Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1995, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1995, Qupperneq 12
FIMMTUDAGUR 16. MARS 1995 12 Spumingin Ætlarðu að nýta þér kosningarétt þinn 8. apríl næstkomandi? ívar Ólafsson nemi: Já, ég er ákveö- inn í aö gera þaö. Guðjón Oddur Bjarnason atvinnu- rekandi: Já, ég er ákveðinn í því. Elsa Hermannsdóttir i verkfalli: Viö höfum engan kosningarétt á íslandi og höfum því ekkert um þetta aö segja. Það er stillt upp á lista flokk- anna að okkur forspurðum. Danía Árnadóttir húsmóðir: Já, að sjálfsögðu ætla ég að nýta kosninga- réttinn. Hjördís Ingadóttir kennari: Já, en ég er ekki búin að ákveða hvað ég ætla að kjósa. Erla Sigurðardóttir kennari: Já, ég ætla að gera það. Lesendur Sæbjörnog Stórsveitin G.R.A. skrifar: Laugardaginn 11. mars sl. bauðst aðdáendum stórsveitartóna enn einu sinni að hlýða á þessa tónlist í Ráð- húsi Reykjavíkur. - Þama var aftur á ferð Stórsveit Reykjavíkur og nú ásamt Léttsveit Tónmenntaskóla Reykjavíkur. - Kynnir á tónleikun- um var Ólafur Þórðarson. Báðar voru hljómsveitirnar undir stjóm Sæbjörns Jónssonar sem hef- ur haft veg og vanda af því að koma þessari tónlist á framfæri opinber- lega síðustu árin. Reyndar átti Stór- sveitin þriggja ára afmæh nýlega og ætti því að geta haft nokkuð fast land undir fótum. Borgin hefur þar gefið gott fordæmi og mætti enn bæta við. Meö hljómsveitinni að þessu sinni mættu þau Ellý Vilhjálms og Ragnar Bjarnason sem eru óumdeilanlega bestu söngvarar sem við eigum þegar stórsveitarlög em annars vegar. Auk þess að vera frábærir söngvarar ein- ir og sér fyrr og síðar. Það var hreint stórkostlegt aö hafa þessa söngvara meö hljómsveitinni. Tæknin veldur þeim ekki erfiðleikum og þau skiluðu sínum hlutverkum eins og best gerð- ist hjá hinum þekktari söngvurum í þessum tónhstargeira fyrr á ámm. Lögin „Here’s that rainy day“, sem Ragnar Bjarnason söng, og „The more I see you“, síöara lag Ellýar Vilhjálms, áttu sérstaklega hug áhorfenda og fengu þau innilegar þakkir með löngu lófataki. Lögin sem leikin voru em öh sígild stórsveitarlög og það var mikiö um „brazz-sound" eins og vera ber og kemur oftast best fram í endingum þessara verka. Það er ekki hávaðinn sem ræöur í þeim tilvikum heldur „sándið" sjálft, þessi þýði samhljóm- ur sem einkennir alltaf bestu djass- og stórsveitirnar. Útsetningarnar vom frábærar og gerðar af öörum snilhngunum til í faginu (t.d. John Fedchock, Sammy Nestico - einnig höfundi lagsins Pair of Aces og Frank Mantooth). Já, Sæbjörn var með tvær hljóm- sveitir í takinu; Stórsveitina og Létt- sveit Tónmenntaskólans sem hann á heiður af að æfa og halda utan um. Verulega skemmtilegt var að heyra og sjá taktana hjá hinum ungu hljóð- færaleikumm; stórsveitartakta gömlu „big-bandanna“ með réttum „sveiflum" trompetanna og básúna. Stórsveitin er vel mönnuð eða ábyggilega eins vel og hægt er nú á tímum. Það eru bara ekki margir sem leggja orðið fyrir sig eða vilja gefa sál sína í svona áhugamanna- starf. Það er mikh eftirsjá. Þarna eru þó enn kempurnar Ámi Elfar og Björn R. Einarsson og svo Stefán S. Stefánsson sem löngu er orðinn einn burðarásanna í þessum sérstaka tón- menntahópi. En manni verður hugsað til fram- haldsins. Hvað endast menn lengi til að gefa hæfileika sína og krafta af áhuganum einum saman? Er ekki hægt að koma málum svo fyrir að stórsveitartónleikar verði fastur hð- ur í hstalífi borgarinnar? Við þurfum á þess konar tónhst að halda, líka við ýmis tækifæri utan sérstaks tón- leikahalds svo sem við opinber tæki- færi á ýmsum tímum. Ég trúi því að hægt sé að bjóöa upp á svona tónleika með föstu sniði, t.d. í Borgarleikhúsinu, svo sem einu sinni í mánuði, a.m.k. að vetrinum. Þeir gætu verið í einum salnum á laugardegi og jafnvel sunnudagseft- irmiðdegi. Þessu mætti koma inn í dagskrá leikhússins ásamt leiksýn- ingum. Er ekki hægt að bjóða svona tónhst í pakkaferðum til borgarinn- ar, líkt og leikhúsferðir? Ekki ókeyp- is, heldur sem hluti skemmtanapró- gramms fyrir áhugasama. Það þarf bara að festa Stórsveitina í sessi með skynsamlegum ráöagerðum. Til hvers er að kjósa? Árni Einarsson skrifar: Eftir því sem mér skilst er mikil og almenn óánægja m'eð hvemig ís- lenskir stjórnmálamenn hafa farið að ráði sínu í flestum greinum þjóðfé- lagsins. - Þeir eru með fingurna í flestum málum og ráða því sem þeir vilja ráða, þótt valið eigi að vera al- mennings, og þeir skipta þjóðarkök- unni með góðu samþykki innbyrðis á milli sín og venslamanna sinna, ráða í stöður og úthluta opinberum styrkjum, rétt eins og þeir hafi með þá að gera einir og sér. Þetta er auð- vitað óþolandi og fólk almennt er búið að fá nóg af þessu hátterni. Og svo á að fara að kjósa, eina ferð- ina enn. - Allir vita þó að engu máh skiptir hvaða flokkur fær mest eða minnst. Sá sem minnst fær getur veriö kominn í ríkisstjórn eftir kosn- ingar og ráðið til jafns við þann flokk sem flest atkvæðin fær. Atkvæða- vægið er út í hött þar sem því er skipað eftir búsetu en ekki eftir lög- málum ftjálsra kosninga eins og þær gerast vítt og breitt um heiminn. Til hvers er þá að kjósa? Hefur það nokkuð upp á sig? - Er ekki besti kosturinn að sitja bara heima á kjör- dag. Ástandið getur ekki versnað við það og það batnar heldur ekki þótt við kjósum. Eru kennarar ekkí uppalendur? Soffia skrifar: Mér þykir nú orðið þröngt fyrir dyrum í uppeldis- og skólamálum okkar þegar kennarar neita að gegna sínu hlutverki; nefnilega kennslu- og ^^ftíélns^9,90.jpín(itan jJPJ! - eða hringið í síma 56#2700 kl. 14 og 16 uppeldisskyldu sinni. Ég veit ekki betur en að kennarar séu uppeldis- menntaðir og að því leytinu standi þeir framar mörgum uppalendum, mæðrurn og feðrum, sem sjá um upp- eldi barna sinna. Kennarar virðast gleyma hlutverki sínu að fullu sem uppalendur auk þess sem þeir virða skyldu sina sem uppfræðarar að vettugi. í raun ætti að setja slík lög í landinu að kennar- ar gætu ekki og mættu ekki fara í verkfah. Svo rík er þeirra skylda og þeirra starf við þjóðfélagið. Geta for- eldrar farið í verkfah, sett bömin á götuna og sagt; hið opinbera verður að taka við þeim, við höfum hvorki tíma, fjármagn né löngun til að ala upp börnin við þessar aðstæður? Þetta gera kennarar. ÖWSUl-l Gleyma kennarar uppeldishlutverk- inu? Meiri verkef ni viðHelguvík Skarphéðinn H. Einarsson skrif- ar: Olíuflutningar um Reykjanes- braut eru daglegt brauð. Esso skipar upp olíu í Hafnarfirði og Sheh og Olís x Reykjavík. Dráttar- bílar með eldsneytisvögnum aka Reykjanesbrautina daga og næt- ur með eldsneytí til Keflavíkur- flugvallar. Þarna mætti bæta um betur. Skipa mætti upp ohu í Helguvík og fá aögang að höfn- inni hjá NATO. Ég er viss um að leyfi fengist fyrir þeirri fram- kvæmd. - Síðan mætti leggja leiðslu þá 3-4_ km sem eru til Leifsstöðvar. Ég sá nýlega að- stöðu þá sem menn á Suðurnesj- um hafa komið upp í Helguvik og trúlega eiga mörg mannvirki eftir að rísa þarna. Byggðakvófiog banndagakerfi Sigurður G. Haraldsson skrifar: Sjávarútvegsmálin eru sífellt í brennidepli. - Ég vil eindregið fordæma einkaeign útgerðar- manna á kvóta og hana á að af- nema að fullu. Það er mál til kom- íð aö blaka við sægreifunum. Þaö segir sig sjálft að óhæfa er að eig- andi kvóta í htlu sjávarplássi geti selt lífsbjörgina úr byggðarlag- inu, tekið hana frá fólkinu. Það verður að koma á byggðakvóta og banndagakerfi þannig að ákveðna daga sé bannaö að veiða. Annað eins kerfi hefur nú verið sett á laggimar og engum þótt mikið. Verðbólgan -óráðingáta Sigurbörn skrifar: Hvað vita menn um verðbólgu á þessum tíma? Það er ekkert lík- legra en að hún xjúki upp að kosningum loknum. Verði samið við kennara á þeim nótum sem þeir liafa farið fram á og svo BSRB-fólkið er ekkert annaö til- tækt en að leita eftir erlendum lánum enn einu sinni. Og þá fer líka aht á skrið; verðhækkanir, gengisfelhng, vaxtahækkun og svo áframhaldandi kaupkækkan- ir. Það er þvi aht óráðið um verð- bólgu á þessarí stundu. Lögákennara einsogsjómenn K.Á. hringdi: Ég minnist þess sem sjómanns- kona að í ársbyrjun sl. árs efhdu sjómenn th verkfahs. Ekki liðu neraa tvær vikur þar th bráða- birgðalög höfðu veriö sett á þá. Hvers vegna skyldi það nú vera? Kannski vegna mikhvægis sjó- mannastéttarinnar? Líklegast. En eru kennarar þá lítils sem einskis virði? Auðvitað á aö setja lög á kennara jafnt og sjómenn. Eða fyrir hvaö voru þá sjómenn að gjalda? Aldurstakmark -lögeðaólög? 14.07.77 skrifar: Á flestum ef ekki öllum skemmtistöðum (svo sem á diskó- eða bahstöðum) landsins er ald- urstakmark 18 ár. Unglingur sem fæddur er 25.08.77 kemst ekki inn á skemmtistað fyrr en þarrn 25.08.95. Jafnaldri hans, fæddur 16.01.77, kemsthins vegar inn eft- ir 16.01.95. Samt eru þessir tveir einstakhngar búnir aö vera sam- an í bekk, fermast saman, spila saman fótbolta í sama flokki og fleira í þessum dúr aha sína tíð! Með þessum fáránlegu lögum, sem eru í raun „ólög“, er verið að stia i sundur vinum og félög- um. Þessum ólögum þarf að breyta og láta „árið“ gilda hér eins og í flestum öðrum greinum, t.d. varöandi fermingu, skóla o.s.frv.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.