Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1994, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1994, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1994 Neytendur i>v - hversu oft er hins vegar mat hvers og eins Það getur komið sér afar illa að eiga hvergi afrit af tölvugögnum eins og dæmin sanna. Að máti Friðriks tölvufræðings er regla númer eitt, tvö og þrjú að taka afrit. „Frumreglan er sú að taka afrit en það er það sem fólk klikkar almennt á. Flestir líta svo á að þeir séu ekki með neitt merkilegt í tölvunum sín- um og því þurfi þeir ekki að taka afrit,“ sagði Friðrik Skúlason tölvu- fræðingur í samtali við DV er hann var spuröur hvernig fólk ætti að bera sig að við að geyma tölvugögn. „Ég er t.d. sjáifur með tölvu heima sem í eru eingöngu tölvuspil. Ég tek aldrei afrit af henni en ef eitthvað kæmi fyrir harða diskinn tæki mig óratíma að finna allar disketturnar og setja allt inn aftur. Þaö mundi vera miklu þægilegra ef ég ætti afrit. Hversu oft afrit er tekið verður hins vegar að ráðast af því hvaða gögn menn eru með, þ.e.a.s. hversu mikils menn meta tímann sem færi í það að setja það inn aftur sem hugsan- lega gæti tapast," sagði Friðrik. Aðspurður sagði hann að það færi alveg eftir því hvernig menn taka afrit hversu tímafrekt það væri. „Sumir taka bara afrit af því sem Notaðir VOLVO bílar með sex mán. ábyrgð. Allt að 36 mán. greiðslukjör! þeir eru að vinna með þá stundina og þá kemst það fyrir á lítilli diskettu og tekur u.þ.b. eina mínútu. Ef menn eru hins vegar að taka viðameiri af- rit tekur það lengri tima og þá getur borgað sig aö taka afrit á segulband. Þetta er allt frá því að menn taki af- rit einu sinni á dag upp í það að taka afrit tvisvar til þrisvar á ári. Þeir hörðustu eru e.t.v. með sjö segulbönd merkt vikudögunum og taka svokall- að uppfærsluafrit daglega. Einu sinni í mánuði taka þeir heildarafrit af öllu saman og geyma í eitt ár,“ sagði Frið- rik. Best að eiga tvö afrit Hann sagði það vera til í dæminu að eitthvað kæmi fyrir á meðan ver- ið er að taka afrit og því væri gott að eiga alltaf eitt eldra afrit. „Það borgar sig reyndar að eiga alltaf tvö afrit, eitt sem er geymt rétt hjá tölv- unni til að bjarga sér ef á þarf að halda og annað sem er geymt í öðru húsi. Menn þurfa oftast á afriti að halda þegar þeir óvart eyöa ein- hverju sem ekki átti að eyða og þá er ómögulegt að þurfa e.t.v. að fara í hinn enda bæjarins til að ná í það. Það leiðir bara til þess að menn taka ekki afrit,“ sagði Friðrik. Hann sagði að til væri hugbúnaður til að einfalda afritun en menn gætu líka tekið afrit á diskettu af því sem mestu máli skipti. „Það er ekki nauð- synlegt að taka alltaf afrit af öllu sem er inni í tölvunni. DOS og Windows taka t.d. mikið pláss en það er engin ástæða til að taka afrit af hugbúnaði sem maður hefur keypt og á til.“ Hvemig er best ad geyma tölvugögnin? Skiptir mestu máli að taka afrit Lokaður skápur besta geymslan „Það skiptir miklu máli að afritin séu ekki geymd á sama stað og tölv- an. Ef eitthvað kemur fyrir, t.d. kviknar í, kemur afritið að litlum notum. Best er að geyma þaö í öðru húsi, í það minnsta í öðru herbergi, eða taka jafnvel bankahólf á leigu.“ Aðspurður sagði hann disklinga og segulbönd ekki þola snöggar hita- breytingar, frost, ryk, mikinn loft- raka né beina sól. „Ég mæli með því að menn geymi þetta bara í venjuleg- um, lokuðum skáp,“ sagði Friðrik. Opið laugardag. kl. 10-17 Opið sunnudag kl. 13-16 FAXAFENI 8 • SÍMI 91- 685870 Volvo 240 GL ’88 ek. 82.000 km, sjálfsk., beige met., m. útv. segulb. Verð 870.000 kr. Ný Nokia vetrardekk í kaupbæti. Volvo 240 GLI ’91 ek. 65.000 km, sjálfsk., beige met., m. útv. segulb., saml., læst drif. Verð kr. 1.250.000. Ný Nokia vetrard. fylgja. Volvo 740 GLE station ’87 ek. 97.000 km, sjálfsk., blár met., m. útv. segulb., saml. Verð kr. 1.190.000. Ný Nokia vetrardekk í kaupbæti. Volvo 740 GL ’87 ek. 100.000 km, 5 gíra, Ijósgrænn met., m. útv. segulb., saml., læst drif. Verð kr. 880.000. Ný Nokia vetrard. í kaupbæti. Volvo 240 GL ’87 ek. 64.000 km, 5 gíra, grár met., m. útv. segulb. Verð kr. 750.000. Ný Nokia vetr- ardekk í kaupbæti. Volvo 740 GL ’87 ek. 89.000 km, sjálfsk., Ijósgrænn met., m. útv. segulb., saml. Verð kr. 950.000. Ný Nokia vetrardekk í kaupbæti. ísl. tómatar 46% mismunur 198 Hæsta Næst Lægsta verð lægsta Verslanir í könnuninni: Hagkaup (259), Bónus (189), Fjaröarkaup (199), Garöakaup (229), Kjöt & fiskur (299), 10-11 (198), Nóatún (349) —...... =JaT*l= Barkifyrir snúrusúpu Hver kannast ekki við flæktar rafmagnssnúrur í hrúgu fyrir aft- an græjurnar eða sjónvarpið. Nú hefur Umboðs- og heildverslunin Esja fundið svar við þessu og hafið innflutning á sérstökum börkum sem ætlaðir eru til að hylja snyrtilega þessar garna- ílækjur á gólfinu. Eftir barkanum endilöngum er rauf svo hægt sé að stinga snúr- unum inn í hann og safna þeim þannig saman í einn barka. Þetta lítur mun betur út á eftir, auk þess sem það er öruggara þegar böm eru annars vegar. Barkarnir fást m.a. í Byko og er útsöluverð þar 950 kr. Hvemig meðhöndla á sveppi Frystir: Þeir sem tína sveppi eru oft í vandræðum með hvemig þeir eiga að meðhöndla þá til geymslu og hafa margir farið þá leiðina að steikja þá upp úr smjöri og frysta svo. Að sögn dr. Guðríð- ar Gyðu Eyjólfsdóttur sveppa- fræðings er hætt við aö smjörið þráni viö slíka geymslu og eyði- leggi hið eiginlega bragð svepp- anna. „Best er að snöggsjóða þá í ör- litlu vatni. Notið botnviðan pott og hrúgið í hann niðursneiddum sveppum þar til þeir þekja botn- inn. Hellið u.þ.b. 1 desílítra af vatni út í, saltið örhtið og sjóðið í 4-5 mínútur," sagði Guðríður Gyða. Hún sagði að í fyrstu tækju sveppirnir allt vatnið upp í sig en þegar liði á suðuna færu þeir að skila því aftur og yrðu þá mjúkir og fínir. Þeir eru síðan látnir kólna og frystir í hæfilegum skömmtum. Þurrkaðir: Ef þið viljið hins vegar þurrka sveppi er best að setja þá á grind í ofn þar sem heitt loft leikur um þá. Galhnn við blástursofn í þessu tilviki er sá að sveppirnir vilja hitna um of. Ef ofninn er notaður verður að passa það mjög vel. Sveppir geymast yfirhöfuð mjög iha og því er nauðsynlegt að meðhöndla þá sem fyrst eftir aö þeir eru tind- ir. „Ef ekkert er að gert halda maðkarnir í þeim áfram að vaxa og dafna og éta sveppinn aö inn- an. Svo labba þeir í burtu með sveppinn í maganum," sagði Guðríður Gyða. Ódýrar skólatöskur í tilefni unhjöhunar okkar um tilboð á ritfóngum fyrr í vikunni fréttum við af ódýrum skólatösk- um í Bókaversluninni Kiljunni. Þar fást t.d. Wiz skólatöskur á 1.995 kr. og bakpokaskólatöskur á 2.395 kr. en þetta verð eru tölu- vert undir venjulegu útsöluverði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.