Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1995, Blaðsíða 8
8
S—
Vísnaþáttur
Þorsteinn
Erlingsson
Þorsteinn skáld Erlingsson
fæddist þann 27. september árið
1858 að Stóru-Mörk undir Eyjafjöll-
um. Var sveinn mánaðargamall
reiddur út yfir Markarfljót til
ömmu sinnar, Helgu Erlingsdóttur,
og seinni manns hennar, Þorsteins
Einarssonar. Dafnaði piltur vel hjá
þeim hjónum og naut ástríkis
ömmu sinnar og nafna. Fór hann
strax á unga aldri að kasta fram
kviðlingum.
Til heimilis að Hlíðarendakoti
var Jón nokkur Jónsson söðla-
smiður og mun hann hafa séð hvað
í Þorsteini bjó og hvatt hann til að
yrkja og hleypa heimdraganum.
Sumarið 1876 bar mikla höfðingja
að garði í Hlíðarendakoti. Voru á
ferð í Fljótshlíðinni þjóðskáldin
Matthías Jochumsson og Stein-
grímur Thorsteinsson og æxlaðist
það svo til að þeir studdu hann tíl
mennta. Kenndi Steingrímur hon-
um latínu og útvegaði honum styrk
góðra manna. Hélt Þorsteinn síðar
til Hafnar til náms og mennta. Árið
1897 leit dagsins ljós kvæðakver
Þorsteins og bar nafnið Þyrnar og
komu þeir nokkrum sinnum út á
næstu áratugum og jók hann þá
síöar. í þyrnum skiptust á hin hug-
ljúfustu ljóð og snörp ádeila og ollu
sum kvæði hans nokkrum úlfaþyt.
Árið fyrir andlát Þorsteins 1913
kom út ljóðaflokkurinn Eiðurinn.
Flokkur þessi Ijallar um forboðnar
ástir Ragnheiðar Brynjólfsdóttur
biskups Sveinssonar og Daða
vinnumanns á Skálholtsstað.
Vísu þessa ritaði Þorsteinn á eintak
Jóh. Jóhannessonar af Eiðnum:
Lestu hvað ég við og við
um vífin látnu skrifa,
þegar þú hefur flóafrið
fyrir þeim sem lifa.
Héma fannst mér áður allt
ylna af brosi þínu;
nú er aftur orðið kalt
inni í homi mínu.
Á eintak Guðrúnar af Þyrnum
ritaði Þorsteinn þessa visu.
Ég veit Þýrna mína af mér
þú mörgu fremur kjósir,
er ólíkt, Guðrún, gef ég þér,
sem gafst mér tómar rósir.
Svo kveður Þorsteinn um höfund
Alþingisrímna er út komu 1902.
Em þeim Guðmundi skólaskáldi
Guðmundssyni og Valdimar Ás-
mundssyni, sem jafnframt var út-
gefandi þeirra, jafnan eignaðar
þær. Vísan hljóðar svo:
Margir leggja á leiði sín
legstein þyngri og meiri;
en ef að týnist þúfan þín,
þá verður hljótt um fleiri.
Vísnaþáttur
Valdimar Tómasson
í vísnabók Einars Sæmundsson-
ar skógfræðings ritaði Þorsteinn
þessa vísu:
Þó ég geti glaðst við fátt,
sem guð og lögin banna,
þá hef ég frá æsku átt
ást til skógarmanna.
Mikilll dýraviniu- var Þorsteinn
og kvað margt til þeirra og öll
þekkjum yið kviðlinga hans um
Snata og Óla. Þessa vísu kveður
hann til kisu:
Margra hunda og manna dyggð
má sér aftur veita,
en þegar ég glata þinni tryggð,
þýöir ei neitt að leita.
Næsta vísa er ort út af bæjar-
stjórnarkosningum 1899 og hljóðar
svo:
Héma famast flestum inn
fremur öllum vonum,
en Skapti féll í fjórða sinn;
fjandi er sleipt hjá honum.
Þessa vísu kvaö Þorsteinn þá
seinni kona hans Guðrún var að
heiman:
Öll gluggablóm höfðu verið borin
út til vökvunar nema lítil planta
sem stóð í glugganum við skrif-
borðið en hana kallaði skáldið
„Illgresið“:
Þið hafiiö illa inni gleymt
Illgresinu mínu.
Það hefur allan daginn dreymt
dögg í homi sínu.
Jafna er það að fornsögur vorar
enda með mannvígum og ósköpum.
Svo kveður Þorsteinn:
Meinleg örlög margan hrjá
mann og ræna af dögum.
Sá er löngum endir á
íslendingasögum.
Síðasta stakan í þessum þætti er
oddhend hringhenda og hljóðar
svo:
Sofnar lóa, er löng og mjó
ljós á flóa deyja;
verður ró um víðan sjó,
vötn og skógar þegja.
Til sölu - VOLVO F 10 - árg. 1982
Nýskoðaður, á góðum dekkjum, ekinn 380.000 km
Verð kr. 1.850.000,- án vsk.
Bílaumboðið Krókhálsi, sími 91-876633/676833
T
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1995
Matgæðingur vikunnar
Indverskir grænmetisréttir:
Karrísúpa Marcíu
- og augnbaunir með sveppum
„Kynni mín af indverskri matar-
gerð spanna yfir 20 ár og enda þótt
hún virðist stundum vera dálítið
margbrotin er hún svo sannarlega
erfiðisins virði ef maður gefur sér
góðan tíma og hefur gaman af und-
irbúningnum," segir Kristinn J.
Albertsson jarðfræðingur. Hann
ætlar að bjóða upp á indverska
grænmetisrétti þar sem komið sé
meira en nóg af alls kyns steikum
og öðrum hátíðarmat svona rétt
eftir jólin.
Karrísúpa Marcíu
60 g smjör
2 stórir laukar
600 ml kjötkraftur
1 sléttfull msk. karrí (Rajah)
1 sléttfull msk. kartöflumjöl
vatn
2 eggjarauður
150 ml ijómi
1 epli afhýtt og niðurbrytjað
salt og pipar
safi úr hálfri sítrónu
steinselja eða karsi
þeyttur ijómi
Smjör brætt á pönnu, niöurbrytj-
uðum lauknuin bætt út í og hann
látinn malla þar til hann er orðinn
mjúkur en ekki brúnn. Kjötkraftin-
um og karríinu bætt út í og hrært
vel í. Þá er kartöflumjölinu, sem
hrist hefur verið saman við lítils
háttar vatn, bætt út í, suðan látin
koma upp og látið krauma í um 8
mínútur. Eggjarauðurnar ásamt
ijómanum eru nú þeyttar og þeim
svo bætt smám saman út í blönd-
una á pönnunni. Hrært vel á með-
an. Þar næst er öllu hellt í blandara
og ephnu bætt við. Súpan er hituð
aftur gætilega og látin krauma við
vægan hita. Bragöbætt með salti,
pipar og sítrónusafa. Að endingu
Kristinn J. Albertsson.
er súpan skreytt með karsa eða
steinselju og þeyttum rjóma.
Augnbaunir
með sveppum
230 g augnbaunir
1,2 1 vatn
230 g ferskir sveppir
30 ml matarolía
1 kúfuð tsk. „cumin“-fræ (Jeera)
3 cm af kanilstöng
150 g grófsaxaður laukur
4 fínsaxaðir hvítlauksgeirar
400 g niðursoðnir tómatar
2 tsk. flnmöluð kóríanderfræ
(Dhaniya)
1 tsk. fínmöluð „cumin“-fræ (Jeera)
1/2 tsk. turmeric-krydd (Haldi)
1/4 tsk. cayenne-pipar eða chili
2 tsk. salt
nýmalaður svartur pipar eftir
smekk
3 msk. söxuð steinselja
Augnbaunirnar eru skolaðar vel
í vatni og laust hýði og gallaðar
baunir hreinsað frá. Baunirnar
ásamt vatninu settar í pott, vel við
stærð, og suðan látin koma upp.
Þá er lok sett á pottinn, hitinn
lækkaður og baunirnar látnar
krauma í um 2 mínútur. Potturinn
tekinn af hitanum og látinn standa
óhreyfður í um klst. Meðan baun-
irnar kólna eru sveppirnir skomir
í sneiðar.
Ohan er hituð á pönnu og þegar
hún er orðin snarpheit eru „cum-
in“-fræin og kanilstöngin sett út í
og steikt í um 15 sek. Þá er lauknum
og hvítlauknum bætt út í og hrært
vel í þar th laukurinn fer að brún-
ast á jöðrunum. Sveppunum bætt
út í og hrært í þar th þeir eru orðn-
ir mjúkir. Tómötunum og malaða
kryddinu bætt út í. Hrært vel í. Lok
sett á pönnuna og hitinn lækkaður.
Látið krauma í um 10 mín. Pannan
tekin af hellunni.
Suðan er látin koma upp aftur á
baununum og þær soðnar við væg-
an hita þar til þær eru orðnar
mjúkar (20 th 30 mín.). Þá er
sveppablöndunni bætt saman við
ásamt salti, ferskum pipar og stein-
selju. Hrært í við og við og látið
maha í um hálfa klst. Kanhstöngin
er svo fjarlægð áður en rétturinn
er borinn fram.
Kristinn skorar á Paul Newton,
eiganda verslunarinnar Pipar og
salt, að vera næsti matgæðingur.
„Hann er jafnvígur á indverska og
austræna matargerð og að auki
tekst honum það, sem ekki er öhum
lagið, að gera enska matargerð
spennandi.
Hinhhðin
Ingibjörg Sólrún uppá-
haldsstjómmálamaðurinn
- segir Þórey Sigþórsdóttir leikkona
Þórey Sigþórsdóttir leikkona sýnir
á sér hina hhðina að þessu sinni.
Það var Þórey sem lék einstæðu
móðurina Ölmu í myndinni Hvíti
dauðinn er sýnd var í Sjónvarpinu
um hátíðarnar.
Ári eftir að Þórey lauk námi í
menntaskóla tók hún inntökupróf
í Leiklistarskólann. „Ég komst inn.
Aðalókosturinn við það var að vera
bundin á íslandi næstu fjögur árin
því ég var eiginlega á leiðinni út.
Mig langar að prófa að búa erlend-
is í einhvern tíma,“ segir Þórey sem
hefur verið lausráðin hjá Borgar-
leikhúsinu og Þjóöleikhúsinu frá
því að hún lauk námi.
Fullt nafn: Þórey Sigþórsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 25. nóvember
1965.
Maki: Enginn.
Börn: Hera Hhmarsdóttir, 6 ára.
Bifreið: Skódi, árgerð ’87.
Starf: Leikkona.
Laun: Mismunandi.
Áhugamál: Leikhús, lestur góðra
bóka, dans og útreiðar. Eitt af fram-
tíðarplönunum er að eignast hest.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottói? Nei.
Hvað fmnst þér skemmtilegast að
gera? Að vera með stelpunni minni.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Aö svara svona spumingum.
Uppáhaldsmatur: Hreindýrakjöt og
Þórey Sigþórsdóttir.
fiskur.
Uppáhaldsdrykkur: Malt.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur i dag? Sigrún Huld
Hrafnsdóttir.
Uppáhaldstímarit. Ekkert sérstakt.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð? Ég vh ekki segja það.
Ertu hlynnt eða andvíg rikisstjórn-
inni? Mér finnst hún ekki hafa stað-
ið sig nógu vel.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Ingrid Bergmann og Tsjek-
hov.
Uppáhaldsleikari: Daniel Day Lew-
is og Ingvar Sigurðsson.
Uppáhaldsleikkona: Ingrid Berg-
mann, Halldóra Bjömsdóttir og
Kristbjörg Kjeld.
Uppáhaldssöngvari: Diddú.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Simpsoníjölskyldan.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Góöar
bíómyndir.
Uppáhaldsmatsölustaður: Eldhús-
iö heima er best.
Hvaða bók langar þig mest að lesa?
Fávitann.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Rás 1.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Enginn
sérstakur.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Sjónvarpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Það
kemur enginn upp í hugann.
Uppáhaldsskemmtistaður/krá:
Sólon eða Kaffibarinn.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Valur.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Að bæta mig í öhu sem
ég tek mér fyrir hendur og halda
áramótaheitið.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
fór til Finnlands með leiksýningu
á kvennaþingiö. Ég fór einnig th
Þýskalands í tengslum við starfið.
+