Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1994, Page 17
t
16
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1994
17
íþróttir
Newcastle, toppliöið í ensku
úrvalsdeildinni, keypti í gær
sóknarmanninn Paul Kitson frá
Derby fyrir 2,3 milljónir sterl-
ingspunda. Kitson er 23 ára gam-
all og skoraði 13 mörk fyrir Derby
á síðasta keppnistímabili.
Vondir stuðningsmenn
Suðningsmenn Derby urðu æfir
þegar þeir fréttu af sölunni og
kröfðust þess að forseti Derby
segði af sér. Þeir segja að Kitson
hafi ekki átt að selja fyrir minni
pening en 4 milljónir punda.
Popescutilbúinn
Rúmenski landsliðsmaðurinn
Gheorghe Popescu leikur i kvöld
sinn fyrsta leik með Tottenham
þegar liðið mætir Watford í ensku
deildarbikarkeppninni. Popescu
fékk atvinnuleyíi í gær.
Valur-HKámorgun
Leik Islandsmeistara Vals og
HK i 1. umferð Nissandeildarinn-
ar í handknattleik hefur verið
frestað um einn dag og fer hann
fram á Hlíðarenda klukkan 20
annað kvöld. Ástæðan er sú að
ekki er búið að koma húsinu í
stand eftir brunann á dögunum.
Haukurbestur
Það ætti aö koma fáum á óvart
að Haukur Bragason, markvörð-
ur Grindvíkinga, hefúr verið kos-
inn besti leikmaður liðsins á ný-
afstöðnu tímabili.
Lsðiðtil Dublinar
Eftir stórgott tírnabil eru leik-
menn, stjómarmenn og aðrir þeir
sem komu nálægt Grindavíkur-
liðinu í sumar á leiðinni til Du-
blinar þar sem afrekum sumars-
ins verður fagnað enn frekar.
Mikilláhugiámiðum
Miðasala fyrir HM ’95 tók íjör-
kipp eftir að sölu miðanna var
hleypt af stokkunum. Ekki færrí
en tólf þúsund fyrirspumir hafa
borist hér innanlands og hvorki
fleiri né færri um 50 þúsund fy rir-
spurnir erlendis frá.
Mótshaldarar erlendis
Fjórar stórkeppnír í handbolta
verða haldnar í kjölfar HM ’95 á
íslandi. HM 21-árs verður í Arg-
entínu 1995, EM á Spáni 1996, HM
kvenna í Brasilíu 1997 og HM
karla í Japan 1997. Allir þessir
mótshaldarar hafa boðaö komu
sína á HM’95 á Islandi og að sjálf-
sögðu óskað eftir miðum. Er talið
að þeir þurfi ekki færri en 300
aðgöngumiða.
Skallagrímurvamt
Skallagrímur vann Akranes,
84-64, í fyrri leík liðanna i Vestur-
landsmótinu í körfuknattleik í
gærkvöldi. Keflavík vann
Grindavík, 104-96, í Reykjanes-
mótinu.
Þorvaldurskoraði
Þorvaldur Örlygsson skoraði
fyrra mark Stoke úr vítaspyrnu
er liðið tapaöi, 3-2, fyrir Fulham
í fyrri leik liðanna í 2. umferð
enska deildabikarsins í knatt-
spyrnu í gærkvöldi. Úrslit hjá
úrvalsdeildarliöunum urðu sem
hér segir:
Barnet - Manch. City...1-0
Blackbum - Birmingham....2-0
Carlisle-Q.P.R.........0-1
Everton - Portsmouth...2-3
Huddersfield - Southampton ....0-1
Lincoln - Crystal Palace.i-o
Walsali-WestHam........2-1
Wimbledon - Torquay....2-0
Wrexham - Coventry.....1-2
Kalsersiautemáfram
Kaiserslautern vann Dort-
mund, 6-3, í 2. umferð þýsku bik-
arkeppninnar í knattspyrnu í
gærkvöldi.
I>V DV
DV gerir úttekt á flárhagsstöðu íslenskra handknattleiksfélaga:
Hefja tímabilið í
60 milljóna skuld
- Valsmenn skulda nær helminginn eöa 28 milljónir króna
Félögin í Nissan-deildinni í hand-
knattleik hefja keppnistímabilið í
dag með tæpar 60 milljónir króna í
mínus. Þar af eru Valsmenn með
nærri því helminginn en þeirra
handknattleiksdeild skuldar í dag 28
milljónir króna. FH-ingar koma
næstir með 10 milljónir og Selfyss-
ingar með 6. Fjögur félög hefja tíma-
bilið við núllið, Víkingur, Ajftureld-
ing, Stjaman og ÍH, en þess ber að
geta að skuldir Víkinga voru yfir-
teknar af aðalstjórn félagsins.
Þannig svöruðu forsvarsmenn
handknattleiksdeildanna spurning-
um DV um stöðuna:
FH
„Ég reikna með aö við skuldum eitt-
hvað um 10 milljónir króna. Hún er
þó ekki verri en þetta skuldastaðan
hjá okkur þrátt fyrir að viö höfum
tekið þátt í Evrópukeppni nánast
undantekingalaust síðasta áratug,“
sagði Jón Auðun Jónsson, formaður
handknattleiksdeildar FH, við DV.
„Þessar 10 milljónir er samansettar
af skellum í Evrópukeppni sem síöan
hefur aldrei náðst að greiða. Það
hafa safnast dráttarvextir í gegnum
tíðina, lánum verið skuldbreytt,
haldið áfram að safna dráttarvöxtum
og snjóboltinn hefur undið utan á
sig,“ sagði Jón.
Haukar
„Heildarskuldir okkar eru eitthvað
rétt rúmlega 5 milljónir. Okkar deild
er hins vegar í skilum með sínar
skuldir á einum stað og er hvergi í
vanskilum úti í bæ. Þannig er hlutur-
inn og þannig ætlum við að hafa
hann,“ sagði Þorgeir Haraldsson,
formaður handknattleiksdeildar
Hauka.
Stjarnan
„I dag er fjárhagsstaðan nokkuð
þokkaleg. Við höfum staðið ágætlega
í skilum og ætli deildin sé ekki mjög
nálægt því aö vera á núllinu. Það er
ætlun okkar að halda rekstrinum í
járnum í vetur og með góðra manna
aðstoð vona ég að það gangi eftir. Það
er verið að gera mun ákveðnari
greiðsluáætlanir og aðgreina meira
annars vegar unglingastarfið og hins
vegar meistaraflokkana. Það er hins
vegar mjög erfitt að reka svona
íþróttafélag með sjálfboðastarfi,"
sagði Bergþóra Sigmundsdóttir,
formaður handknattleiksdeildar
Stjömunnar.
Valur
„Staðan hjá okkur er hrikaleg og
skuldirnar nema 28 milljónum
króna. Markmiðið hjá okkur er að
halda þessum skuldum niðri og
reyna eftir fremsta megni að draga
úr kostnaöi við rekstur handknatt-
leiksdeildarinnar," sagði Brynjar
Harðarson, nýr formaður hand-
knattleiksdeildar Vals.
„Þessar skuldir hafa verið aö safn-
ast upp í langan tíma. Það hafa að
vísu komiö dýfur í þetta en ég man
ekki eftir þolanlegum fjárhag deild-
arinnar síðan 1987. Staðan í dag er
hrikaleg en við munum reyna að
safna liði og bæta hana,“ sagði Brynj-
ar Harðarson.
Afturelding
„Fjárhagsleg staða deildarinnar hjá
okkur er alveg þolanleg. Við höfum
fjárfest undanfarið fyrir einhverjar
milljónir en erum samt sem áður á
núlfinu," sagði Jóhann Guðjónsson,
formaður handknattleiksdeildar Aft-
ureldingar, við DV.
„Við höfum haft mjög góð fyrirtæki
sem hafa starfað með okkur í þessu
og svo held ég að við njótum þess líka
að einhverju leyti að vera staðsettir
rétt utan við bæjarmörk Reykjavík-
ur,“ sagði Jóhann.
KA
„Fjárhagsstaöan hjá okkur er alveg
ágæt. Við erum með allt í skilum og
vitum alveg upp á krónu hver staðan
er. Skuldirnar í dag hjá okkur eru um
3 milljónir," sagði Þorvaldur Þorvalds-
son, nýr formaður handknattleiks-
deildar KA.
„Viö bindum vonir við að ná núllinu
í vetur en vitanlega fer það mikið eftir
gengi liðsins. Okkur hefur gengiö mjög
vel í auglýsingamálum og við erum
bjartsýnir á framhaldið," sagði Þor-
valdur.
HK
„Staðan hjá HK er mjög góð enda höf-
um við ekki tekið þátt í þessu milljóna-
ævintýri sem hin liðin í deildinni hafa
stundað," sagði Rögnvaldur Guð-
mundsson, formaður handknattleiks-
deildar HK.
„I fyrra rákum við deildina með tölu-
verðum hagnaði þrátt fyrir aö vera
með liðið í 2. deild. Skuldirnar hjá okk-
ur eru um ein milljón og við erum rn'eð
allt í skilum," sagði Rögnvaldur.
KR
„Við höfum verið skynsamir og verð-
um það vonandi áfram. Okkar skuldir
eru 2-3 milljónir og við stefnum að því
að koma deildinni niður á núllið og
helst í plús,“ sagði Örn Steinsen, form-
aður handknattleiksdeildar KR.
„Við höfðum um 3M00 þúsund út úr
meistaraflokki karla í fyrra og reikn-
um ekki með meiri tekjum á þessu
tímabili," sagði Örn Steinsen. Þess má
geta að hjá KR-ingum er unglingaráð
með sér fjárhag, það er 3.-7. fiokkur.
Víkingur
„Takmarkið hjá okkur í fyrra var aö
reka deildina á núlli og það tókst. Við
stefnum að því að halda áfram að reka
deildina á núlli og stofna ekki til frek-
ari skulda," sagði Anna Gísladóttir,
gjaldkeri handknattleiksdeildar Vík-
ings.
„Aðalstjórn Víkings tók yfir allar
eldri skuldir deildarinnar í fyrra og
án þess hefði þetta verið nánast von-
laus barátta," sagði Anna.
ÍR
„Fjárhagsstaðan er bara þokkaleg og
langt frá því að vera í þeim dúr ef mið
er tekið af öðrum Reykjavíkurfélögum
á borð við Val og Víking. Borgin hefur
hins vegar hlaupið undir bagga með
þessum félögum og grynnt á skulda-
hala þeirra. Ég myndi halda að við
skulduðum í kringum tvær milljónir
króna," sagði Sigurður Á. Sigurðsson,
formaður handknattleiksdeildar ÍR.
„Við höfum ekki tekið þátt í þessari
vitleysu en á sama tíma hafa félög ver-
ið að veifa peningum framan í leik-
menn sem við höfum alið upp. Það er
alveg óþolandi aö sjá hvað félögum er
misboðið í þessum efnum en félög sem
farið hafa út í þetta ævintýri eru hrein-
lega verðlaunuð. Við höfum haldið
okkur á mottunni og gerum það
áfram,“ sagði Sigurður.
ÍH
„Okkar íjárhagsstaöa er mjög góð,
enda höfum við ekki tekið þátt í þeim
leik að fara út í fjárfestingar í leik-
mönnum. Við höldum tryggð við þann
leikmannahóp sem fór með okkur upp
og ætlum að taka þessa hluti með
hægðinni og örygginu," sagði Sveinþór
Þórarinsson, formaður handknatt-
leiksdeildar -ÍH, nýliðanna úr Hafnar-
firði.
„Við stöndum á núllinu nú í upphafi
tímabils og teljum okkur örugga um
að skila vetrinum með hagnaði," sagði
Sveinþór.
Selfoss
Að sögn Gunnlaugs Sveinssonar,
formanns handknattleiksdeildar Sel-
foss, er fjárhagsstaðan döpur í upphafi
tímabilsins, skuldirnar nema um 6
milljónum króna. Þar vegur þyngst
þátttaka félagsins í Evrópukeppninni
síðasta vetur.
„Þaö verða notaðar allar leiðir til
sparnaðar í vetur og í fjárhagsáætlun
er gert ráð fyrir rekstrarafgangi upp í
skuldirnar,“ sagði Gunnlaugur.
Pétur líklega áfram í IBK
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Miklar líkur eru taldar á því að
Pétur Pétursson þjálfi áfram 1. deild-
arlið Keflvíkinga í knattspymu á
næsta keppnistímabili, en hann hef-
ur náð góðum árangri eftir að hann
tók við af Ian Ross í sumar.
„Við höfum verið ánægðir með
Pétur. Hann var ráðinn til að klára
tímabilið en síðan myndum við skoöa
málin eftir það. Hann hefur haldiö
þessu gangandi hjá okkur og tryggt
okkur meðal efstu liða í deildinni,"
sagði Jóhannes Ellertsson, formaður
knattspymudeildar Keflavíkur, í
samtali við DV í gærkvöldi.
Keflavíkurliðið hefur spilað
skemmtilegan fótbolta eftir að Pétur
tók við liðinu. Hann stjórnaði ÍBK
fyrst í 8. umferð, í sigurleik gegn ÍA
á Akranesi, og undir hans stjóm
hefur Keflavíkurliðið unnið 6 leiki,
gert 2 jafntefli og tapað 2 leikjum.
„Það hefur ekkert verið rætt ennþá
hvort ég þjálfa liðið áfram. Þetta hef-
ur verið skemmtilegur tími, verst er
aö hafa ekki náð Evrópusæti en
strákarnir hefðu svo sannarlega átt
þaö skihð. Þetta hefur gengið vonum
framar, en það er alltaf gaman þegar
vel gengur, og öfugt,“ sagði Pétur
Pétursson.
Pétur Pétursson.
Níu úr 1. deild í bann
Heimir Hallgrímsson úr ÍBV og Júlíus
Tryggvason úr Þór, sem báðir vom reknir
af velli í leikjum 17. umferðar 1. deildar-
innar í knattspyrnu, voru í gær úrskurð-
aðir í tveggja leikja bann af aganefnd
KSÍ. Þeir verða því ekki meö í lokaumferð-
inni á laugardaginn, og heldur ekki í fyrsta
leik á næsta ári.
Fjórir KR-ingar í bann
Fjórir KR-ingar taka út leikbönn í leiknum
við Val á laugardaginn vegna íjögurra
gulra spjalda. Það eru Hilmar Bjömsson,
Óskar Hrafn Þorvaldsson, Tómas Ingi
Tómasson og Tryggvi Guðmundsson.
Helgi Björgvinsson úr Fram og Vals-
mennirnir Atli Helgason og Steinar
Adolfsson verða einnig fiarri góðu gamni
í lokaumferð 1. deildarinnar. Þeir taka
allir út eins leiks bann vegna gulra
spjalda.
Átta úr 2. deild
Þá voru átta leikmenn úr 2. deild úrskurð-
aðir í eins leiks bann og þeir taka það út
á næsta ári. Það era Ólafur Stígsson úr
Fylki, Alen Mulamuhic og Tryggvi Gunn-
arsson úr ÍR, Sverrir Sverrisson úr Leiftri,
Ingólfur Jónsson úr Selfossi, Zoran Zikic
úr Þrótti N. og þeir Guðmundur P. Gísla-
son og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson úr
Þrótti R.
Patrekur og Valdimar
kostuðu 1,8 milljónir
- segir formaður handknattleiksdeildar KA
Tveir landsliðsmenn í handknatt-
leik, sem gengið hafa til liðs við Ak-
ureyrarfélagið KA í ár og í fyrra,
þeir Valdimar Grímsson og Patrekur
Jóhannesson, kostuðu KA J.8 millj-
ónir króna.
„Valdimar kostaði okkur 850 þús-
und á milli félaganna, Vals og KA,
og Patrekur var örlítið dýrari en
hann kostaði 950 þúsund krónur á
milli félaganna, Stjörnunnar og KA.
Þaö er allt í lagi að þetta komi fram,
þetta ýtir kannski við mönnum. Þessi
peningamál eru fyrir löngu síðan
komin út í hreina vitleysu. Þá eru
laun þjálfara í deildinni mjög há. Ég
hef heyrt að þjálfarar séu að fá allt.
upp í 200 þúsund krónur á mánuði í
1. deildinni í vetur,“ sagði Þorvaldur
Þorvaldsson, nýr formaður hand-
leika með KA í kvöld
KA mun tefla fram sínu sterkasta liði gegn Víkingum í kvöld í fyrstu
umferð Nissandeildarinnar i handknattleik en liðin mætast á Akureyri.
Valdimar Grímsson, sem slasaðist í leik með KA á opna Reykjavíkurmót-
inu á dögunum, er óðum að ná sér af meiðslunum og verður með liöi sínu
í kvöld, fyrr en áætlað var.
Alfreð átti við meiðsh að stríða í fyrra og var orðinn þokkalega góður
er hann missteig sig á dögunum og ökkli bólgnaði mikið. Að sögn Þor-
valds Þorvaldssonar, formanns handknattleiksdeildar KA, ætlar Alfreð
þó að harka af sér í kvöld og leika varnarleikinn.
knattleiksdeildar KA í samtali við
DV í gær.
- Hefur Alfreð Gíslason þessi laun
hjáKA?
„Nei, þaö er langt frá því. Alfreð
hefur verið mjög sanngjarn í launa-
málum og laun hans eru ekkert í lík-
ingu við þessa tölu,“ sagði Þorvaldur
ennfremur.
með Blikana
Vanda Sigurgeirsdóttir hefur
verið endurráðin þjálfari 1. deild-
ar liös Breiðabliks í knattspyrnu
kvenna og mun stjórna liðinu á
næsta keppnistímabih.
Vanda stýrði Blikastúlkum til
sigurs í íslandsmótinu og bikar-
keppninni í sumar og er það
vissulega frábær árangur. Reikn-
að er með að allir leikmenn
Breiðabliks leiki áfram með hð-
inu.
Bergsveinn Bergsveinsson er kom-
inn til Aftureldingar.
Gústaf Bjarnason leikur með Hauk-
um.
Sigurður Sveinsson verður með Vik-
ingum í vetur.
íslandsmótið í handknattleik hefst í kvöld:
FH og Selfoss missa mest
íslandsmótið í 1. deild karla, Niss-
andeild, hefst í kvöld en þá fara fram
fimm leikir og á fimmtudagskvöldið
hefia Valsmenn titilvörnina þegar
þeir mæta nýliðum HK.
íslandsmótið er leikið með sama
sniði og undanfarin ár. Átta efstu lið-
in í deildakeppninni komast í úrshta-
keppnina um íslandsmeistaratitil-
inn. Lið númer 9 og 10 halda sæti
sínu í 1. deild en liðin í tveimur
neðstu sætunum falla í 2. deild.
Félögin í 1. deild hafa tekið nokkr-
um breytingum frá því í fyrra og hér
á eftir verða þær helstu tíundaðar
en heimilt er að skipta um félag inn-
anlands til 4. nóvember.
Valur
Komnir:
Geir Sveinsson frá Alzira
Óskar Óskarsson frá KA
Farinn:
Rúnar Sigtryggsson í Víking
• Þjálfari: Þorbjöm Jensson.
Selfoss
Kominn:
Nenad Radosavljevic frá Serbíu
Farnir: ý
Siguröur Sveinsson í Víking
Gústaf Bjamason í Hauka
Jón Þórir Jónsson hættur
Sigurpáll Á. Aðalsteinsson i ICR
Gísli F. Bjamason í KR
Oliver Pálmason í HK
• Þjálfari: Jezdimir Stankovic
FH
Kominn:
Magnús Árnason frá Haukum
Farnir:
Kristján Arason til Þýskalands
Atli Hilmarsson í Fram
Bergsveinn Bergsveinsson í UMFA
Pétur Petersen í Fylki
Amar Geirsson í nám erlendis
Óskar Helgason í nám erlendis
• Þjálfari: Guðmundur Karlsson
Haukar
Komnir:
Gústaf Bjarnason frá Selfossi
Þorlákur Kjartansson frá ÍH
Ólafur Sveinsson frá Gróttu
Farnir:
Magnús Ámason í FH
Halldór Ingólfsson í Bodö
Jón Örn Stefánsson hættur
• Þjálfari: Petr Baumruk
Sjarnan
Komnir:
Dimtri Filipov frá Krasnodar
Jón Þórðarson frá UBK
Farnir:
Patrekur Jóhannesson í KA
Hilmar Hjaltason í Fram
Magnús M. Þórðarson í ÍR
• Þjálfari: Viggó Sigurðsson
Víkingur
Komnir:
Sigurður Sveinsson frá Selfossi
Rúnar Sigtryggsson frá Val
Helgi Bragason frá ÍBV
Farnir:
Enginn
• Þjálfari: Gunnar Gunnarsson
KA
Kominn:
Patrekur Jóhanness. frá Stjörnunni
Farnir:
Óskar Óskarsson í Val
Ármann Sigurvinsson í Fram
• Þjálfari: Alfreð Gíslason
Afturelding
Komnir:
Bergsveinn Bergsveinsson frá FH
Jóhann Samúelsson frá Þór
Farnir:
Sigurður Sigurðsson hættur
Sigurður Jensson hættur
• Þjálfari: Guðm. Guðmundsson
ÍR
Komnir:
Guðfmnur Kristmannsson frá ÍBV
Daði Hafþórsson frá Fram
Finnbogi Sigurbjörns. frá Fram
Magnús M. Þórðarson frá Stjörn.
Farnir:
Guðmimdur Albertsson í KR
Sebastian Alexandersson í Fylki
• Þjálfari: Eyjólfur Bragason
KR
Komnir:
Gísli F. Bjamason frá Selfossi
Sigurpáll Á. Aðalsteins frá Selfossi
Guðmundur Albertsson frá ÍR
Guðmundur Pálmason frá Fjölni
Willum Þ. Þórsson frá Fjölni
Farinn:
Alexandr Revine í ÍH
• Þjálfari: Ólafur B. Lámsson
HK
Komnir:
Baldur Baldursson frá Fjölni
Baldur Magnússon frá Völsungi
Eyþór Guðjónsson frá Val
Hlynur Jóhannesson frá ÍBV
Oliver Pálmason frá Selfossi
Farnir:
Enginn
• Þjálfari: Igor Knec.
ÍH
Komnir:
Alexandr Revine frá KR
Jóhann Ágústsson frá Ögra
Ásgeir Einarsson frá Ármanni
Farinn:
Þorlákur Kjartansson í Hauka
• Þjálfari: Hilmar Sigurgislason
_______________íþróttir
Stórsigurhjá
u-18árastrákunum
íslenska u-18 ára landsliðið í
knattspymu vann 6-0 sigur á u-17
ára landsliði Slóvena á alþjóðlegu
móti sem hófst i Piestany i Sló-
vakíu í gær. Staðan í hálfleik var
3-0. Andri Sigþórsson skoraði 2
mörk og þeir Eiður Smári
Guðjohnsen, Grétar Sveinsson og
Guðmundur Guðmundsson
geröu eitt mark hver, eitt markið
var svo sjálfsmark híá Slóvenum.
Á morgun leika íslensku strák-
arnir gegn u-17 ára liði Slóvaka.
Meiðsli í herbúðum
Aftureldingar
Gunnar Andrésson, handknatt-
leiksmaðurinn snjalli sem leikur
með Aftureldingu, hefur ekki enn
jaíhað sig á bakmeiðslunum sem
hafa verið að plaga hann undan-
farin ár. Hann er þó á batavegi
eftir að hafa farið í aðgerð en
Guðmundur Guðmundsson,
þjálfari Aftureldingar, reiknar
ekki með honum fyrr en í fyrsta
lagi eftir mánuð. Þá hafa Jason
Ólafsson og Jóhann Samúelsson
átt við meiösli að stríða og óvíst
er hvort þeir geta leiki gegn ÍR í
kvöld.
Búið að selja 20.000
miðaáleikÍAytra
Skagamenn mæta þýska liðinu
Kaiserslautern í síðari leik hð-
anna í l. umferð UEFA-keppninn-
ar i knattspymu í Þýskalandi á
þriðjudaginn. Samkvæmt heim-
ildum DV er þegar búið að selja
20.000 miða á leikínn og ekki er
því ekki ósenniiegt aö völlurin
verði fuUur en hann rúmar 38.500
manns. Kaiserslautern vann
fyrri leikinn, 0-4.
Þríráþrjá
götuboltamót
í kvöld fer fram annað götu-
boltamótið af 8 sem KKÍ stendur
fyrir í Koíaportinu. Fyrsta mótið
tókst með afbrigðum vel en 58 lið
mættu tU leiks í fiórum aldurs-
flokkum. Keppendur voru um
200. Hver þátttakandi hefur tæki-
færi til að vinna ferð á NBA-leik ;
í nóvember, en ekki sigurvegarar
hvers móts eingöngu. Þátttöku-
kvittun gjidir sem happdrættis-
miði en dregið verður 3. nóyemb-
er.
Annaðstyrktarmót
GRálaugardag
Annað styrktarmót GR vegna
keppnisferðar á Evrópumót fé-
lagsliða, sem haldið verður í
Portúgal 24.-26. nóvember, verð-
ur haldið á Grafarholtsvelli á
laugardaginn. Leiknar verða 18
holur, punktakeppni stableford
7/8 forgjöf. Mótið er opið öUum
kylfingum og er þátttökugjald
krónur 1000. Skráning er í Golf-
verslun Sigurðar Péturs í s.
872215.
ÍR-ingarunnu
KR-inga óvænt
ÍR vann KR, 95-93, i meistara-
flokki karla á Reykjavíkurmót- ■
inu í körfuknattleik í gærkvöldi.
Staðan er þannig: ,
Valm-............6 5 1 10 (
KR...............5 4 18
ÍR...............7 4 3 8 J
Leiknir..........5 1 4 2
ÍS...............5 0 5 0
• Næstu leikir: ÍS-Leiknir Kenn-
araháskóla klukkan 20 á fimmtu-
dagnm og á sunnudaginn í Aust-
urbergi leika klukkan 20 Vaiur-
KR og klukkan 21.20 Leiknir-ÍR.
í meistaraflokki kvenna er
staðan þannig:
KR............. 3 3 0 6’
Valur............4 3 16
ÍS...............3 1 2 2
ÍR......;.... ...4 0 4' 0
• Néstu leikir: ÍS-ÍR í Kennara-
háskóla klukkan 21.30 á fimmtu-
dáginn og á sunnudagnm klukk- ;
an 18 í Hagaskóla KR-Valur.