Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1995, Síða 7
FIMMTUDAGUR 16. MARS 1995
x>v____________________________Frettir
Organisti 1 Ytri-Njarðvikurkirkju:
Skrifaði bréf
og var rekinn
Ytri-Njarðvíkurkirkja. DV-mynd ÆMK
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Ég vil meina að þeir hafi rekið
mig, þeir séu að losa sig við mig ein-
hverra hluta vegna. Organistafélag-
ið, sem er mitt stéttarfélag, stendur
ekki einu sinni með mér í þessu
máli. Ég veit ekkert hvert ég á að
kæra,“ segir Gróa Hreinsdóttir sem
starfað hefur sem organisti í níu ár
viö Ytri-Njarðvíkurkirkju og starfar
einnig sem tónlistarkennari við Tón-
listarskólann í Keflavík. Nýr organ-
isti hefur þegar tekið við organista-
starfmu í Ytri-Njarðvíkurkirkju.
Að sögn Gróu virðist deilan snúast
um bréf sem hún sendi sóknarnefnd
Ytri-Njarövíkurkirkju nýlega þar
sem hún sagðist hafa áhyggjur af því
að kirkjulegt starf og messusókn
hefði minnkað mikiö að undanfómu.
í bréfinu sagðist hún ekki geta sætt
sig við að sjá kirkjulífið fara svona
niður og kynnti hugmyndir um að
fá fleiri kóra, meðal annars barna-
kóra, til að rífa starfsemina upp. Ef
ekki gæti sóknarnefndin auglýst
stöðu sína.
„Ég ætlaði aldrei að hætta og sókn-
amefndin hefur ekki sagt mér upp.
Lögfræðingur minn hefur sent henni
bréf en því hefur ekki verið svarað.
Sóknarnefndin segir að fjórir lög-
fræðingar séu sammála því að það
sem stóð í bréfinu mínu hafi verið
uppsögn og hún geti ekki komið til
móts viö kröfur mínar. Ég vildi að-
eins fá að ræða þessar hugmyndir
og komast aö niðurstöðu. í staðinn
láta þeir mig fjúka,“ segir Gróa.
„Lögmenn túlka bréfið sem upp-
sögn ef við göngum ekki að hennar
skilmálum. Við gátum ekki komið til
móts við kröfur hennar þar sem okk-
ur vantar fjármagn. Við vorum að
ljúka viðgerð á kirkjunni en hún
kostaði 11 miUjónir og nýtt pípuorgel
kostaði á níundu milljón. Það væri
gaman að geta aukið við tónhstar-
flutning en peningaleysið setur það
úr skorðum í bili,“ segir Leifur A.
ísaksson, formaður sóknarnefndar
Ytri-Njarðvíkurkirkju.
TELEFUNKEN
ÞÝSK HÁGÆÐASJÓNVARPSTÆKI
MEÐ SURROUND STEREO
aðeins
89.900,
Ath. Aðeins (xirf að stinga Surround-hótölurum í samband við tækið!
Tdefunken F-531 C STEREO NIC
er 28" sjónvarpstæki:
Black Matrix-flatur glampalaus
skjór • Surround-umhverfishljóm-
ur • PSI (Picture Signal Improve-
ment) • ICE (Intelligent Contrast
Electronic) • Pal, Seœm og NISC-
video • 59 stöSva minni •
Sjólfvirk stöÖvaleit og -innsetning
• Mögu-leiki ó 1 Ó:9 móttöku •
Islenskt textavarp • Tímarofi •
40W magnari • A2-Stereo
Nicam • 4 hótalarar • Tengi fyrir
heyrnartól og sjónvarpsmyndavél
• Aðskilinn styrkstillir fyrir
heyrnartól • 2 Scart-tengi o.m.fl.
LÁTTU EKKI OF MIKINN HRAÐA
VALDA ÞÉR SKAÐA!
Wrád
ORLOFSFERÐIR 1995
Barcelona - stærsta borg við Miðjarðarhaf.
Glæsileg gisting, Citadine, við aðalgötu borg-
arinnar, „Römbluna". Stúdíó og íbúðir. Stutt
á ströndina. Sólbaðsaðstaða á efstu hæð,
sána, sturtur, veitingar. Nýbyggt 1994.
Fararstjóri: Astrid Helgadóttir.
Skoðunarferðir um borgina og nágrennið,
dýragarður, skemmtigarður, ópera, leikhús,
knattspyrna, allt í gæðaflokki, verðlag gott,
stærsti markaður Spánar við Römbluna.
Upplagður staður allt árið.
FANALS
LLORET
DE MAR
Kynningarvika 17.-22. mars Scandic Hótel Loftleiðir
Katalónskir tónlistarmenn og dansarar spila og dansa alla daga í hádeg-
inu og á kvöldin. Katalónskir matreiðslumenn bjóða katalónska rétti
og vín, þar á meðal salfiskrétti á katalónska vísu. Högni Rafnsson verð-
ur alla daga til viðtals á hótelinu frá kl. 14-17. Hver matargestur fær
númer og verður dregið úr þeim síðasta kvöldið. Þeir heppnu fá viku-
ferð á Alva Park fyrir 2 og aðrir 2 vikudvöl á Citadine, Barcelona.
ÆÍU
Playa de Fanals ■ Lloret de Mar
Costa Brava
Glæsilegt íbúðahótel
;Stærð 81,9 m2. 2 svefnherbergi, setustofa, eld-
hús, snyrting, svalir, sundlaug, barnaklúbbur
(gæsla allan daginn með dagskrá fyrir börnin).
Aðstaða til þrekþjálfunar. Ibúðin er útbúin öllum
nýtískulegustu þægindum. Stutt á hreina bað-
strönd (um 100 m). Kyrrlátur staður en hálftíma
gangur yfir höfðann á LLORET DE MAR. Fara-
stjóri: Högni Rafnsson. Skoðunarferðir um Ka-
taióníu.
Verð á mann miðað við 2 í íbúð í 2 vikur frá kr. 70.000
Verð á mann miðað við 2 í íbúð í 3 vikur frá kr. 85.000
Verð á mann miðað við 3 í íbúð í 2 vikur frá kr. 60.000
Verð á mann miðað við 3 í íbúð í 3 vikur frá kr. 80.000
Verð á mann miðað við 4 í íbúð í 2 vikur frá kr. 50.000
Verð á mann miðað við 4 í íbúð í 3 vikur frá kr. 70.000
Innifalið: Flyg Kef.-Ams.-Bcn. og til baka eða Kef.-Bcn.-Kef.
í beinu flugi frá 8. júní til 14. sept. Akstur frá flugvelli til Alva
Park og til baka. Verð á mann er miðað við flugverð og gengi
í dag. Barnaverð að 12 ára aldri kr. 32.000 um Amsterdam en
kr. 25.000 í beinu flugi og góður unglingaafsláttur.
ISTRAVEL
ferðaskrifstofa
Gnoðarvogi 44, sími 568-6255,
fax 568-8518.
¥