Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1995, Síða 10
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1995
Ilittuirist
á skiifstofunni
í dag, á morgun og á fimmtudag verða
frambjóðendur sjálfstæðismanna með
viðtalstíma á hverfaskrifstofunum milli
kl. 18-19 sem hér segir.
Við hl’kjartorg(Ilafiiarstrxti 20, 2. hæðj
Sími: 27138
27112
27132
GeirH. Iíaarde & Hanna Bima Kristjánsdóttir
Valhöll
Sími:
588-7052
588-7046
588-7047
Lára Margrét Ragnarsdóttir & Ari Edwald
Suðurlcindsbrcmt 12
Sími:
588-6619
588-6618
Sólveig Pétursdóttir & Kristján Guðmundsson
Hraunbær 102b
Sími:
587-4240
Magnús L. Sveinsson & Ásta Möller
Álfabakki 14a, Mjódd
Sími:
587-5562
587-5563
587-5564
Bjöm Bjamason & PéturBlöndal
GuðmundurHallvarðsson & Katrín Fjeldsted
Hverfaskrifstofurnar
eru opnar virka daga frá
kl. 16:00 tilkl. 21:00
og um helgar frá
kl. 13:00 tilkl. 17:00.
áf)
BETRA
tSLAND
Fréttir
Samið um skuldir Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar:
Ríkið greiðir
180 milljónir
Samkomulag hefur tekist milli eig-
enda Hitaveitu Akraness og Borgar-
fjaröar, HAB, og fjármálaráðherra
um stofnun nýs fyrirtækis um að-
veituæðina frá Deildartunguhver að
dreifiveitunum á Hvanneyri, Akra-
nesi og í Borgarnesi. Rafmagnsveitur
ríkisins, Rarik, verða eignaraðili að
nýja fyrirtækinu og leggur til 180
milljónir í púkkið meö yfirtöku lána
og eignast 20 prósenta eignarhlut á
móti 450 milljóna króna eignarhlut
Akraness, Borgarness og Andakíls-
hrepps í Andakílsárvirkjun og 230
milljóna króna framlagi frá Akra-
nesi. Rarik eignast þannig um 15 pró-
senta hlut í virkjuninni.
Samkvæmt nýja samkomulaginu
verða hitaveitan og rafveitan á Akra-
nesi sameinaðar og í Borgarnesi
verður opnað fyrir þann kost að Ra-
rik kaupi Rafveitu Borgarness. Búist
er við að nýja fyrirtækið taki til
starfa um áramót. Heita vatnið lækki
þá um 10 prósent og um 5 prósent
að tveimur árum liðnum.
„Ég tel að þetta sé mjög vel ásætt-
anleg niðurstaða því að með þessu
tekst að lækka orkuverðið og koma
á skipulagsbreytingum í orkugeiran-
um sem er til mikilla hagsbóta," seg-
ir Sturla Böðvarsson alþingismaður.
„Þó að þetta sé ekki algott er þetta
allavega skref í rétta átt. Ég hlýt að
gleðjast yfir því að orkuverð til neyt-
enda lækkar,“ segir Ingibjörg Pálma-
dóttir alþingismaður.
-GHS
Skipverjar á Baldri voru í óða önn að gera klárt og eru hér við „saumaskap" á dekkinu.
DV-mynd gk
Ólafsflörður:
Baldur í f yrstu veiðif erðina
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Togannn Baldur, sem bæst hefur
í flota Ólafsfirðinga, er farinn í sína
fyrstu veiðiferð fyrir nýja eigendur
sem er fyrirtækið Dalberg. og þeirra nýju. Það heitir Dalberg
Baldur hefur verið gerður út frá hf. og hefur aðsetur á Dalvík en félag-
Dalvík en til að geta ílutt kvótann ið er nær alfariö í eigu Sæbergs hf.
með skipinu til Ólafsfjarðar var á Ólafsfirði sem gerir skipið út.
stofnað nýtt hlutafélag fyrri eigenda
Sjávarútvegssýning 1 Skotlandi:
Glæsilegur árangur
hjá Sæplastsmönnum
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Árangur okkar á þessari sýningu
fór fram úr björtustu vonum okkar
og það er ljóst að sala Sæplasts á
þetta markaössvæði fer langt fram
úr þeim söluáætlunum sem gerðar
voru fyrir þetta ár,“ segir Kristján
Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri
Sæplasts hf. á Dalvík, en fyrirtækið
náði geysigóðum árangri á sölusýn-
ingu sem haldin var í Skotlandi.
Sýningin var haldin í Aberdeen og
sóttu hana m.a. sjómenn og fisk-
vinnslufólk frá Skotlandi, Irlandi,
Englandi, Hjaltlandi og Orkneyjum.
Fyrirtækin Sæplast hf., J. Hinriks-
son og Marel voru með sýningarbása
á sýningunni og Hampiðjan var þar
meö fidltrúa sinn.
Á sýningunni var gengið frá sölu-
samningum milli Sæplasts og fimm
aðila í fiskvinnslu og útgerð um sölu
á tæplega eitt þúsund fiskikörum á
þessu ári. Þá voru á sýningunni lögð
drög að sölusamningum við fleiri
aðila um sölu á vel á annað þúsund
körum.
„Það er ekki oft sem slíkur árangur
næst á sýningu því að í flestum tilfell-
um eru sýningar notaðar til að
treysta viðskiptasambönd og koma á
nýjum,“ segir Kristján Aðalsteinsson
framkvæmdastjóri.