Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1994, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994
Vidskipti
Skuldir fyrirtækja við bankakerfið:
Minnkað um
5 milUarða
Breytingar skulda í bönkum
— frá áramótum til iúníloka í milljónum króna —
Vextir mega ekki hækka
kr/k6 þri Mi Fl Fö Mó
Hlutabréf
lækka
Frekar hátt verð hefur fengist
fyrir þorsk á fiskmörkuöunum
að undanfömu. Meðalverð var
tæpar 100 krónur kílóið á mánu-
dag.
Þingvísitala hlutabréfa lækkaöi
nokkuö á mánudag, fór úr 970
stigum frá því á föstudag í 957,
eða lækkun um 1,3 prósent.
Staðgreiðsluverð áls var 1582
dollarar tonnið þegar viðskipti
hófust í London í gærmorgun.
Gengi dollars hefur aðeins
sveiflast til að undanfömu. Sölu-
gengið var 67,74 krónur á mánu-
dag.
Hlutabréfaverð í kauphöllinni í
London hefur sömuleiðis sveifl-
ast til milli daga. FT-SE 100 vísi-
talan stóð í 3058 stigum í gær-
morgun sem er það lægsta sem
sést hefúr sl. viku.
Skuldir íslenskra fyrirtækja við
bankakerfið hafa minnkað um sam-
tals 4,8 milljarða króna frá áramót-
um og um 6,7 milljarða síöustu tólf
mánuði. Hins vegar hafa skuldir
heimilanna aukist um 2 milljarða frá
áramótum og um 3,7 milljarða und-
anfarið ár. Frá þessu er greint í
Fréttabréfi um verðbréfaviðskipti
sem Samvinnubréf Landsbankans
gefa út.
Skuldir ríkissjóðs og ríkisstofnana
við bankakerfið voru 15 milljörðum
króna meiri í lok júní á þessu ári en
á sama tíma í fyrra og 1,5 milljörðum
meiri en um áramótin. Skuldir sveit-
arfélaga hafa líka aukist eða um
rúma 2 milljarða á einu ári.
Skuldálækkun fyrirtækjanna í
bönkum er í takt við þær fregnir sem
borist hafa af jákvæðum milliupp-
gjörum fyrirtækja á hlutabréfamark-
aði. Hins vegar er tcilið að batinn
hafi þegar byijað um mitt síðasta ár.
Minna fjárfest
Lækkun skulda fyrirtækja við
bankakerfið hefur verið almenn í
flestum atvinnugreinum frá áramót-
um. Mest hafa þær lækkað í verslun-
inni, eða um 2,2 milljarða. Þær hafa
lækkað um 1,4 milljarða í olíuversl-
un, um 800 milljónir í landbúnaöi og
650 milljónir í sjávarútvegi. Ef und-
anfarið ár er tekið hafa skuldir sjáv-
arútvegsins í bönkum'lækkað um 3,3
milljarða. Minnst hafa skuldirnar
Þorskur í gámasölu í Englandi
virðist aftur vera að lækka í verði.
Meðalverðið í síðustu viku fór niður
í 137 krónur kílóið eftir að hafa verið
í kringum 170 krónur vikuna áður.
Alls seldust 230 tonn í gámasölunni
fyrir um 32 milljónir króna. Þar af
seldust tæp 100 tonn af þorskinum.
Hæsta meðalverð í gámasölu fékkst
fyrir kola og grálúðu, tæpar 180
krónur.
Tveir íslenskir togarar lönduðu
afla sínum í Þýskalandi í síðustu
viku. Engey RE seldi 144 tonn fyrir
16,5 milljónir króna. Meðalverðið var
114 krónur kílóið. Á fimmtudag seldi
lækkað í byggingarstarfsemi og þjón-
ustu frá áramótum. Frá júní 1993 til
júní í ár jukust skuldir þjónustufyr-
irtækja um tæpar 700 milljónir
króna.
En öll mál hafa tvær hliðar eins
og bent er á í fréttabréfinu. Lægri
skuldir bera ekki eingöngu vitni um
góða afkomu fyrirtækja heldur einn-
ig að fjárfesting í atvinnulífi hefur
verið mjög takmörkuð undanfarin
misseri. Sökum betri hagvaxtarskil-
yrða í þjóðarbúskapnum má hins
vegar vænta aukinna fiárfestinga
fyrirtækja.
Dala Rafn VE 152 tonn fyrir 14,4
milljónir, meðalverð um 95 krónur.
Álið á uppleið
Sérfræðingar spá því að álverð
hækki frekar á erlendum mörkuð-
um. Þriggja mánaða verð fór yfir
1600 dollara tonnið í síðustu viku og
er 1650 dollara markið í seilingarfiar-
lægð. Staðgreiðsluverðið nálgast
1590 dollara. Með stóraukinni eftir-
spurn eru birgðir að minnka hjá ál-
framleiðendum. Fjörkippur í efna-
hag Þjóðveija er talinn hafa mikil
áhrif þar á.
Því er það tahð brýnasta verkefni
hagstjórnar í landinu að bæta stöðu
ríkissjóðs svo að lánsfiárþörf hans
minnki. „Þetta er öruggasta leiðin til
að koma í veg fyrir vaxtahækkun
sem annars gæti fylgt vaxandi fiár-
þörf fyrirtækja. Vaxtahækkun nú
yrði bæði fyrirtækjum og heimilum
svo erfið að afturkippur kynni að
koma í hagvöxtinn. Frekari raun-
vaxtalækkun, sem gæti fylgt öflugu
átaki í ríkisfiármálum, stuðlaði hins
vegar ótvírætt að eflingu hans,“ segir
m.a. í fréttabréfinu.
24 milljóna viðskipti
Viðskipti með hlutabréf námu um
24 milljónum króna í síðustu viku.
Mest var keypt af Grandabréfum, eða
fyrir 4,2 milljónir. Alls fóru fram við-
skipti í 17 hlutafélögum sem teljast
nokkuð lífleg viðskipti hvað það
varðar en upphæðirnar voru ekki
miklar. Eimskipsbréfin hækkuðu í
síðustu viku en lækkuðu aftur í verði
á mánudag. Hlutabréf Flugleiða hafa
haldist óbreytt í verði undanfarið.
Á einni viku hefur þingvísitala
húsbréfa hækkað um 1 prósent og
var 138,5 stig á mánudag.
Eimskip gefur út
skuldabréf
Eimskip hefur geilð út skulda-
bréf að fiárhæð 250 milljónir
króna. Lánstími bréfanna er 8 ár.
Landsbréf hf. átti hagstæðustu
tilboð i bréfin af öðrum verö-
bréfafyrírtækjum. Óskað var eft-
ir tilboöum bæði í íslenskum
krónum og ECU-mynt. Þetta er í
fyrsta sinn sem skuldabréfaútboð
er tniðaö við ECU hjá íslensku
einkafyrirtæki. Formleg sala
bréfanna hefst 27. september nk.
Fjármagnið er ætlað til ýmissa
fiárfestinga Eimskips á næst-
unni. Þar ber hæst byggingu
nýrrar þjónustumiðstöðvar frys-
tivöru á athafnasvæöi Eimskips
í Sundahöfn. Sömuleiðis hafa
Eímskipsmenn verið að fiárfesta
í nýjum flutningaskipum.
Breytingará
vísitölum
Hagstofan hefur reiknað út
nýja vísitölu byggingarkostnaðar
fyrir októbermánuö eftir verðlagi
um miðjan september. Vísitalan
reyndist vera 198,3 stig sem er
0,1% hækkun frá því í ágúst. í
samræmi við hækkun byggingar-
vísitölunnar hefur verið ákveðið
að hækka húsaleigu um 0,5% frá
1. okt. nk.
Launavísitala fyrir september
er 133,2 stig og hækkar um 0,1%
frá fyrra mánuöi. Lánskjaravisi-
talan fyrir október er 3378 stig,
0,15% hærri en i september.
Kaupþingstofn-
ar lifeyrissjód
Verðbréfafyrirtækið Kaupþing
hefur stofnað Lífeyrissjóðinn
Einingu, Um séreignasjóð er að
ræða sem jafnfrarat býður upp á
tryggingavernd með samningi
viö Vátryggingafélag íslands,
VÍS. Það er nýjung á meöal ís-
lenskra séreignalifeyrissjóða.
Meðal einkenna séreignasjóðs er
að inneign sjóðfélaga erfist við
andlát hans.
Árleg umsýslugjöld Einingar
nema 0,5% af eign sjóðsins og
annast Kaupþing rekstur hans.
Formaður sjóðsfiórnar er Baldur
Guðlaugsson hrl. Aðrir sfiórnar-
menn eru Baldvin Tryggvason,
sparisjóðsstjóri SPRON, Sólon
Sigurðsson, bankastjóri í Búnaö-
arbankanum, Guðmundur
Hauksson, forstjóri Kaupþings,
og Bjarni Ármannsson, forstöðu-
maður fiárvörslu- og markaðs-
sviðs Kaupþings.
BjörníWorid
Classselur
Ingólfscafé
Björn Leifsson, veitingamaður
Þjóðleikhúskjallarans og eigandi
World Class likamsræktarstöðv-
arinnar, hefur selt veitinga- og
skemmtistaðinn Ingólfscafé við
Hverfisgötu.
Nýir eigendur Ingólfscafés eru
Gunnar Hjaltested endurskoð-
andi og Þórarinn Ragnarsson i
Staldrinu.
Skuidabréffyrir
Smilljarða
Á þessu ári hafa 16 fyrirtæki
og ýmsir opinberir aðilar boðið
skuldabréf á almennum markaöi
fyrir 5 milljaröa króna. Ávöxtun
bréfánna hefur verið frá 4,9 til
8,0%. Þetta kemur fram í Vís-
bendingu.
Þessir aðilar eru Iðnlánasjóður,
Verslunarlánasjóður, Reykjavik-
urborg, Landsvirkjun, Hafnar-
fiaröarbær, Skeljungur, Grandi,
Oliufélagið, Eimskip, Sements-
verksmiöjan, Samvinnusjóður ís-
lands, ÚA, Garðabær, Akranes-
bær, KEA og Nýherji.
Útflirtningsafurðir, gjaldmiðlar og verðbréf
■MMMML ■MMMMMMMMMMMMMMMMML. MMMMMMMMML Mi
DV]
Gámasalan í Englandi:
Þorskur lækkar á ný