Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1995, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1995, Page 29
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1995 33 Mikil umræða um lögleiðingu sterkra eiturlyfja í Hollandi: Tillaga um sölu eitur- lvfja í ríkisverslunum Eyþór Eðvarðsson, DV, Hollandi: Þaö er ekki veriö að ýkja þegar sagt er að eiturlyf séu stærsta þjóö- félagsvandamál Hollendinga. Al- þjóðlegir glæpahringir hafa valið Holland, 'hliðið að Evrópu, sem miðstöð fyrir dreifingu og sölu eit- urlyfja til og frá meginlandinu. Aðgerðir yflrvalda til að reyna að stemma stigu viö eiturlyfjavanda- málinu hafa lítinn árangur borið. Rúmur helmingur allra fanga í hollenskum fangelsum situr inni fyrir brot tengd fíkniefnum. Dóm- skerfið er stíflað af fíkniefnamálum og þótt fjöldi lögreglumanna hafi tvöfaldast á undanförnum árum vinnur helmingur þeirra eingöngu að málefnum eiturlyfja. Fjöldi dæmdra afbrotamanna gengur laus því þrátt fyrir að stöðugt fleiri fangelsi séu byggð þá er skortur á fangaklefum. Arlegur kostnaður hollenska ríkisins vegna eiturlyfja- vandamálsins er 230 milljarðar ís- lenskra króna og 10 prósent af efna- hag iandsins eru á einhvern hátt „smituð“ af viðskiptum með eitur- lyf. Vandamálið er risavaxið og umræður um aðrar aðferðir til að glíma við þaö eru stöðugt í gangi meðal Hollendinga. Fíkniefni gegn framvísun frá lækni Heilbrigðisráðherra Hollands gaf í október á síðasta ári leyfí til að hefja tilraunir með að veita fíklum, sem eru háðir sterkum eiturlyfjum, sitt efni í gegnum heilbrigðiskerfið. Mótmæli við þessari stefnubreyt- ingu bárust víða að og til dæmis stóö franski kommúnistaflokkur- inn fyrir mótmælum í Rotterdam. En í rauninni er hér ekkert nýtt á feröinni sem hefði átt að koma á óvart. í sýslunum Halton og Warr- ington, skammt frá Liverpool í Norður-Englandi, hefur í tæp 20 ár eða síðan 1975 verið í gangi sams konar tilraun þar sem hið opinbera hefur veitt fíklum, sem vilja ekki eða geta ekki hætt neyslunni, sterk eiturlyf eins og heróín, amfetamin og kókaín ókeypis gegn framvísun frá lækni. Með öðrum orðum hafa fíklar fengið þá þjónustu sem þeir hafa „nauðsynlega" þurft að fá til að halda þeim frá aíbrotum og óheil- brigðu líferni sem getur til dæmis leitt til útbreiðslu sjúkdóma eins og alnæmis. Þeir sem vilja hætta fá að sjálfsögðu aðstoð. Árangur tilraunarinnar er góður. Til dæmis hefur afbrotum, sem áður voru framkvæmd af þessum hópi, stórlega fækkað og líkur á smiti sjúkdóma eins og alnæmis meðal þessa hóps eru ekki meiri en gengur og gerist. „Sjúklingarn- ir“ lifa eins eðlilegu lífi og hægt er með sín „lyf“. Sams konar tilraun hófst í upp- hafi síðasta árs í Bem, Bazel og Zurich í Sviss og nýleg skýrsla um árangur þeirrar tilraunar hefur orðiö til þess að ríkisstjórnin vill stækka verkefnið verulega. Sviss- neska ríkisstjórnin veitti í fyrra 50 fíklum 35 kíló af heróíni í tilrauna- skyni. Þrátt fyrir hörð mótmæli frá Frakklandi eru það engu að síður þeir sem framleiða heróínið. Heilbrigðisráðherra Hollands gaf i október 1994 leyfi til að hefja tilraunir með að veita fiklum, sem eru háð- ir sterkum eiturlyfjum, sitt efni í gegnum heilbrigðiskerfið. Fíklarflokkaðir undir heilbrigðismál Hollendingar hafa tekið öðruvísi á eiturlyfjavandamálinu en flestir aðrir. Fyrir utan að hafa óbeint gefiö neyslu og sölu á veikari efn- unum frjálsa þá hafa fíklar verið flokkaðir undir heilbrigðismál en ekki dómsmál eins og víðast annars staðar. Síðan 1979 hafa þeir getað fengið fríar sprautur og methadon til að hætta neyslu heróíns. Þeir sem ekki hefur verið hægt að hjálpa hafa getað fengið morfín. Eiturlyfjasjúklingum hefur einnig verið veitt sálfræöileg og félagsleg aðstoð við að leysa úr sínum vandamálum. Það sem hollensk yfirvöld eru núna að byrja með, það er að veita fíklum ókeypis eiturlyf, er að margra mati aöeins rökrétt fram- hald af þeirri stefnu sem fylgt hefur verið. Ástand eiturlyfjamálanna er slæmt í Hollandi en því fer fjarri að vandamálið sé þar verst. í Sviss er ástandið til dæmis enn verra. Fjöldi fíkla þar er áætlaður 40-50 þúsund en 25 þúsund í Hollandi og þó búa helmingi færri í Sviss. Fíkniefnasalarnir á móti lögleiðingu Sérfræðingur í málefnum eitur- lyfja í Hollandi, sem greinarhöf- undur ræddi við vegna þessarar greinar, spáði því að miklar breyt- ingar væru á döfinni í eiturlyfja- málunum í Sviss því búið er að safna nægjanlegum fjölda undir- skrifta til að láta fara fram þjóðar- atkvæöagreiðslu um lögleiðingu eiturlyfjanna. Skoðanakannanir þar í landi sýna að um helmingur Svisslendinga vill reyna aðrar „frjálslyndari" aðferðir til að glíma við vandamálið en hingað til hefur verið beitt. Skoöanakannanir sýna einnig að þeir sem hagnast á eitur- lyfjaviðskiptunum eru í flokki með þeim sem hvað harðast eru á móti lögleiðingu. Þó að það sé ekki á dagskrá hjá yfirvöldum í Hollandi að lögleiða sterkari eiturlyfin þá er stuðnings- menn lögleiðingar víöa aö finna og af þekktum einstaklingum .má nefna lögreglustjórana í Amsterd- am og Utrecht, þá Nordholt og Wiarda. En þeir sem hvað mest hafa haft sig í frammi er félags- skapur áhugafólks um lögleiðingu eiturlyfjanna sem nefnir sig Denk Tenk. í hópnum eru aðilar frá ýms- um sviöum þjóðfélagsins, eins og frá hollenska hæstaréttinum, laga- prófessorar, sérfræöingar innan heilbrigðisþjónustunnar, borgar- stjórar og viðskiptamenn. Denk Tenk setti nýlega fram tfílögur sem enn á ný hafa vakið upp mikla umræðu í Hollandi um lögleiðingu sterkari eiturlyfjanna. Sala fíkniefna í ríkisverslunum Tillögurnar eru í stórum dráttum þær að stofnaðar verði um 150 rík- isverslanir þar sem eingöngu Hol- lendingar eldri en 18 ára geti gegn framvísun sérstakra „eiturlyfja- skiiríkja" keypt sterk eiturlyf á kostnaðarverði sem framleidd yrðu í apótekum. Sala efnanna ut- an þessara sérstöku verslana, sem verða að uppfylla ströng skilyrði, yrði áfram bönnuð svo og inn- og útflutningur. Ein af aðalröksemdum Denk Tenk fyrir lögleiðingunni er aö þannig sé hægt að kippa grundvell- inum undan svartamarkaönum og draga þannig úr afbrotum sem honum fylgja. Neytendur vilji frek- ar kaupa efnin ódýr og löglega og vera vissir um gæðin. En léleg efni kosta fleiri lifið en neyslan sjálf. Sem dæmi þá létu á fyrstu 10 mán- uðum síðasta árs 7 unglingar lífið af því að taka inn efni sem selt var sem XTC en var það ekki. En sjálft efnið XTC eða 3,4-methyleendioxy- N-metamfetamine eða mdma er al- mennt ekki talið lífshættulegt. Með því að selja eiturlyfin ein- göngu gegn framvísun sérstaks eit- urlyfjapassa væri hægt að stöðva straum hinna svokölluðu „dóp- ferðamanna" og fylgjast nákvæm- lega með umfangi og eðli neyslunn- ar. Hver einstaklingur mætti að- eins kaupa takmarkað magn í eirru sem þýðir að ólögleg sala geti ein- göngu þrifist í mjög litlu magni. Svarti markaðurinn ætti þannig sjálfkrafa aö hverfa líkt og gerðist með veikari efnin þegar þau voru gerð „lögleg". Ein aðaltekjulind glæpasamtaka Samkvæmt Denk Tenk þá er aö- alvandamálið með ólöglega eitur- lyfjamarkaðinn það að hann viö- heldur hinum svokölluðu skipu- lögðu glæpum. En fíkniefni er ein aðaltekjuöflunarleið stórra glæpa- samtaka. Með því að leyfa söluna þá væri hægt að ná til þeirra 180 þúsund neytenda sem áætlað er að haldi uppi hollenska „harddrug" eiturlyfjamarkaðnum en ekki bara þeirra 22 þúsund vandræðatilfella sem tillögur heilbrigðisráðherrans miðast við. Fjöldi þeirra sem á í vandræðum með neysluna er aðeins lítið brot af heildarfjölda neytendanna. Langstærsti hluti neytendanna vinnur löglega vinnu og lifir eðli- legu lífi en í gegnum neysluna á þessum ólöglegu efnum viðhalda þeir svarta markaðnum og afbrot- unum sem honum fylgja. Hiö lága verð efnanna þarf sam- kvæmt Denk Tenk ekki að þýða aukningu í neyslu eða fjölgun neyt- enda þvi reynslan af miklum verð- lækkunum á markaðnum er sú að það hefur ekki mikil áhrif á neyslu eða fjölda neytenda. En Beat Kraushaar, sem er leið- andi i baráttunni fyrir lögleiðingu sterkari efnanna í Sviss, sagði í viðtali við hollenska dagblaðið Volkskrant 15. nóvember síðastlið- inn að í kjölfar lögleiðingar í Sviss megi gera ráð fyrir að fjöldi neyt- enda aukist um meira en einn á dag því núna deyi árlega um 400 sviss- neskir eiturlyfjaneytendur af völd- um neyslu lélegra efna. Auðvitað hafa tillögurnar kallað á viðbrögö í þjóðfélaginu og því fer fjarri aö menn séu á eitt sáttir um að lögleiða efnin. Helstu gagnrýnis- rökin eru að tengsl eiturlyfjafiknar og afbrota séu stórlega ofmetin. Lögleiðing efnanna leysi kannski vandann til skamms tíma en það muni koma ný efni og hvað þá? Hvaða tryggingu hafa menn fyrir því að vandamálið leysist og hvaö ef það stækkar og svo framvegis. En þó að þróunin bendi í þá átt að þessi efni verði á endanum gerð lögleg þá hefur síðasta orðið ekki enn veriö sagt um málið. Flestir eru sammála um að eitthvað verði að gera. Spumingin ér hvað og hvern- ig?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.