Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1994, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1994
Fréttir
Strætisvagnar Reykjavíkur:
Tíu yf irmönnum
sagt upp störf um
- en boðin endurráðning á lakari kjörum
Tíu yfirmenn Strætisvagna
Reykjavíkur, svokallaöir varðstjór-
ar, fengu uppsagnarbréf frá forstjóra
fyrirtækisins um mánaðamótin. í
bréfinu er varðstjórunum jafnframt
boðin endurráðning á öðrum kjörum
sem þeir telja verulega lakari. Sveinn
Bjömsson, forstjóri SVR, staðfesti í
samtali við DV að þessar uppságnir
hefðu átt sér stað en vonaðist jafn-
framt til þess að varðstjóramir tækju
boði um endurráöningu. Forstjóri
SVR átti hins vegar von á að launin
myndu „lækka eitthvað" hjá viö-
komandi starfsmönnum.
Sveinn sagði að hiutafélagið um
rekstur SVR hefði í vor gert fast-
launasamning við varðstjórana en
eftir að félagið var lagt niður og SVR
aftur gert að borgarfyrirtæki fyrr í
sumar hefðu lögfræðingar borgar-
innar komist að þeirri niðurstöðu að
fastlaunasamningunum yrði að segja
upp formsins vegna.
Varðstjómnum er boöið að gerast
starfsmenn Reykjavíkurborgar á ný
og þiggja laun samkvæmt þeim töxt-
um sem þar ríkja. Jafnframt verði
þeir aftur meðhmir í Starfsmannafé-
lagi Reykjavíkurborgar en ekki í öðr-
um félögum eins og t.d. Verkstjórafé-
lagi Reykjavíkur.
Einn varðstjóranna sagði við DV
að óánægja væri ríkjandi á meðal
þeirra. Oánægjan snerist fyrst og
fremst um kjörin og að þeim væri
gert að skipta um stéttarfélag. Þess
ber að geta að þeir varðstjórar sem
ekki gerðu fastlaunasamning við
SVR hf. en eru meðlimir í Verkstjóra-
félaginu fengu ekki uppsagnarbréf.
„Það var búið að lofa okkur
óbreyttum kjöram af nýjum herrum
í Reykjavík og að starfsfriður héld-
ist. Þarna em embættismenn borgar-
innar greiniiega aö taka fram fyrir
hendurnar á nýrri stjórn SVR sem
hefur ákveðið að láta gera úttekt á
framtíðarskipan fyrirtækisins. Þetta
kemur eins og þmma úr heiðskím
lofti. Það er ekki um neitt að velja.
Þú færð þessi laun og þú ferð í þetta
félag,“ sagði einn varðstjóranna.
Arthur Morthens, formaður stjóm-
ar SVR, sagðist í samtah við DV ekki
hafa skoðað þetta tiltekna mál sér-
staklega eða séð uppsagnarbréfin.
En forstjóra SVR hefði af stjóminni
verið fahð að endurskoða þá samn-
inga sem SVR hf. gerði við varðstjór-
ana. Arthur sagðist reikna meö að
þau launakjör sem SVR hf. heíði boð-
ið varðstjórunum væru lakari en
borgin væri að bjóða, án þess að hann
vissi nánar um málið eöa fórsendur
þess.
Samband sveitarfélaga:
Spennandi
kosningar
ídag
Nokkur spenna er á þingi Sam-
bands sveitarfélaga á Akureyri
vegna stjórnarkjörs sem fram fer í
dag.
Sjálfstæðismenn sem eiga 4 fuh-
trúa af 9 í stjórn sambandsins munu
að öhum líkindum tapa einum þeirra
til framsóknarmanna sem þá fá 3
fuhtrúa en hlutfóh þingfuhtrúa hafa
breyst eftir sveitarstjómarkosning-
amar í vor. Þá mun Alþýðuflokkur
að öllum hkindum tapa sínum full-
trúa th Kvennahsta en Alþýðu-
bandalagið halda sínum tveimur
fuhtrúum í stjóminni.
Þeir þingfuíltrúar sem DV ræddi
við í gær sögöu hins vegar flestir að
þetta gæti breyst frá þeim hugmynd-
um sem menn telja lhdegastar. Ekk-
ert er því öraggt um stjórnarkjörið
og spennandi kosning fram undan
er þinginu lýkur í dag.
Efnahagssamdráttur og óhagstæðari námslán virðast ekki fæla stúdenta frá námi og bifreiðaeign. Hækkun skóia-
gjalda virðist hins vegar hræða marga og hefur rikisstjórnin því fallið frá öllum slíkum áformum. Fyrir framan
aðalbyggingu Háskólans er nú verið að útbúa fjölda bílastæða enda von á fleiri stúdentum í nám við skólann
heldur en nokkru sinni fyrr. Alls skráðu sig 5.236 nemar i skólann í júli sem er tæplega 6 prósenta fjöigun frá þvi
í fyrra. Þverstæðurnar eru hins vegar miklar í íslensku þjóðfélagi því f fjárlagagerðinni reiknar menntamálaráð-
herra með minni ásókn í lán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. DV-mynd BG
Hljómlistamaður
Kristján
Jóhannsson
S>V1
Kristján slípar hlutverk sitt 1 Valdi örlaganna tál:
Syngur hlutverkið í
fyrsta skipti á sviði
- vanalegt aö greidd séu hófleg laun fyrir slíkar „æfingar"
Þegar Kristján Jóhannsson tenór-
söngvari stígur á svið í Þjóðleikhús-
inu 17. september og þenur röddina
í Valdi örlaganna verður það í fyrsta
skipti sem hann syngur það hlutverk
í uppfærslu. Síðar í vetur er síðan
áætlað að hann syngi hlutverkið á
sviði virts óperuhúss erlendis.
Heimildarmenn DV, sem til þekkja
í óperuheiminum, segja að þegar
þannig standi á, söngvarar séu að
prófa sig áfram í hlutverkum, veröi
minni óperuhús oftar en ekki fyrir
vahnu. Þar sé sungið á nokkmm
sýningum í því skyni að ná góðu
valdi á hlutverkinu á sviði. Síöan sé
troðið upp í virtum óperuhúsum,
enda söngvararnir þá vel smuröir í
sviðsrallunni. í þessu sambandi er
fullyrt að laun fyrir söng í slíkum
sýningum séu frekar hófleg, stund-
um táknræn frekar en meiri háttar
upphæöir, jafnvel þó vel þekktir
söngvarar eigi í hlut.
Eins og komið hefur fram í DV mun
Kristján eiga að fá um 800 þúsund
krónur fyrir kvöldið í 16 sýningum
Þjóðleikhússins.
„Það er stórkostlegt að fá Kristján
til að syngja hér heima, það eru allir
sammála um. En skoði maður máliö
í því samhengi að hann er að syngja
þetta hlutverk í fyrsta skipti á sviði
hefði maður haldið að launakröfur
yrðu frekar hógværar. En eftir-
spurnin virðist alveg ráða ferðinni í
þeim efnum og skyndilega eru til
nægir peningar," sagði einn leikhús-
maður, sem ekki vildi láta nafns síns
getið, við DV.
Til samanburðar við laun Kristjáns
má nefna að „venjulegir“ söngvarar
í minni hlutverkum fá 8-10 þúsund
krónur og hljómlistarmenn sem spila
undir 6.200 krónur fyrir kvöldið.
Miðar á Vald örlaganna kosta 4.500
krónur og gildir þá einu hvar setiö
er í húsinu.
Mývatnssveit:
Ráðuneytið
beitirsér
ekki í skóla-
deilunni
„Ég fór norður i Mývatnssveit
og ræddi þar við menn um þetta
mál og hlustaði á það sem þeir
höfðu fram að færa og var það
gert að beiðni minnihluta skóla-
nefndar og skólastjóra," segir
Stefan Baldursson, deildarstjóri í
menntamálaráðuneytinu, um
deiluna sem upp er risin að nýju
meðal íbúa í Mývatnssveit um
skólahald þar.
Stefán sagöi að ráðuneytiö hefði
samþykkt sama fyrirkomulag á
grunnskólakennslu og viðhaft
var sl, vetur, þ.e. að hluti kennsl-
unnar yrði að Skútustöðum.
„Þetta var samþykkt að þvi gefnu
að það væri ósk sveitarstjórnar
að svo yrði. Staðan er hins vegar
sú aö meirihluti skólanefndar
hefur samþykkt aö flytja alla
kennslu í Reykjahlið og ráöu-
neytið mun ekki reyna að hafa
áhrif á þá ákvörðun," segir Stef-
án. Hann sagði einnig áð vissu-
lega væri löng leið sem þau böm
þyrftu að fara sem lengst yrðu
keyrð í skóla í Reykjahlið en þar
væri ekki um einsdæmi aö ræða
og til væru dæmi um lengri skóla-
akstur.
Klassísk
útvarpsrás
rekinmeð
auglýsingum
Veriö er að undirbúa rekstur
klassískrar rásar á vegum Aðal-
stöðvarinnar að fyrirmynd
Classic FM sem rekin er í Bret-
landL Búist er við að rásin hefji
göngu sína í haust og verður hún
rekin með auglýsingum.
Baldvin Jónsson, eigandi Aðal-
stöðvarinnar, segir að í fyrstu
veröi eingöngu um tónlistarrás
að ræða en gangi reksturinn vel
verði hugsanlega farið út í meiri
dagskrárvinnu.
Baldviná og rekur Aðalstööina
á tiðninni FM 90,9 og X-iö á FM
97,7.
Stuttar fréttir
Lítillóóaeftirspum
Lóðir undir 176 íbúðir eru nú
tp úthlutunar í Reykjavík.
Óvenjulitil eftirspum hefur hins
vegar verið eftir lóöum í borginni
aö undanförnu. Tíminn greindi
frá þessu.
Ekkert iágmarksútsvar
Félagsmálaráðherra ætlar að
beita sér fyrir því að lög um lág-
marksútsvar sveitarfélaga verði
felld úr gUdi. RÚV hafði þetta eft-
ir ráðherranum.
Víkingaskip i smiðum
Gunnar Marel Eggertsson
skipasmiður vinnur nú aö smíöi
eftirlikingar á Gauksstaðaskip-
inu, 1100 ára gömlu vikingaskipi.
Reiknað er með að kostnaðurinn
verði allt aö 20 milljónir. Reykja-
víkurborg styrkir verkefnið og
fær í staðinn afnotarétt að skip-
inu nokkra mánuði á ári.
Fiugvéikyirsett
Árangurslaus leit að flkniefh-
um var gerð i einkaflugvél á flug-
vpllinum á Akureyri í gær. Vélin
var kyrrsett eftir að vísbendingar
höfðu borist frá útlöndum um að
vélin væri notuö til smygls.