Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1995, Side 32
Frjálst,óháð dagblað
MTT#
alltaf á
Miövikudögxun
Hef ur keypt kvóta
lyrir tugi milljóna
Félag eggjaframleiöenda hefur
keypt kvóta af eggjaframleiöendum
fyrir tugi milljóna til að halda
framleiðslunni niðri og verðlaginu
uppi.
Kvótakerfinu var komiö á fót 1988
að ósk ífamleiðenda. Einungis þeir
framleiðendur sem hafa kvóta fá
hluta kjarnfóðursgjalds. Endur-
greiðslan er um 11 krónur á kdóið.
Frá því kvótakerfiö var innleitt
hefur eggjaframleiðendum fækkað
úr 70 í 30. Um 97 prósent framleiðsl-
umiar í dag er í höndum um 20
eggjabænda, þar af um helmingur-
inn hjá einungis 2 framleiðendum.
Alls voru framleidd og seld um
2.250 tonn af eggjum á síöasta ári.
Að sögn Bjarna Stefáns Konráðs-
sonar, framkvæmdastjóra Félags
eggjaframleiðenda, er það trúnað-
armál milli félagsins og viðkom-
andi bænda á hvað framleiðsluk-
vótinn hefur veriö keyptur. Að-
spurður staðfesti Bjarni hins vegar
að á síðasta ári hefði félagið keypt
100 tonna kvóta af Finnhoga Vik-
ari, Hjalla í Ölvusi, og 43 tonna
kvóta af Sigurgeir Jóhannssyni,
Minni-Hlíðarbúð við Bolungarvík.
Samkvæmt heimildum DV fékk
Finnbogi vel á annan tug milljóna
fyrir sinn kvóta og Sigurgeir hlut-
fallslega jafnmíkið. Á árunum 1992
og 1993 keypti félagið að auki 60
tonna kvóta af öðrum aðilum. Sam-
kvæmt þessu má gera ráð fyrir að
Félag eggjaframleiðenda hafi variö
á flóröa tug mílljóna til uppkaupa
á ffamleiðslurétti eggjabænda á
einungis þremur árum.
Aö sögn Bjarna Stefáns eru ekki
fyrirhuguð nein kvótakaup á þessu
ári. Aðspuröur um fjármögmmina
segir hann framleiðendur hafa
samþykkt og fengið fyrir því heim-
ild hjá landbúnaðarráðherra að
láta endurgreiðslur á kjarnfóður-
gjaldinu renna til félagsins í þetta
verkefni.
Heildsöluverð á eggjum hér á
landí er nú um 291 króna kilóið. í
nýrri verðlagskönnun Samkeppn-
isstofhunar, sem gerð var í lok síð-
asta árs, kemur fram að smásölu-
verð á eggjum er 52 prósent hærra
hér á landi en i Danmörku og 25
prósent hærra en í Noregi. Meðan
lægsta smásöluverð á eggjum var
345 krónur kílóið á íslandi var
verðið 165 krónur í Danmörku og
259 krónur í Noregi.
-kaa
Umhverfisráöuneytið:
Hrossin
bönnuð
Nemendur Verslunarskóla Islands voru ánægöir að mæta til starfa í skólanum i gær eftir verkfall kennara sem
leystist meö samningum um helgina. Hér eru ívar Sigurjónsson, Arnar Ásmundsson, Guómundur Guðmundsson
og Jóhann Wathne að kynna sér námsbækurriar á nýjan leik. DV-mynd ÞÖK
- í Fremri-Langey
Umhverfisráðuneytið hefur stað-
fest úrskurð dýraverndarráðs um að
banna útigöngu hrossa að vetrarlagi
í Fremri-Langey á Breiöafirði í kjöl-
far kæru sýslumanns Dalabyggðar á
hendur eigendum hrossanna.
Eggert Eggertsson eigandi sagði í
samtali við DV í morgun að hann
hygðist hætta hestabúskap í eynni -
hrossin verði þó sennilega ekki flutt
upp á land fyrr en fyrir næsta vetur
enda séu fylfullar hryssur í eynni.
Marteinn Valdimarsson, sýslu-
maður í Dalabyggö, sagði við DV að
hægt væri að hafa skilning á slæm-
um aðstæðum á næstu vikum en
sagði ljóst að eigendur yrðu að fóðra
hrossin.
„Það segir ekkert um slíkt í úr-
skurði umhverfisráðuneytisins,“
sagði Eggert í morgun, aðspurður
um fóðrunina og sagði slíkt ekki
þurfa. Hross hafi þrifist í eynni í ára-
tugi og séu ættbókarfærð aftur til
ársins 1895 í Eremri-Langey.
Eggert kvaðst jafnframt eiga eftir
að fá svör við kvörtun sinni varðandi
það álitamál hvort hreppsnefnd hefði
brotiöstjómsýslulög. -Ótt
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1995.
LOKI
Það hlýtur að vera þægilegt
fyrir lögguna á Ólafsfirði að
hafa skúrkinn alltaf á hreinu!
,Stjómarsáttmállnn“:
seméghef
ekki kynnst
- segir Haíldór
„Ég hef sagt að ríkisstjórn verður
ekki mynduð fyrir kosningar og alls
ekki í fjölmiðlum. Þá eru það vinnu-
brögð sem ég hef ekki kynnst fyrr
að fá sent skjal sem trúnaðarmál en
þurfa svo að sjá það í sjónvarpi um
kvöldiö. En ég mun kynna mér þetta
plagg nákvæmlega," sagöi Halldór
Ásgrímsson, formaður Framsóknar-
flokksins, um drög Alþýðubanda-
lagsins að stefnuskrá vinstristjórnar.
„Ég tel viðbrögð þeirra flokksfor-
ingja sem fengju drögin vera mjög
—iákvæð. Skjalið er samnefnari fyrir
* þær áherslur sem flokkamir hafa
verið að setja fram. Þá sé ég á harka-
legum og ójafnvægislegum viðbrögð-
um Davíðs Oddssonar að hann
skynjar það líka að vel hefur til tek-
ist,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson,
formaður Alþýðubandalagsins.
Að sögn Jóhönnu Sigurðardóttur
virðast tillögurnar fljótt á litið geta
fallið saman við þær tillögur sem
Þjóðvaki lagði fram fyrir mánuði um
stjómarmyndun félagshyggjuafl-
anna. Trúverðugleikann skorti hins
mægar þar sem Alþýðubandalagiö
hafi ekki lýst því afdráttarlaust yfir
að þaö útiloki Sjálfstæðisflokkinn.
Þá valdi það vonbrigðum að Fram-
sóknarflokkurinn virðist vera opinn
í báða enda hvað þetta varðar.
Kristín Ástgeirsdóttir, þingmaður
Kvennalistans, segir plaggið frá Ólafi
Ragnari vera athyghsvert. í þvi sé
tekið undir meginbaráttumál
Kvennalistans; að leiðrétta kjör
kvenna. „Þó þetta séu sérkennileg
vinnubrögð þá munum við skoða
þetta mjög alvarlega," segir Kristín.
Ólafsíjörður:
öil innbrotin
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri:
Tæplega tvítugur maður á Ólafs-
firði hefur fjórum sinnum verið
handtekinn vegna jafnmargra inn-
brota í bænum það sem af er árinu
en það eru öll innbrotin sem þar
hafa verið framin.
Maðurinn hefur tvívegis brotist
inn á hótelið, einu sinni í aðstöðu
skíðamanna við lyftuna ofan bæjar-
ins og einu sinni fór hann inn í fyrir-
tæki í bænum. Yfirvöld á Ólafsfirði,
sem DV ræddi við, sögðu að sannar-
Jega væri kominn timi til þess að
'maðurinn væri tekinn úr umferð og
fengi að afplána sína refsingu.
Nýbýlavegi 28
brather
tölvu
límmiða
prentari
- sítni 554-4443
Veðrið á morgun:
Hiti
Mstig
Norðvestan til á landinu verður
austan stinningskaldi eða all-
hvasst og slydda eða rigning. í
öðrum landshlutum verður suö-
austlæg átt, víða kaldi. Norðaust-
anlands veröur skýjað að mestu
en skúrir sunnan tíl á landinu.
Hití verður á bilinu 1-5 stíg.
Veðrið 1 dag er á bls. 36
F R É T T A S K 0 T I Ð
562*2525
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið i hverri viku greið-
ast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIÐSLA OG
ÁSKRIFT ER OPIN;
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 563 2777
KL. 6-8 LAUGARDAGS*OG MANUDAGSMDRGNA