Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1995, Qupperneq 35
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1995
39
Jólahald erlendra námsmanna á Islandi:
Ein þau bestu jól
- sem við höfum upplifað, segja bandarísk hjón
Siðir og venjur jólahaldsins eru mi-
sjöfn eftir löndum. Við tókum tali
nokkra útlendinga sem héldu upp á
hátíðirnar hér á landi og inntum þá
eftir hvernig jólahald og nýársfagn-
aður fer fram í heimalandi þeirra.
Aurehjus Vijúnas, 19 ára Lithái
sem stundar nám í íslensku viö Há-
skóla íslands, segir jólahald í Litháen
fara fram sámkvæmt kaþólskum sið
enda flestir Litháar kaþólskir.
Undirbúningur jólanna byrjar
mjög snemma þar og flestir búnir að
kaupa allar jólagjafir strax í byrjun
desember. Ástæðuna segir Aurelijus
vera að oft er skortur á vörum í Lit-
háen og því vill fólk kaupa það sem
þarf að kaupa áður en allt verður
uppselt.
A aðfangadagskvöld er venjan aö
boðið sé upp á tólf matarrétti fyrir
hvem mánuð ársins. Ekkert kjöt er
haft í þessum réttum. Á jóladag hefst
svo hátíðin. Góður matur er borðað-
ur og eldra fólkið tekur upp pakkana
sína. Börnin opna svo gjafir sínar á
morgni annars dags jóla.
„Á gamlársdag skjótum við upp
flugeldum en ekkert í líkingu við
ykkur íslendinga," segir Aurelijus.
Hann segist hafa haft örlitla heimþrá
um jólin, annars hafi honum liðið
vel hér á íslandi. „Á aöfangadags-
kvöld söng ég með Háskólakórnum
í næturmessu í Langholtskirkju. Það
var virkilega gaman. Og á jóladags-
kvöld fór ég í göngutúr í bæinn og
sá ekki sálu á ferli,“ segir Aurelijus.
Á gamlárskvöld fór hann ásamt
nokkrum vinum sínum að skemmta
sér í miðborginni. „Alhr voru svo
kátir og allir heilsuöu mér og óskuðu
mér gleðilegs nýs árs. Það var alveg
frábært."
Nýársgjafír
Aleksei Chadski, 21 árs gamall
Rússi, íslenskunemi við Háskóla ís-
lands, segir að jóhn séu ekki haldin
hátíöleg í Rússlandi 24. desember
heldur 6. janúar. Rússneska rétt-
trúnaðarkirkjan viðurkennir ekki
gregoríanska tímatalið heldur hiö
svokallaða júlíanska tímatal. Það
tímatal er 13 dögum á eftir gregor-
íanska tímatalinu.
„Nýársdagur er þó þann 1. janúar
en einnig höfum við gamla nýársdag-
inn sem er 13. janúar. Það má því
segja að viö Rússar getum fagnað
nýárinu tvisvar sinnum. Og margir
nýta sér það,“ segir Aleksei. „Einnig
er það venjan í Rússlandi að gefa
nýársgjafir en ekki jólagjaílr. Er það
trúlega vegna þess að nýárinu er
fagnað á undan jólúnum heima.“
Aleksei heldur áfram. „Þegar
kommúnistar réðu ríkjum var ekki
tahð æskhegt að halda jól. Ekkert var
gert til hátíðabrigöa á þeim tímum.
Nú er öldin önnur. Jólin eru orðin
ríkishátíð og stjórnmálaleiðtogar
eins og Borís Jeltsín, forseti Rúss-
lands, fara í kirkju á jólunum."
Aleksei segist hafa haft það mjög
gott hér um hátíðirnar. Sendiherra
Rússlands hafi boðið sér í mat á að-
fangadagskvöld. Svo hafi hann verið
í góðu yfirlæti með sendiherraíjöl-
skyldunni á Hótel Örk á jóladag og
annan í jólum.
„Á gamlársdag var öllum Rússum
boðið til sendiráðsins. Þar var horft
á rússneska sjónvarpið í gegnum
gervihnött. Við skáluðum fyrir nýár-
inu klukkan níu að íslenskum tima.
Þá var klukkan tólf aö miðnætti í
Moskvu. Svo skáluðum við aftur
klukkan tólf að íslenskum tíma. Eftir
miðnætti fórum við nokkur út á
Ægisíðu til að skoða brennuna en
það er stærsta brenna sem ég hef
nokkurn tíma séð,“ segir Aleksei.
Ein bestujólin
Hér á landi eru stödd ung, banda-
rísk hjón, Kristen Osgood og Philip
Wihiam Calvert. Philip er að skrifa
doktorsritgerð í stjórnmálafræöi um
íslensk stjórnmál.
„Við eyddum jólahelginni á
bóndabæ nálægt Selfossi og upplifð-
um nokkuð hefðbundin íslensk jól.
Það má segja að þetta hafi verið ein
bestu jól sem við höfum upplifað
hingað th,“ segja þau.
„Það var svo rólegt yfir öllu í sveit-
inni og ekkert stress. Heima í Banda-
ríkjunum er allt svo yfirþyrmandi
stórt og meiri efnishyggja sem ræður
ríkjum. Um áramótin skoðuðum við
brennu og stærstu flugeldasýningu
sem við höfum séð. Viö eigum eftir
aö hvetja fólk heima til að vera á
íslandi yfir þessar hátíðir."
Pitsaájóladag
Arnold Mulder er 22 ára gamah
Hollendingur sem einnig er í ís-
lenskunámi við Háskóla íslands.
Arnold segir jólahátíðina í Hollandi
venjulega byrja rétt fyrir miðnætti á
aöfangadagskvöld. Þá fara margir í
kirkju. Jóladagur hefst með jóla-
morgunverði og eru margar sæta-
brauðstegundir á boðstólum. Á jóla-
dagskvöld, eftir mat, eru gjafirnar
teknar upp.
Að því er Arnold greinir frá er það
venjan í Hollandi að vera með fjöl-
skyldunni á gamlárskvöld fram til
klukkan tólf. „Eftir það fer fólk í
heimsóknir th vina og kunningja.
Það er ekki mikiö um flugelda um
áramót í Hollandi. Alls ekkert í lík-
ingu við þaö sem ég sá hér. Það er
talið hættulegt, sérstaklega í þorpum
með gömlum húsum. Á hveiju ári
kviknar í gömlum húsum vegna flug-
elda.“
Foreldrar Arnolds komu í heim-
sókn til íslands yfir jólin. „Það lífg-
aði upp á hátíðina því það er erfitt
Bandarísku hjónin Kristen Osgood
og Philip William Calvert eyddu jóla-
helginni á bóndabæ nálægt Selfossi.
að vera einn um jól. Viö boröuðum
á Hótel Loftleiðum á jóladag en það
var eini staðurinn sem var opinn.
Við vorum heppin að hafa pantað
borð með löngum fyrirvara því allt
var fullt og margir urðu frá að
hverfa. Ég þekki útlendinga sem
pöntuðu sér pitsu á jóladag vegna
þess að ekkert annaö stóð til boða.“
Texti: Guðbjartur Finnbjörnsson.
Litháinn Aurelijus Vijúnas Rússinn Aleksei Chadski Hollendingurinn Arnold
fór í göngutúr í bæinn á jóla- hélt upp á jólin meó rúss- Mulder snæddi með foreldr-
dagskvöld og sá ekki sálu. nesku sendiherrahjónunum. um sinum á Hótel Loftlelóum
á jóladag.
DV-myndir Guóbjartur Finn-
^ björnsson
; Þjálfari:
I Michael Jorgensen
4.DAN
ANDLEG OG LIKAMLE6
UPPBYGGING
OG PJÁLFUN
ERSÖGU
RÍKARI!
ÆFINGAR HEFJAST MÁNUDAGINN 9. JANÚAR
í NÝJA ÍR-HÚSINU VIÐ SKÓGARSEL
Byrjendanámskeið: þriðjudaga og fimmtudaga kl. 19:50
Barnanámskeið: jariSjudaga og fimmtudaga kl. 18:50
UnglinganámskeiS: mánudaga og miðvikudaga kl. 19:00
Verð fyrir 3 mán. 5#S00/> kr. og 0#500/> kr. f. börn
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR I
SÍMA: 5 8 8 9 845 og 588 3638
Gó
25
\nepp'
-50
%
Gólfdúkar
: 25-35%
Utsalan er hafin
Filtteppi
30%
Dreglar
Listmálaravörur
f 20%
Flísar f 35% Opið alla daga vikunnar frá 9-21. Innimálning, 5% glans, Kr. 1 .850 5 lítrar
Einnig opið laugardaga og sunnudaga.
Skeifan 8, sími 813500