Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1994, Blaðsíða 12
i.i n
12
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994
Spumingin
Hver er eftirlætisveitinga-
staöurinn þinn?
Ásta Magnea Óladóttir: Hard Rock
Café.
Bergur Rúnar Björnsson: Grillbar-
inn á Ólafsfirði.
Sindri Bjarnason: Grillbarinn á Ól-
afsfiröi og Greifinn á Akureyri.
Gunnlaugur Sigursveinsson: Hótel
Ólafsfjörður og eldhúsið hjá Gerði,
konunni minni.
Steinn Gunnarsson: Hard Rock Café.
Hulda Guðmunda Óskarsdóttir: ítal-
ía er ny ög góður staður og Asía líka.
Lesendur
Peningar á
hverju strái
Óskar Jónsson skrifar:
í þjóðfélagi þar sem allir eru að
kvarta daginn inn og daginn út skýt-
ur það skökku við, svo ekki sé fastara
að orðiö kveðið, að nægir peningar
virðast til hjá landsmönnum til þátt-
töku í fjárhættuspilum. Einhvem
kynni að undra þessa fullyrðingu en
staðreyndimar liggja engu að síður
fyrir. Lottó, bingó, getraunir, skaf-
miðar, heimsendir happdrættismið-
ar og guð má vita hvað hefur gert
landsmenn bókstaflega hringavit-
lausa.
í brjóstum allra þátttakenda í þess-
um fjárhættuspilum, sem þetta auð-
vitaö er, leynist sú von eða sá draum-
ur að stóri vinningurinn, -sein á að
redda öllu, sé í þann mund að falla
viðkomandi í skaut. Þannig er þjóðin
orðin þræll þessarar fíknar sem er
engu skárri en önnur fíkn og má þar
nefna tóbak, áfengi eða eiturlyf. Inn
á þetta spila félög og stofnanir, sem
mörg hver hafa líknarmál á sinni
könnu þótt ótrúlegt sé, og segja þetta
nauðsynlegt til að ná fjármagni til
að standa undir kostnaði af starfsem-
inni. Þetta þykja mér vægast sagt
undarleg vinnubrögð og með öllu
óviðunandi. Það er vissulega göfugt
að rétta hjálparhönd þeim sem
minna mega sín og hafa orðið undir
í lífsbaráttunni. Það er hins vegar
ekki göfugt að stíla inn á veikleika
almennings með gróðramaskínum í
hverju homi.
Svokallaðir spilakassar eru nánast
í öllum sjoppum og freistingarnar
eru miklar fyrir unglinga. Það er ein-
mitt sá hópur sem helst dvelst á þess-
um stöðum og það sér hver heilvita
maður að óhörðnuð ungmenni eru
Bréfritari likir spilakössum við vítisvélar.
líkleg til að ánetjast þessum vitisvél-
um sem ég vil svo kalla. FuUorðna
fólkið er heldur ekkert skárra. Þaö
spilar líka í þessum kössum og er
stundum miklu verra. Sjónvarpið
hefur apað upp ósiðinn og er með
lottó-drátt tvisvar í viku og annan
meira að segja erlendis frá. Nýjasta
nýtt er svo bingóið á Stöð 2. Ekki
veit ég hvað kemúr næst en það kem-
ur. Um það er ég viss.
En þeir sem standast þessar freist-
ingar eru ekki alveg hólpnir. Inn um
bréfalúguna á hveiju heimili
streyma alls kyns gylhboð í formi
happdrættismiða eða annarra miða
og þá þarf líka sterkar taugar til að
spila ekki með. Þvi miður eru fæstir
sein standast freistingamar en þegar
stóri vinningurinn lætur á sér standa
segir fólk: „Ég er að styrkja gott
málefni." Reikningarnir halda áfram
að hlaðast upp, skuldasúpan eykst
og síðan kemur hið óumflýjanlega,
gjaldþrot.
Þetta er nöturlegur sannleikur en
sannleikur engu að síður. Pening-
amir virðast vera á hverju strái þeg-
ar fjárhættuspil em annars vegar en
þess á milli er buddan tóm. Er ekki
mál að linni?
Hundleiðinlegur þjóðsöngur
Bryndís Guðmundsdóttir skrifar:
íslenski þjóðsöngurinn er algjör
tímaskekkja. Hann var kannski
ágætur á sínum tíma en í dag á hann
ekkert erindi til nútímafólks. T.d. er
vonlaust mál að syngja hann og ekki
nema á færi þeirra sem em hámennt-
aðir í sönglistinni. Þaö em hins vegar
fæstir og þess vegna missir þjóðsöng-
urinn marks. Þar fyrir utan er hann
einfaldlega hundleiðinlegur.
Breytinga er þörf því aö í dag bera
ekki margir virðingu fyrir þjóð-
söngnum. Ég er t.d. viss um að flest-
ir standa upp og slökkva á Sjónvarp-
inu þegar hann er leikinn þar í dag-
skrárlok á sunnudagskvöldum. Það
er helst að fólk horfi til að reyna að
geta hvaðan myndin er á skjánum
en ekki til aö hlusta á lagið. Ýmsu
hefur verið breytt í þessu þjóðfélagi
og þótt sjálfsagt mál. Þjóðsöngurinn
er ekki heilagur og þess vegna má
líka breyta honum eða fá nýjan.
Eg veit að flest ungt fólk er ekki
hrifið af þjóðsöngnum. Eldra fólkið
vill sjálfsagt frekar hafa óbreytt
ástand en það mætti t.d. greiða um
þetta atkvæði á meðal þjóðarinnar.
Þar myndi niðurstaðan verða á þá
leið að þjóðin þyrfti að fá nýjan þjóð-
söng. í framhaldinu mætti síðan efna
til samkeppni á meðal tónlistar-
manna í landinu um nýtt lag og ljóð.
Firábær árangur Helga Áss
Magnús Magnússon skrifar:
Það vom gleöilegar fréttir sem bár-
ust alla leið frá Suður-Ameríku í síð-
ustu viku þar sem ungur, íslenskur
keppnismaður fór á kostum og sigr-
aði á heimsmeistaramótinu í skák,
fyrir keppendur 20 ára og yngri.
Mótið var haldið í Brasilíu og þar
voru saman komnir allir fremstu
skákmenn heims af yngri kynslóð-
inni. Okkar maður, Helgi Áss Grét-
arsson, er aðeins 17 ára gamall og
það gerir sigur hans enn eftírminni-
legri.
Frammistaöa hins nýja heims-
meistara er enn ein rósin í hnappa-
gat skákíþróttarinnar hér á landi.
Hringið í síma
63 27 00
millikl. 14 og 16
- eöa skrifíð
Nafn og simanr. verftur aA fyig|a bréfuni
Áður höfðu Jón L. Árnason, Hannes
Hlífar Stefánsson og Héðinn Stein-
grímsson hrósað sigri á heimsmeist-
Sigur Helga Áss Grétarssonar hefur
vakið mikla athygli.
aramóti í mismunandi aldursflokk-
um en afrek Helga Áss nú verður að
teljast enn betra með fullri virðingu
fyrir hinum heimsmeisturunum
okkar. Hann er aðeins 17 ára, eins
og fyrr sagði, og getur því keppt
nokkrum sinnum til viðbótar í þess-
um aldursflokki og þá varið titilinn
um leið. Það yröi einstakur árangur.
Alltof snemmt er samt að fullyrða
um framtíðina en gleðilegt er að sjá
hvemig Helgi Áss tekur sigrinum.
Þar fer piltur sem tekur hlutunum
með jafnaðargeði og miklast ekki af
sigrinum.
Með heimsmeistaratitlinum er
hann líka kominn í hóp vaskra stór-
meistara en það verður að teljast með
ólíkindum að svona fámenn þjóö
skuli eiga jafnmarga aíburða skák-
menn og raun ber vitni. Skáksam-
samband íslands á heiður skilinn
fyrir uppbyggingarstarfið og einstök
félög lika, eins og t.d. Taflfélag
Reykjavíkur. Með sama áframhaldi
verður þess vart langt aö bíða aö ís-
lendingar eignist heimsmeistara í
fullorðinsflokki.
___________________PV
Launstór-
söngvarans
Guðjón Þorsteinsson hringdi:
Auðvitað er Kristján Jóhanns-
son frábær söngvari og allt það
og mér dettur heldur ekki í hug
að hann syngi fyrir ekki neitt.
Hins vegar eru þau laun sem
hann krefst fyrir söng sinn hér
allt of há og það er ekkert nema
héraháttur og fákænska á sviði
fjármála að samþykkja þessi
laun. - 800 þúsund krónur fyrir
kvöldið! Það sjá allir að hér er
um að ræða óráðsíu af verstu
sort og sem hvergi myndi líöast
nema af því að Þjóðleikhúsið þarf
ekki, fremur en aðrar opinberar
stofnanir, að sýna skynsemi og
aðhald i rekstri.
Sjálfstæðisflokkur:
Hvergi minnst
ákonur
Gunnar Árnason skrifan
Slagurinn í prófkjörsmálum
sjálfstæðismanna nálgast og hart
er barist um efstu sætin. Þar eru
auðvitað nefndir til sögunnar
þeir sem hafa verið framarlega ó
listanum, hér í Reykjavík a.m.k.
Það eru Davið Oddsson, Bjöm
Bjamason, Friörik Sophusson,
Geir H. Haarde, Markús Öm og
Eyjólfur K. Jónsson. Allir ætla
þessir menn að komast í efstu 4
sætin og einhver verður undan
að láta. Hvergi er minnst á konur
og em þó einhveijar sem stefna
líka í efstu sætin. En er nokkur
furða? Það hefur ekkert bitastætt
komið frá konum í Sjálfstæðis-
flokknum um langa hríð. Jú,
fregnir af nefndastörfum. Ekkert
raunhæft á þjóðmálasviðinu.
Samúðin bjargar
skúrkunum
Margrét Sigurðardóttir hringdi:
Enginn þarf að halda að Al-
þýðuflokkurinn refsi félagsmóla-
ráðherranum úr Hafnarflrði,
Guðmundi Áma, á nokkum hátt
fyrir stjómmálaleg siðgæðisbrot
og stjórnlausa eyöslu af almanna-
fé. í mesta lagi em settar reglur
til málamynda sem eiga að stöðva
leka eins og stundum er sagt. Og
áfram heldur því Guðmundur að
reyta fylgi af Alþýðuflokknum.
Svona er þetta á öllum sviöum
hér. Allt veröur íslenskum
skúrkum aö vopni. Og það er
samúðin sem er hér að verki.
Almenningur á því sökina á því
að aldrei er tekið almennilega í
taumana. Pólitíkin er ekkert
einsdæmi. Dómskerfiö er t.a.m.
uppfullt af svona dæmum.
Burtmeðfaldar
vatnslagnir
Einar Jónasson hringdi:
Loks var þjóðin leidd í sannleik-
ann um faldar vatnslagnir í hús-
veggjum og gólfum. En finheitin
og flottræflishátturinn hefur ver-
iö skynseminni yfirsterkari hing-
að tíl. Vonandi gerir komandi
kynslóð sér betur grein fyrir al-
vörunni en þeir sem innleiddu
földu lagnirnar.
Getaflugmenn
sett skilyrði?
Á.K.L. hringdi:
Nú eru Flugleiðir að kanna
möguleika á að losa síg við innan-
landsflugið og er þá komið að því
sem einhver sagði fyrir á árunum
eftir sameiningu flugfélaganna
tvéggja, Loftleiða og Flugfélags
íslands, aö sá tími kæmi að Flug-
leiðir yrðu ekki langlíft félag i
heilu lagi. - Og nú koma flug-
menn sem telja sig geta haldið í
einhvem samning um starfsald-
ursreglur og laúnakjör. Hafa þeir
nokkra burði eða rök til þess
ama? í deiglunni em miklar
hræringar.