Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1995, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1995
7
Fréttir
Magnús Gunnarsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði:
Nær útilokað að við tök-
um aftur við Jóhanni
„Við höfðum að leiðarljósi að hreinsa til í bæjarkerfinu og leysa aðsteðjandi vanda," segir Magnús Gunnars-
son, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, um fráfarandi meirihluta sjálfstæðismanna og alþýðubandalags-
manna. DV-mynd BG
Ágreiningur hefur verið milli
sjálfstæðismanna í Hafnarfirði og
Jóhanns G. Bergþórssonar. Er
þetta persónulegur ágreiningur
milli þín og Jóhanns, sem rekja má
til úrslitanna í prófkjöri flokksins í
fyrra, eða er um málefnalegan
ágreining að ræða?
- Það hefur ekki verið málefna-
legur ágreiningur milli okkar. Þeg-
ar Jóhanni var tilkynnt að það færi
ekki saman að vera bæjarverk-
fræðingur og bæjarfulltrúi tók
hann þá afstöðu aö mæta ekki á
meirihlutafundi fyrr en þau mál
væru leyst. Það er augljóst að allt
frá prófkjörinu hefur hann í ýms-
um málum gengið þvert á skoðanir
allra hinna sem skipuðu framboðs-
listann.
Túlkarðu þetta þannig að hann
kunni ekki að tapa?
- Ég get ekki túlkaö þetta öðru-
vísi en aö þetta séu særindi af hans
hálfu. Þegar viö fórum í viðræður
við Alþýðubandalagið dróst það
mjög á langinn því að Jóhann vildi
semja við Alþýðuflokkinn og ráöa
ópólitískan bæjarstjóra.
Stundum hefur verið sagt að Jó-
hann G. Bergþórsson hafi vitandi
vits haldið Þorgils Óttari Mathie-
sen niðri í bæjarmálum og ekki
hleypt honum að sem varamanni í
bæjarráði. Er þetta rétt að þínu
mati?
- Ég ætla ekki að leggja mat á
þessar deilur en það er ljóst að
grunnt hefur verið á því góða milli
Jóhanns og Óttars.
Vísa þessu á bug
Þú komst nýr inn í bæjarstjórnina
í vor og fórst strax í það að leiða
Sjálfstæðisflokkinn. Hefur þér mis-
tekist að halda Sjálfstæðisflokkn-
um saman vegna reynsluleysis?
- Ég vísa þessu á bug. í kosning-
unum árið 1990 var sóst stíft eftir
því að ég færi fram fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn. Ég lenti strax í fimmta
sæti listans þó að 28 væru í fram-
boði. Ég var gerður að formanni
fjárhagsnefndar flokksins og hef
gegnt stöðu formanns fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í þrjú ár. í
fyrra fékk ég góöa kosningu í fyrsta
sæti á listanum. Niðurstaðan í
prófkjörinu var mjög skýr. Ég hef
allan flokkinn að baki mér.
Hefur Jóhann stuðning einhvers úr
Sjálfstæðisflokknum?
- Ég get ekki ímyndað mér að
nokkur muni styðja Jóhann Gunn-
ar Bergþórsson eftir það sem á
undan er gengið.
Nú hafa sjálfstæðismenn og alþýðu-
bandalagsmenn átt í meirihluta-
samstarfi í sjö mánuði. Hefurðu átt
í stöðugri baráttu við að halda Jó-
hanni góðum?
- Við Jóhann höfum átt ágæta
samvinnu um marga hluti og höf-
um ekki deilt hart þó að þessar
væringar hafi komið upp. Ég nýt
fyllsta trausts innan bæjarmála-
flokksins og samstarfið við Alþýðu-
bandalagið hefur verið með mjög
gott.
Samkvæmt lögfræðiáliti getur Jó-
hann G. Bergþórsson ekki gegnt
samtimis stöðu bæjarverkfræðings
og bæjarfulltrúa. Hvaða rök eru
fyrir þessu?
- Bæjarverkfræðingur er fagleg-
ur ráðgjafi bæjarstjórnar. Pólitísk-
ur bæjarstjóri er kjörinn til fjög-
urra ára. Verkfræðingur er emb-
ættismaður bæjarstjórnar en ekki
pólitískur leiðtogi. Þar skírskota ég
til sveitarstjómarlaga. Sem nýr
oddviti tel ég þetta ekki fara saman
við hagsmuni Sjálfstæðisflokksins.
í Reykjavík, þar sem Sjálfstæðis-
flokkurinn var við völd, var gert
að skilyrði að menn störfuðu ekki
sem borgarfulltrúar ætluðu þeir í
embætti á vegum borgarinnar.
Útiloka aldrei neitt
Heldurðu að Jóhann G. Bergþórs-
son eigi afturkvæmt til sinna gömlu
félaga ef hann kærir sig um?
- Ég lít svo á að Jóhann Gunnar
sé búinn að yfirgefa Sjálfstæðis-
flokkinn.
Eruð þið tilbúin að taka á móti
honum ef hann sýnir merki um að
vilja sættir?
- Þaö tel ég nær útilokað.
Yfirheyrsla
En þú vilt ekki útiloka það?
- Maður útilokar aldrei neitt í
lifinu.
1 fjölmiðlum undanfarna daga hef-
ur Jóhann Gunnar sagt að hann
hafi ekki óskað eftir bæjarverk-
fræðingsstarfinu heldur verið boðið
það. Var bæjarverkfræðingsstaðan
notuð seni gulrót á Jóhann?
- Nei. Það var búið að auglýsa
stöðuna. Jóhann var einn af um-
sækjendunum og á þeim tíma tal-
inn hæfasti maður til að gegna
þessu starfi.
Er ekki óeðlilegt og ósanngjarnt
gagnvart öðrum umsækjendum að
semja um stöðu bæjarverkfræðings
á sama hátt og þið gerðuð?
- Það kann að vera.
Er ekki óeðlilegt að nota þessa
stöðu sem bitling í svona samning-
um?
- Ég leit ekki á þetta sem bitling
heldur fyrst og fremst staðfestingu
þess að við gengjum að því aö ráða
í stöðu bæjarverkfræðings eftir
kosningar. Jóhann gæti fengið
stöðuna ef hann óskaði eftir því.
Sjálfstæðismenn og Alþýðuflokks-
menn hafa yfirleitt ekki getað
starfað saman í bæjarmálunum í
Hafnarfirði. Heldurðu að möguleiki
á slíku samstarfi geti opnast núna?
- Það hvílir sú skylda á bæjar-
fulltrúum að mynda meirihluta.
Fyrir kosningar lýsti ég yfir að
samstarf við Alþýðuflokkinn kæmi
ekki til greina. Mér finnst það ekki
góöur kostur í stöðunni en ég hlýt
að skoða alla möguleika.
Meirihlutinn í Hafnarfirði hefur
verið iðinn við að kynna skýrslur
um íjármál bæjarins, stjórnsýslu
og nú síðast viðskipti bæjarins við
Hagvirki-Klett. Voru þessi skýrslu-
skrif ekki pólitísk mistök?
- Ég er alfarið á móti því að þetta
sé nokkur skýring. Við höfðum aö
leiðarljósi að hreinsa til í bæjar-
kerfinu og leysa aðsteðjandi vanda.
Fjárhagsáætlun fór 911 milljónir
fram úr áætlun á liðnu ári og við
neyddumst til að taka stór lán til
að forða bæjarsjóöi frá greiðslu-
þroti.
Voru þetta pólitísk mistök?
- Nej. Alls ekki.
Meginstefna Alþýðuflokksins hefur
verið að halda uppi atvinnu með
framkvæmdum i bænum. Er ekki
eðlilegt að verktakafyrirtæki á
borð við Hagvirki-Klett fái fyrir-
framgreiðslur og jafnvel ábyrgðir
hjá bænum til að halda atvinnustig-
inu uppi?
- Ég tel mjög óeðlilegt að verk-
takafvrirtæki fái fyrirframgreiösl-
ur úr bæjarsjóði og fari þannig með
almannafé á sama tíma og við erum
meö fyrirtæki sem þurfa að standa
á eigin fótum og ætlumst til að fyr-
irtæki og einstaklingar standi sig.
Þessi meirihluti hefur ekki veitt
ábyrgðir í bæjarsjóð enda á ekki
að mismuna fyrirtækjum.
Hagvirki-Klettur hefur fengið 7,5
milljónir króna endurgreiddar
vegna lóðarinnar að Helluhrauni
18 í Hafnarfirði þó að lóðin hafi
verið slegin í slandsbanka á uppboði
ári áður. Var þarna um eðlilega við-
skiptahætti að ræða?
- Það finnst mér í hæsta máta
óeðlilegt.
\
Verðum að klára málið
Keypti Alþýðuflokkurinn bæjar-
fulltrúann Jóhann G. Bergþórsson?
- Ég ætla ekki að leggja mat á
það. Það er þó mín skoðun að um
óeðlilega fyrirgreiðslu til fyrirtæk-
is í beinum hagsmunatengslum við
bæjarfulltrúa hafi verið að ræða.
Koma sjálfstæðismenn til með að
kæra lögbrot í ábyrgðaveitingum
bæjarsjóðs til Hagvirkis-Kletts?
- Ef lögfræðingar telja að þarna
sé um lögbrot að ræða verður að
vísa málinu til réttra aðila og þá
munum við gera það.
Hefurðu trú á því að samstarf Al-
þýðuflokksins og Jóhanns G. Berg-
þórssonar geti gengið upp?
-Ég get ekki séö hvernig Jóhann
Gunnar getur byggt það upp. Ég
hef ekki séð merki þess að einhver
af lista sjálfstæðismanna sé tilbú-
inn að vera varamaður Jóhanns.
Hann getur myndað meirihluta
varamannslaus en þá verður hann
að mæta á alla fundi.
Sérðu eftir samstarfinu við Alþýðu-
bandalagsmenn?
- Já, ég geri það. Við höfum átt
gott samstarf við Alþýðubandalag-
ið. Meðan ekki hefur verið mynd-
aður nýr meirihluti erum við enn
í því samstarfi.
Ef nýr meirihluti reynist ekki lang-
lífur kemur þá til greina að taka
upp þráðinn?
- Við höfum átt gott samstarf við
Alþýðubandalagið. Ég sé enga fyr-
irstöðu í því.