Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1995, Page 27
FIMMTUDAGUR 16. MARS 1995
39
Smáauglýsingar
Fréttir
Evrópusamkeppni um
ferða- og umhverfisverðlaun
Bátar
Bátasmiðjan sf., Stórhöfóa 35,
sími 587 8233.
/ Varahlutir
QSvarahlutir
HAMAflSHÖFÐA 1 • 112 REYKJAVlK - S/WI 078744
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
íslendingar eiga þess kost aö taka
þátt í samkeppni um evrópsk ferða-
og umhverfisverölaun sem veitt
veröa í fyrsta skipti á þessu ári.
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins hefur í samráði viö aðildar-
ríki EES stofnað til keppninnar um
verölaunin og fer forkeppni fram í
öllum aðildarríkjum samtakanna
sem eru 17 talsins. Keppnin var
kynnt á blaðamannafundi á Akur-
eyri í gær.
Tilgangurinn með keppninni er að
efla ábyrgðarkennd gagnvart um-
hverfinu við skipulag og framkvæmd
feröaþjónustu og eiga verðlaunin að
vera umbun fyrir viðleitni sem talið
er til fyrirmyndar, til þess að koma
á góðu jafnvægi á milli ferðamála-
stefnu og virðingar fyrir umhverf-
inu.
Sérstök dómnefnd, sem skipuð er
Davíð Stefánssyni frá samgöngu-
ráðuneytinu, Magnúsi Oddssyni
ferðamálastjóra, Vilhjálmi Þ. Vil-
hjálmssyni frá samtökum sveitarfé-
laga, Sigurði Þráinssyni frá um-
hverfisráðuneyti, Sigurði Jónssyni
frá Ferðamálaráöi og Arnari Má Ól-
afssyni ferðamálafræðingi, mun
velja einn íslenskan aðila til þátttöku
í lokakeppni aðila frá öllum löndun-
um. Verðlaun til sigurvegarans
verða m.a. fólgin í geysilegri kynn-
ingu á viðkomandi stað sem ferða-
mannastað þar sem umhverfismál
hafa verið tekin föstum tökum og
verða um 300 blaðamönnum boðið til
verðlaunaafhendingar á þeim stað
sem verðlaunin hlýtur.
Þau skilyrði sem sveitarfélög eða
staðir sem óska þátttöku í keppninni
þurfa að uppfylla eru að vera ferða-
mannastaðir, bjóða a.m.k. 50 gisti-
rúm og að þar hafi verið framfylgt í
a.m.k. tvö ár ferðamálastefnu sem
sé til fyrirmyndar að því leyti að hún
samræmi feröaþjónustu og tillits-
semi við umhverfið.
Sveitarfélögum víðs vegar munu
veröa send frekari gögn vegna
keppninnar en umsóknum á að hafa
verið skilað íslensku dómnefndinni
ekki síðar en 30. júní nk.
Gabriel höggdeyfar, 20% verölækkun,
ísetning ef óskað er, AVM driflokur 1
flestar gerðir, verð 9.900, sætaáklæði
4.950, kúplingssett frá 7.900, hunda-
grindur á 2.470 og margt fleira. G.S.
varahlutir, Hamarshöfóa 1, s. 676744.
Jeppar
Ford Bronco sport ‘74 til sölu. Skipti á
ódýrari eða dýrari, jafnvel vélsleóa.
Upplýsingar i síma 554 2197.
Einn öflugasti og fallegasti jeppi
landsins, Chevrolet Blazer, árg. ‘86, vél
3,8 með blower. Einn með öllu. Til sýn-
is og sölu á Bílasölunni Nýi bíllinn,
Hyrjarhöfóa 4, s. 91-673000.
Til sölu Ford Ranger ‘83, mikió breyttur,
skoðaður ‘96. Skipti möguleg. Upplýs-
ingar í síma 666367.
m Sendibílar
Mercedes Benz, árg. ‘85, ek. 320.000
km. Verð aðeins kr. 690.000.
Upplýsingar í síma 985-20661 eóa í
heimasíma 91-45661.
$ Þjónusta
OrVAHPSVlRKJA
MBSIAn
Loftnet - Kaplar - Stungur - Diktafónar.
Eitt mesta úrval á landinu.
Radióvirkinn, Borgartúni 22,
pósthólf 1071, 121 Reykjavík,
simi 5610450, fax 5610455.
Formaður Vopna, Gunnlaugur Einarsson, Inga Maria Ingadóttir, formaður
Sjafnar, og nýja björgunarbifreiðin. DV-mynd Ari
Vopnafjörður:
Ný biörgunar-
bifreið
Ari HaUgrímsson, DV, Vopnafirði
Björgunarsveitin Vopni á Vopna-
firði hefur fengið nýja Nissan Patrol
björgunarbifreið árgerð 1994 með 140
hestafla dísilvél. Skráð fyrir sex far-
þega. Verð til sveitarinnar var kr.
2.760.000. DNG á Akureyri flutti bif-
reiðina inn en Bílvirkinn/Húsbílar
hf. sá um breytingar.
Kaupin voru fiármögnuð af ýmsum
aðilum. Slysavarnadeildin Sjöfn
lagöi fram 1,2 millj. króna. Slysa-
varnafélag Islands veitti 500.000
króna styrk og framlag Vopna var
800.000 krónur. í bifreiðinni eru GPS
staösetningartæki, tvær talstöðvar
og sími og hún er með driftengt spil.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA
VALDA ÞÉR SKAÐA!
Abalfundur
Aðalfundur Marel hf. verður haldinn fimmtudaginn
23. mars 1995 kl. 16:00 í húsnæði félagsins
að Höfóabakka 9, Reykjavík.
Dagskró:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
4.04 grein samþykkfa félagsins.
2. Breytingar á samþykktum félagsins
til samræmis viS breytingar á lögum
nr. 32/1978 um hlutafélög.
3. Onnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar
félagsins liggja frammi á skrifstofu félagsins,
hluthöfum til sýnis, viku fyrir aSalfund.
ASgöngumiSar og fundargögn
verSa afhent á fundarstaS.
Stjórn Marel hf.
gujJEHOAR
^ ... ÞVI AÐ FEGURÐ ÞARF UMHYGGJU
LIMBOÐS- OG DRKIFINGARAÐUJ
ÍSLENSK - AUSTLRLENSKA
IIEILDVERSLUN
Kynning í Nesapóteki kl. 14 - 18 í dag.
SÖLUSTADIR: Árbæjarapúlck, Holtsapótck, Laugavegsapólck, Ncsapótck Eiðistorgi, Ölfusapótck-Þorlákshöfn, Snyrtistofan Edda-Hótel Sögu, Snyrtistofan Tara-Akurcyri, Versl. Mangó-Keflavík.
. Isabelle
Lancrav
PARIS /