Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1995, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1995
Fréttir
Prófkjör framsóknarmanna á Norðurlandi vestra:
Fer Páll af listanum
lendi hann í 2. sæti?
Keppinautarnir í Norðurlandskjördæmi vestra: Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson, þingmenn Framsóknar-
flokksins. DV-mynd MÓ
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Framsóknarmenn á Norðurlandi
vestra gangast fyrir prófkjöri um
næstu helgi þar sem raða á í efstu
sæti á lista flokksins fyrir kosning-
arnar til Alþingis í vor. Niðurstaða
prófkjörsins verður bindandi hvað
varðar fjögur efstu sæti hstans. Ekki
hefur verið mikil togstreita í kjör-
dæminu undanfarin ár um forustu-
hlutverkið í flokknum. Þar hefur
Páll Pétursson verið hinn óumdeildi
foringi og enginn hefur ógnað veldi
Höllustaðabóndans.
Nú hefur hins vegar orðið breyting
á. Stefán Guðmundsson alþingis-
maður, sem hefur verið í 2. sæti á
lista flokksins í kjördæminu, sækir
hart að Páh og 1. sætinu og fullyrðir
að listinn verði sterkari ef hann leiði
listann en ef Páll skipi áfram forustu-
sætið. Báðir hafa þeir Stefán og Páll
sagt að á milli þeirra sé ekki mál-
efnaágreiningur og baráttan snýst
því einungis um hvor verði oddviti
listans.
Sjálfstæðismenn á kjörstað?
Talsverð eftirvænting er í kjör-
dæminu vegna prófkjörsins, ekki síst
eftjr að ónafngreindir aðilar birtu
auglýsingu um „draumalista" sinn í
sjónvarpsauglýsingariti sem gefið er
út í Húnavatnssýslum en þar var
raðað á listann þannig að Stefán var
í 1. sæti en Páh var alls ekki á þeim
hsta.
Þá er það ekki til að lægja öldurnar
að heyrst hefur um „samkomulag"
stuðningsmanna Stefáns og sjálf-
stæðismanna í kjördæminu sem á að
ganga út á það að sjálfstæöismenn
úr stuðningsmannahópi Hjálmars
Jónssonar hyggist mæta á kjörstað
og kjósa Stefán í 1. sætið. Með þessu
séu þeir að endurgjalda stuðnings-
mönnum Stefáns greiðann en þeir
eru sagðir hafa verið drjúgir við að
taka þátt í nýlegu prófkjöri sjálfstæð-
ismanna og stutt Hjálmar dyggilega.
Hef heyrt þetta
„Ég hef ekki orðið var við þetta en
hef heyrt lauslega af þessu. Hins veg-
ar held ég að þetta verði ekki í stórum
stíl, ég vona a.m.k. að svo verði ekki.
Annars eru alltaf einhverjar sam-
særisenningar í gangi, sumar réttar
og aðrar ekki,“ segir Páll Pétursson.
Vitað er að óánægja með Pál stafar
aðahega af tvennu. Margir segja að
hann sé hreinlega að faha á tíma sem
þingmaður eftir um tveggja áratuga
þingmennsku. Þá hefur viðvera hans
í kjördæminu ekki þótt nægjanlega
mikil. Fylgismenn Páls gefa lítið fyr-
ir þessi rök og hamra á því að Páll
sé ótvírætt meiri foringi en Stefán
og betur fallinn til að leiöa listann í
kosningabaráttu.
Breyting er ósigur
Stefán Guömundsson hefur lýst því
yfir afdráttarlaust að hann muni una
niðurstöðum prófkjörsins og taka
það sæti á hstanum sem útkoma
hans segi til um. Yfirlýsingar Páls
hvað þetta varðar eru hins vegar
ekki jafn afdráttarlausar.
„Ég vil gera það sem Framsóknar-
flokknum er fyrir bestu. Ef það kem-
ur í ljós að einhver verulegur hluti
Fréttaljós
Gylfi Kristjánsson
framsóknarmanna vill losna við mig
af listanum þá finnst mér það hljóta
að vera álitamál hvort skynsamlegt
sé að ég veröi í framboði. Þaö veikir
minn málflutning verulega ef ég verð
fluttur niður á listanum og held ekki
þvi sæti sem ég hafði. Óbreytt ástand
er sigur fyrir mig en breyting ósigur.
Hitt er þó rétt aö taka fram að 2.
sætið er öruggt þingsæti ef listinn er
sæmilega skipaður," segir Páll.
Elín í 3. sæti?
Aðrir sem gefa kost á sér í prófkjör-
inu eru: Gunnar B. Sveinsson Sauö-
árkróki, Magnús B. Jónsson Skaga-
strönd, Sveinn Sveinsson Siglufirði,
Valur Gunnarsson Hvammstanga,
Herdís Sæmundsdóttir Sauðárkróki
og Elín Líndal V-Húnavatnssýslu.
Engin leið er að spá fyrir um hvort
Páll eða Stefán hreppir 1. sætið en
þingmennirnir verða án efa í tveim-
ur efstu sætunum. Um næstu sæti
er tahð að baráttan verði einnig hörð.
Flestir veðja þó á Ehnu Líndal í 3.
sætið en margir telja að lítill munur
verði á henni og Herdísi, Sveini og
Magnúsi.
Prófkjörið fer fram víða um kjör-
dæmið á laugardag og sunnudag og
lýkur kl. 20 á sunnudagskvöld. Taln-
ing hefst skömmu síðar á Sauðár-
króki og niðurstöðu er að vænta
aðfaranótt mánudags.
mannafélög-
inverða
í samfloti
„Verslunarmannafélag Reykja-
víkur verður í samfloti með
Landssambandi verslunar-
manna, sem aftur fer með umboð
flestra annarra ef ekki allra
verslunarmannafélaga í landinu.
Þannig má segja að verslunar-
mannafélögin verði i samfloti í
þeim kjarasamningum sem eru
fram undan," sagði Magnús L.
Svemsson, formaður VR, í sam-
tali viö DV í gær.
Hann sagði að í dag yrðu kröfur
vers'lunarmanna kynntar vinnu-
veitendum. Miðað við þær lausa-
fregnir sem heyrst hefðu af kröf-
um annarra verkalýðsfélaga
sýndist sér að kröfur verslunar-
manna væru með eitthvað öðrum
hætti. Meira gæti hann ekki sagt
um kröfurnar á þessu stigi.
Norðurland:
Búiðaðopna
skíðasvæðin
Gylfi Kristjánason, DV, Akureyri:
Búið er að opna öll skíðasvæðin
á Noröurlandi og starfsemi þeirra
að komast á fullt skrið eftir erfið-
leika vegna snjóleysis í vetur.
Mjög mikill snjór er nú bæði á
Siglufirði og á Ólafsfiröi og allar
lyftur opnar þar. Sömu sögu er
að segja frá Dalvík, þar er nægur
snjór, og í Hlíðarfjalh við Akur-
eyri er starfsemín að komast í
fullan gang. „Þetta er að verða
eðhlegt, við erum búnir að opna
þrjár lyftur og ef ekki hlánar
verða allar lyftur opnar um
næstu helgi," segir Ivar Sig-
mundsson, forstöðumaður í Hlíð-
arfialh.
Á Húsavík er búið að opna
neðri ljítuna á skiðasvæðinu.
Ekki stendur tii að opna efri lyft-
una í vetur vegna fjárhagserfið-
leika og því verður keppnisfólk
að fara til Akureyrar æth það að
stunda æfingar við hentugar að-
stæöur.
í dag mælir Dagfari
Hafnfirðingar eru vaknaðir af
dvala. Nú er aftur gaman að vera
til. Jafnvel Guðmundur Árni er
kominn á kreik á nýjan leik og
brosir út að eyrum. Er nema furða.
Meirihlutinn er svo gott sem fall-
inn og kratar að ná til sín bæjar-
stjórninni sem þeir töpuðu í kosn-
ingunum í vor!
Það borgar sig stundum að tapa.
Sérstaklega þegar þeir sem sigra
eru ekki sáttir við sigurinn og vilja
í rauninni vinna með þeim sem
töpuðu. Þannig sýnist það vera í
Hafnarfirði, þar sem kratamir töp-
uðu meirihlutanum en era nú að
komast í hann aftur og þar sem
Jóhann Bergþórsson var einn
þeirra sem sigruðu og komust í
meirihluta en er hundóánægður
með þaö.
Hitt er annað aö Jóhann ætlar
ekki að láta kratana komast í
meirihluta með sér nema kaup
kaups. Jóhann er bisnessmaður og
segist vera einn besti sjálfstæðis-
maður sem uppi er í Hafnarfirði
og er satt að segja svo mikill og
góður sjálfstæðismaður að hann
getur ekki átt samleið lengur með
hinum sjálfstæðismönnunum sem
era ekki eins góðir sjálfstæðismenn
og Jóhann.
Meirihluti til kaups
Bestu sjálfstæðismennimir era
bestu einkaframtaksmennirnir og
þegar maður lætur einstakhngs-
framtakið ráða ferðinni samkvæmt
hugsjón og lífsstefnu sjálfstæðis-
manna, hugnast manni ekki hóp-
vinna. Maður starfar einn og fer
sínar eigin leiðir og það er það sem
Jóhann er að gera og ekkert annað.
Hann er ekki að svíkja Sjálfstæð-
isflokkinn heldur er það Sjálfstæð-
isflokkurinn sem er að svíkja hann,
koma aftan að honum með hótun-
um og neita að standa við loforð
um stöðu bæjarverkfræðingsins.
Jóhann vill að vísu ekki vera bæj-
arverkfræðingur en flokksmenn
hans í Sjálfstæðisflokknunm höfðu
lofað honum stöðunni og þótt hann
vilji ekki stöðuna, hkar honum
ekki að menn æth að svíkja lof-
orðið með því að láta hann ekki
hafa stöðuna.
Það er auðvitað bisness hjá Jó-
hanni að vilja bæjarverkfræðings-
stöðuna þótt hann vilji ekki stöð-
una. Og það er fleira bisness hjá
Jóhanni svo sem móðurtölvan sem
Hagvirki átti og húseign í Skúta-
hrauni sem Hagvirki átti og til þess
að þessi kaup geti átt sér stað vih
Jóhann að ýmsar fasteignir bæjar-
ins séu seldar. Hann vill sem sagt
spara eins og sönnum bisness-
manni sæmir og til að geta sparað
vill hann að lausamunir og fast-
eignir sem hann hafði sjálfur að-
gang að áður, meðan hann var for-
stjóri Hagvirkis, séu keypt tU að
spara meö því að selja aðrar eignir.
Jóhann er að semja um þetta við
kratana enda verður að semja þeg-
ar menn gera bisness og heht bæj-
arfélag er tíl kaups og meirUilutinn
er tíl sölu og gömlu flokksmennim-
ir svíkja samninga og eru ekki sam-
starfshæfir í þeirri sölumennsku
sem Jóhann telur að Sjálfstæðis-
flokkurinn og Hafnarfjörður eigi
að beita sér í.
Þetta er nýstárleg staða í bæjarfé-
lagi sem hefur haldið hstahátíðir
og kraftaverkasamkomur og ahð
af sér margan frægan handbolta-
manninn. Raunar má segja að Guð-
mundur Árni Stefánsson hafi að
nokkra leyti gerst brautryðjandi í
viðskiptum með bæjarmál þegar
hann var bæjarstjóri, enda er Guð-
mundur kominn aftur í leitirnar,
brosandi gleiður og glaöur þegar
bisnessmál þeirra Hafnfirðinga eru
í öndvegi.
Guðmundur verslaði óspart með
bæinn og nú síðast er upplýst að
hann hafi gengiö í sérstaka ábyrgð
fyrir hönd bæjarsjóðs til að bjarga
Jóhanni Bergþórssyni þegar Hag-
virki var upp á sitt besta. Guð-
mundur geröi bisness við Jóhann
og Jóhann gerði bisness viö Guð-
mund og það var þá sem Jóhann
lærði að kratarnir eru almennt til
í bisness þegar bæjarmáhn eru
annars vegar og það er meðal ann-
ars ástæðan fyrir þvi að Jóhann er
kominn aftur í bisness við þá.
Það verður spennandi að sjá hvað
kemur út úr þessu. Selur Jóhann
meirihlutann fyrir tölvu eða kaupa
kratarnir Jóhann fyrir stöðu?
Kaupa bæjarfulltrúarnir bæjarsjóð
eða geta þeir látið bæjarsjóð kaupa
einhverja bæjarfuhtrúa? Hvað
kostar meirihlutinn mikið? Aha
vega er ljóst aö sjálfstæðismenn
eiga ekki nokkurn sjens. Þeir eru
ekki nógu mikhr einkaframtaks-
menn. Þeir kunna ekki bisness.
Dagfari