteinn Pálmason, látinn, jámsmíðameistari, þau eignuðust fimmböm. Foreldrar Sæmundar: Óskar Sæ- mundsson, f. 29.12.1887 í Bolungar- vík, d. 26.8.1970, kaupmaður og Guðrún Magnúsdóttir, f. 13.4.1900 á Kjörvogi í Ámeshreppi í Stranda- sýslu, d. 2.1.1947. Ætt Óskar var sonur Sæmundar, sjó- manns í Bolungarvík, Benedikts- sonar, b. á Finnbogastöðum í Ámes- hreppi, bróður Guðmundar, langafa Huldu Jensdóttiu-, forstöðukonu Fæðingarheimfiis Reykjavíkur- borgar. Benedikt var sonur Sæ- mundar, b. á Gautshamri á Sel- strönd, Bjömssonar, prests í Trölla- tungu, Hjálmarssonar, langafa Margrétar, langömmu Sighvats Björgvinssonar ráðherra. Móðir Óskars var Sigríður Ólafsdóttir, b. á Minnahrauni í Bolungarvík, Guð- mundssonar, b. á Minnibakka, Helgasonar. Móðir Sigríðar var Sæ- unn Sigurðardóttir, b. í Hagakoti, bróður Hafliða, langafa Þorsteins, afa Þorsteins Pálssonar ráðherra. Guðrún var dóttir Magnúsar, b. á Kjörvogi, Guðmimdssonar, b. á Finnbogastöðum, Magnússonar, b. á Finnbogastöðum, Guðmundsson- ar, b. á Finnbogastöðum, Bjama- sonar, forfoður Finnbogastaðaætt- arinnar. Móðir Guðmundar Magn- ússonar var Guðrún Jónsdóttir, b. á Látmm á Látraströnd, Ketilssonar og konu hans, Karítasar Pétursdótt- ur, systur Jóns, prófasts á Stein- nesi, langafa Sveins Bjömssonar forseta. Jón á Steinnesi var langafi Jóns Þorlákssonar forsætisráð- herra og Þómnnar, móður Jóhanns Hafsteins forsætisráðherra. Móðir Guðrúnar var Guðrún, systir Jóns, Sæmundur Óskarsson. afa Hannibals Valdimarssonar, foð- ur Jóns Baldvins ráðherra. Guðrún var dóttir Jóns, b. í Stóru-Ávík í Víkursveit, Péturssonar, b. á Dröng- um, Magnússonar. Móðir Jóns var HaÚfríður Jónsdóttir, b. á Melum, Guðmundssonar. Sæmundur og Inga taka á móti gestum á afmælisdaginn í Víkinga- sal Hótel Loftleiða frá kl. 17-19. Svanhvít Egilsdóttir Svanhvít Egilsdóttir, fyrrv. pró- fessor við tónlistarháskólaim í Vín, Hrauntungu 10, Hafnarfirði, er átt- ræðídag. Starfsferill Svanhvít er fædd í Hafnarfirði og ólst þar upp. Hún er gagnfræðingur frá Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Svanhvít innritaöist í Tónlistar- skóla Reykjavíkur 1930 og útskrif- aðist þaðan 1934 en hún stundaði þar nám í píanóleik hjá dr. Franz Mixa og dr. Páh ísólfssyni. Svan- hvít, sem stundaði söngnám í Leipzig 1935 og í Hamborg 1938, er með diplom frá tónlistarháskólan- um í Graz í Austurríki 1945. Hún var í söngnámi hjá Sigurði Demetz Franzsyni á Ítalíu 1954 og síðar hjá dr. Reichert í Salzburg og útskrif- aðist frá Mozart-skólanum þar. Svanhvít var prófessor við tón- listarháskólann í Vín 1961-84 og hefur síðan haldið námskeið í Finnlandi, Japan og á íslandi og kennt í einkatímum. Svanhvít, sem var búsett erlendis í 40 ár meira og minna og þá aðallega í Austur- ríki, er einn af stofnendum Ein- Páll Þórðarson Páll Þórðarson, framkvæmdastjóri Læknafélags íslands, Strýtuseli20, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Starfsferill Páll er fæddur á Borgarfirði eystra og ólst þar upp. Hann er stúdent frá MA1964, stundaði nám í viðskipta- fræði við HÍ1964-65 og lauk kandi- datsprófi í lögfræði 1971. Páll var við nám við norræna hetisuvemd- arháskólann í Gautaborg nóvemb- er-desemberl980. Páll hóf störf þjá Reykjavíkurborg 1971 og var skrifstofustjóri Félags- málastofnunar borgarinnar frá 1. september til 1. mars 1972 er hann var ráðinn framkvæmdastjóri læknasamtakanna. Páll hefur jafn- framt rekið eigin bókhalds- og fram- talsþjónustu frá 1974. PáÚ var varaformaður Orators og ritstjóri Úlfljóts 1968-69, í stjóm stúdentafélags HÍ1969-70 og hefur setið í sfióm Félags um hetibrigðis- löggjöffrá stofnunþess 1991. Fjölskylda Páll kvæntist 11.2.1967 Þorbjörgu Einarsdóttur, f. 17.11945, húsmóður. Foreldrar hennar: Einar Sigfússon, fyrrv. bóndi í Miðgarði í Stafholts- tungum, og Kristín Þ. Ottesen, for- stöðukona Mæðraheimfiis Reykja- víkurborgar. Dætur Páls og Þorbjargar: Sigrún, f. 25.8.1967, rekstrarfræðingur, hún á einn son, Skúla Halldórsson; Kristín, f. 9.7.1971, háskólanemi; Ama, f. 20.2.1975, nemi. Systkini Páls: Sigurlaug, f. 28.10. 1945, gjaldkeri hjá DV; Bima, f. 26.2. 1949, stjómmálafræðingur og blaða- maður; Jón, f. 21.4.1954, sjávarút- vegsfræðingur og forstöðumaður sjávarútvegsdeildar Háskólans á söngvarafélagsins á íslandi 1954. Fjölskylda Svanhvít giftist 20.12.1934 fyrri manni sínum, Óskari Guðnasyni prentara, þau skildu. Svanhvít gift- ist 28.7.1945 seinni manni sínum, Jan Moravek tónlistarmanni, þau skildu. Systkini Svanhvítar: Jensína, f. 21.9.1905, látin; Sigríður, f. 2.11. 1906, látin; Guðmundur, f. 25.10. 1908, látinn; Einar, f. 18.3.1910; Gunnþórunn, f. 10.6.1911; Nanna, f. 10.8.1914, látin; Gísh Jón, f. 31.3. 1921, látinn; Ingólfur, f. 4.12.1923, látinn. Fóstursystkini Svanhvítar: Gísh Sigurgeirsson, látinn; Margr- ét Sigurgeirsdóttir, látin; Hahdór Sigurgeirsson. Foreldrar Svanhvítar: Egill Guð- mundsson frá Hehu, f. 2.11.1881, Svanhvit Egilsdóttir. d. 29.9.1963, sjómaður og Þórunn Einarsdóttir, f. 16.12.1883, d. 28.5. 1947, húsmóðir, þau bjuggu í Hafn- arfirði. Fósturforeldrar Svanhvít- ar: Sigurgeir Gíslason, f. 9.11.1869, d. 1952, verkstjóri í Hafnarfirði, og Marín Jónsdóttir, f. 2.5.1865, d. 1953. Svanhvít tekur á móti gestum á heimili sínu fimmtudaginn 11. ág- ústeftirkl. 19,30. Páll Þórðarson. Akureyri. Foreldrar Páls: Þórður Jónsson, f. 23.1.1918, skrifstofumaður og verkstjóri á Borgarfirði eystra en nú staifsmaður Ögurvíkur hf„ og Sigrún Pálsdóttir, f. 15.41917, fýrrv. skólastjóri Bamaskólans á Borgar- firðieystra. Páh og Þorbjörg taka á móti gest- um á afmæhsdaginn í Gömlu rúg- brauðsgerðinni, Borgartúni 6, frá kl. 17-19. Brynjar Þormóðsson Amþór Brynjar Þormóðsson, verkamaður og sjómaöur, Sólvaha- götu 64, Reykjavík, er.fimmtugur í dag. Fjölskylda Bryifi ar er fæddur í Reykjavík og ólst þar upp. Hann var til sjós 1962-84 og leysti af á togurum frá Reykjavík og var auk þess á milli- landaskipum og fiskibátmn. Hann var vaktmaður hjá Sjálfsbjörg en hefur haft umsjón með vélum á Landspítalanum frá 1990. Bryiy ar kvæntist 1966 fyrri konu sinni, Jónu Ingibjörgu Benedikts- dóttur, f. 29.12.1943. Þau skildu 1972, Jóna Ingibjörg, sem er frá Minni- Brekku í Fljótum er nú búsett í Vest- mannaeyjum og gift Braga Svan- bergssyni sjómanni. Þau eiga tvö böm. Foreldrar hennar: Benedikt Ingvar Stefánsson, b. í Minni- Brekku, og Kristín Pálsdóttir, látin. Brynjar kvæntist 1978 seinni konu sinni, Huldu Markúsdóttur, f. 24.2. 1930, d. 1987, frá Borgareyrum í V- Eyjafiahahreppi. Fyrri maður hennar var Ami Pétursson. Þau eignuðust þijá drengi. Foreldrar hennar: Markús Jónsson söðla- smiður og Sigríður Magnúsdóttir. Dóttir Brynjars og Jónu Ingibjarg- ar: Kristín Inga, f. 16.4.1968, hús- móðir í Hafnarfirði, maki Guð- mundur Rúnar Sveinsson rafvirki. Þau eiga þrjú böm, Brynju Björgu, Kristínu Unni og Svein Braga. Brynjar átti sex systkini en tvö em látin. Arnþór Brynjar Þormóðsson. Foreldrar Brynjars: Þormóður Ottó Jónsson, f. 1.10.1917, d. 1965, frá Skuld á Blönduósi, og Emiha Benediktsdóttir, f. 19.7.1908, d. 5.7. 1993, frá Bervík á Snæfellsnesi. Brynjar er að heiman. Til hamingju með afmælið 10. ágúst 85 ára 50 ára SteinunnHall, Vesturgötu 52, Reykjavík. Sjöfn Sigurðardóttir, Hagamel 30, Reykjavík. 80 ára Ólöf Gunnsteinsdóttir, Nesi, Selfiamamesi. 75 ára Halldór Jónsson, Mannskaðahóh, Hofsósi. Arngrímur Gíslason, Bogaslóð 6, Höfn í Hornafiröi. 70ára Aðalsteiun Sigurs teinsson, Sólhaga, Vatnsleysustrandarhr. Hanna Sigurrós Hansdóttir, Háengi4,SeIfossi. Ágúst Bjarnason, Vogatungu 61, Kópavogi. Sigríður Matthiasdóttir, Hlíðarlundi 2, Akureyri. Rut Margrét Friðriksdóttir, Réttarholti 3, Selfossi. Jón Ragnar Björgvinsson, Hrauntungu 101,Kópavogi. Unnur G ísladó ttir, Huldubraut 27, Kópavogi. Margrét Kaldalóns verslunar- stjóri, Bauganesi 29, Reykjavík. Eiginmaður hennar er Sigvaldi Snær Kaldalóns kennari. Nanna Jónsdóttir, Hlégerði 29, KópavogL Júlíus Þorbergsson, Heiöarási3, Reykjavik. Elsa Ingvarsdóttir, Hjarðarholti 3, Akranesi. HaukurHallsson, Æsufehi4, Reykjavík. 40ára_______________________ Susanne Marie Ólafsson, Markholti 6, Mosfehsbæ. Maria Jónsdóttir, Löngumýri 26, Garðabæ. Karl Antonsson, Smáratúni35, Keflavik. Rannveig Haraldsdóttir, Aðalstræti 39, Patreksfirði. Baldvina G. Valdimarsdóttir, Stórholti 6, Akureyri. Hafliði Eliasson, Holtastig 15, Bolungarvík. Herdís Snorradóttir, Miðvangi 10, Hafnarfiröi. Ragna Finnsdóttir, Norðurgötu 50, Akureyri. Helga G. Hjörleifsdóttir, Öldugranda 1, Reykjavík. Ingigerður S. Höskuldsdóttir, Furugrund 1, Akranesi. Sævar Pálsson, Svarthömrum 48, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.