Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1995, Side 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1995
Fréttir___________________________________________________________
Norðmenn æfir vegna fyrirætlana íslendinga í síldarsmugunni:
Virðast ætla að haf a
forystu í rányrkju
- segir Audun Marok, formaður félags útgerðarmanna í Álasundi
Gísli Kristjánssan, DV, Ósló:
„Það er ótrúleg skammsýni og bara
heimska ef íslendingar ætla sér að
senda flota í síldarsmuguna til að
moka upp síld þar. ímynda menn sér
að þeir muni sitja einir að þessum
afla? Það munu hópast þangað skip
frá Evrópusambandinu og henti-
fánaskip úr öllum áttum og veiða
stofninn upp á skömmum tíma. Hver
verður þá gróðinn?" spyr Audun
Marok, formaður útgerðarmanna í
Álasundi, vegna fréttar DV í gær um
aö íslenskar útgerðir undirbúi að
senda fjölda skipa í Síldarsmuguna.
Audun sagði við DV að sér virtist
sem íslendingar ætluðu sér að ná
forystu meðal þeirra sem stunda rá-
nyrkju í höfunum. Þeir færu á undan
flotum annarra ríkja þegar aflavon
væri á alþjóðlegum svæðum.
„Við höfum um árabil reynt að
vernda síldarstofninn og byggja
hann upp. Fiskifræðingar heimila
okkur að taka aðeins um 5 prósent
úr stofninum á ári og nú er svo kom-
ið að síldin er tilbúin að leggja upp
í sína hefðbundnu göngu út á hafið.
Það er hægt að eyðileggja þennan
stofn á skömmum tíma og við ótt-
umst að það gerist nú,“ segir hann.
í allan vetur hefur síld mokveiðst
á miðunum viö Álasund og land-
burður hefur verið þar og í höfnum
í nágrenninu. Síldin er byijuð að
hrygna og er reiknaö með aö hún
haldi á hafið næstu daga. Norsk-
íslenski síldarstofninn ef nú tahnn
vera 2,5 milljónir tonna.
„Þetta er uppátæki sem á eftir að
koma íslendingum í koll. Ef þeir
fengjust til að bíða þar til síldin geng-
ur inn í íslenska lögsögu og hefðu
stjórn á veiöunum gæfi sfldin marg-
faldan arð um ókomin ár. Nú virðast
þeir hugsa um það eitt að drepa alla
sfldina sem allra fyrst,“ segir Audun.
Síldarsmugan:
Lykilatriði að búa
til veiðireynslu
- segir Lárus Grímsson
„Það mikill áhugi á sfldarsmug-
unni og það er um að gera aö moka
þarna upp einhverjum tonnum áður
en við fórum að semja við Norð-
mennina. Nú er lykflatriði að búa
þarna til veiðireynslu," segir Lárus
Grímsson, skipstjóri á loðnuskipinu
.Júpíter sem hyggst halda til veiða í
sfldarsmugunni á næstu vikum.
Lárus segir að menn bindi miklar
vonir við þessar veiðar og að þetta
geti orðið loðnuflotanum mikil lyfti-
stöng. „Viö viljum ná höndum yfir
þetta. Þessi stofn er auðvitað eign
okkar að hálfu og þetta getur orðið
þessum loðnuskipum mikil lyfti-
stöng. Menn geta jafnvel farið að
huga að löngu tímabærri endumýj-
un á þessum flota. Þetta er hið besta
mál,“ segir Lárus.
Jón B. Jónasson, skrifstofustjóri
hjá sjávarútvegsráðuneytinu, segir
ráðuneytið fagna því að skip beri sig
eftir síld á þessum slóðum. Hann
segir að það muni gera samninga við
Norðmenn auðveldari. Hann segir
fjögur ríki eiga tflkafl tfl þessa stofns,
Island, Noreg, Færeyjar og Rússland.
„Meðan ekki er samið er æskilegt
að menn veiði þama. Það er þó alveg
ljóst að það ber nauðsyn til þess að
samið verði um þessar veiðar. Við
emm eitt fjögurra ríkja sem eiga tfl-
kall til norsk-íslenska síldarstofns-
ins,“ segir Jón.
-rt
Sáttafundi slitið á ísafirði:
400 manns í verkf all?
„Mér sýnist að það sé ekkert annað
en vinnustöðvun sem tekur við á
morgun. Það slitnaði upp úr samn-
ingaviðræðum aðfaranótt sunnu-
dags. Geir Gunnarsson aðstoðar-
sáttasemjari sleit fundi þegar sýnt
var að hvorki gekk né rak. Hann er
farinn tfl Reykjavíkur og kvaddi okk-
ur með þeim orðum að hann myndi
ekki kalla saman fund fyrir en eftir
2 vikur lögum samkvæmt, nema
annar hvor deiluaðflinn óskaði eftir
fundi og hefði eitthvað nýtt fram að
færa,“ sagði Pétur Sigurðsson, form-
aður Verkalýðsfélagsins Baldurs á
ísafirði og Alþýðusambands Vest-
fjarða.
Hann sagði að í fiskvinnslunni á
ísafirði störfuöu fast að 400 manns
sem myndu leggja niður vinnu á
miðvikudagskvöld. Mjög mikiö væri
að gera um þessar mundir í fisk-
vinnslunni á Isafirði.
„Það sem strandar á í samninga-
viöræöunum er kauptryggingará-
kvæöið. Það gengur út á það að í
kjarasamningum ASÍ og VSÍ er gert
ráð fyrir að fólk fái kauptryggingu í
fiskvinnslunni eftir 9 mánaða starf.
Við krefjumst þess að þetta verði
stytt niður í 2 mánuði. Það mega
vinnuveitendur hér á ísafirði ekki
samþykkja. Vinnuveitendasam-
bandið bannar það,“ sagði Pétur.
Bíl var bakkað á brunahana við Vesturgötu i gærdag, með þeim afleiðing-
um að hann brotnaði og vatnið flæddi úr honum. Starfsmenn Vatnsveitunn-
ar komu á staðinn og björguðu málunum. DV-mynd Sveinn
Stuttarfréttir dv
Ofhladnirbátar
Sigiingamálastofiiun telur aö
smábátar hafi sokkiö í aflahrot-
unni að undanfömu vegna þess
að þeir hafi veriö ofhlaðnir. Sjón-
varpið greindi frá þessu.
Veðurstofan gerir ráð fyrir
hlýju veðri og sunnanátt á kosn-
ingadaginn, 8. apríl.
Framsóknisókn
Framsóknarflokkurinn hefur
bætt viö sig fylgi en Sjálfstæðis-
flokkur tapað fylgi skv. nýrri
skoðanakönnun sem Gallupgerði
fyrir RÚV. Alþýðuflokkur fengi
10,8%, Framsóknarflokkur 23%,
Sjálfstæðisflokkur 33%, Alþýðu-
bandalag 13,2%, Þjóðvaki 12,1%
og Kvennalistinn 5,5%.
Aðalbækistöð þeirra Ara
Trausta Guðmundssonar og
Ragnars Th. Sigurðssonar í ieið-
angri þeirra á noröurpólinn
sprakkí lott upp á sunnudaginn.
Engan sakaði en búnaður eyði-
lagðist.
Drífa Sigfúsdóttir, forseti bæj-
arstjómar í nafnlausa sveitarfé-
laginu á Suðumesjum, \áll ræða
þaö innan bæjarstjórnar hvort
fresta eigi nafnakosningunni sem
fram á aö fara samhliða alþingis-
; kosningum. Stöð tvö greindi frá.
fökiðfáiskuldimar
Nefnd á vegum landbúnaðar-
ráðherra vili að Stóðhestastöö
ríkisíns i Gunnarsholti verði af-
hent bændum til eignar eða aö
bændasamtökin kaupihana áum
5 milljónir. Skv. RÚV vill nefndin
að ríkið yfirtaki skuldirnar á
stöðinni, alls 23 milijónir.
Lóan er komin og hefur meðal
annars sést víða á höfuðborgar-
svæðinu. Skv. Mbl. er koma fugl-
ana til landsins með fyrra failinu
Horfur eru á að Gunnarstindi,
sameignarfyrirtæki Stöðfirðinga
og Breiðdælinga, verði skipt og
Breiðdalshlutinn sameinaöur
Búlandstindi á Djúpavogi. RÚV
greindi frá þessu.
Vifja rýnvi verkf allsrétt
Samband íslenskra banka-
manna vill að verkfallsréttinum
verði bréýtt þannig að banka-
menn geti farið í tímabundin
verkföli og samúðarverkföll.
Tíminn greindi frá þessu.
SkóliáGufuskálum?
Snæfellsbær hefur hug á að
starfrækja björgunarskóla að
Gufuskálum. Mbl. greindi frá.
-kaa
Réttarhöld 1 gær yfir manni sem oft hefur komið við sögu fíkniefnamála:
Með kíló af hassi á sér en neitar samt
- hefur ávallt neitað sakargiftum - líka þegar hann var tekinn með efni innvortis
Karlmaður á fertugsaldri, sem
meðal annars er ákærður fyrir að
hafa haft 1 vörslum sínum eitt kfló
af hassi í maí 1994 og fleiri fíkniefna-
mál, neitaði öllum sakargiftum í rétt-
arhaldi í gær þar sem fjöldi lögreglu-
manna bar vitni gegn honum.
Ákærði hefur komið við sögu mikfls
fiölda fíkniefnamála en hefur nánast
alltaf neitað öllum sakargiftum.
Þegar maðurinn kom til landsins frá
Amsterdam síðastliðið vor var honum
m.a. skipað að berhátta sig þegar leitað
var að fikniefnum á honum. Ekkert
fannst en daginn eftir var hann stöðv-
aður þar sem hann var á ferð um
Reykjavík í bifreið. Þegar máhð var
kannaö komu fíkniefni í ljós innan á
honum, um eitt kfló af hassi, en þeim
hafði verið komið fyrir í stoðbelti fyrir
bakveika sem maðurinn var í.
Við yfirheyrslur kvaöst maðurinn
ekkert kannast við fíkniefnin. Hann
hefði fengið beltið hjá fólki í Amst-
erdam vegna bakvefld sinnar. Fyrir
dómi í gær vildi maðurinn hins vegar
ekki skýra frá því hvar hann hefði
fengið beltið og neitaði sakargiftum.
ídómsalnum
Óttar Sveinsson
Maðurinn hefur einnig verið
ákæröur fyrir aö hafa ræktað 21
kannabisplöntu að Felh í Biskups-
tungum. Auk þess er honum gefið
að sök að hafa haft í vörslum sínum
hass og amfetamín í einhveijum
mæh í nokkur skipti. Þessu hefur
maöurinn einnig neitað að hafa átt
sök á eins og öðru.
Neitanir sakbomingsins eru lög-
reglu- og dómsyfirvöldum orðnar vel
kunnar enda hefur hann nær ávallt
neitað því sem á hann hefur verið
borið. Eitt sinn fundust á annað
hundrað grömm af amfetamíni inn-
vortis á manninum. Þegar maðurinn
var yfirheyrður á fyrri stigum þess
máls neitaði hann aö hafa átt sök á
því að efnin komust í hkama hans.
Maðurinn sagði í samtali við blaða-
mann DV við réttarhöldin í gær að
lögregla hefði ofsótt hann á síðasta
ári þegar í ijós kom að lögreglustjór-
inn í Reykjavík var búsettur í næsta
húsi við hann. Réttarhöldin stóðu
yfir síödegis í gær og kom mikfll
fiöldi lögreglumanna til að staðfesta
skýrslur sínar og bera vitni fyrir
dóminum. Gera má ráð fyrir að dóm-
ur gangi á næstu vikum.