Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1995, Blaðsíða 30
34
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1995
Elvis Presley hefði orðið sextugur á morgun:
Rokkkóngsins minnst
um allan heiminn
Elvis Presley skrifar undir plötusamning við Hal Wallis árið 1957.
Hinn dáði rokkkóngur Ejlvis Pres-
ley hefði haldið upp á sextíu ára
afmæh sitt á morgun, 8. janúar
1995, ef hann hefði lifað. Elvis lést
16. ágúst 1977, aðeins 42ja ára gam-
all.
Aðdáendur Presleys, sem skipta
milljónum um heim cdlan, eiga
ábyggilega erfitt með að trúa að
hefði konungur rokksins lifað væri
hann farinn að nálgast eftirlauna-
aldurinn. En þannig er þetta nú.
Það versta við þetta allt saman
er líklegast að hin dáða stjarna var
óhamingjusöm síðustu æviárin og
Elvis Presley var einn þegar hann
dó.
Það má segja um Elvis Presley
að hann sé hinn raunverulegi am-
eríski draumur - hann vaknaði
einn morguninn orðinn heims-
frægur maður og áður en langt um
leið vissi hann ekki aura sinn tal.
Elvis Presley var orðinn 18 ára
þegar hann steig sín fyrstu spor í
FRÆÐANÐI, SPENNANDI06 SKEMMTHEGAR BÆKUR
ICSANDINN VCRVUR ÞÁTTTARANDI t FCRÐUMINDIANA JONCS UM NRÍCANDI
ÆVINmAHCIM IANDACRÆDINNAR 00 MANNK/NSSÖOUNNAR
**iL+** .. mmmsmk
fESKUM INDIANA JONES
Afbragðs bækur fyrir börn
og unglinga á öllum aldri.
Verð aðeins kr. 595
FRJÁLS
FJÖLMIÐLUN HF
hljómplötuútgáfu. Það var árið 1953
en þá starfaði hann sem bílstjóri.
Fyrsta upptakan fór fram í Memp-
his í Tennessee og hafa sögusagnir
gengið um að fyrsta platan hafi
verið búin tíl sem afmæhsgjöf
handa móður hans. Elvis var nefni-
lega ákaflega háður móður sinni
alla tíð. Aðrir segja að Elvis hafi
aðeins ætlað að prófa sjálfan sig og
greitt 4 dali fyrir.
Elvis hafði hugsað sér að starfa
áfram sem bílstjóri en eigandi út-
gáfufyrirtækisins Sun Records,
Sam Phillips, heyrði „afmæhsgjöf-
ina“ og sá að þarna var mikill hæfi-
leikamaður á ferðinni. Árið 1954
gerði Sam Phihips plötusamning
við Elvis Presley og fékk góða
hljómlistarmenn til að leika undir
hjá honum. Meðal laga á plötunni
var afmælisgjöfin „That’s All Right
Mama“. Lagið gerði reyndar
blúsarinn Arthur Crudup og er
sagt að útgáfa hans hafi veriö
miklu betri en hjá Presley. Rokk-
kóngurinn hatöi þó þá yfirburði að
vera hvítur.
Hafði yfirburði
Sem hvítur tónhstarmaður gat
Elvis Presley sameinað svarta
blúsinn og hvítu sveitatónlistina í
það sem kallað var rock’n’roh.
Áheyrendur hans voru á öllum
aldri og af öllum kynþáttum. Elvis
sló rækilega í gegn og perlur á borð
við All Shook up, JaUhouse Rock,
Blue Suede Shoes, Aré You Lone-
some Tonight, Retum to Sender
litu dagsins ljós. Ekki má heldur
gleyma laginu Its now or never sem
var nokkurs konar nýútgáfa af 0
Sole Mio þess tíma.
Á eftir hljómplötunum komu
kvikmyndirnar. EMs lék í ótal
kvikmyndum. Þó að Elvis væri
enginn Laurence Ohvier í leiklist-
inni eða Shakespeare í handrits-
gerð mEikaði hann vel krókinn því
myndimar höluðu inn milljónir
dala. Ein besta mynd rokkkóngsins
var jafnframt síðasta kvikmynd
hans áður en hann fór í herinn. Sú
Árið 1973 fékk Elvis Presley skiln-
aö frá eiginkonu sinni, Priscillu
Presley, en þau áttu eina dóttur
saman.
heitír King Creole og er enn sýnd
í sjónvarpi við ágæta hrifningu.
Herþjónusta
í Þýskalandi
Árið 1958 var Elvis kallaður í
herinn og - gegndi herskyldu í
Þýskalandi. Elvis varð snögg-
klipptur og snyrtilegur hermaður
og þannig leit hann út þegar hann
kom tíl heimalandsins aftur árið
1960.
Aðeins ári síðar kom fram í dags-
ljósið undarleg hljómsveit með síð-
hærðum gaurum frá Englandi sem
nefnist The Beatles. Þeir þóttu ekki
sérlega snyrtílegir í þá daga og
voru mikið áhyggjuefni hjá foreldr-
um æskunnar. Ekki bættí úr skák
þegar hljómsveitin Rolling Stones
kom fram á sjónarsviðið.
í Bandaríkjunum fór einnig að
bera á fjórmenningshljómsveitum
með beat-tónhst og varð The Beach
Boys og The Byrds fljótt vinsælar.
Þessar hljómsveitir höföu orðið
fyrir áhrifum frá rokkkónginum
Elvis Presley. Árið 1963 voru það
hljómsveitírnar sem voru vinsælar
en sólóistarnir hallærislegir.
En Elvis Presley náði sér aftur á
strik árið 1967 með laginu Guitar
Man. Árið 1968 var hann stjarna í
eigin sjónvarpsþættí og árið 1969
hélt hann hina frægu Las Vegas
tónleika. Það er htið hægt að segja
um Elvis eftir það enda átti hann
í stöðugri baráttu við aukakílóin
og ofnotaði lyf. Hann átti meira af
peningum en hann gat nokkru
sinni eytt þegar hann lést aðeins
42ja ára að aldri.
Elvis kvæntist Priscillu Presley
en þau skildu eftir sex ára hjóna-
band. Þau áttu saman dótturina
Lisu Marie sem nú er eiginkona
poppkóngsins Michael Jackson.
Búast má við að aðdáendur rokk-
kóngsins Elvis Presley eigi eftír að
flykkjast að heimili hans, Grace-
land í Memphis um helgina og
votta hinum látna minningu sína.
Sumir segja: Kóngurinn er dáinn -
goðsögnin lifir.
Elvis með foreldrum sínum árið
1956.
mBasaaH
aHmamMm