Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1994, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 18. ÓKTÓBER 1994
11
Loftmynd af Reykjavík frá 1920. Þar sést glöggt hvernig Melavöllurinn gamli lá samsíða núverandi Hringbraut
á þeim slóðum þar sem nú er Björnsbakari. Gamli Melavöllurinn var fyrsti íþróttaleikvangurinn í Reykjavík
og sá eini á árunum 1911-26 er nýi Melavöllurinn var vígður.
íþróttir í Reykjavík
- veglegt afmælisrit íþróttabandalags Reykjavíkur
Iþróttabandalag Reykjavíkur er
jafnaldri íslenska lýðveldisins,
stofnað 31. ágúst 1944. í tilefni af-
mælisins hefur bandalagið nú gefið
út viðamikið rit um sögu íþrótta í
Reykjavik.
EYrsti kaflinn fjallar einkum um
fyrstu íþróttafélögin í Reykjavík,
eldmóð þeirra sem til stofnuðu og
aðstöðuleysi. Þessi félög sáu dags-
ins ljós á síðari helmingi síðustu
aldar og fyrsta áratug þessarar.
Þáttaskil urðu með stofnun ÍSÍ
árið 1912 en annar kaflinn fjallar
um þá atburði og það markverðasta
í þróun íþróttanna í Reykjavík fram
tn 1940. Þá verða enn þáttaskil með
setningu iþróttalaganna en þriðji
kaflinn fjallar um tilurð þeirra og
framkvæmd. Loks er í fjórða kaflan-
um fjallað um afmælisbamið sjálft,
íþróttabandalag Reykjavíkur,
stofnun þess og aðdraganda.
Meginefni ritsins lýsir síðan í
fimm köflum því markverðasta
sem um getur í þróun íþrótta í höf-
uðborginni sl. hálfa öld og nær þar
hver kafli yfir einn áratug.
Það er ekki heiglum hent að tína
til og setja á bók allt það helsta sem
driflð hefur á dagana í íþróttum í
Reykjavík sl. hundrað og þrjátíu
ár. Þar verður sjaldnast kvartað
undan heimildaskorti. Þvert á móti
verður vandinn sá að velja og hafna
úr öllum þeim aragrúa umfjöllunar
sem hinar fjölmörgu íþróttagreinar
hafa notið á síðustu áratugum.
Jafnframt þarf að huga að öllum
öðrum þáttum íþróttasögunnar,
s.s. eins og félagsstarfi, fjármálum
og framkvæmdum við margvísleg
íþróttamannvirki á hverjum tíma.
Ur allri þessari óendanlegu marg-
breytni þarf svo stöðugt að velja
aðalatriði frá aukaatriðum og vefa
úr því þann rauða þráð sem við
getum með réttu kallað sögu
íþrótta í Reykjavík.
Um allt þetta sýnist mér vel hafa
tekist hjá ritstjóra verksins, Sig-
urði Á. Friðþjófssyni. Bókin er
skrifuð á látlausu og lipru máh og
textinn oft brotinn upp með bein-
um tilvitnunum í gamlar blaðaum-
sagnir, fundargerðir, lög og ýmsa
einstaklinga. Auk þess lýkur hverj-
um og einum af sex köflum bókar-
innar á viðtah við einstakhng sem
er vel að sér og hefur sjálfur lagt
mikið af mörkum til íþróttamála
viðkomandi tímabils.
Bókin er á sjötta hundrað blað-
síðna í breiðu broti. Hana prýða
fimm hundruð ljósmyndir sem
teknar hafa verið frá því fyrir alda-
mót og fram á þennan dag. Mikil
vinna hefur verið lögð í mynda-
söfnun enda hafa margar eldri
myndirnar skemmtilegt heimildar-
gildi og eiga eflaust eftir að vekja
hjá mörgum tregablandnar endur-
minningar.
Sá gahi er hins vegar á mörgum
myndatextunum að ekki eru nafn-
greindir þeir einstakhngar sem þar
gefur að hta þó um sé að ræða
Bókmenntir
Kjartan Gunnar Kjartansson
myndir af nefndum og ráðum eða
þekktum íþróttamönnum.
í bókarlok er m.a. að finna hsta
yfir íþróttafélög í Reykjavík, stofn-
uð fyrir daga IBR og eftir að IBR
var stofnað. Þá er þar heimildaskrá
og nafnaskrá yfir einstaklinga.
Það gefur augaleið að vöxtur
skipulegrar og félagsbundinnar
íþróttaiðkunar helst í hendur við
þéttbýhsmyndun og bætt lífskjör
landsmanna. Með þessari sögu
íþrótta í Reykjavík hefur því ÍBR
lagt til veigamikið safn til íslenskr-
ar íþróttasögu almennt. Þar hefur
í flestu vel til tekist og því er óhætt
að óska íþróttabandalagi Reykjá-
víkur til hamingju með hvort
tveggja, hálfrar aldar afmælið og
þetta veglega rit um iþróttir í höf-
uðborginni.
Gerö Nettó Itr. HæöxBreiddxDýpt Staögr.
HFL120DELUX 125 86x 55x64 34.950,-
HFL 230 210 86x 84x64 42.400,-
HFL290 266 86x100x64 43.650,-
HFL390 365 86x130x64 47.470,-
EL53 500 86x150x73 56.970,-
EL61 576 86x170x73 64.950,-
B R Æ Ð U R N I R
ORMSSONHF
Lágmúla 8, Sími 38820
Umboðsmenn um land allt
" mg mg &m &m i
m MG MS:
m &m mg mg mg &m &m
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐfl A
VALDA ÞÉR SKflÐA!
Island
Sækjum
þaö heim!
Þuattenn
möguleika
á glæsilegum
feröavinningi!
Ferðaáskriftargetraun DV lýkur 30. nóvember.
Ferðaáskriftargetraun DV
hefur þegar veitt mörgum
áskrifendum nýja og skemmtilega
reynslu af þeim ferðamöguleikum
sem landið hefur upp á að bjóða.
Áfram munum við draga út
ferðavinning í viku hverri,
íslandsferð fyrir 2 að verðmæti 60.000 kr.
30. nóvember kemur síðan rúsínan í
pylsuendanum:
Óskablanda af ævintýraferð um ísland
fyrir 2, að verðmæti 150.000 kr.!
Vinningshafinn (e.t.v. einmitt þú)
raðar einfaldlega saman því sem
honum líst best á af þeim ferða-
vinningum sem í boði hafa verið frá
því í vor! Þannig má sameina jökla-
ferðir, siglingar, afslöppun, golf, veiði
og gönguferðir - eða eitthvað allt annað
eftir því sem hugurinn girnist.
Áskriftarsíminn er 63 27 00 • Grænt númer er 99-6270
Merming
>m &m &m &m &m mg mg mg &m &m &m &m mg mg mg &m &m,