Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1995, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1995
Neytendur
Verðsamanburður Samkeppnisstofnunar:
Landbúnaðarvörur mun
dýrari hér en í Danmörku
- nýlenduvörur oftar ódýrari 1 Reykjavík en Ósló
Smásöluverð á flestum landbúnað-
arvörum er mun lægra í stórverslun-
um í Kaupmannahöfn en í Reykja-
vík. Fuglakjöt er 64 prósentum ódýr-
ara, egg 52 prósentum ódýrari og
unnar kjötvörur 46 prósentum ódýr-
ari. Þetta kemur fram í verðsaman-
burði sem Samkeppnisstofnun og
Neytendasamtökin stóðu nýverið
fyrir í Kaupmannahöfn, Ósló og
Reykjavík.
Smásöluverð var kannaö í nokkr-
um matvöruverslunum í hverri borg.
Valdar voru svokallaðar afsláttar-
verslanir, sambærilegar við Bónus,
og stórmarkað. Annars vegar var
kannað verð á hefðbundnum land-
búnaðarvörum, 83 vörutegundum í
Kaupmannahöfn og 39 í Ósló og hins
vegar útvöldum nýlenduvörum,
snyrtivörum og hreinlætisvörum, alls
356 vörumerkjum í Kaupmannahöfn
og 370 í Ósló. I kjölfarið var hæsta og
lægsta verð borið saman í annai-s
vegar Reykjavík og Ósló og hins vegar
Reykjavík og Kaupmannahöfn.
Hvað landbúnaðarvörur varðar
leiðir verðsamanburðurinn í ljós að
af þeim 83 vörutegundum sem voru
kannaðar í Kaupmannahöfn reynd-
ust 58 vera dýrari í Reykjavík. Af
þeim 39 vörutegundum sem voru
kannaðar í Ósló reyndust 17 vera
ódýrari í Reykjvík. Fram kemur í
könnun Samkeppnisstofnunar að
mun minni verðmunur er á landbún-
aðarvörum í Ósló og íslandi heldur
en Kaupmannahöfn og Reykjavík.
Hvað varðar nýlenduvörur, hrein-
lætisvörur og snyrtivörur leiðir
verðsamanburðurinn í ljós að lítill
munur er á smásöluverði í Reykja-
vík, Ósló og Kaupmannahöfn.
Af þeim 356 vörutegundum sem
voru kannaðar í Kaupmannahöfn
reyndust 185 vera ódýrastar í
Reykjavík. Ef htið er á einstaka vöru-
flokka þá reyndist sykur og mjöl í 9
tilvikum af 10 vera ódýrast í Reykja-
vík, grjón í 5 tilvikum af 6, pastavör-
ur í 11 tilvikum af 12, súpur og sósur
í 9 tilfellum af 11, barnamatur í 6 til-
fellumaf 7 og rakstursvörur í 15 til-
fellum af 17.
Af þeim 370 vörutegundum sem
voru kannaðar í Ósló reyndust 243
ódýrastar í Reykjavík. Lægsta verð
á sykri, mjöh, gijónum, sósum, sinn-
epi og barnamat reyndist alltaf í
Reykjavík. í 23 tilfellum af 26 reynd-
ist lægsta verðið á pastavörum í
Reykjavík og í 73 tilfellum af 90 átti
það sama við um pakkasúpur og sós-
ur. -kaa
rffiKEh-
Veiðsamanbuiður á milli landa
S ±7 p - könnun Samkeppnisstofnunar í Kaupmannahöfn, Ósló og Reykjavík -
Kaupmannahöfn - Reykjavík
- Reykjavík = 100 -
Ýmsar vörur
Grænmeti, frosið
Kartöflur o. fl.
Salöt
Smjör, smjörlíki
Ostar
Mjólk, jógúrt
Fiskur, fiskv.
Unnar kjötvörur
Fuglakjöt
Lambakjöt
Nautakjöt
Svínakjöt
Ódýrustu vörunum í Reykjavík er gefið gildið 100
og verðsamanburður gerður eftir vöruflokkum í
Reykjavík og Kaupmannahöfn. Miöaö er við
lægsta verð á viðkomandi vöru í hvorri borg.
Kaupmannahöfn - Reykjavík
- samtals 356 vörutegundir
■ Kaupmannahöfn gg Reykjavík
Ódýrast Dýrast
Hlutfall af vörum sem eru Hlutfall af vörum sem eru
ódýrastar í verösamanburði dýrastar í verösamanburði
Ósló - Reykjavík
- Reykjavík = ÍOO -
Ymsar vörur
Salöt
Smjör, smjörlíki
Egg
Ostar
Mjólk, jógúrt
Fiskur, fiskv.
Unnar kjötvörur
Fuglakjöt I' «
Lambakjöt
Nautakjöt
Svínakjöt
Ódýrustu vörunum í Reykjavík er gefið gildiö 100
og verösamanburöur geröur eftir vöruflokkum I
Reykjavík og Ósló. Miðaö er við
lægsta verð á viðkomandi vöru í hvorri borg.
Ósló - Reykjavík
- samtals 370 vörutegundir
gg Ósló
Ódýrast
1 Reykjavík
Dýrast
Hlutfall af vörum sem eru Hlutfall af vörum sem eru
ódýrastar í verösamanburði dýrastar í verösamanburði
íslenskar gúrkur lækka
og framboð eykst
„Gúrkur lækkuðu um 35% í heild-
sölu í morgun svo það er líklegt að
þaö skili sér fljótlega til neytenda,"
sagði Kolbeinn Ágústsson hjá Sölufé-
lagi garðyrkjumanna í samtah við
DV í gær. Lítið hefur verið til af ís-
lensku gúrkunum undanfarið og hef-
ur verðið verið í kringum 600 kr. á
kílóið. Nú fer framboðið að sögn
Kolbeins að aukast og verðið að
lækka og verða þá eingöngu íslensk-
ar gúrkur á markaðinum.
I lauslegri verðkönnun okkar í
gærmorgun kostaði kílóið af íslensku
gúrkunum 299 kr. í Hagkaupi, 329
krónur í Fjaröarkaupum og 259 kr. í
Bónusi.
Umbúðimar eru sagðar varð-
velta gæðin fullkomlega.
Katla hefur nú sett á markað
29 tegundir af kryddi í loftþéttum
umbúðum sem ætluð eru til áfyll-
ingar á kryddstauka. Af þeim eru
22 almenn krydd til daglegra nota
en 7 ný sem ekki hafa fengist í
matvöruverslunum áður, t.d.
popp-, kartöflu- og reykkrydd.
í fréttatilkynningu frá fyrir-
tækinu segir að spamaður fehst
í þvi að henda ekki tómu stauk-
unum og fullyrt er að Kötlu-
kryddið sé selt á iægra verði en
áður hafi sést hér á landi.
Staðgreiösluverð nýrra upp-
þvottavéla er á bilinu 37.900-
99.700 krónur ef marka má mark-
aðskönnun sem birt er í Neyt-
endablaðinu. Ódýrust var Morris
PLS604, 6 manna grisk upp-
þvottavél frá Kili, en dýrust var
Miele G 579 SCI sem er 12 manna
þýsk vél frá Eirvík.
Könnuð voru 48 vörumerki hjá
18 seljendum þar sem m.a. er tek-
iö tillit til stærðar, afkastagetu,
fjolda þvottakerfa, hitastigs, ör-
yggis, þvottatíma ogorkunotkun-
ar í kWh. Þvottatimiim reyndist
vera á bihnu 22 mín. til 105 mín.
og orkunotkunin frá 0,7 kWh til
2,3 kWh.
í Neytendablaðinu er einnig
minnst á þau atriði sem hafa ber
í huga við kaup á uppþvottavéi-
um. Þar ber fyrst að nefna hvem-
ig uppþvottavél þú þarft, þ.e.
hvar þú vilt hafa hana og hversu
mikið pláss þú hefur.
Einnig ber að athuga afköst
vélarinnar, hvaða kerfi hún býð-
ur upp á, hvort vatniö sem hún
tekur inn á sig sé hart, hvernig
raðast I véhna (þ.e. hvort hún
hentar leirtauinu þínu), hvað
hún kostar og loks hvemig
ábyrgðar- og viðhaldsþjónstu er
háttað og hverjir skilmálar trygg-
ingafélaganna eru.
O
M
(D
0.
Œ
<
>
<
h
X
U1
h
Lambasmásteik. Handa fjórum
800 g beinlaust lambakjöt, t.d. af
framparti eða skanka
2 laukar, saxaðir gróft
2 gulrætur, skornar í sneiðar
2-3 msk olía
salt og pipar úr kvörn
1 soðteningur, gjarnan grænmetis
1- 2 lárviðarlauf
1 msk tómatþykkni
2- 3 msk hveiti
1 dl kalt vatn
1/2 tsk timjan
1 msk sojasósa
Laukurinn er steiktur létt í olíu ásamt gulrótunum ef þær eru notaðar.
Grænmetið er síðan geymt. Kjötið er snyrt, skorið ( bita og steikt í olíu þar til
það er allt vel brúnað. Vatni er þá hellt á svo að næstum fljóti yfir, og síðan
bætt við salti og þipar, soðteningi, lárviðariaufi og tómatþykkni. Kjötið er látið
sjóða í um 30 mínútur. Þá er grænmetið sett út í og soðið áfram í um 20
mínútur. Kjötið á að verða vel meyrt. Soðið má þykkja örlítið með hveitijafn-
ingi sem hristur er saman úr hveiti og köldu vatni. Hræra þarf vel í á meðan.
Þá er bætt við timjani og sojasósu og sósan látin sjóða í 5 mínútur. Ef til vill
þarf þá að bæta við salti eða pipar og þeir sem vilja geta dekkt sósuna meira
með ögn af sósulit. Meö réttinum er gott að hafa kartöflustöppu.