Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1994, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1994, Blaðsíða 12
— 12 Spumingin Ertu búin/n að að sjá Skýjahöllina? Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir: Nei, en ég ætla að sjá hana. Fjóla Dögg Sverrisdóttir: Nei, ég ef- ast um að ég sjái hana. Viðar Karlsson: Nei, en ég gæti vel hugsað mér að sjá hana. Karl Pétursson: Nei, en ég hef áhuga á að sjá hana. Davíð Ragnarsson: Nei, ég ætla að sjá hana. Baldur RóbertssomNei, hvað er það? ÞRIÐJUDAGÚR 18. OKTÓBER 1994 Lesendur Kjarasamning- arnir fram undan Rétt viðbrögð stjórnvalda á næstu vikum geta hæglega slegið vopnin ur höndum óánægjukórsins, segir m.a. í bréfi Konráðs. Konráð Friðfinnsson skrifar: Kjarasamningar eru lausir um næstu áramót. Vænta má átaka á vinnumarkaðinum nema rétt verði að málum staðið. Kaupið hefur að sönnu lítið hækkað hin síðari ár. Ég er þó enn þeirrar skoðunar að rétt hafi verið að gera þessa svokölluðu þjóðarsáttarsamninga. Þeir hafi í ráun fært mönnum jafn mikið, eða meira, en gamla kerfið bauð upp á. Menn muna þá tíð þegar kaupauk- ar komu á þriggja mánaða fresti. Þessum „aukum“ var iðulega dembt út í verðlagið aftur skömmu síðar og á þann hátt teknir af launþegum. Verðbólgan, er geisaði í þjóðfélaginu árum saman, sá til þess að fólk gat ekki nýtt sér þessar launahækkanir og stóð jafnvel eftir blankara en áð- ur. - Sannleikurinn er að á þessum árum minnkaði kaupmátturinn sí- fellt. Núna horfa þessi mál öðruvísi viö. Ekki síst vegna þess aö tekist hefur að koma böndum á verðbólguna. Sú framkvæmd hefur haft margt já- kvætt í för með sér. Nú geta menn loks hugsað heila hugsun í fjármál- um og það leiðir svo aftur margt annað í betri og heilbrigðari farveg. Verðlag hefur t.d. haldist nokkuð stöðugt til þessa þótt mér sýnist sem það sé nú skyndilega heldur að stíga Ég tel að í komandi kjarasamning- um muni menn beina spjótum sínum að yfirvöldum. Þangað muni verka- lýðsfélög og vinnuveitendur reyna að sækja leiðréttingu fyrir sitt fólk. Ég bendi t.d. á að persónuafsláttur hefur ekki hækkað síðan 1988. Hann var reyndar lækkaður 1993. Sú ráð- stöfun ráðamanna var með öllu óskiljanleg og skapaði ófremdar- ástand fyrir þorra launafólks. Ráðamenn geta gert ýmislegt til að auka ráðstöfunartekjur manna. Ég fullyrði að eigi friöur að haldast á vinnumarkaðinum eftir áramót ber ráöamönnum að sýna ht í þessum málum vegna þess að launamenn eru margir hverjir orðnir svekktir hvað persónuafsláttinn varðar. - Forsæt- isráðherra hefur sjálfur sagt að kreppan sé á enda runnin og upp- sveifla fram undan. í skjóli þeirra gleðilegu tíðinda hljóta menn að sýna hækkun skattaafsláttar sérstakan áhuga. Viðbrögð stjórnvalda í þá átt- ina geta hæglega slegið vopnin úr höndum óánægjukórs er mun fara af stað á næstu vikum. Þrúgandi andrúmsloft í Leifsstöð Hulda Guðmundsdóttir hringdi: Ég las ágætan pistil í Víkverja- þætti í Mbl. nýlega þar sem fjallað var á skýran og raunsæjan hátt um það andrúmsloft sem ríkir í komusal Leifsstöðvar. En Vikveiji segir and- rúmsloft þar þrúgandi og allt annað I en víðast hvar annars staðar, t.d. í Evrópulöndum þar sem tollgæsla og vegabréfsskoðun sé á undanhaldi. - Ég er þessum skrifum Víkveija inni- lega sammála. Ég hef lengi haft á orði við kunn- ingja mína að við komu til Keflavíkur erlendis frá er eins og þyrmi yfir mann vegna sérstaks og afar þrúg- andi andrúmslofts sem ríkir í þessari flugstöð okkar. Það er raunar alltaf jafn mikil ánægja að yfirgefa þessa byggingu, hvort sem maður er á leið úr landi eða á leið heim til sín úr flug- stöðinni. Það er almannarómur að ísland sé á margan hátt lögregluríki, ekki síst fyrir fáránleg lög og reglur sem hér gilda. - En andrúmsloft og viðmót, sem mætir ferðalöngum sem koma frá útlöndum, hefur ætíð verið gruggugt, það er viss öfund í móttöku ferðamanna erlendis frá. Þetta var svona líka í gamla daga þegar farþeg- ar komu sjóleiðis til landsins og stigu frá borði við hafnarbakkann. Ég þekki ekki aðstæður á Seyðisfirði við komu feijunnar. Vonandi er þar allt- af sól og sumar, líka í sinni þeirra sem taka á móti ferðlöngunum. Loftvog próf kjörs fer lækkandi Gísli Magnússon skrifar: Það er af sem áður var þegar próf- kjör, t.d. hér á höfuðborgarsvæðinu fengu menn til að safnast í fylkingar til stuðnings frambjóðendum sem gáfu kost á sér í prófkjörsslaginn. Gefnir voru út litskrúðugir bækling- ar sem sendir voru í hvert hús, per- sónuleg bréf skrifuö og boðað var til almennra funda úti um borg og bý og farið á vinnustaöi og þrumað yfir glaðbeittum og áhugasömum starfs- mönnum í hádegishléi. Þetta er hðin tíð. Ég held að póhtísk barátta og áhugi almennings fyrir stjómmálum almennt sé að færast í það horf sem lengst hefur þekkst í Bandaríkjunum. Þegar Bandaríkja- menn eru spurðir út í stjómmál svara þeir gjaman: „Pohtics and poker"! - Þeir hta ekki á stjómmál sem almenningseign, segja að al- Hringió í síma milli kl. 14 og 16 -eðaskrifið Nafn o« siinanr. vorður ad fylgja lm'fum menningur sé hvort eð er ekki spurð- ur neins þegar til kastanna komi. Þingið taki ákvarðanimar og þeir sem þar sitja, eða bara forsetinn. Þetta má til sanns vegar færa og er bandarískur almenningur líklega miklu raunsærri en við vorum hér lengst af. Hvað vitum við, hveiju ráðum við? Að sjálfsögðu engu þegar allt kemur th ahs. Prófkjörin sem nú fara í hönd hér á höfuðborgarsvæðinu bera þess glöggt vitni að fólk hefur ekki mikinn áhuga og reyndar sýnast þeir sem gefa kost á sér til prófkjörs ekki hafa miklu meiri áhuga. Það er htið um fundahöld, ef nokkuð, engir bækling- ar, engin bréf, og ekki mikið skrifað, utan hvað þeir sem lengst hafa staðið í eldhnunni halda sig við steðjann og minna á sig með reglulegum greinaskrifum og taka þá fyrir mála- flokka sem era á döfinni. - „Frí- merkjabirtingar" - andhtsmynd af frambjóðendum - er helsta hfsmark- ið sem maður verður var við þessa dagana. Þetta er góðs viti og eflaust em stjórnmál hér að færast í það horf sem telja verður heilbrigt og eðlilegt, líkt og í Bandaríkjunum. Ásgeir Sigurðsson skrifer: í minnisblaði frá heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti um náms- leyfi og kynnisferðir starfsmanna þess keraur fram að ótrúlegar dagpenfngafúlgur hafa verið greiddar til einstakra starfs- manna þess. Og á fullum launum auk þess, þótt dvölin erlendis standi mánuðum saman! Sem dæmi um þetta fær einn maður tæpar 800 þúsund krónur í dag- peninga fyrir 3 mánuði, auk fuhra launa. Annar fær tæpar 200 þúsund I dagpeninga fyrir 12 daga og aftur og margoft þetta frá 190-439 þúsunda kr. - Og svo síð- ast læpa nhlljón kr. i dagpeninga fyrir 8 vikna ferð á þessu ári. Eru ráðamenn snarvitlausir? Þetta er spurning sem margir spyrja upp- hátt þessa dagana. Húsbréfinalttaf Snorri hringdi: Margir eru þeir sem kvarta yflr því að fá ekki húsbréfm sín, helst um leið og kaupsamningur er gerðm*, jafnvel að geta gengið í þau þegar íbúð er fundin. Þetta er bara einn anginn af íslenskri frekju. Hvað með þaö þótt maður þurfi að bíða nokkrar vUíur? Þetta eru nú einu sinni peningar okkar skattborgaranna, munið það. Og nú benda einhverjir á að þetta eigi bara aht að flytjast tU bankanna. í einhvers konar hús- bréfabanka! En hvað er hann annað en ríkið þólt hann verði skráður undir nafni lánastofn- ana? Hvaðmá heyrast ÍRÚV? Bryrýar hringdi: Það er leitt hve Ríkisútvarpið hefur dregist aftur úr nútíma- fjölimðlun. Þetta sést ekki bara af uppsögnum þeirra IUuga og Hannesar Hólmsteins, sem er náttúrlega eitt klúður hjá stjóm- endum RÚV. RÚV mismunar líka og gætir ekki þess hlutleysis sem það stærir sig svo af i tíma og ótíma, en einkum fyrir kosning- ar. Einu sinni máttu engir mæla eða sjást hjá RÚV ef þeir voru orðnir frambjóðendur áeinhverj- um pólitíska hstanum. Ég sá sl. flmmtudag kjmningarmynd Vatnsveitu Reykjavikur í Sjón- varpinu þar sem fyrrv. borgar- stjóri var kynnir. Var þetta ekki Uka hlutleysisbrot? Eða er Sjón- varpiö undanþegið sjálfsskoðun? Fagna nýjum EgiU Gislason skrifar: Ég fagna þvi að nú skuh nýr veitingastaður, sem selur kjúkl- inga og rétti úr þeim, bætast viö hér í borginni. Ekki var vanþörf á. Kjúklingar hafa verið bæði dýrir og einfaldir í sniðum hjá veitingaliúsunum. Vonandi lækkar verðið og gæðin batna. „Ásveitinni(< ífélagslega kerfinu? I lesendabréfi í DV 12. okt. sl. fjallar Jónína um nýjasta lottó- vinningshafann og sneiöir að honum varöandi þau ummæh hans í frétt nokkru áður að hann hafi sótt um íbúö í félagslega kerf- inu. - Kæra Jónína, mig langar til aö spyrja hvað þú meinar þeg- ar þú talar um að íbúðareigendur Eelagslega kerfinu segi sig á sveitina. Lesendasíða DV gefur Jónínu tækifæri til að svara þessari um- beðnu ósk bréfritara eins og hún kemur fram hér að ofan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.