Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1995, Side 28
40
FIMMTUDAGUR 16. MARS 1995
9 9*17*00
Verö aðeins 39,90 mín.
? vinningsnúmer
H Lottó
i21 Víkingalottó
31 Getraunir
~ÚRVAL'llTSYN
99-1750
Verb 39.90 mín.
MARMARIS
ferdavinningar í
hverri viku - þu gætir
átt ævintýrí í vændum!
Muniö að svörin viö spurningunum
er aö flnna í feröabaéklingi Úrval
Útsýn .Sumarsól". Bæklinginn getur
þú fengiö hjá ferðaskrifstofunni
Úrval Útsýn.
4' 4
Verð kr. 39,90 mín.
Taktu þátt. Þú gætir
unnið Ijúffenga
fjölskyldu-
veislu fyrir sex.
Munið aö svörin við
spurningunum er aö
finna 7 blaðaukanum
DV-helgin sem fylgdi DV
síðasta föstudag.
Grensásvegi 5
S. 588-8585
Merming
Chopin allur
Heildarútgáfur á tónlist eru í eðli sínu fáránlegt
fyrirbæri. Hve margir aðdáendur Síbelíusar
koma til með að setjast niður með geislaplötu-
bunkann sem spannar gjörvöll sönglög hans til
þess eins að hlusta á örstuttar vögguvísur sem
hann samdi sem unglingur í bríaríi? Hver kær-
ir sig í raun og veru um að hlusta á ótal tónlist-
arslitur á safnplötu sem gætu hugsanlega verið
eftir Mozart? En auðvitað er söfnunaráráttan
sem slík í hæsta máta fáránleg. Safnarinn þarf
ekki endilega að geta hlustað á gjörvallan Síbel-
íus, heldur að eiga hann gjörvallan. Eignarhald-
ið yfir gjörvallri framleiðslu tónskáldsins er
hluti af nautn tónlistaráhugamannsins. Svo er
spuming hvort einum tónlistarmanni eða
hljómsveit sé treystandi til þess að túlka ævi-
starf tónskálds, hvort ekki þurfi heilan herskara
ólíkra túlkenda til að koma til móts við marg-
háttaða hæfileika sumra tónskálda.
17klukkustundir
Mér flaug þetta sisvona í hug er ég fékk í hend-
ur ótrúlega heildarútgáfu, nefnilega gjörvalla
píanótónlist Chopins, útgefna af Naxos-sam-
steypunni. Ótrúleg er þessi heildarútgáfa,
fimmtán geislaplötur eða um 17 klukkustundir
af píanótónlist, kannski fyrst og fremst fyrir það
að hún kostar ekki nema 8.900 krónur. Sem
helgast að hluta cif því að það eru ekki As-
hkenazy, Pollini eða aðrar dýrar stórstjömur
sem véla um túlkunina, heldur óþekktur píanó-
leikari frá Tyrklandi, Idil Biret að nafni. Og ég
sem hafði ekki hugmynd um að klassískur
píanóleikur væri stundaður í Tyrklandi. Senni-
lega mundi engum nema þeim Naxos-mönnum
koma í hug að leggja í slíka tónlistarlega tví-
sýnu. Og eins og venjulega gengur dæmið upp
hjá þeim - eða næstum því.
Ég nefni ólíka .túlkendur hér að ofan vegna
þess að enginn píanóleikari í heiminum er svo
mikill listamaður að hann komist klakklaust frá
Chopin eins og hann leggur sig. Kannski komst
Artúr gamli Rubinstein næst því. Pollini og Zim-
merman túlka píanókonserta Chopins sennilega
best allra, Rubinstein leikur ballöðumar, mas-
úrkana og sónöturnar af tærri og ljóðrænni
snfild, en Dinu Lipatti á meira tilkall tfi vals-
anna en flestir aðrir.
Enginn veifiskati
Og þar sem ég hef hvorki tíma né þolinmæði
tfi að leita uppi ýmiss konar tónlistarlegt smælki
og rarítet, lét ég mér nægja að taka stikkprufur
Tónlist
Aðalsteinn Ingólfsson
hér og þar í þessum Chopin-pakka frá Naxos
og hlusta á þær upp tfi agna. Við fyrstu áheym
varð mér ljóst að Idil Biret er enginn veifiskati.
Enda hlaut hún einna bestu píanókennslu sem
völ var á, bæði hjá Alfred Cortot og Wfihelm
Kempff og hefur leikið undir stjóm Monteaux,
Bolt, Mackerras o.fl. í gegnum Cortot, sem nam
hjá lærisveini Chopins sjálfs, hlýtur hún að
hafa fengið eitthvaö af hrynjandi meistarans í
æð.
Leikur Idil Biret á pólonesunum er frísklegur,
ýkjulaus og vel „mótíveraður", og framhaldið í
ballöðunum og masúrkunum staðfestir það álit.
Þar er spilamennskan aftur látlaus, eiginlega
einum of ópersónuleg; kannski helst til inn-
hverf líka, þótt píanóleikarinn ræki í hvívetna
trúnað við sjálfa tónlistina. Sónöturnar sýna
held ég best styrk Idfi Biret; eyrað hefur á tfi-
finningunni að hún beinlínis móti tónhstina
meðan hún spilar, þó svo hún gefi ef til vill
ekki eins mikið af sér og margir aðrir. Píanókon-
sertarnir eiga sennfiega síst við hana, enda þyk-
ir mér einnig gæta ójafnvægis mfih hennar og
hljómsveitar í þeim upptökum.
í heildina séð fer Idil Biret alls ekki fila út úr
samanburði við bestu Chopin-túlkendur. Hún
hefur óbrigöulan smekk, ágæta dómgreind og
prýðilega tækni. Og þegar tekið er tilht til verðs,
er þetta tónlistarpakki sem sérhver aðdáandi
píanótónhstar getur verið fullsæmdur af að eiga.
Chopin: Paino Music (Complete),
idil Biret, pianó,
ásamt tékkóslóvakisku Filharmóníuhljómsveitinnl,
3x5 geisladiskar
NAXOS
Umboð á islandl: Japis
Frederyk Chopin.
Langútbreiddasta
smáauglýsingablaðið
Fréttir__________________
Snjóf lóð og ófærð
M)ög slæmt veður var á norðan-
verðum Vestfjörðum í gærkvöld og
nótt. Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu á ísafirði þurfti aö aöstoða far-
þega í 4 bfium sem sátu fastir í
Kirkjubólshhð laust eftir klukkan 20
í gærkvöld. Þá lokaðist Óshhð rúm-
lega klukkustundu seinna þegar
siyóflóö féll á veginn. Loks var lög-
reglu tilkynnt um snjóflóð sem féll
um hálfan kfiómetra innan við bæ-
inn Botn í Súgandafirði. Lokaði flóð-
ið veginum að göngunum og þurfti
fólk sem ók veginn í gærkvöld að
snúa við.
Að sögn lögreglu var ekki snjó-
flóðahætta í byggð á ísafirði né
Hnífsdal á áttunda tímanum í morg-
un en tfi stóð að kanna það betur í
birtingu. Þó var tahð óhklegt að ein-
hver hús yrðu rýmd þar sem snjóalög
þóttuhagstæðígær. -pp
Hringdu núna
- síminn er 563-2700
AUGLÝSINGAR
Opið: Virka daga kl. 9 - 22, laugardaga kl. 9 - 14,
sunnudaga kl. 16 - 22.
Athugið! Smáauglýsingar í helgarblað DV verða
að berast fyrir kl. 17 á föstudögum
Kópavogur: '
Eldur í söluturni
Eldur kom upp í sölutumi við
Þinghólsbraut eldsnemma í morgun.
Urðu miklar skemmdir á húsnæði
og vörulager sölutumsins sem er á
jarðhæð fjölbýlishúss. Fljótlega gekk
að ráða niðurlögum eldsins og vom
íbúar í húsinu aldrei í verulegri
hættu og uröu ekki skemmdir á íbúö-
um. Hins vegar þurfti að reykræsta
nærhggjandi fyrirtæki.
Aö sögn lögreglu er bruninn í rann-
sókn en ekki virðist hafa verið brot-
ist inn og við fyrstu sýn virðist ekki
umíkveikjuaðræða. -pp