Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1994, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994
9
dv Stuttarfréttir
Burtmeðbyssur
Bosníu-Serbar veröa að ílytja
þungavopn frá vopnlausa svæð-
inu viö Sarajevo fyrir miðnætti
en eiga von á loftárásum ella.
Ágreiningurhjázúlú
Menn óttast blóðbað vegna
ágreinings tveggja helstu leiðtoga
zúlúmanna í Suður-Afríku.
Clinton
Bandaríkjafor-
seti þykir hafa
staðið sig vel i
Haítí-málinu
;jpg::jjhaiái;:;:;;vm-i!;::
sældir hans
meðal þjóðar-
innar því auk-
ist til mikilla muna upp á síðkast-
ið.
íhugarrefsingar
Clinton Bandaríkjaforseti íhug-
ar viöskiptaþvánganir gegn Jap-
önum.
Skoða hugmyndir
Sendimaður Bandaríkjanna og
Assad Sýrlandsforseti skoðuðu
hugmjmdn- um frið í Miðaustur-
löndum.
Músh'mardrepnir
Öryggssveitir í Alsír drápu
sextán vopnaða íslamska heittrú-
armenn.
Cariermiðiarmálum
Suður-
Kóreustjórn
hefur V. boðiö
Jimmy Carter
tii landsins til
að reyna að
koma á sögu-
legum viðræð-
um við stjórn-
vöid i
Noröur-Kóreu um sættir ríkj-
anna.
Norskar sjoppur kærðar
Fyrir dyrum stendur aö kæra
norska sjoppueigendur fyrir að
selja serbnesk blöð. Það er brot á
viðskiptabanni.
Löggurmötmæla
Norskir lögreglumenn ætla að
mótmæla lágum launum viö
þinghúsið í dag. Hreppstjórar
munu styðja lögregluna.
Læknar vilja tryggingu
Læknar í Noregi ætla ekki að
fljúga oftar með þyrlum til Sval-
barða nema þeh' verði tryggðir
sérstaklega.
ABB kauptr í Ameríku
Norræna stórfyrirtækið ABB
hefur keypt stórt verktakafyrir-
tæki í Bandaríkjunum.
AdamsgegnMajor
Gerry Ad-
ams, leiðtogi
Sinn Fcin, póli-
tísks arms IRA,
veittist harka-
lega að Mgjor,
forsætísráð-
herra Bret-
lands, og
sagði hann hafa gert sig að flfli í
Norður-írlandsmálinu.
Fimm ára með lystarstol
Fimm ára norskt barn hefur
greinst með næringarsjúkdóm-
inn lystarstol. Áður var talið að
veikin legðist aðeins á fullvaxið
fólk.
Vilja ekki bamadrykkju
Sænski landbúnaðarráöherr-
ann hefur lýst áhyggjum vegna
fyrirætlunar ESB um að kenna
börnum að drekka vín.
Reuter, NTB, TT
Útlönd
Rannsókn á kynferðislegri misnotkun Michaels Jacksons að ljúka:
Ekki ákærður
Saksóknarar í Los Angeles og
Santa Barbara sýslum munu til-
kynna í dag að poppsöngvarinn Mic-
hael Jackson verði ekki ákærður fyr-
ir kynferðislega misnotkun á þrettán
ára dreng þrátt fyrir fullyrðingar
piltsins í þá veru.
Það var sjónvarpsstöð í Los Ange-
les sem skýrði frá þessu í gærkvöldi
og hafði eftir ónafngreindum heim-
ildarmönnum.
Talsmaður saksóknara í Los Ange-
les sagði aðeins að tilkynning um
ákvörðun saksóknaranna yrði gefin
út „alveg á næstunni".
Saksóknarar sýslnanna tveggja og
Larry Feldman, lögfræðingur pilts-
ins, áttu með sér fund á mánudag.
Howard Weitzman, lögmaður Jack-
Michael Jackson væntanlega
hreinsaður af öllum áburði.
Simamynd Reuter
sons, var ekki á fundinum en hann
sagðist ekki eiga von á því að skjól-
stæðingur hans yrði ákærður.
Michael Jackson hefur statt og
stöðugt haldið fram sakleysi sínu og
segir að hann sé fórnarlamb mis-
heppnaðrar fjárkúgunartilraunar
fóður drengsins, auðugs tannlæknis
í Beverly Hills.
í októberhefti tímaritsins GQ segir
að pilturinn hafi ekki sakað Jackson
um kynferðislega misnotkun fyrr en
eftir að faðir hans hafði gefið honum
lyf sem oft er kallað „sannleikslyf-
ið“. Rannsóknir sýna hins vegar að
mjög auðvelt er að sá folskum endur-
minningum í huga þess sem er undir
áhrifum lyfsins.
Faðir piltsins segist aðeins hafa
notað lyfið þegar hann dró tönn úr
syni sínum. Reuter
Ofaníhyld
Þjóf ar láta
greipar sópa
um eldfjallabæ
Þjófar láta nú greipar sópa um eig-
ur manna í bænum Rabaul á Papúa
Nýju Gíneu sem spúandi eldfjöll hafa
fært á kaf í ösku og hrakið íbúana á
brott.
„Ég veit að þjófar hafa farið ráns-
hendi um verslunina mína og flóð-
bylgja frá höfninni hefur eyðilagt
hana,“ sagði Lilian Woo sem ásamt
þremur börnum sínum fór með
leiguflugi frá Nýja Bretlandseyju upp
á meginlandið.
Rúmlega þrjátíu þúsund íbúar Ra-
baul voru fluttir burtu til nærliggj-
andi þorpa eftir að eldgosið hófst
snemma á mánudagsmorgun. Emb-
ættismenn sögðu að vitað væri um
tvö dauðsföll. Reuter
Khasbúlatov vill
stuðningvið
uppreisnarmenn
Rúslan Khasbúlatov, fyrrum for-
seti rússneska þingsins og erkifjandi
Borísar Jeltsíns forseta, fór fram á
stuðning stjórnarinnar í Kreml við
uppreisnarmenn í Tsjetsjeníu,
heimalandi sínu.
Khasbúlatov tók þátt í blóðugri
uppreisn gegn Jeltsín í október í
fyrra en var náðaður. Hann hóf aftur
þátttöku í stjórnmálum í fyrra mán-
uði og reynir að steypa Dudajev, for-
seta Tsj etsj eníu, af stóli. Reuter
Ein kona lét lífið þegar gata í Miinchen lét undan þunga strætisvagns og
afturendi hans fór ofan I djúpa holu i malbikinu. Á þriðja tug manna slasað-
ist I óhappinu sem varð á annatima í gærkvöldi. Ekki er vitað hvers vegna
svo fór sem fór. Símamynd Reuter
Lögregla á Haití ber lýðræðissinna til bana:
Aristide óánægður með
samning við herstjórana
Jean-Bertrand Aristide, útlægur
forseti Haíti, gerði þaö lýðum ljóst í
gær að hann væri hundóánægður
með samninginn sem gerður var við
herforingjastjómina um að koma
honum aftur til valda. Bandarískir
embættismenn báðu hann um að
sýna biðlund og buðu til fundar í
varnarmálaráðuneytinu Pentagon.
í fyrstu yfirlýsingu sinni frá því
Jimmy Carter, fyrrum Bandaríkja-
forseta, tókst að koma í veg fyrir yfir-
vofandi innrás Bandaríkjanna á Ha-
ítí með samningum við herforingja-
stjórnina, vekur það athygli að Ar-
istide leggur ekki blessun sína yfir
samkomulagiö.
Einn af ráðgjöfum Aristides sagöi
að hann vildi að bandarísk stjóm-
völd lofuðu að her Haítí yrði afvopn-
aður þegar Aristide tekur við völdum
Haitímaður fórnar höndum yfir liki
vinar síns sem lögregla barði til
bana í gær. Simamynd Reuter
á ný. Herforingjamir eiga að fara frá
eigi síðar en 15. október.
Bandarískar hersveitir stóðu að-
gerðalausar hjá í gær þegar óeirða-
lögregla Haítí réðst að hópi stuðn-
ingsmanna Aristides og barði fólkið
með kylfum og riffilskeftum. Einn
maður lést af völdum barsmíðanna.
Jimmy Carter kenndi afvegaleiddri
stefnu Bandaríkjanna og tregðu
ráðamanna til að ræða við andstæð-
inga sína um hnútinn sem Haítí-
deilan var komin í.
Leiðtogar öldungadeildar Banda-
ríkjaþings hvetja til þess að við-
skiptaþvinganir gegn Haítí veröi taf-
arlaust afnumdar en Madeleine Al-
bright, sendiherra hjá SÞ, sagði að
það yrði ekki gert fyrr en eftir 15.
október.
Reuter
Herstjórarnirí
Burma hitta
andófskonu
Herforíngj-
arnir sem fara
með völdin í
Burma áttu í
gær fund mc*ð
andófskonunni
Aung San Suu
Kyi og var það
i fyrsta sinn
sem hún fékk að hitta háttsetta
menn stjórnarinnar frá því hún
var hneppt í stofufangelsí fyrir
fimm árum.
Sjónvarpið i Burma sýndi
myndir af fundinum sem það
sagöi hafa verið vinsamlegan.
Suu Kyi hlaut friðarverölaun
Nóbelsárið 1989. Reuter
Langar
þig«
tölvu sem...
I* er með flunkunýju PCI Local
Bus SVGA skjátengi sem er
60% hraðvirkara en hefðbundið
IVESA Local Bus skjátengi og
700% hraðvirkara en
hefðbundið ISA skjátengi?
I* hefur ISA og/eða PCI Local Bus
tengiraufar eflir þínu vali?
• er búin nýrri IDE tengingu
(Enhanced IDE) sem hefur
ISCSI hraða og tengir jafnt diska
sem CD-Rom og segulbands-
stöðvar og leyfir stærri diska
en 528 MB?
• hefur nýtt samsíðatengi
(Parallel port) sem er 20 sinnum
I hraðvirkara en hefðbundin
samsíðatengi og hentar því
einkar vel t.d. fyrir
geislaprentara?
• hefur innbyggt Ethernet
tengi fyrir þá sem eru með
tölvunet?
• er hægt að fá sem Multimedia
tölvu fyrir hlægilegt viðbótar-
gjald? (Með hljóðkorti, CD-
ROM hátölurum, hljóðnema og
hugbúnaði).
1« er með sérstökum orku-
sparnaðarbúnaði sem dregur
úr orkunotkun um allt að 60%?
• kostar minna en þig grunar,
Iþrátt fyrir allan þennan búnað?
... ef þig langar í tölvu sem
hefur alla þessa kosti,
, ætfir þú að líta inn I
verslun okkar /
ITullp Computers leggur mikla ■
áherslu á gæði og hefur fengið
IS09001 vottun fyrir þróun,
framleiðslu og þjónustu.
IÞú getur því treyst á Tullp! ■
TuLp computers I
Gæðamerkið frá Hollandi
I crj) i
NÝHERJI I
SKAFTAHLtÐ 24 - SÍMI 69 77 00
■ Alltaf skrefi á undan
OPIÐALLA LAUGAR-
DAGA 10.00-16.00